Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988.
17
Lesendur
Fá brýn og aðkallandi mál fremur lausn utan þings en innan? - Það er skoðun bréfritara.
Þinglausnir sem allra fýrst:
Enginn vinnufríður fyrr
Björgvin Guðmundsson skrifar:
Nú eru þinglausnir skammt undan
eftir því sem fréttir herma. Það hefði
þó mátt gerast mun fyrr að þingið
færi heim því fyrr er ekki friður fyr-
ir ríkistjóm þessa lands (og þá alveg
sama hvaða ríkisstjórn situr) að
sinna neinum málum.
Það hefur verið gagnrýnt af sum-
um þingmönnum, einkum þing-
mönnum stjórnarandstööunnar, að
þinglausnir skuli vera einmitt núna
og sagt að þetta sé gert til að stjórnln
fái frið til að setja bráöabirðglög um
eitt og annað sem rætt hefur verið
um til að koma einhverjum skikk á
í efnahags- og atvinnumálum.
En er það ekki staðreynd að ílest
brýn og aðkallandi mál, sem rædd
eru á þinginu, fá ekki lausn þar, held-
ur verður að setja um þau bráða-
birgðalög milli þinga svo að þau nái
fram aö ganga? - Mér hefur fundist
sem flest mál, ekki síst mál sem
snerta vinnudeilur og kjaramál,
verði að útkljá annars staðar en á
þingi. Síðan eru þau bara borin und-
ir atkvæði þegar þing kemur saman
og viðkomandi lög staðfest af meiri-
hlutanum.
Dæmigert mál á þingi nú sem hefur
þvælst þar í allan vetur er bjórfrum-
varpið og spá mín er sú að ekki verði
þaö útkljáð á þessu þingi heldur. Það
mál eitt er nú orðið aö fullkomnu
hneyskli fyrir Alþingi. - Menn eru
enn að rifja upp þegar það frelsi náð-
ist þó að leyfa öllum, sem frá út-
löndum koma, að hafa með sér áfengt
öl til landsins en einungis vegna þess
að viðkomandi ráðherra (þá Sig-
hvatur Björgvinsson) tók af skarið
og gaf út reglugerö upp á sitt ein-
dæmi - milli þinga auðvitað!
Eins er oft vitnað til miðvikudags-
banns um að veita áfengi á veitinga-
húsum og sem gilti í áraraðir þar til
dómsmálaráðherra (þá Steingrímur
Hermannsson) tók af skariö - milli
þinga - og afnam þessa reglugerð
með einu pennastriki.
Og nú segja sumir þingmenn
stjórnarandstöðunnar; það er verið
að rýma fyrir efnahagsaðgerðum
ríkisstjórnarinnar. Auðvitað þarf að
rýma fyrir þeim. Á Alþingi yrði ekk-
ert komist með shk mál fyrir mál-
þófi og fyrirslætti. Það er því ckki
fjarri lagi að þingið sé þrándur í götu
fyrir efnahagslegum aðgerðum í
þjóðfélaginu.
„Love you“ Ljósvaki
Hrefna hringdi:
Ég hringi til að taka undir með
þeim sem hafa skrifað í lesenda-
dálka, bæði hjá DV og Mbl„ og lá-
tið í ljós söknuð yfir brotthvarfi
útvarpsstöðvarinnar Ljósvakans,
sem miðlaði afar vinsælli tónhst
daglangt og raunar langt fram eftir
kvöldi, stundum nóttu. - Ég vil
ekki að þið birtið þetta frá mér,
nema fyrirsögnin megi vera „Love
you“ Ljósvaki!, því það voru ein-
mitt svona slagorð eða upphrópan-
ir sem maður heyrði svo oft, þegar
þessi útvarpsstöð barst í tal.
Og svo ég leggi nú alvörunni lið,
þá vil ég fullyrða, að Ljósvakinn
var vinsælasta stöðin hjá mjög
stórum hópi hlustenda) þótt ekki
hafi nákvæm skoðanakönnun ver-
ið gerð um þetta. Það vantar svona
útvarpsstöð hér og ég veit að hún
hefur rekstrargrundvöll með réttri
aðferð við öflun auglýsinga og trúi
ekki öðru en einhverjir ungir og
framtakssamir menn, sem vilja
koma til móts við fólk með áhuga
fyrir vinsælli, rólegri tónhst af létt-
ara taginu, eins konar afþreyingar-
tónlist, taki sig nú til og hefji út-
sendingar.
Er t.d. ekki hægt að kaupa eða
leigja þau tæki sem Ljósvakinn eða
Bylgjan notaði við útsendingar
Ljósvakans? Ég spyr nú bara eins
og fávís kona. En hver getur svarað
þessu?
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Tugir tegunda
reiknivéla.
Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37
Þjónustumiðstöð
skrifstofunnar.
eykjavíkur.
bflastæði við Klapparstíg.
•O^j&cum hjóhwi'
&
Hvemig skyldi það vera að flytja hús á
milli bæjarhluta. Við Laugaveg 61 stóð
þartilfyrirnokkrumárum hús Alþýðu-
brauðgerðarinnar. Þegar átti að fjarlægja
húsið keyptu tvær fjölskyldur það og
fluttu á lóð við Framnesveginn. Húsið
stendur nú við svokallað Bráðræðisholt
og heitir Álagrandi nr. 2. Nú erveriðað
leggja lokahönd á viðgerð hússins sem
tekið hefur miklum breytingum bæði inn-
anstokks og utan.
í Lífsstíl á morgun verður rætt við íbúa
hússins. Við fræðumst um það hvernig
staðið er að því að að gera upp gamalt
hús og hvernig er að búa í einu slíku.
í Lífsstíl á morgun verður birt
verðkönnun. Um er að ræða
verðlag á matvöru í Voga- og
Heimahverfi, en þar er verslun
með þeim hætti að annaðhvort
eru búðirstórmarkaðireða
hverfaverslanir af smærri gerð-
inni.
Verðlag er á allan veg í þessum
hverfum þarsem litlu verslanirn-
ar reyna ekki einu sinni að veita
stórmörkuðum samkeppni í verði
heldur þrífast þær oftar en ekki
á óvenjulegum opnunartíma.