Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Page 2
2 LAUGARDAGUR 28. MAÍ .1988. Fréttir Viðbrögð við dómi Hæstaréttar: Réttarstaða bama svMrðilega brotin „Meö þessum dómi er réttarstaöa barna svívirðilega brotin og aug- ljóst er aö rannsókn lögreglu og barnayfirvalda og aögeröir þeirra ná greinilega ekki fram aö ganga. Þetta veldur okkur verulegum áhyggjum." sagði einn stjórnar- manna í Samtökum gegn kynferð- islegu ofbeldi. Hæstiréttur sakfelldi fóður á fimmtugsaldri fyrir aö hafa haft kynmök við dóttur sína í tíu ár. Sannað er að tilvikin voru um tvö á viku. Hæstiréttur dæmdi mann- inn í tveggja og hálfs árs fangelsi. í Sakadómi Reykjavikur var faðir- inn dæmdur í fjögurra ára fang- elsi. Faðirinn var ákærður fyrir að hafa einnig beitt tvö yngri barna sinnakynferðisleguofbeldi. Hæsti- réttur og Sakadómur sýknuðu fóð- urinn af þeim ákærum. I þessu máli er sannað að tilvikin skiptin hundruðum. Stúlkan er mjög illa farin, bæði likamlega og andlega. Þess skal getið að fjöldi brota er ekki lagður saman áður en refsing er ákveðin. Öllum sem rætt var við og þekkja til þessa máls bar saman um að faðirinn hefði gerst sekur um mjög alvarlegt kynferðisafbrot. „Það er alvarlegt mál þegar þeir sem gæta eiga hagsmuna barna eru ekki teknir trúanlegir fyrir rétti. Þetta þýðir í raun að ef framinn er svona glæpur, eða annar sambæri- legur, gegn barni þá er það refsi- laust nema maðurinn viðurkenni verknað sinn. Það eru ekki vitna- leiðslur yfir bömum og ef þriðji aðili er ekki tekinn trúanlegur þá er réttarstaða barna engin,“ sagð- i sami stjórnarmaður. -sme Aðalfundur IsaS: Ragnar rað- inn syómar- formaður - nýr forsijóri ráðinn fljóíiega Ragnar S. Halldórsson hefur verið ráöinn stjórnarformaður ísal en gengið var frá ráðningu hans á aðalfundi ísal í Zúrich á fimmtudag. Ragnar tekur við starfi af Halldóri H. Jónssyni sem ekki gaf kost á sér í embættið. Það er gert ráð fyrir að fljótlega verði nýr forstjóri skipaöur en fyrst um sinn mun Ragnar gegna stöðu forstjóra. Magnús Óskarsson var endur- sldpaður í stjóm af iðnaðarráð- herra og í staö Jóns A. Jónasson- ar skipaði ráðherra Bggert Hauksson. Gunnar J. Friðriksson og Sigurður Halldórsson vom endurkjömir í stjómina. -SMJ Pétur Sigurðsson, formaður sjómannadagsráðs, tók fyrstu skóflustunguna að vernduðum þjónustuibúðum aldr- aðra við Nauthlein í Garðabæ í gær. Þessi athöfn var liður í dagskrá vegna 50 ára afmælis sjómannadagsins í ár. DV-mynd KAE Gerði þetta ekki að tillögu minni - segir ión Sigurðsson „Ég lagöi það til í ríkisstjórninni að þrátt fyrir bann viö verðtryggingu verði heimilt aö leyfa verðtryggingu á innlánum. Ég tel nauðsynlegt að gera það sem allra fyrst svo menn þurfi ekki að velkjast lengi í vafa um hvernig kjörum á innlánum veröi háttað,“ sagði Jón Sigurösson við- skiptaráðherra. Lagðir þú ekki til að fallist yrði á hina tillögu Seðlabankans um að heimila verbótaþátt á útlán? „Þaö var mál sem ég gerði ekki að tillögu minni.“ Leiðir heimild til verðtryggingar á innlán ásamt afnámi hennar á útlán ekki til þess að vextir lækki ekki heldur hækki frekar? „Auðvitað þýðir afnám verðtrygg- ingar á útlán að nafnvextir muni hækka. En með öðrum ráöstöfunum og minnkandi verðbólgu má búast við að þeir lækki aftur.“ Mun þessi ráðstöfun, afnám verð- tryggingar á útlán, leiöa til vaxta- lækkunar ein og sér? „Hún hefur ekki mikil áhrif strax en þegar fram í sækir mun hún ásamt öðrum ráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar stuðla að vaxtalækk- un.“ Bendir þetta verklag ríkisstjórnar- innar ekki til þess aö hún hafi ekki að fullu gert sér grein fyrir hvað hún var að gera? „Það vil ég nú ekki meína. Það lágu fyrir athuganir á hugsanlegum áhrif- um þessarar ákvöðrunar. En ég tek þaö fram að ég gerði þetta atriði aldr- ei aö tillögu minni,“ sagði Jón. -gse Vildi aldrei afnema verðtryggingu strax - segir Steingrímur Hermannson „Ég hlýt að vera einfær um að meta mínar hugsanir sjálfur. Ég leit alltaf svo á að þetta ákvæöi þráða- birgðalaganna gilti ekki um innlán. Ég taldi að aðrir ráðherrar geröu það líka. Það er því alrangt sem segir í DV í gær að allir ráðherrarnir hafi verið vitandi.vits um aö ákvæðið gilti bæði um inn- og útlán,“ sagði Stein- grímur Hermannsson. „Þaö er líka alrangt að Framsókn- arflokkurinn hafi lagt til að afnema verðtryggingu strax. Eins og ég hef tekiö skýrt fram þá vildum við ekki afnema hana nema að vel athuguðu máli. Það komu tvær tillögur fram í ríkisstjórninni um afnám verðtrygg- ingar á skemmri lán. Sú fyrri var frá forsætisráðherra en hann lagði til að hún yrði afnumin af skemmri lánum en til ijögurra ára. Alþýöuflokkurinn lagði síðan til að miöað yröi viö eitt ár. Við lögðum aldrei slíka tillögu fram. Það er líka alger endaleysa að Framsóknarflokkurinn hafi hótað að ganga úr stjórninni ef endanlega lagaákvæöið fengist ekki samþykkt. Ég ætla ekki að gera neinn að blóra- böggli vegna þessa máls. Ég sam- þykkti þetta ákvæði sjálfur. Ég lagði þá hugsun í greinina að hún næði ekki yfir innlán og ég get ekki haldið annað en hinir ráðherrarnir hafi gert það líka,“ sagði Steingrímur. -gse Einar Sigurðsson verður- biaðafulttrúi Flugleiða Einar Sigurðsson, fyrrverandi leysir Boga Ágústsson af hólmi en stööunni á undan Boga þannig að útvarpsstjóri Bylgjunnar, hefur hann hefur sem kunnugt er verið hún gengur á milli fjölmiðla- veriö ráðinn sem blaöafulltrúi ráöinn sem fréttastjóri Sjónvarps- manna. Flugleiða og sagðist Einar taka við ins. Þess má geta aö það var Sæ- -SMJ starfinu um miðjan júní. Hann raundur Guövinsson sem gegndi „Það er ofmælt að bankastjórn þessum reikningum er um helm- Seölabankans hafi gert þessar til- ingur af öllum spariinnlánum. Það lögur sem lagðar voru fyrir ríkis- er hald manna að ef þetta öryggi stjórnina. Við höfum hins vegar væri ekki fyrir hendi myndi draga verið hiálplegir við að undirbúa úr innlánum almennings. Hins þær,“ sagði Geir Hallgrírasson, vegar hefur afhám verðtrygginga í bankastjóri Seðlabankans. fór með sér að lántakendum verður Jón Sigurðsson viðskiptaráð- íþyngt þar sem afborganir verða herra lagði fyrir ríkisstjórnina á hærri á fyrri hluta lánstimans,“ fimmtudaginn tvær tillögur til sagöi Geir. breytinga á braöabirgöalögum rík- Enginn vafi er á því að ríkis- isstjórnarinnar frá því í fyrri viku. stjórnin aflétti banni á verðtrygg- Önnur var um að létta af banni á ingu á innlánum. Hins vegar er verðtryggingu innlána. Hin um að natsta ólíklegt aö ríkisstiómin heimila notkun verðbótaþáttar á muni samþykkja síðari tillögu útlán. Seðlabankans. Hún hefur í raun „Rökinfyrirþessumtillögumeru það í för með sér að ákvæði lag- annars vegar þau að lögin banna anna um afnám verðtrygginga skiptikjarareikninga bankanna. Á verður óvirkt. -gse Helgaiveðrið: Líklega hlýjast suðvestanlands Samkvæmt upplýsingum Veður- ingasamt og svalt veður á Noröur- stofunnar má búast við austan- og og Austurlandi. norðaustanátt um allt land um helg- Trúlega verður hlýjast í nágrenni ina. Veðurfræðingar telja að víða höfuðborgarinnar en ekki er spáð verði léttskýjaö og hlýtt að deginum miklum hita. til hér á suðvesturhorninu en rign- -StB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.