Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Side 28
28
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988.
Sérstæð sakamál
DraumurinnumWinter lækni
Sibyl Winn var tuttugu og fimm
ára og lífsglöð og flest benti til þess
að hún ætti gott líf í vændum. Hún
var hjúkrunarkona og í starfinu
kynntist hún ungum aðstoðarlækni
sem hún hélt að yrði maðurinn henn-
ar. En margt fer öðruvísi en ætlað
er...
Philip Winter hét ungi læknirinn
og hann var einu ári eldri en hún.
Hann bað hennar og þau höfðu
ákveðið aö ganga í hjónaband en svo
lýsti Philip yfir því að hann treysti
sér ekki að svo komnu máli til að
axla þá ábyrgð sem því fylgdi að
stofna heimili. Hann sagðist þó enn
vera mjög hrifinn af Sibyl.
Þetta gerðist árið 1962 eða fyrir
rúmum tuttugu og fimm árum í
Cheltenham á Englandi.
Sibyl Winn lifði um hríð í voninni
en hálfu ári eftir að Philip Winter
féll frá áætluninni um hjónaband
gekk hann að eiga Veronu Gambell
en hún var þá að lesa til læknis. Þá
fannst Sibyl sér svo misboðið og
fannst það sem gerst hafði svo mikil
niðurlæging fyrir sig að hún sagði í
skyndi upp starfi sínu og nokkru síð-
ar giftist hún iönaðarverkamanni,
Aifie Oxley, að nafni. Hnan var heið-
arlegur og duglegur maður en hjóna-
band þeirra var erfitt því Sibyl var
stöðugt óánægð yfir því að hafa ekki
orðið læknisfrú.
Skilnaður
Er Sibyl og Alfie höfðu verið gift
í átján ár skildu þau. Var ástæðan
sögð „andleg þjökun“ og þótt Sibyl
muni hafa átt meginsök á því hvern-
ig fór kom hús þeirra hjóna í hennar
hlut en þau höfðu búið í Stroud í
Gloucestershire. Sibyl réð sig til
hjúkrunarstarfa í heimahúsum en
strax eftir skilnaðinn tók hún upp
náið samband við mann og brátt
urðu þeir fleiri mennirnir sem hún
kynntist náið.
Eftirsjá eftii’ „paradís“
Sibyl fann er hér var komið sögu
að æskublóminn var horfinn og taldi
víst að hún myndi aldrei öðlast þá
lífshamingju sem hún hafði látið sig
dreyma um er hún hélt, rúmum
tveimur áratugum áður, að hún yrði
læknisfrú. Hún gat ekki hætt að
hugsa um hve allt heföi farið öðru-
vísi og betur ef unnusti hennar hefði
ekki snúið baki við henni forðum.
Óvæntir endurfundir
Sennilega hefði sagan af lífs-
hlaupi Sibyl Winn-Oxley aldrei verið
skráð ef hún hefði ekki farið í leik-
Sibyl Winn.
hús 6. mars í fyrra til þess að sjá leik-
rit Shakespeares, Kaupmanninn í
Feneyjúm. Er hún hafði komið sér
fyrir í sæti sínu sá hún allt í einu
mann sem hún kannaðist við sitja
nokkru framar og við hlið hans var
kona hans og ungur maður sem var
sennilega sonur þeirra. Eldri maður-
inn var unnustinn gamli, Philip
Winter.
Hefndarhugur
Sibyl hafði ekki horft lengi á
hjónin er hún sá fyrir sér atburöi
sem gerst höfðu aldarfjóröungi áöur
og nokkru síðar varð hún gripin
miklum hefndarþorsta. Þarna sat
hún, Verona Gambell, konan sem
hafði lagt líf hennar í rúst. Og hún
virtist vera bæði glöð og ánægð.
Að leiksýningunni lokinni gekk
Sibyl í humátt á eftir hjónunum og
virti þau fyrir sér er þau stigu upp í
Mecedes Benzbílinn sem Philip
Winter átti. Sibyl gekk hins vegar aö
Verona Winter.
Morrisbílnum sínum og ók heim,
niöursokkin í hugsanir sem áttu eftir
að hafa afdrifaríkar afleiðingar.
Njósnaferð
Þessa nótt gat Sibyl ekki sofið.
Reyndar var hún þá að leggja á ráðin
um hvernig hún kæmi fram hefnd-
inni og áður en dagur rann var sú
áætlun fullmótuð í huga hennar. Er
hún hafði klætt sig um morguninn
tók hún símaskrána og brátt var hún
búin að komast að því hvar Philip
Winter átti heima. Læknirinn reynd-
ist eiga fallegt einbýlishús í Tudor-
stíl í Upton Saint Leonards. Þangað
hélt Sibyl til þess að kynna sér allar
aðstæður en að því búnu sneri hún
aftur heim.
Næsta skref Sibyl var að taka fram
hníf meö þunnu blaði. Hann brýndi
hún uns hann var orðinn flugbeittur
en að því búnu vafði hún hann inn
í dagblað. Daginn eftir, 8. mars,
hringdi hún til atvinnurekanda síns
og lýsti yfir því að hún myndi ekki
geta mætt til starfa í viku. Þessari
yfirlýsingu var illa tekið og henni
hótað uppsögn en hún lét þaö ekki á
sig fá enda hafði hún gert nýja fram-
tíðaráætlun.
„Ertu að leita
að einhverjum?“
Silbyl Winn vissi að tími hefndar-
innar var kominn. Nú ætlaði hún að
endurgjalda það óréttlæti sem hún
haföi mátt þola. Keppinautur hennar
myndi sennilega vera heima allan
daginn og því yrði ekki erfitt að gera
þaö sem gera þurfti.
Verona Winter sat í eldhúsinu og
las í blaði. Skyndilega heyrði hún
einhvern umgang fyrir utan og leit
út um gluggann. Hefði Verona ekki
opnað eldhúsdyrnar hefði ef til vill
farið á annan veg en hún átti sér
einskis ills von og gekk því út fyrir
til að ræða við konuna sem þar stóð.
„Ertu að leita að einhverjum?"
spuröi hún Sibyl.
Þetta voru síöustu orð Veronu
Minter. Sibyl Winn dró upp hnífinn
og stakk Veronu tvisvar í hjartastað.
Hún lést samstundis.
Philip Winter kom heim um sjö-
Alfie Oxley.
leytið um kvöldið. Hann hafði búist
við því að kona hans kæmi til að
sækja hann á sjúkrahúsiö eins og um
hafði verið talað. Er hann kom inn í
húsið sá hann hana ekki og kallaði
þá nafn hennar. En hann fékk ekkert
svar. Er hann kom inn í eldhúsiö sá
hann konu sína látna.
Lögreglan sagöi aö morðið myndi
hafa veriö framiö milli klukkan ell-
efu og tólf um morguninn. Rannsókn
leiddi í ljós að engu haföi verið stoliö
og það benti til þess að ekki hefði
verið um innbrotsþrjóf að ræða
vegna þess að Verona hafði opnað
eldhúsdyrnar fyrir gestinum
ókunna. Það gat merkt aö hún hefði
þekkt hann. Þá þótti athyglisvert
með hve mikilli nákvæmni Verona
haföi verið stungin í hjartastað.
Grunurinnfellur
áPhilip
Þessi atriði vöktu grun um að
Philip hefði myrt konu sína enda
þóttu stungurnar bera vitni um að
morðinginn hefði verið læknisfróö-
ur.
Athugun sýndi hins vegar að hann
haföi verið við aðgerð á sjúkrahús-
inu er kona hans var myrt. Þá gátu
margir boriö um það vitni að hann
heföi ekki fariö af vinnustaðnum all-
an daginn. Jafnframt lýstu þeir sem
þekktu best til hans yfir því að hann
hefði ekki átt vingott við aðrar kon-
ur.
„Má bjóða þér upp á drykk?“ sagði
konan sem gekk til Philips Winters
á bílastæðinu við sjúkrahúsið hálf-
um mánuði eftir morðið. Phihp
þekkti ekki gömlu unnustuna sína,
Sibyl Winn, en hún beindi þegar tal-
inu að liðnum dögum er þau höfðu
unnið saman í Cheltenham. Það kom
einkennilega við Philip að heyra
minnst á sjúkrahúsið þar því þar
hafði hann kynnst konu sinni. Er
taliö barst að því aö hún hefði veriö
myrt þóttist Sibyl ekkert um það
hafa heyrt. Philip fannst umræðan
þarna á bílastæðinu óþægileg og
Philip Winter.
féllst því á að ljúka samtalinu á veit-
ingastofu.
Annar fundur
Philip féllst á að hitta Sibyl tveim-
ur dögum síðar í veitingastofunni
Crown Inn en þá höfðu vaknað meö
honum grunsemdir. Þá sagði hún
honum frá því hve misheppnað
hjónaband hennar hefði verið en
lýsti þvi svo skyndilega yfir að hún
hefði alltaf elskað hann. Hann var
varlabúinnaðjafnasig eftir yfirlýs-
inguna þegar hún spurði hann
hvernig hann færi nú að því að sjá
einn um allt þetta stóra hús sem
hann byggi í. „Hvað þekkir hún til
hússins míns?“ spurði Philip sjálfan
sig. „Hefur hún komiö þangað?“
Alvarlegar grunsemdir höfðu nú
vaknað með Philip Winter. Hann
hélt á fund lögreglunnar og sagði frá
því að hann þættist viss um að Sibyl
Winn heföi ráðið konu sína af dögum.
Lögreglan hlustaöi á hann með at-
hygli og síöan var afráðið að hann
hjtti Sibyl Winn á ný í Crown Inn.
Silbyl var mjög glöð þegar hún sett-
ist hjá honum við barinn. Hann
reyndi að vera ljúfur í orðum og tal-
aði um hve vel hún liti út og hve vel
klæddhúnværi.
Játningin
íllíMtéHiíli íiÍiiltiiiÍÍÍi^lÍÍllÍÍÍiíiÍííiíí'ii-ítléíííÍÍiÍMiÍS
Er þau höfðu ræðst við um hríð
spurði Phihp skyndilega: „Hvers
vegna beiðstu eftir mér á bflastæðinu
um daginn? Þú vissir að Verona var
dáin, var það ekki.“ Hún svaraði
ekki strax og þá sagði hann:, ,Ég skil
vel að þú skulir vilja taka upp sam-
band okkar á ný en áður en af því
getur oröiö verðurðu að vera hrein-
skilin við mig. Það varst þú sem
myrtir Veronu, var það ekki?“
„Jú, það var ég,“ sagði hún. „Ég
geröi þaö til þess að við gætum orðið
hamingjusöm.“
í Crown Inn voru á þessari stundu
rannsóknarlögreglumenn og höföu
þeir komið fyrir stefnuhljóðnema og
leynilegum hljóðupptökutækjum.
Játning Sibyl lá því fyrir á segul-
bandi. Hún skildi varla hvaö hafði
gerst og það virtist hún heldur ekki
gera þegar hún fékk lífstíöardóm í
nóvemberífyrra.