Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Side 24
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988. Veiðisumarið 1988 Hvað segja veiðimennimii? Veiðimenn eru farnir að hlakka til sumarins enda ekki nema nokkrar mínútur þangað til fyrstu veiðiárnar verða opnaðar fyrir vonglöðum veiðimönnum með stangir sínar, maðka, flugur og spúna. Þrátt fyrir að vorið hafi verið held- ur rysjótt virðast laxarnir vera að koma í veiðiárnar víða. Þetta gefur veiöimönnum vonir um gott sumar og veiðimálastjóri segir aö ef nokkur góð smálaxaskot komi á Suðurlandi sé aldrei að vita hvað gerist. En hvaö segja veiðimennirnir, eru þeir bjart- Veiðivon Gunnar Bender sýnir eða svartsýnir? Hvernig verður sumarið? Við heyrðum hijóðið í nokkrum vonglöðum, óþreyjufullum og spenntum veiðimönnum nokkr- um mínútum áður en fyrstu árnar verða opnaðar 1. júní. G.Bender „Veiðitúrinn í Svartá verður spennandi" - segir Guðmundur Ágústs- son alþingismaður „Mér líst vel á þetta veiðisumar og það á að veiða í Laxá í Kjós, Svartá og Elliðaánum. Ég verð í kringum 20. júlí í Laxá í Kjós, svo verður það Svartá í Húnavatnssýslu og maður endar í Elliðánum í september. Vona að þetta verði stórlaxasumar, svo þeir verði stærri hjá mér sem taka fluguna. Síðan ég fékk flugufisk- inn í Norðurá síðasta sumar veiði ég mest orðið með flugunni. Stórkost- legt aö sjá mig sveifla henni og hver sem vill getur komið og séð þetta með eigin augum í Laxá í Kjós, opið fyrir alla þar. Er bjarsýnn á þetta sumar og veiðitúrinn í Svartá verður spennandi, hef aldrei veitt þar áður. Sigurður Kr. Jónsson. „Byrja sumarið í sjóbirtings- veiði í Litluá" - segir Siguröur Kr. Jónsson, Blönduósi „Ég er ekkert sérstaklega bjart- sýnn á sumarið og þetta verða mest smálaxar sem veiðast. En það verður meira vatn í ánum en í fyrra og það getur haft eitthvaö að segja. Ég mun byrja sumarið snemma í ár því Litlaá í Kelduhverfi verður heimsótt 3. júní og rennt fyrir sjóbirting. Litlaá í Kelduhverfi er skemmtileg veiðiá. Við opnum Blöndu 5. júní og það er alitaf viss spenna þar. Laxá á Refa- sveit verður svo opnuð 20. júni og er það mikil tilhlökkun líka.“ „Bæði stóriax og smálax" - segir Sigurður Bergsson „Mér líst mjög vel á sumarið og þetta verður gott fyrir veiðimenn, tíæði stórlax og smálax í bland. Efst á blaöi hjá mér er Flókadalsá í Borg- arfirði og þar mun ég renna fyrir lax. Hjá okkur í Stangaveiöifélagi Hafn- arfjarðar er Kleifarvatniö í uppá- haldi og í það höfum við sett helling af urriðaseiöum á hveiju ári. Viö eig- um von á að veiðin veröi góð þar í sumar og það verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út. Síðustu þrjú árin höfum við sett stofna af urriðum úr Laxá í Þingeyjarsýslu í vatnið, 2500 seiði, og það gæti gefið okkur vel í sumar. Þetta sumar ætti því bæði að verða gott í laxinum og silungnum.“ „Þetta verður gott veiðisumar" - segir Friðrik Friðriksson, formaður Veiðifélagsins Fossa á Dalvík Völundur Hermóðsson. „LaxáíAðal- dal fer yfir 2000 laxa" - segir Völundur Hermóösson, Álftanesi „Ég á von á að Laxá í Aðaldal fari yfir 2000 þúsund laxa og þetta verði stórlaxar sem taki hjá veiðimönnum. Ég yrði fyrir miklum vonbrigðum ef við fengjum ekki afrakstur þess erf- iðs í ræktunarmálnum sem við höf- um staðið fyrir og laxinn kæmi ekki í ríkum mæli í sumar. Á hverju vori eru sett seiöi og á haustin er veitt í klak, sem kemur ánni til góða. Ég renni eitthvað fyrir lax þegar ég er með veiöimönnum hérna á Nessvæð- inu í Aðaldalnum, en ekki mikið.“ sumar" „Mér líst stórvel á veiði- sumariö og þetta verða von- andi stórlaxar sem veiði- menn fá til að taka hjá sér maðkinn og fluguna. Það verður víða farið í sumar eins og í Laxá og Bæjará, Víðidalsá í Steingrímsfirði, Víðidalsá í Húnavatnssýslu og Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum, með veiðihópnum sem við höfum stofnað. Veiðifélagi á stönginni er maðurinn minn og við höf- um oft veitt vel. Það verður gaman að opna Laxá og Bæjará og Víðidalsá fyrst allra, sjá hvort laxinn er kominn og fá hann til að taka. Kannski fær maöur stærri lax en í fyrra og stefna er að rjúfa 20 punda múrinn, þó það verði kannski ekki í sumar heldur næstu sumur. Ragnar Halldórsson. „Byrja í Haukadalsá" - segir Ragnar Halldórsson, forstjóri ísal „Maður er vissulega farinn að hlakka til sumarins þegar veðurfarið er svona gott. Ég hef gaman af að renna fyrir lax þótt ég teljist ekki með þeim sem veiða mest eins og Þórarinn Sigþórsson, Guðlaugur Bergmann og Crystalfeðgar - fer í nokkra veiðitúra á sumri. Sumir segja að þetta verði smálaxa- sumar og því lítiö um tveggja ára lax. Ég byija eftir mánuö í Hauka- dalsá, svo kemur veiöitúr í Selá og ætli maður endi ekki sumariö í Langadalsá í ísafjarðardjúpi. Getur verið að ég skreppi í millitíðinni í Þverá í Borgarfirði. Sigurður Bergsson. „Þetta verður gott sumar, stórlax og smálax, snjórinn er töluverður í fjöllum hér norðan heiða og veiði- menn eru bjartsýnir á sumarið. Það sést líka best á veiðileyfasölunni að áhuginn er mikill á veiði, veiðileyfin seljast það vel víðast hvar. Hérna hjá okkur hafa þau næstum öll selst í Mýrarkvíshnni, aðeins til eitthvað í júní, annars allt búið. Það verður bæði veitt í dýrum og ódýrum veiðiám á sumri komanda í bland. Ekki ástæöa til annars en að vera bjartsýnn í stangaveiðinni í sumar, veiðileyfi seljast vel og veiði- menn eru orðnir spenntir enda stutt í að fyrstu veiðiárnar verði opnað- ar.“ „Verður víða farið til veiða í - segir Sólveig J. Ögmundsdóttir Sólveig J. Ögmundsdóttir. Friðrik Friðriksson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.