Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Side 20
20
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988.
Reykjavík 23. maí
Kæri vin
Þá er hvítasunnuhelgin að enda
og var óvenjublaut aö þessu sinni.
Nei, ég átti ekki við það heldur að
það rigndi mestalla helgina og flest-
ir kusu því frekar að horfa á reg-
nið út um stofugluggann heima hjá
sér en út um bílrúöu. Útvarps- og
sjónvarpsstöðvar kepptust því við
að segja frá því að þessi fyrsta
umferðarhelgi ársins væri eigin-
lega án umferðar. Þó var reynt að
elta uppi þá örfáu sem höfðu slegið
upp tjöldum í þeirri veiku von að
það mætti skapa ekta hvítasunnu-
stemningu en þær tilraunir voru
Bréftil vinar
Sæmundur Guðvinsson
næsta brjóstumkennilegar. Hins
vegar var fátt að finna í fjölmiðlum
um hið eiginlega tilefni hvíta-
sunnudags utan messur í ríkisfjöl-
miðlunum. Að kvöldi hvítasunnu-
dags sá ég hins vegar stórgott efni
í sjónvarpinu. Annars vegar var
um að ræða stórfróðlega og
skemmtiiega samantekt á myndum
sem Daníel Bruun tók hér á landi
í „gamla daga“. Hins vegar var af-
burðagóð sjónvarpsmynd eftir
Kristínu Jóhannesdóttur. Myndin
nefndist Glerbrot og var byggð á
leikritinu Fjaðrafoki eftir Matthías
Johannessen. Þetta er einhver best
unna sjónvarpsmynd sem ég hefi
séð, enda er Kristín leikstjóri sem
hlýtur að teljast í hópi þeirra alb-
estu hérlendis og þótt víðar væri
leitað. Og það var gaman áð sjá
hvernig hún vann úr Fjaðrafoki
Matthíasar. Ef ég man rétt varð
Matthías fyrir heiftarlegum árás-
um og óvæginni gagnrýni þegar
leikritið var sýnt á sínum tíma. Á
þeim tíma töldu sjálfskipaðir páfar
á sviði lista að til listamanna gætu
þeir aðeins talist sem aðhylltust
vissar stjórnmálaskoðanir. Það
þótti fáheyrð ósvifni af ritstjóra
Morgunblaðsins að stunda skáld-
skap og aðrar bókmenntalistir án
þess að vera í hópi innvígðra. Nú
situr Matthías hins vegar á friðar-
stóh sem eitt af okkar bestu ljóð-
skáldum og óumdeildur sem ein-
hver okkar mesti snillingur í með-
ferð óbundins máls. Svo var ég að
enda við að horfa á sjónvarpsþátt
um Ingimar Eydal rétt í þessu. Þar
var komið inn á áhuga hans á eld-
vörnum og slökkvistörfum. Fyrir
-fjölda ára vorum við Ingimar sam-
an í einhverju líknarfélagi á Akur-
eyri. Við eina söfnunina lenti ég
með Ingimar að ganga í hús og selja
páskaegg. Okkar svæði var inn-
bærinn þar sem öll gömlu timbur-
húsin eru. Salan gekk hægt því
Ingimar þurfti að halda uppi
spurnum um eldvarnir í hverju
húsi. Til dæmis hvort íbúar, er
svæfu í risherbergjum, hefðu gætt
þess að hafa kaðalhankir undir
rúmum sínum sem grípa mætti til
ef eldur kviknaði á neðri hæð að
næturlagi og allt þar fram eftir
götunum. Ekki man ég hvað við
seldum af eggjum en ég varð stór-
um fróðari um eldvarnir eftir dag-
inn.
Svo ég vaði nú úr einu í annað
þá ágerist það æ meir að menn
gangi í hús og bjóði alls kyns varn-
ing til sölu. Stundum eru þetta
skólanemar sem bjóða harðfisk eöa
rækjur til ágóða fyrir skólasjóðinn
og allt í lagi með það. En ég lenti í
einum skæöum bóksölumanni um
daginn. Ég hafði ekki fyrr opnað
en maðurinn flæddi inn og hóf að
þylja yfir mér kostaboð á bókum
um náttúru og hstir sem og sögu,
að ógleymdum ritsöfnum af ýmsu
tagi. Þessu lýsti maðurinn sem
ómetanlegum listaverkum sem
ekkert heimih gæti verið án. Hann
talaði svo hratt að ég gat ekki einu
sinni skotið inn spumingu eða af-
þakkað þessi gylliboð. En maður-
inn hefur sennilega misskilið þögn
mína því nú fór hann að greina frá
greiðsluskilmálum, óðamála sem
fyrr: - Það er nóg að þú borgir fimm
hundruð krónur út, þú mátt borga
með júró eöa vísa, víxlum, skulda-
bréfum, ávísunum fram í tím-
ann...
Þegar hér var komið sögu lyfti
ég upp hönd og maðurinn snar-
þagnaöi líkt og slökkt hefði verið á
segulbandi. Horfði á mig í spurn.
Eg gekk fast að honum og spurði
lágum ísmeygilegum rómi: - Segðu
mér. Takið þið við folsuðum fimm
þúsund króna seðlum? Þú getur
fengið hvern seðh á þrjú þúsund.
Maðurinn starði á mig andartak,
greip svo þéttingsfast um sýnis-
horn sín og plögg mn leið og hann
hvarf sem elding út um dymar.
Hefur ekki sést til hans í þessum
bæjarhluta síðan.
En af stærri viðskiptum er það
helst að frétta að nú liggja bankar
undir grun um að hafa stundað
mikið brask með gjaldeyri síðustu
dagana fyrir gengisfellingu. Hefur
þetta meðal annars verið haft eftir
sjávarútvegsráðherra og Jón Bald-
vin varð æfur og krefst skýringa
frá bönkunum. Kunningi minn
einn taldi víst að mætti búast við
að margar stöður bankastjóra lo-
snuðu á næstunni ef í ljós kæmi
að reglur hefðu verið brotnar. Ekki
veit ég hvort hann hyggst sækja en
ég á eftir að láta segja mér það tvi-
svar að bankastjóra verði vikið úr
starfi fyrir að bijóta af sér. Það er
varla fyrr en þeir fara að glutra
niður þúsund mihjónum eða svo
sem við þeim er hróflað. Og heggur
þá stundum sá er hlífa skyldi. Ann-
ars er þessi sífellda umræða um
peninga dæmigerð fyrir þjóðina.
Maður, sem engu hefur stolið, er
hundeltur af fjölmiðlum fyrir að
hafa látið fyrirtæki, hvar hann
gegnir stöðu stjórnarformanns,
lána sér bíl. Þessi maður fær álíka
umfiöllun og um fjöldamorð hefði
verið að ræða. En krimmi, sem
lemur og limlestir gamla konu til
þess að stela ellilífeyri hennar, er
ekki talinn fréttaefni. í mesta lagi
að árásin sjálf fái pláss í dagblaði
sem er álíka stórt og frímerki. En
ellilífeyrir er víst ekki nógu há
upphæð til að nokkur nenni að
fjalla um svoleiðis skiterí.
En hún Ebba frænka hefur víst
e'itthvað misskilið hvað gengisfell-
ing er. Allavega var hún að tala um
að biðja þig aö kaupa hitt og þetta
fyrir sig þama úti því allt mundi
hækka svo mikið hér eftir að geng-
ið féll. Svo ætlar hún að borga þér
allt til baka í íslenskum krónum
og telur sig græða stórfé á tiltæk-
inu. Það er ekki öll vitleysan eins.
En bróðir hennar, þú manst, er
sagður hafa farið til útlanda í við-
skiptaerindum og vera nokkrar
vikur í feröinni. Hins vegar segja
rætnar tungur að til hans hafi sést
á dögunum við steypuvinnu á
ónefndum stað í eigu ríkisins fyrir
austan fjall.
Læt þetta nægja aö sinni.
Sæmundur
ER ÞAÐ 1 EÐA X EÐA 2
Kvikmyndinni Foxtrott var vel tekið í Cannes. Hún er gerð
í samvinnu við:
1: Dani
X: Svía
2: Norðmenn
B Verk hins heimsfræga listmálara Marc Chagall verða sýnd
á listahátíö. Chagall fæddist í:
1: Rúmeníu
X: Sovétríkjunum
2: Frakklandi
Janos Kadar tók við völdum í Ungverjalandi er sovéskur
her bældi niður byltingartilraun í landinu árið:
1: 1956
X: 1966
2: 1976
Þettaermerki:
1: Fjölbrautaskólans í Breiðholti
X: SamvinnuskólansíBifröst
2: VerkmenntaskólansáAkureyri
F Á Norðurlandi var nýlega haldin M-hátíð, nánar tiltekið á:
1: Siglufirði
X: Ólafsfirði
2: Sauðárkróki
G í nýafstaöinni keppni norrænna danshöfunda í Osló sigr-
aði Hlíf Svavarsdóttir. Tónlistina við ballettinn samdi:
1: AltiHeimirSveinsson
X: ValgeirGuðjónsson
2: Þorkell Sigurbjörnsson
H Málsháttur hljóðar svo: Hægara er um að tala en...
1: íaðkomast
X: hrindaíframkvæmd
2: drífaíhlutunum
r
Þetta merki sést stundum í auglýs-
ingum. Þá er verið að fjalla um:
1: Tölvur
X: Skiptinema
2: Vátryggingar
Sendandi
Heimili
Rétt svar: A □ B □
E □ F □
C □ D □
G □ H □
Hér eru átta spurningar og
hverri þeirra fylgja þrír mögu-
leikar á réttu svari. Þó er aðeins
eitt svar rétt við hverri spurn-
ingu. Skráið niður réttar lausn-
ir og sendið okkur þær á svar-
seðlinum. Skilafrestur er 10
dagar. Að þeim tíma hðnum
drögum við úr réttum lausnum
og veitum þrenn verðlaun, öll
frá Póstversluninni Primu í
Hafnarfiröi. Þau eru:
1. Töskusett, kr. 6.250,-
2. Vasadiskó og reiknitölva, kr.
2.100,-
3. Skærasett, kr. 1.560,-
í öðru helgarblaði héðan í frá
birtast nöfn hinna heppnu en
nýjar spurningar koma í næsta
helgarblaði.
Merkið umslagið: 1 eða x eða
2, c/o DV, pósthólf5380,125
Reykjavík.
Vinningshafar í 1 eða X eða 2
í annarri getraun reyndust
vera: Anna Bergþórsdóttir,
Hringbraut48,107 Reykjavík
(töskusett), Ingunn Leifsdóttir,
Dælengi 15,800 Selfossi (vasa-
diskó og reiknitölva), Auður
Ingimarsdóttir, Tjaldanesi 1,210
Garðabæ (skærasett).