Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988.
Jorma Hynninen baritónsöngvari.
Vladimir Ashkenazy píanóleikari.
Guarneri strengjakvartettinn.
Stephane Grappelli jassfiðlari.
Látbragðsleikarinn Yves Lebreton.
Atriði úr sýningu dansflokksins „Black Ballet Jazz“.
Howard Hodkin
myndlistarmaður.
Jóhann Eyfells myndlistarmaður.
Sígild tónlist:
Óvenju glæsilegt úrval
Frá upphafi hefur tónlistin verið
sérstakt aöalsmerki Listahátíðar í
Reykjavík, enda voru það fyrst og
fremst tónlistarmenn sem véluðu um
stofnun hennar árið 1970, eins og
mörgum er kunnugt.
Listahátíð sú, sem nú fer í hönd,
er engin undantekning hvað það
snertir. Raunar er tónlistarúrvalið
óvenju glæsilegt aö þessu sinni. Flutt
verða sinfónísk verk, kórverk, ís-
lensk sem erlend, söngljóö, óperu-
tónlist, einleiksverk, verk fyrir tvö
hljóðfæri, kammerverk og kvartett-
ar.
Af öllu þessu mikla úrvah ber þó
hæst heimsókn einsöngvara, tvö
hundruð manna kórs og hljómsveit-
ar frá Poznan og Varsjá í Póllandi,
ásamt með þekktasta tónskáldi Pól-
verja í dag, Krzystof Penderecki.
Þetta einvalalið flytur hér tvö pólsk
nútímakórverk sem þykja meðal
markverðustu verka sinnar tegund-
ar, Pólska sálumessu eftir Pend-
erecki, undir stjórn tónskáldsins
sjálfs, og Stabat Mater eftir annan
pólskan tónlistaijöfur, Karol Szy-
manowski.
Af öðrum stórviðburðum úr heimi
tónlistar má nefna flutning flnnska
barítónsöngvarans Jorma Hynninen
á söngvum eftir Sibelius og óperuar-
íum eftir Leoncavallo og Verdi.
Undirleik annast Sinfóniuhljóm-
sveit íslands, undir stjóm hins ágæta
hijómsveitarstjóra hennar, Petri
Sakari.
Söngunnendur fá raunar mikiö í
sinn hlut þvi á hátíöinni syngja einn-
ig tvær efnilegar söngkonur, messó-
sópraninn Sarah Walker frá Eng-
landi, sem flytur söngljóð eftir Schu-
bert, Schönberg, Mendelssohn, Britt-
en og Gershwin, og bandaríska sópr-
ansöngkonan Debra Vanderlinde,
sem flytur hið íöilfagra söngverk
Mozarts.Exultate Jubilate, með Sin-
fóníuhijómsveit Islands, undir stjórn
Gilberts Levine, heimsþekkts hljóm-
sveitarstjóra.
Næst mundi ég vilja nefna tónleika
Vladimirs Ashkenazy í Háskólabíói
en hann ætlar að leika verk eftir
Schumann og Chopin. Hann er orð-
inn sjaldséður gestur á íslandi og því
um að gera að ná sér í miða á tón-
leika hans.
Þá er ónefndur sjálfur Guarnieri
kvartettinn, frægur fyrir túlkun sína
á Mozart, Janacek og Beethoven, og
Empire Brasskvintettinn sem sló í
gegn á listahátíð fyrir nokkrum
árum.
Ekki má heldur gleyma framlagi
íslenskra tónlistarmanna, til dæmis
flutningi Kolbeins Bjarnasonar
flautuleikara á verkum eftir Ferney-
hough, Fukushima, Magnús Blöndal
Jóhannsson, Atla Heimi Sveinsson
ogHuber.
Eða söngverki Jóns Ásgeirssonar,
Tímanum og vatninu, sem Hamra-
hlíöarkórinn flytur, flutningSvövu
Bernharðsdóttur lágfiðluleikara og
önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur
píanóleikara á tónlist eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, Áskel Másson, Jón
Þórarinsson, Mist Þorkelsdóttur og
Kjartan Ólafsson.
Loks má nefna Norræna kvartett-
inn, sem er 50% íslenskur, en hann
leikur verk eftir Áskel Másson, Þor-
stein Hauksson, Heininen, Nörgaard
og Fung, og kammersveit undir
stjórn Hákons Leifssonar sem ku
vera efni í prýðilegan hljómsveitar-
stjóra, en ásamt einleikurunum Þor-
steini Gauta Sigurðssyni píanóleik-
ara og Guðna Franzsyni klarínett-
leikara flytur sveitin splunkuný verk
eftir Hauk Tómasson og Leif Þórar-
insson, auk eldri verka eftir sömu
tónskáld, og kammersinfóníu eftir
Schönberg.
Ekki er mér ljóst hvemig miklir
tónlistarunnendur eiga að komast
yflr þetta allt en ætti ég völina mundi
ég reyna að hlusta á Pólverjana,
Hynninen hinn fmnska, útlendu
söngkonumar tvær og Ashkenazy.
Önnurtónlist:
GrappelliogCohen
Sá sem þetta skrifar hefur núorð-
iö lítinn tíma til að fylgjast með „létt-
ari“ tónlist en mundi þó gera sér
sérstakt far um að hlýða á jassfiðlar-
ann Stéphane Grappelli, sem er einn
af þeim allra stærstu af sinni kyn-
Listahátíð
Aðalsteinn Ingólfsson
slóð, en hann leikur hér með bassa-
og gítarleikurum sínum.
Ekki geri ég heldur ráö fyrir að
gamlir hippar muni láta sig vanta á
tónleika kanadíska ljóðskáldsins og
söngvarans Leonards Cohen sem
nýverið hefur endurheimt mikið af
sínum fornu vinsældum með frá-
bærri plötu er nefnist „I’m your
man“.
Loks segja ungir poppáhugamenn
mér aö hljómsveitimar The Christ-
ians og Blow Monkeys séu „pott-
þéttar"; ég sel það ekki dýrara en ég
keypti.
Myndlist:
Margirviðburðir
Myndlistarunnendur munu einn-
ig fá mikið fyrir snúð sinn.
Sýning á verkum Chagalls í Lista-
safninu sætir auðvitað tíðindum því
verk helstu stórmenna nútímahstar
sjást ekki oft hér á landi.
En þótt Chagall sé góður skulum
við ekki láta hann skyggja á aöra og
í sjálfu sér ekki ómerkari myndlist-
arviðburði á hátíðinni, til dæmis
tímamótasýningu á norrænni kon-
kretlist, sem einnig verður haldin í
Listasafninu, en þá stefnu þekkjum
viö íslendingar betur undir nafninu
„geómetría" eða strangflatarlist.
Nokkrir íslendingar eru þar meðal
sýnenda.
Ekki er síður fengur í sýningu
þeirri sem Nýlistasafnið stendur að
og Pétur Arason á mestan heiður af,
en á henni veröa verk eftir tvo helstu
forvígismenn naumhyggju í alþjóð-
legri myndlist, þá Donald Judd og
Richard Long, og munu þeir sjálfir
koma til aö setja upp verk sín.
Með þeim á sýningunni verður ís-
lenskur bróðir þeirra í andanum,
Kristján Guðmundsson, sem er í mik-
illi uppsveiflu um þessar mundir.
Ekki er heldur ónýtt aö fá hingað
til sýnis graflkverk eftir einn helsta
myndlistarmann Breta í dag, Howard
Hodgkin, en hann var fulltrúi lands
síns á Biennalnum í Feneyjum árið
1982, en FÍM stendur að þeirri sýn-
ingu.
Um miðbik listahátíðar mun svo
Norræna húsið opna sýningu á verk-
um sænsku listakonunnar Lenu
Cronqvist sem er áhrifamikill fígúra-
tífur listmálari þar í landi.
í slensk myndlist verður einnig
mjög í sviðsljósinu meðan á hátíðinni
stendur.
Kjarvalsstaðir hafa skipulagt sýn-
ingu er nefnist Maðurinn í forgrunni
og á að sýna þróun flgúratífrar
myndlistar á íslandi undanfarna tvo
áratugi.
Gallerí Svart á hvítu sýnir ný papp-
írsverk eftir hinn þekkta íslenska
myndasmið, Jóhann Eyfells, sem
búið og starfað hefur í Bandaríkjun-
umumáraraðir.
GaUerí Borg stendur sjálft fyrir
minni háttar yfirlitssýningu á verk-
um Þorvalds Skúlasonar og hin nýja
menningarmiðstöð Hafnfirðinga,
Hafnarborg, verður með sýningu á
nýlegum verkum eftir Eirík Smith
meðan á hátíðinni stendur.
Samsýning á íslenskum listiðnaði
verður einnig til staðar í versluninni
íslenskum heimilisiðnaði listahátíð-
ardagana.
Loks má geta um sýningu á þýsk-
um arkitektúr, Byggt í Berlín, sem
haldin verður í Ásmundarsal, og
verður fluttur fyrirlestur í tengslum
við hana, sömuleiðis mun þekktur
franskur textílhönnuður, Daniel
Graffin, tala um verk sín í Norræna
húsinu.
Leikhús:
Fáttengott
Leikhúsfólk fær ef til vill ekki
eins mikið í sinn hlut á þessari lista-
hátíð og tónlistar- og myndlistará-
hugamenn en getur þó vel við unað.
Helga Bachmann leikstýrir nýrri
leikgerð sinni af leikriti Guðmundar
Kamban, Marmara, og frumsýnt
vef ður nýtt leikrit eftir Þorvarð
Helgason, Ef ég væri þú.
Franski látbragðsleikarinn Y ves
Lebreton kemur aftur í heimsókn
með nýtt verk, og í fyrsta sinn er vel
séð fyrir þörfum brúðuleikhússfólks,
og þá einnig bama, því þrír brúðu-
leikhúsmenn, „vores egen“ Jón E.
Guðmundsson og tveir heimsþekktir
útlendingar, Peter Waschinsky og
Petr Matósek, verða með sýningar á
hátíðinni.
Áhugamenn um listdans fá svo að
sjá verðlaunaballett Hlifar Svavars-
dóttur, Af mönnum, og þekktur
dansflokkur, Black Ballet Jazz, sem
slegið hefur í gegn alls staðar þar sem
hann hefur komið, sýnir dansasögu
bandarískra negra.
Ekki er alveg gengið framhjá bók-
menntum því sænski rithöfundurinn
Göran Tunström (eiginmaður Lenu
Cronqvist) les upp úr verkum sínum
og talar um þau, auk þess sem Rithöf-
undasambandið hefur skipulagt upp-
lestur á ljóðaþýðingum íslenskra
skálda.