Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988. 5 Fréttir Einstæð móðir: Aleigan töpuð og framtfðin óviss - lenti í klóm fjársvikamanna „Ég var ?vo mikill rati aö ég treysti þessum mönnum fyrir öllu. Mig ór- aöi ekki fyrir að slíkt gæti hent mig. Nú er ég að pakka niður bókunum mínum og öðrum hlutum og koma því í geymslu. Ég verð síðan aö leita mér að stað til að vera á. Ég treysti mér ekki til að leigja á því verði sem býðst. Það er ekki nóg að þessir menn hafi haft af mér íbúð, heldur skulda ég um hálfa milljón króna vegna svikanna," sagði Margrét Óskars- dóttir, einstæð, húsnæðislaus móðir. Hún lenti í klóm fjársvikamanna á árinu 1984. Frá þeim tíma hefur hún lifað í óvissu. Nú hefur íbúð, sem hún keypti, veriö seld á nauðungarupp- boði vegna skulda og svika tveggja fasteignasala. Margrét stóð alltaf í skilum við sinn hluta samningsins. Hún og böm hennar verða að flytja úr íbúðinni fyrir næstu mánaðamót. Margrét flutti frá ísaflrði á árinu 1984. Þar átti hún stóra og góða íbúð sem hún seldi fyrir 2,5 milljónir að núvirði. 15. október 1984 keypti hún íbúð, að Klapparstíg 13, hjá Fast- eignasölunni Miðborg. íbúðin kost- aði tæpar 3 milljónir að núvirði. Margrét taldi sig vel geta ráðið við verðmuninn. Hjá Miðborg var henni bent á að sölumaður annarrar fast- eignasölu, Húsaleigufélags Reykja- víkur og nágrennis, væri með umboð frá seljanda og hann tæki við öflum greiðslum. Sá sem sagður var seljandi var refsifangi á Litla-Hrauni. Eigendur Húsaleigufélagsins, sem eru bræður, höfðu keypt þessa sömu íbúð tæpum mánuði fyrr og fengið fangann til að skrifa undir kaupsamning sem kaup- andi. Fanginn var síðar látinn selja Margréti íbúðina. Bræðumir keyptu íbúðina á 2,5 milljónir að núviröi seldu hana nokkrum dögum síðar á tæpar 3 milljónir. Fanginn hefur ját- að að hafa orðið við óskum bræðr- anna. Hann taldi að það yrði til þess að þeir greiddu sér skuld sem hann átti hjá þeim ef hann geröi sem þeir segðu. Margrét fór að ráðum starfsmanna Miðborgar og greiddi allar greiðslur til annars bræðranna. Sá sem seldi bræðrunum íbúðina hafði samband við Margréti og sagði henni að hún skyldi hætta að greiða bræðrunum þar sem þeir stæðu ekki í skilum til sín. Svo vel segist Margrét hafa treyst bræðranum að hún taldi víst að sá sem hringdi hefði rangt fyrir sér. Þegar ljóst var hvemig komið var reyndi Margrét allt hvað hún gat til að halda íbúðinni. Húsnæðisstofnun var reiðubúin til að lána henni vem- legar fjárhæöir. Þaö dugði ekki til. íbúðin var seld 10. þessa mánaðar á nauöungaruppboði. Kaupandi var sá sem seldi bræðrunum á sínum tíma. Hann keypti íbúðina á 2,5 milljónir. Honum hefur því líklega tekist að forða sér frá fjárhagstjóni en eftir situr Margrét íbúðarlaus og stór- skuldug. „Ég verð að halda sönsum. Það er sárt að hafa lent í þessu. Bræðumir hafa haldið áfram ýmiskonar fyrir- tækjarekstri. Lögregla lokaði fast- eignasölunni en það dugði ekki til. Mér skilst að annar þeirra reki eða hafi rekið verslun. Þeir hafa einnig verið með myndbandaleigur. Annar FYRIR ATHAFNAFÓLK sölunnar Miðborgar sé ekki minni en bræðranna í þessum svikum. Hún telur að vitneskja hafi verið fyrir hendi um framferði bræðranna. Mið- borg lét ekki svo mikið að svara bréf- um vegna málsins. Nú er liðið á þriðja ár frá því að rannsókn málsins hófst og er það nú til ákvörðunar hjá ríkissaksóknara. Bræðumir hafa féflett fleiri aðila með ámóta svikum. -sme Margrét Oskarsdóttir að pakka niður. A myndinni má sjá hluta bóka henn- ar. Til dæmis bækurnar; Þegar vonin ein er eftir, Luktar dyr, Ráóherrann og dauðinn og dagbækur ásamt bréfum frá lögmönnum. „Ég verð að halda sönsum. Ég hef góða von um að koma búslóðinni i geymslu. Ættingjarnir eru á ísafirði svo ég verð að banka upp á einhvers staðar og óska eftir að fá að sofa. Ein dóttir mín er með tjaldið mitt i Þyskalandi svo ekki get ég farið í Laugardalinn," sagði Margrét Óskarsdóttir. DV-mynd AE Toyota Land Cruiser fer jafn léttilega um götur bæjarins sem úti á þjóðvegunum. Vökvastýrið gerir hann lipran í akstri og farþega- iýmið er búið öllum þægindum og lúxus sem smekkmenn kunna að meta. Útlitshönnun bílsins er sterkleg og traustvekjandi. En hann er ekki útlitið eitt heldur sameinast í Toyota Land Cruiser aflmikil vél, sterkur fjaðurbúnaður; drif og undirvagn. Hvort sem þú skreppur með fjölskyldunni á skíðf í lax eða í lengri ferðir þarftu voldugan bíl sem treystandi er á. Til afgreiðslu strax. Verð frá kr. 1.139.000* þeirra á nú stjömukortafyrirtæki í Kringlunni, dýrasta stað á landinu, ég ætti kannski að fara til hans og fá að vita hvort stjörnurnar séu mér ekki heillavænlegri nú en þegar ég keypti íbúðina í október 1984. Ég hef hugsað til þess að þaö tekur mun fyrr af ef ég drekki mér. Ég hef samt engin slík áform. Ég verð að halda sönsum," sagði Margrét Óskarsdóttir. Margrét telur að hlutur Fasteigna- * Verð miðað við gengi í maí 1988. TOYOTA Hröðum akstri fylglr. öryggisleysi, orkusóun og streita. Ertu sammála? yUMFEREAR RAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.