Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Page 10
10
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988.
Stjaman er vinsælust en aðeins ársgömul:
„Ætlum að slá út frétta-
stofu Ríkisútvarpsins"
- Hverju vilt þú þakka þessar vin-
sældir?
„Fólkinu sem vinnur hér á Stjörn-
unni. Þaö sem þetta fólk hefur sér til
ágætis er löng reynsla af útvarpi eöa
reynsla af öörum fjölmiölum. Þorgeir
Ástvaldsson meö 12 ára reynslu, Jón
Axel Ólafsson hefur veriö viðloöandi
útvarp í tíu ár, Gunnlaugur Helgason
í fjögur ár, Björgvin Halldórsson hef-
ur langa reynslu í sambandi við upp-
tökuvinnu og þekkir tónlist mjög
vel. Ég hef sjálfur verið fimmtán ár
í fjölmiðlun, Bjarni Dagur var viðloö-
andi rás 2 í mörg ár og Helgi Rúnar
hefur tveggja ára 'reynslu. Frétta-
menn Stjörnunnar eru allt gamal-
kunnir íjölmiölamenn. Þeir eru
Eiríkur Jónsson, Ólafur Geirsson,
Anders Hansen, Jón Ársæll Þórðar-
son og Björn Hróarsson sem hefur
reyndar minnsta reynslu.“
- Er reynslan þaö sem gerir Stjörn-
una vinsæla?
„Já, þaö hefur mikiö aö segja og
einnig að þrír af eigendum eru jafn-
framt staifsmenn. Þaö gerir gæfu-
muninn aö þeir eru alltaf á staönum
og hafa allt aöra tilfinningu fyrir
vinnunni en ef þeir væru eingöngu
starfsmenn. Þeir gefa sig í þetta af
alhug og geta unnið hér öðruvísi en
ef þeir væru bara starfsmenn. Viö-
brögö hlustenda eru fljótari aö skila
sér vegna þess hversu eigendur eru
fljótir til í hvers kyns ákvörðunar-
töku. Þetta er eitt af því sem stuðlar
að vinsældum stöðvarinnar."
- Hvað með dagskrárstefnu?
„Hún verður alltaf skýrari eftir því
sem viö ræöum meira saman. Viö
erum meö dagskrárstjórn sem hittist
daglega á fundum. Þann fund sit ég,
eigendurnir þrír, Björgvin Halldórs-
son og auglýsingastjórinn. Viö erum
sífellt að fmstilla dagskrána. Hún
veröur þó aldrei fullmótuð þvi ég lít
þannig á aö dagskrárstefna sé eftir
aöstæöum hverju sinni. Hana þarf
aö laga daglega þótt grunnstefna
okkar sé sú aö líta á þessa stöö sem
„Samkvæmt síðustu hlustenda-
könnun erum við í samkeppni við
Ríkisútvarpið. Stjarnan mun ekki
sætta sig við að missa hiustun.
Við stefnum aðþví að vera áfram
á toppnum. “ Ólafur Hauksson
bjartsýnn á framtíðina i sólskin-
inu í vikunni.
DV-mynd KAE
- segir Ólafur Hauksson útvarpsstjóri
Ólafur Hauksson, útvarpsstjóri
Stjörnunnar, er einn af fyrstu mönn-
um hér á landi til að skrifa um frjálst
útvarp. í Samúelblöðum frá árunum
1974-75 má lesa ýmsan fróöleik um
frjálst útvarp í öðrum löndum og
hugleiðingar um frjálst útvarp á ís-
landi. Ólafur hélt skrifum sínum
áfram í gegnum árin og hóf aö skrifa
um frjálst útvarp í önnur blöð einn-
ig. Hann var einn af stofnendum Ís-
lenska útvarpsfélagsins, er það var
stofnað, en sagöi sig úr félaginu
skömmu síðar. Þaö kom ekki mjög á
óvart er Ólafur var ráöinn útvarps-
stjóri Stjörnunnar í ágúst á síðasta
ári. Mikill uppgangur hefur veriö á
Stjörnunni síöan og í síöustu hlust-
endakönnum var hún langvinsæl-
asta útvarpsstöðin á íslandi. Stjarn-
an heldur upp á eins árs afmæli sitt
4. júní eöa eftir eina viku.
fjölmiðil augnabliksins. Fólk er svo
til alveg hætt aö kveikja á útvarpi til
aö ná ákveðnum þáttum. Það kveikir
á útvarpi og hefur í gangi eftir sínum
hentugleikum. Frábrugðið t.d. sjón-
varpi sem setur efni á dagskrá eftir
eigin hugdettum. Dagblöð þarf að
kaupa og setjast niöur og lesa en út-
varpið er í gangi þegar menn vilja
hlusta á þaö. Ég hef htiö á útvarp sem
afþreyingarmiðil meö fréttum ag
upplýsingum sem henta fyrir þessa
notkun.“
- Lætur fólk útvarpið vera í gangi
og mata sig, burtséð frá hvort það
hlustar eða ekki?
„Viö fengum tvo skoska auglýs-
ingamenn til okkar í heimsókn sl.
haust til að gefa okkur góö ráð varð-
andi útvarp sem auglýsingamiðil.
Bæði í Skotlandi og Bretlandi er mik-
fl reynsla á þessu sviði. Þessir menn
sögöu að útvarp væri mikill bak-
grunnsmiðill en samt síast inn í fólk
það sem sagt er. Prófanir, sem gerðar
hafa veriö oft á tíðum, sýna aö jafn-
vel þótt fólk sé ekki aö hlusta þá
heyrir það þaö sem sagt er. Auglýs-
ingar sitja alltaf eftir, þrátt fyrir aö
fólk sé ekki beinlínis aö hlusta."
- Finnst þér þá ekki ástæða til að
hafa metnaðarfyllri þætti á dagskrá?
„Maður þarf fyrst að átta sig á þvi
hvemig útvarp er í raun og veru.
Viö teljum okkur vera nokkuð meö
þaö á hreinu hvernig útvarp er notað
og höfum okkar dagskrárstefnu miö-
aö viö þaö. Okkar metnaöur er aö
þjóna hiustendum eins og þeir nota
útvarp. Stundum hlustar fólk mikið
á útvarp, stundum lítið. Þó er aðal-
lflustunin yfir daginn. Þá finnst okk-
ur eðlflegt aö koma meö þær upplýs-
ingar sem henta yfir daginn, þær
fréttir sem eru aö gerast og afþrey-
ingartónhst sem fehur best að smekk
flestra hlustenda. Okkar metnaður
um útvarp gengur út á þetta. Dag-
skrárgeröarþætti, sem faha ekki inn
í þetta form, teljum við ekki ástæöu
tfl aö hafa. Fjölmiölarnir eru margir
og við þurfum ekki aö vera eins og
hinir. Það er hægt að hafa löng og
ítarleg viðtöl í dagblöðum en þau
henta ekki þvi formi sem útvarp er.
Sjónvarpið getur líka sýnt ýmsa hluti
sem viö getum ekki komið til skila.
Viö erum fyrst og fremst að átta okk-
ur á að hver fjölmiöill hefur sinn
karakter."
- Oft er talað um síbylju á útvarps-
stöðvunum og að þar mætti vera
meira um talað mál. Heldur þú að
afþreyingartónlist sé það sem al-
menningur vill hafa í útvarpinu?
„Máhö er aö þræöa hinn gullna
meðalveg. Við förum eftir viðbrögð-
um hlustenda hverju sinni. Á
ákveðnum timum dagsins er fólk
móttækflegra fyrir töluðu máli en
aðra tíma. Við höfum ákveðnar hug-
myndir á hvaða tíma dagsins það er
og stihum okkur eftir því. Þaö er
ekki endilega magn talaös máls sem
skiptir máli heldur gæði. Ef menn
hafa ekkert að segja og ekkert er að
frétta þá er betra aö þegja.“
- Brottrekstur starfsfólks á Stjörn-
unni var mikið til umfjöllunar á sín-
um tíma. Hvað vakti fyrir þér með
þeirri uppstokkun?
„Það voru ákveönar aðgeröir sem
teknar voru upp er ég hóf hér störf
sem miðuðu að ákveðinni hagræð-
ingu og sparnaði í rekstri. Ókostur-
inn, sem var hér framan af, var að
hér voru of margir starfsmenn í
vinnu. Mín stefna hefur verið sú að
hafa færri starfsmenn og að hver
þeirra sé í fullu starfi. Ég vildi ekki
hafa fólk sem var með einn þátt í
viku. Aðeins ein slík manneskja er
nú í vinnu. Tfl að gera þetta mögu-
legt þurfti að biðja einhveija að fara
í hvíld. Síðan mátti fækka starfsfólki
og sameina ákveðin störf og það var
gert. Það voru tuttugu og fimm í fullu
starfi en eru núna nítján. “
- Hafðir þú mótað þér einhverja
ákveðna stefnu áður en þú tókst
starfið að þér?
• „Ég hef ahtaf haft ákveðnar hug-
myndir um hvernig útvarp á að vera
og auðvitað er ég að koma þeim hing-
að irih. Það er þó langt í frá að Stjarn-
an sé rekin eingöngu eftir mínu
höfði. Gífurlega mikil samvinna er
hér innanhúss og ég ber mikið traust
til þeirra sem hér starfa. Ég vil þó
að menn hafi þá grundvallarstefnu í
huga hvernig miðill útvarp er. Miðað
við t.d. hversu útvarpshlustun er lít-
fl á kvöldin þá tók ég af alla kvöld-
dagskrá. Ég sá ekki ástæðu til að
vera með dýra dagskrá á kvöldin
þegar. hlustunin er fyrst og fremst
hjá ungu fólki sem er að leita eftir
tónhst. Okkar aðaláhersla er lögð á
dagskrá frá sjö á morgnana til sjö á
kvöldin.“
- Stjarnan er rekin af auglýsinga-
tekjum eins og aðrar stöðvar. Þurftir
þú að taka til hendinni þar líka?
„Ég fækkaði og fjölgaði á auglýs-
ingadeildinni. Ég vildi fá öflugri aug-
lýsingadefld með góðu sölukerfi. Það
tók nokkurn tíma að koma því í gang
og viö erum núna með þrjá mjög
duglega sölumenn í fullu starfi. Þaö
hefur skipt sköpum fyrir afkomu
stöðvarinnar. Staðreyndin er sú að
það þýddi ekki að sitja og bíða eftir
að auglýsendur kæmu til okkar.
Einnig útbjuggum við aðstöðu til að
vinna leiknar auglýsingar fyrir við-
skiptavininn. Hljóðverið er í stöðugri
notkun allan daginn, enda hefur
hlutfah auglýsinga breyst úr 90%
lesnum auglýsingum í 50% á móti
50% núna. Stjaman er afkastamesti
framleiðandi útvarpsauglýsinga á
landinu.“
- NúhefurheyrstaðStjarnannánast
gefi sínar auglýsingar?
„Það er nákvæmlega sama fyrir-
komulagið hér og hjá öðram fjölmiöl-
um. Afsláttur er gefinn í samræmi
við magn. Við höfum fasta verðskrá
og hvikum ekki frá henni. Þaö væri
að grafa sína eigin gröf að selja aug-
lýsingar út á endalausa afslætti.
Áuðvitaö geta komið upp dæmi þess
að einhver mistök eigi sér stað og þá
:-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------—---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1-----------------------------