Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988.
Popp
Ef þessa dagana er gripiö niöur í
einhveija þeirra lagasmiöa, sem
kenndar eru við danstónlist og þá
sérstaklega hipp-hopp, er næsta
víst að heyra má eitthvað af verk-
um guðfóður soul-tónlistarinnar,
James Brown. Raunar er ólögleg
notkun á verkum þessa hæfileika-
ríka tónlistarmanns svo mikil að
hann nýtur nú þess vafasama heið-
urs að vera sá listamaður sem mest
hefur verið stolið frá hin seinni ár.
Að James Brown forspurðum hef-
ur hann verið kynntur fyrir nýrri
kynslóð aðdáenda sem hefur tekið
honum opnum örmum; hann á sem
sé mörg þeirra danslaga sem hvað
mestum vinsældum hafa náö und-
anfarið. Fyrir skömmu kom út lag-
ið The Payback Mix sem inniheldur
úrval bestu laga James Brown. Þaö
er núna á topp tuttugu á breska
smáskífulistanum og sýnir það vel
nýfengnar vinsældir meistarans.
Því er ekki úr vegi að rekja í stuttu
máli feril James Brown sem er fyr-
ir löngu orðinn eins konar stofnun
í bandarískri tónlistarsögu.
Almennt er viðurkennt að enginn
svartur tónlistarmaður hafi átt
jafnmikinn þátt í að móta dægurla-
gatónlist og James Brown. í meira
en þrjátíu ár hafa verk hans auðgað
soul- og funk-tóniistina. Mick Jag-
ger, Michael Jackson og Prince eru
t.d. meðai þeirra íjölmörgu tónhst-
armanna sem eru undir beinum
áhrifum frá honum, bæði hvað
varðar tónlist og sviðsframkomu.
James Brown fæddist 3. maí 1933
í Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Hann varð snemma munaðarlaus
og bjó fyrstu tuttugu ár ævi sinnar
við gífurlega fátækt. Hann beitti
ýmsum ráðum til að hressa upp á
fjárhaginn en leiddist út í smáglæpi
og var hnepptur í fangelsi 1949.
Árið 1952 losnaði hann úr prísund-
inni með aðstoð vinar síns, Bobby
Byrd, sem átti eftir að spila lengi
með honum. Næstu þrjú árin starf-
aði hann í hljómsveit sem hét The '
Famous Flames og jók smám sam-
an vinsældir sínar.
Árið 1956 gaf hann svo út sína
fyrstu smáskífu, Please, Please,
Please, sem varð sú fyrsta af yfir
fjörutíu plötum hans sem seldust í
yfir einni milljón eintaka. Heldur
fór lítið fyrir honum til ársins 1962
eða þar til hljómleikaplatan Live
at the Apollo kom út. Sú plata, sem
er almennt talin ein af albestu plöt-
um dægurlagatónlistarinnar,
tryggöi honum varanlegar vin-
sældir og titilinn soul-bróðir núm-
er eitt. Á eftir fylgdi röð laga sem
öllum vegnaði vel á rytma- og blús-
vinsældalistunum en það voru lög-
in Papa’s Got a Brand New Bag og
I Got You (I Feel Good), sem komu
út 1965, sem fyrst komu James
Brown inn á topp tíu á poppvin-
sældalistanum. Það sem vakti
mesta athygli var óvenjuleg notk-
un hans á flóknum rytmum, sem
hafði aidrei heyrst áður.
James Brown:
James Brown: kveikjan að hipp-hopp taktinum.
Næstu tíu árin var óvenjulegt ef
ekki var aö finna eitthvert laga
James Brown á vinsældahstum í
Bandaríkjunum og efast enginn um
stefnumarkandi áhrif hans á soul
og það sem síðar átti eftir að heita
fonk. ÖU helstu tónlistarfyrirbæri
fónksins, s.s. Sly Stone, Motown
útgáfur Normans Whitfield, Stevie
Wonder o.fl., eru í ómetanlegri
þakkarskuld viö James Brown og
verk á borð við It’s a Man’s Man’s
Man’s World, Cold Sweat, Sex Mac-
hineogSoulPower.
Það vih oft gleymast hve áhrifa-
mikill James Brown var í baráttu
svertingja fyrir auknum mannrétt-
indum á sjöunda áratugnum. Lög
eins og Say It Loud - I’m Black and
’l’m Proud, sem náði tíunda sæti
smáskífulistans, voru hvatning til
svertingja um að láta reyna á
möguleikana á að ná fram rétti sín-
um í bandarísku þjóðfélagi. Hám-
arki náðu þessi áhrif þegar Martin
Luther King var myrtur. Þá voru
tónleikar James Brown sýndir í
sjónvarpinu gagngert til að halda
svertingjum fyrir framan sjón-
varpið í stað þess að efna til óeirða
á götum úti.
Ferill James Brown hefur verið í
töluverðri lægð frá árinu 1976 þar
til nú nýlega þegar hann birtist í
kvikmyndum eins og Blues Brot-
hers eða Rocky IV, þar sem hann
sló í gegn með laginu Living in
America. Mest hefur þó munað um
hve mikill áhuginn hefur verið
meðal ungra, svartra tónlistar-
manna á verkum hans. Þar koma
til bæði listamenn hipp-hoppsins
sem hafa tileinkað sér fönk-ryt-
mana í tónlist hans og svo nýjar
poppstjömur eins og Terence Trent
D’Árby sem hefur einmitt náð
mestum vinsældum með laginu
Dance Little Sister sem er lítið ann-
að en nútímaútgáfa af James
Brown.
Sjálfur hefur James Brown veriö
að vinna að nýrri breiðskífu með
hipp-hopp sveitinni Full Force og
kemur hún út innan skamms. For-
smekkurinn að henni er kominn
út í formi smáskífunnar I’m Real
sem er þegar komin hátt á vin-
sældalista t.d. í Bretlandi og þykir
það besta sem hann hefur sent frá
sér í fjöldamörg ár. Annars hefur
meistarinn lent í óþægilegu klandri
í einkalífi sínu því hann var nýlega
ákærður fyrir að hafa sýnt eigin-
konu sinni banatilræði. Hann
skaut fimm skotum á bíl hennar
(þegar hún var einmitt að aka hon-
um). Þegar það hafði ekki áhrif
náði hann til hennar síðar, gerði
sér lítið fyrir og lamdi hana með
járnröri. Ekki hefur enn verið
kveðinn upp dómur í þessu máh
en svo gæti farið að James Brown
verði að dúsa í nokkur ár í fangelsi
einmitt þegar hann er að klífa tinda
frægðarinnar á ný á sextugsaldrin-
um.
Manchester sveitin New Order er enn á
ný komin í efstu sæti breska smáskífulist-
ans meö endurútgáfu á vinsælustu tólf.
tommu plötu allra tíma, Blue Monday. í
upprunalegri mynd sinni hefur Blue
Monday selst í yfir tveim milljónum ein-
taka og veriö á topp 200 í Bretlandi síðan
lagiö kom út 1983. Núna er komið út Blue
Monday ’88 sem er endurhljóöblöndun
Quincy Jones á laginu, en hann á aö baki
langan feril og hefur m.a. annast upptöku
á seinustu plötu Michaels Jackson, Bad.
Lagiö hefur veriö lagað að svartri danstón-
list í Bandaríkjunum en tilefni endurút-
gáfunnar er að fyrirtækið Sunkist ætlar
aö nota nýju útgáfuna í auglýsinjgaherferö
fyrir vöru sinni, appelsínusafa. Imyndið
ykkur „Sunkist is the one“ í staö „How
does it feel“!
Og meira af vettvangi breska vinsælda-
listans. í efsta sæti listans sitja þessa vik-
una tvö lög í flutningi breska sósíalistans
og trúbadorsins Billy Bragg annars vegar
og vinsældapopparanna Wet Wet Wet hins
vegar. Einhverjum þætti þetta nú ólíkleg
blanda á einni smáskífu en útskýringin á
því felst í tilefninu sem er útgáfa á plötu
til styrktar góðgerðarstofnuninni Childline
í Bretlandi. Stofnun þessi rekur símaþjón-
ustu sem veitir börnum og unglingum, sem
oröiö hafa fyrir ofbeldi eöa kynferðislegri
misbeitingu á eigin heimili, ráögjöf og
hjálp. Lögin tvö, sem eru nýjar útgáfur á
gömlu bítlaslögurunum She’s Leaving
Home og With a Little Help from My Fri-
ends, fóru með miklum hraða í fyrsta sæt-
ið. Taliö er aö Childline muni fá tugi þús-
unda punda vegna smáskífusölunnar...
Á næstu dögum kemur út smáskífa sem
spáö er gífurlegum vinsældum á dansgólf-
um Evrópu. Hér eru á ferðinni þeir DJ
Dave Dorrell og CJ Mackintosh sem voru
mennirnir á bak viö M/A/R/R/S lagið Pump
up the Volume. Nýja sveitin þeirra nefnist
Nasty Rox Inc. en lagið heitir Escape from
New York. Verkið er gefiö út af plötuútgáf-
unni ZTT sem gaf út Frankie Goes to Holly-
wood. Þar á bæ eru menn bjartsýnir á að
lagiö eigi jafnvel eftir aö slá Relax viö ...
Neðanjarðarsveitin frá New York, Swans,
sem heimsótti Island í nóvember og hélt
eina eftirminnilegustu hávaðatónleikana
sem nokkru sinni hafa verið haldnir hér-
lendis, er nýbúin aö senda frá nýja smá-
skífu sem vægast sagt markar þáttaskil á
ferli þessarar hljómsveitar. Lagið, sem er
túlkun Michaels Gira og félaga á meistara-
verki Joy Division, Love Will Tear Us
Apart, er eins ljúf popptónlist og hugsast
getur og er ekki ólíklegt aö þaö eigi eftir
aö slysast inn á vinsældalista einhvers
staðar.
Hipp-hopp tónlistin eykur stööugt fylgi
sitt víða um lönd og þessa dagana er mikið
af góöum plötum aö koma út og teljast þær
til þess besta sem þessi tónlistartegund
býður upp á. Ný breiðskífa frá Run DMC,
sem sló í gegn meö lagi Aerosmith, Walk
This Way, er komin út. Hún heitir Tougher
than Leather. Tónlistarskæruliöamir frá
New York, Public Enemy, sem gáfu út plöt-
una Yo! Bum Rush the Show, sem gagnrýn-
endur Melody Maker völdu bestu breið-
skífu 1987, senda í næsta mánuöi frá sér
aöra breiðskífu, It’ll Take a Nation of Milli-
ons to Keep Us Down. Bjartasta von Breta
í hipp-hoppinu, Derek B, sem er m.a. mað-
urinn aö baki Anfield Rap Liverpool fót-
boltaliösins, var að gefa út fyrstu breið-
skífu sína, Bullet from a Gun. Besta safn-
plata hipp-hopp tónlistar, sem komiö hefur
út í langan tíma, er meö tónlistinni úr nýrri
kvikmynd Dennis Hopper, Colors. Myndin
íjallar um baráttu tveggja lögreglumanna
við glæpagengi í fátækrahvefum Los Ange-
les og inniheldur lög flutt m.a. af Ice-T,
Roxanne Shanté, Big Daddy Kane og Eric
B & Rakim. Allt eru þetta plötur sem vel
er þess viröi að hafa upp á...
Umsjón: Þorsteinn Högni Gunnarsson