Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Síða 38
50 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988. Breiðsíðan Bergþór Pálsson söngvari: „Vióhorfið hefiir breyst til fegurðarsamkeppni" „Ég held að viðhorf mitt til fegurðarsamkeppni hafi breyst við þessa reynslu,“ sagði Bergþór Pálsson, annar kynnirinn á Fegurðarsamkeppni íslands, er Breiðsíð- an forvitnaðist um hvemig honum hefði líkað starfið. „Eg reikna með að viðhorf mitt sé mun j ákvæðara. Hingað til hefur mér þótt óþægileg tilfinning þegar ein er vahn úr hópi fallegra stúlkna. Ég sá það núna að það skiptir ekki öllu máh hjá þessum stúlkum að verða í fyrsta sætinu. Þær hta fremur á keppnina sem námskeið og vinnu. Þær fá tilsögn í framkomu og að bera sig vel,“ sagði Bergþór. Hann sagði ennfremur að honum hefði fundist gaman að taka þátt í öhu tilstand- inu. „Ég vissi áður að keppnin yrði mikið „show“. Stemmningin í salnum var einn- ig mjög góð.“ Bergþór vakti athygli er hann kynnti skemmtun í Háskólabíói sem var til styrktar nýju tónleikahúsi. Þá vakti hann ekki síður athygh er hann kom fram í þætti Hermanns Gunnarssonar, Á tah, þar sem hann söng vinsælt lag faðir hans, Páh Bergþórsson veðurfræðingur, gerði íslenskan texta við. „Hermann vildi hafa íslenskt efni í þættinum og mig lang- aði til að syngja þetta lag. Faðir minn samdi þess vegna texta við lagið. Ég hafði heyrt lagið einu sinni og fannst það skemmtilegt en núna skhst mér að það sé orðið mjög vin- sælt.“ Hann sagðist vel geta hugsað sér að gefa út plötu með dægurtónlist - einhvem tíma. Nú er hann hins veg- ar á leið th Þýskalands þar sem hann verður á samn- ingi næstu tvö árin í óperuhúsinu í Kaiserslautem. Þar verður Bergþór í hlutverki Don Giovanni sjálfs en hann hefur leikið í verkinu hér heima í öðru hlutverki. „Ég ætlaði mér ahtaf að verða rokk- söngvari en það æxlaðist þannig að ég fór út í klassískt nám,“ segir hann. Þó telur Bergþór ahs ekki loku fyrir það skotið að hann eigi eftir að nýta námið sem dægurlagasöngvari einnig. „Margirfrægiróperusöngvarar hafa sungið dægurlög, t.d. Peter Hofmann. Guðrún Á. Símonar byrjaði sem dægur- lagasöngkona. ‘ ‘ Bergþór Pálsson, sem ), er þrítugur að aldri, er rétt að byij a / ferihnnenhannsegiraðnæstutvö árin skeri úr um hvert áframhaldið < verður. „Ég hef engar sérstakar væntingar um heimsfrægð,“ segir hann hæverskur. Bergþór fer utan um mánaöamóún en kemur heimí júlí. „Ég tek mér tveggja mánaða frí og slaka á áöur en alvaran byijar í haust.“ -ELA Nýr leikur hófst í blaðinu um síðustu helgi. Hann er reyndar ekki alveg nýr því sami leikur var í Vísi á sínum tíma. Leikurinn felst í því að Ijósmyndari blaðsins myndar fólk á förnum vegi, í Reykjavík eða annars staðar á landinu. Við veljum eitt andlit á myndinni, setjum hring um það og þar með er viðkomandi orðinn tvö þúsund krónum ríkari. Venjulega er myndin tekin úr fjarlægð þannig að vegfarendur verða Ijósmyndarans ekki varir. Þessi mynd, sem hér birtist, er tekin í göngugötunni í Austurstræti í vikunni. Ung stúlka í Ijósum jakka fékk hringinn um höfuð sér og getur því vitjað tvö þúsund króna hér á ritstjórn DV, Þverholti 11. Maðurinn, sem var svo Ijónheppinn að vera í hringnum um síðustu helgi, heitir Kristján Halldórsson, Hnjúkaseli 6, og er nemi í Verslunarskóla íslands. DV-mynd KAE Þú ert 2000 krónum ríkari! MENN koma konum sínum misjafnlega á óvart á afmælisdaginn. Stjörnurnar munar ekki um að hafa dýrar og skemmtilegar uppákom- ur. Elton John kom til dæmis konu sinni, Ren- ötu, mjög á óvart er hún hélt upp á þrítugasta og þriðja afmælisdaginn sinn fyrir stuttu. Þau sátu í stofunni ásamt nokkrum góðum vinum og allt í einu voru Ijósin dempúð,Elton John settist við píanóið og inn kom stærðarinnar af- mælisterta. Elton John byriaði að spila gömul bítlalög á píanóið og upp spruttu bítlarnir Georg Harrison og Ringo Starr og sungu: He loves you yeah, yeah, yeah! ★★★ OG fyrir aðdáendur Mo- onhghting-þáttanna upplýsum við hér að í lokaþætti í myndasyrpu, sem nú er verið að ljúka framleiðslu á í henni Ameríku, taka þau skötuhjú, Maddie og David, upp á því að gangaíþaðheilaga. Hvort önnur mynda- syrpa verður gerð um hveitibrauðsdagana fylgdi ekki sögunni... ★★★ LEIKKONAN Glenn Cose, sem lék eftirminni- lega í myndinni Hættu- leg kynni, Fatal Attrac- tion, og var útnefnd til óskarsverðlauna varð léttari aöeins fáum dög- um eftir verðlaunaaf- hendinguna. Barnið reyndist vera stúlka, heilbrigðogfalleg. Mörgum fannst skondið þegar Glenn Cose birtist viö óskarsverðlaunaaf- hendinguna á síðasta mánuði meðgöngu, stuttu eftir að myndin Hættuleg kynni hafði slegið 1 gegn - þar sem hún tilkynnti viðhaldinu (Michael Douglas) að húnættivonábarni. Eiginmaður Glenn Cose ogfaðirbarnsinser framleiðandinn John Starke.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.