Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍT988.
7
Fréttir
Kosningaskrifstofur forsetaframbjódendanna í Reykjavík:
Stuöningsmenn beggja forseta-
frambjóöendanna eru reiöubúnir
undir lokasprettinn og gott liljóð í
báöum.
Hanna Pálsdóttir, stuöningsmaður
Vigdísar Finnbogadóttur, sagöi að á
stuðningsmannaskrifstofunni væri
fyrirspurnum svarað um þaö hvort
fólk væri á kjörskrá og hvar það
ætti að kjósa. Bílar verða til taks til
að keyra fólk á kjörstaö á kjördegi
en einni^ væri þeim sem það vildu
útvegaður bíll til að kjósa utan kjör-
staða. Hanna sagði að starfið fælist
aðallega í aöstoð við kjósendur og að
hvetja fólk til að nýta kosningarétt
sinn.
Hjá stuðningsmönnum Sigrúnar
Þorsteinsdóttur fengust þær upplýs-
ingar að síðustu dagana myndu hóp-
ar stuðningsmanna ganga um í iðn-
aðarhverfum, þar sem mikið væri
um lítil fyrirtæki, og ræða við kjós-
endur. Einnig yrðu stuðningsmenn á
ferð um miðbæ Reykjavíkur fram að
kosningum. Ekki er stefnt að neinni
útgáfustarfsemi en klukkan 17.00 í
dag, fóstudag, ætla stuðningsmenn
Sigrúnar að efna til útifundar á
Lækjartorgi. Það mun verða loka-
punktur kosningabaráttu Sigrúnar.
Á kjördag verður opiö á kosninga-
skrifstofunni og boðið upp á akstur
á kjörstað fyrir þá sem þaö vilja.
-JFJ
Þegar einn dagur er til kjördags skrá í Reykjavík. Jónas sagöi að
hafa um 5000 manns greitt atkvæði nú síðustu dagana hefði kosninga-
utan kjörstaða en það er um fiórð- þátttaka utan kjörstaða aukist eins
ungi minna en í síðustu forseta- og venjulega.
kosningum að sögn Jónasar Gú- Kosiö er í Ármúlaskóla og eru
stafssonar borgarfógeta. síðustu forvöð fyrir Reykvíkinga
I síðustu forsetakosningum kusu að kjósa utan kjörstaðar í dag
6.495 utan kjörstaða en það voru klukkan 10-12,14-18 og 20-22. Þeir
um 12,7% af greiddum atkvæðum. sem búa utan Reykjavikur geta
Utankjörstaðakosningin nú nemur hins vegar kosið í Ármúlaskóla
um 7,2% af þeim sem eru á kjör- klukkan 10-12 og 14-18. -JFJ
Stuðningsmenn Sigrúnar:
Krefja stjómar-
flokkana svara
Stuðningsmenn Sigrúnar Þor-
steinsdóttur hafa sent stjórnarflokk-
unum bréf þar sem spurt er hvort
viðhorf flokksformannanna Þor-
steins Pálssonar, Steingríms Her-
mannssonar og fyrrverandi for-
manns Alþýðuflokksins, Gylfa Þ.
Gíslasonar, sem allir hafa lýst yfir
stuðningi við Vigdísi Finnbogadótt-
ur, túlki viðhorf viðkomandi stjóm-
málaflokka.
í lok fréttatilkynningar segir: „Ef
formennirnir, núverandi og fyrrver-
andi, endurspegla ekki álit viðkom-
andi flokka er skorað á aðra for-
svarsmenn flokkanna, sameiginlega
eða persónulega, að lýsa yfir stuðn-
ingi við framboð Sigrúnar Þorsteins-
dóttur. Sigrún hefur lýst yfir að hún
vilji færa þjóðinni það virka lýðræði
sem stjórnarskráin gerir ráð fyrir og
er forsenda þeirra hugsjóna sem
þessir fiokkar kenna sig við.“
-JFJ
„Lftilsvirðing“
Stuöningsmenn Sigrúnar Þor-
steinsdóttur forsetaframbjóðanda
hafa sent frá sér fréttatilkynningu
þar sem þeir lýsa vonbrigðum sínum
með það svar Vigdísar Finnbogadótt-
ur að mæta Sigrúnu ekki í sjón-
varpssal.
í fréttatilkynningunni segir: „Þeg-
ar Vigdís náði kjöri sem forseti ís-
lands fyrir átta árum naut hún þeirr-
ar sjálfsögðu sanngirni, eins og fram-
bjóðendur í öllum fyrri kosningum,
að þjóðinni gæfist kostur á að sjá
frambjóðendur saman og bera sam-
an málflutning og frambjóðendur
sjálfa. Sérstaklega er þetta brýnt nú
þegar líður að kosningum og margir
hafa áhuga á að vanda val sitt þegar
þeir kjósa forseta til næstu íjögurra
ára.
Hér eru brotnar leikreglur sem
ættu að ríkja í kosningum og lítils-
virðing sýnd því fólki sem ætlað er
að ganga í kjörklefann þann 25. júní
næstkomandi."
-JFJ
„SkeytingaHeysiu
„Þessi viðbrögö forystumanna
launþegasamtakanna eru ótrúlegt
skeytingarleysi um það alvarlega
mannréttindabrot sem nýlega hefur
verið framið gagnvart þessum sam-
tökum. Bráðabirgðalögin, eins og öll
önnur lög, eru ekki möguleg án þess
að forseti staðfesti þau og það er al-
varlegt mál þegar forsvarsmenn
launþegasamtakanna styðja með
þögninni forsetaframbjóðanda eins
og Vigdísi Finnbogadóttur sem hefur
tvisvar samþykkt afnám samnings-
réttar og hefur lýst því yfir að hún
muni halda áfram að styðja shk lög,“
segir í fréttatilkynningu frá stuðn-
ingsmönnum Sigrúnar Þorsteins-
dóttur.
í fréttatilkynningunni lýsa stuðn-
ingsmennimir óánægju sinni með aö
hafa ekki borist svör frá BSRB, ASÍ
og BHM við ósk þeirra um að sam-
tökin lýstu yfir stuðningi við Sigrúnu
eða málstað hennar.
-JFJ
Nordmende upptöku- og afspilunarvélin,
sem seldist upp á 10 dögum í maí...
Aoeins
greiðslukjör til allt að 12 mán.
Aðeins 1300 gr (með rafhlöðu)
HQ myndgæði (High Quality)
Aðeins 10 lúx (kertaljós í 25 cm fjarl.)
430 línu upplausn
Sjálfvirk lit-, ljós og „fókus“-stilling
Dags- og tímainnsetning
14 stillingaratriði sjást í myndkíki
Tekur VHS-C spólur
Mynd- og hljóðdeyflr (fader)
Sexfalt-tveggja hraða súm
CCD örtölvu myndkubbur
Fljótandi kristals-stjómskjár
4 lokarahraðar i/6o, 1/250, 1/500 og 1/1000
Hægt að skoða upptöku strax
Ýmsir fylgihlutir
o. fl. o. fl.
Almenntverð: 98.706,-
NORDMENDE
-NYTSÖM NÚTÍMATÆKI
SKIPHOLT11
SIMI29800
HÚN ER
KOMIN AFTUR...