Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Page 13
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1988.
13
HVÍTLAUKS
PERLUR
ÁN LYKTAR
OG BRAGÐS
HVER PERLA INNI-
HELDUR 66mg. AF
NÁTTÚRULEGUM
HVÍTLAUK
DV
Lesendur
Að fylgja Finnum og Svíum:
Kyssum á vöndinn
K.Þ. hringdi:
í tilefni þess aö ég las í gær (21.
júní) lesendabréf í blaöinu ykkar um
fisksölufrelsið hjá EFTA, undir fyrir-
sögninni: Finnar fylgja Svíum gegn
íslendingum, langar mig til að koma
aö viðbót viö það efni sem um var
rætt í bréfmu, sem mér fannst mjög
tímabært. Mér kom nefnilega í hug
í gærkvöldi, eftir aö hafa séð í ríkis-
sjónvarpinu þátt um íslamska list,
einmitt frá finnska og sænska sjón-
varpinu, hvort við íslendingar ætl-
uðum aldrei að ljúka upp augunum
fyrir skaðseminni sem af því hlýst
að skipta við þessar „frændþjóðir"
okkar.
Við erum alltaf að kyssa á vöndinn
með því að skipta við þessar þjóðir.
Viðskiptahallinn er okkur alltaf í
óhag og þær vörur, sem við kaupum
af þessum þjóðum, getum við keypt
hvar annars staðar sem er. Okkur
er engin vorkunn að hætta samskipt-
um, einkum við Svía og Finna, þar
sem báðar þessar þjóðir hafa sýnt
okkur greinilega lítilsvirðingu og
beina óvild, t.d. með því að standa í
vegi fyrir viðskiptafrelsi í fisksölu-,
málum innan Evrópubandalagsins.
En mér fannst hittast einkennilega
á aö sama dag og lesendabréfið um
andstöðu Svía og Finna var í DV var
sýndur í ríkissjónvarpinu þáttur sem
þessi tvö lönd standa að. - En víð
eigum eftir að komast að því full-
keyptu hvað það þýðir í raun að
kyssa stöðugt á vöndinn - og alltaf
rétt fyrir og eftir að við höfum verið
flengdir af þessum þjóðum.
Sumarleyfi og ferðalög:
Virðum náttúruna
VOFNMÆISPRÓFAÐAR
ö \ s.
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Sumarleyfi og ferðalög eru hafin
hjá landsins lýð. Margur skellir sér
væntanlega í utanlandsreisu í orlofi
sínu, til að freista þar gæfunnar og
verða brúnn og sællegur (eða hitt þó
heldur!). En sá er einmitt tilgangur
slíkra ferða. Annað veifið fá ferða-
langarnir sér sundsprett í vel volg-
um, en menguðum sjónum, - svamla
um í afrennslinu frá hótelunum. Ein-
staka maður nær sér í salmonellu-
sýkingu í kaupbæti, sem svo aftur
leiðir fil óhóflegrar dvalar viðkom-
andi á salemum.
Aðrir em skynsamari. Þeir ákveða
að skoða sitt fagra og yndislega ís-
land. Láta sig einu varða þótt ríkis-
stjóm fastgengis - eða gengisfellinga
- stýri skútunni. Ríkisstjórn sem
búin er að leggja gmnninn að brand-
ara framtíðarinnar varöar hina
sömu ekkert um. - Ríkisstjórnin skil-
ur hins vegar ekki að hún grefur eig-
in gröf og er í raun fallin, eins og
gengið. En þetta var nú útúrdúr.
Já, margt fólk á vonandi eftir að
aka um byggð ból og óbyggðir hólm-
ans í sumar, enda ýmislegt er glatt
getur augu og eym í slíkum ferðum,
leggi þeir í hann með jákvæöu hugar-
fari.
Sóðaskapur ferðalanga hefur tals-
vert verið til umfjöllunar á umliðn-
um árum. Og fjölmennur er hann
talinn vera sá hópur er skilur eftir
sig stóran haug af úrgangi, í hvert
sinn sem áð er. Nennir m.ö.o. ekki
að týna upp leifarnar og setja í þar
til gerð ílát og henda í næstu rusla-
tunnu.
„Of fjölmennur er hann hópurinn sem skilur éftir sig haug af úrgangi i
hvert sinn sem áð er,“ segir bréfritari.
Mönnum ber skylda til að hugsa
um næstu tjöld og næturgesti. Eng-
inn kýs að koma að tjaldstæðum út-
bíuðum og ógeðslegum, vegna kæru-
leysis þeirra sem þar voru fyrir. Stolt
hvers og eins ætti að vera að skila
dvalarstað sínum jafngóðum, eða
betri, og hann kom aö honum. Þann-
,ig eru sumir líka sinnaðir. - Sóðarn-
ir vega samt þyngra, því miður.
Mig langar til að setja fram áskor-
un til fólks á faraldsfæti; Fleygið
hvorki plastpokum né kakódósa-
óþverranum á víðavangi. Sýnum
náttúru landsins verðskuldaða virð-
ingu. Það eru nefnilega til fleiri
skemmdarvargar heldur en blessuð
sauðkindin, þótt sífellt sé verið að
amast við henni.
FÁST í NÆSTU
VERSLUN POTTÞÉTTAR
>....
w
M - Ví
1 P
itV ^
9
'JMm
Milljónir a hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111