Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Side 15
FÖSTUDAGUR 24. JUNÍ 1988. 15 Er hollt fyrir ung bóm að vera á dagvistarheimili? „Gott dagvistarheimili býður lika í flestum tilfellum upp á miklu betra uppeldi en einkaheimili og dagmömmur geta,“ segir greinarhöfundur m.a. „Ef barn fæðist eða foreldrar skilja þá eykst þrýstingur á konuna sem þá get- ur ekki borið sinn hlut í kerfmu. Afleið- ingin er sú að daggæslan verður alltaf óöruggari en á dagvistarheimilum.“ I greinum í blaðinu 8.6. og 15.6. ræddi ég um verkaskiptingu karla og kvenna og hélt því fram að sú skarpa hlutverkaskipting, sem nú tíðkast, væri af hinu illa. Sérstaka áherslu lagði ég á að karlar væru sviptir ánægju af bamauppeldi og kúgaðir með því að vera aðalfyrir- vinnur flestra heimila. Daggæsla er staðreynd ,En er daggæsla af öðm fólki en foreldrum (les: móður) góð fyrir ung böm? Því verður nú reyndar ekki svarað í 760 orða dagblaðs- grein né heldur að rökstuðningi fyrir dagvistarheimilum sé stillt upp sem valkosti á móti uppeldi foreldra. Máhð er í rauninni afar einfalt: vahð stendur um dagvistar- heimili, rekin fyrir skattpeninga okkar, eða aðrar verri „lausnir". Uppeldi hjá foreldrum eingöngu er ekki almennur valkostur. Dagvistarheimili í flestum tilvikum er betra fyrir börn að vera á góðu dagheimih heldur en að velkjast um í ættingja- gæslu hálfan daginn og leikskóla hinn helminginn eða vera hjá mis- jöfnum og ekki of stöðugum dag- mæðram. Eins er það með skóla- dagheimih fyrir böm á skólaaldri í staöinn fyrir að þau þurfi að vera lyklabörn. Auövitað er th fullt af frábæram öfum og ömmum og það hendir að fólk er heppið með dag- mömmu, en slíkt er bara ekki nógu algengt. Gott dagvistarheimili býður líka í flestum tilfellum upp á miklu betra uppeldi en einkaheimhi og dagmömmur geta. Þar eru tækifæri th að leika vio fleiri börn, þar er sérmenntað starfsfólk, aðstaða er fullkomnari en á heimhum og eng- in hætta er á að flnu húsgögnin séu skemmd. Það er mikhvægt fyrir bam að móðir þess og faðir séu hamingju- söm. Einu ghdir hvort þau vinna úti eða heima. Sumum mæðram myndi henta betur að vinna heima ef laun eiginmanns leyfðu það. Áróðurinn um að þær sinni ekki bömunum almennhega ef þær vinni úti hefur afar slæm áhrif á þær og bömin. Gott dagvistar- heimih myndi létta ýmsum áhyggj- um af þeim. Mikið verk að skipuleggja barnagæslu Það fyrirkomulag að láta foreldra (móður) koma bami sínu fyrir í pössun er vont fyrir mömmuna af ýmsum ástæðum. Caroline New og Miriam David segja m.a. um það í bók sinni, Barnanna vegna - Umönnun barna á ekki bara að vera í verkahring kvenna, sem Penguin gaf út 1985 (titihinn sem og thvitnunin eru lauslega 'þýdd hér): „Þegar bömum er komið fyrir í einkapössun fá þau nýtt, fjöl- skyldulegt, öraggt aukaheimili og nýja vini ásamt reynslu af öðru heimih og mæður fá aukið svig- rúm. En þeim sem finnst þetta betra en opinberar stofnanir (leik- vellir, dagheimih, skólar) vita lík- lega ekki hversu mikið verk svona skipulagning er. Fyrir utan það að skipulagning tekur aldrei enda lendir öll fyrirhöfn og kostnaður á konunum í stað þess að vera borið af samfélaginu. Og ef eitthvað er að í fjölskyldunni, veikindi eða annaö, einmitt þá bregst þetta kerfi oftast. Ef barn fæðist eða foreldrar skilja þá eykst þrýstingur á konuna sem þá getur ekki borið sinn hlut í kerfinu. Afleiðingin er sú aö dag- gæslan verður alltaf óöraggari en á dagvistarheimilum." Þessi umfjöhun er alþjóðleg og höfundarnir búa á svo ólíkum stöð- um sem Ástrahu og Englandi. Ég sé þó ekki að þetta sé að ráði frá- brugðið þeirri vinnu sem íslenskar mæður þurfa aö leggja á sig undir svipuðum kringumstæðum. Aðal- atriðið er þetta: Konur era látnar vinna ókeypis vinnu við skipulagn- ingu bamapössunar, vinnu sem samfélagið ætti aö vera ábyrgt fyr- ir. Það er dýrt að hafa ekki góð dagvistarheimili Ef daggæsla bama er nauðsynleg, Kjallariim Ingólfur Á. Jóhannesson sagnfræðingur og nemi í Wis- consinháskóla i Bandaríkjunum því skyldum við þá ekki kappkosta að hafa hana sem besta? Auðvitað er svarið augljóst, svona á pappím- um. En það er ekki einu sinni stefna íslenskra yfirvalda að hvert bam geti átt kost á dagvistun. Því ekki? Verður einhver svona stökk- breyting á bömum við sex ára ald- ur að þá skuh skóh vera fyrir öll böm og þau að auki skólaskyld ári síðar? Því miður er ekki einu sinni þeim fáu dagheimhum, sem th eru á íslandi, búin „besta fáanlega að- staöa“. Starfsfólki eru greidd smánarlaun og sífellt er naggað um að ekki sé gott fyrir börn að vera þar. Skyldi það engin áhrif hafa á bömin? Ég er ekki að tala fyrir skylduvist barna á dagheimhum, en held því fram að það sé ódýrara, meira að segja í peningum, aö byggja upp gott kerfi dagheimila heldur en að láta slæma kosti bitna á bömunum. Öryggi og festa eru mikilsverð og við megum ekki við öllum þeim vandræðum og veseni sem skapast þegar dagmömmur og önnur óynd- isúrræði bregðast. Að ekki sé talað um allan hinn stórhættulega há- degisakstur og raunverulegt vinnutap sem hlýst af honum. Góð dagvistarheimili myndu minnka th muna stress. Ingólfur Á. Jóhannesson Gosbrunnar og símskeyti Þegar síminn kom th landsins árið 1906 byggðist sú tímamótafram- kvæmd á ritsímasambandi við Evr- ópu um sæsíma, sem tók land á Seyðisfirði, og loftlínu þaðan til höfuðborgarinnar. Talsími mhli landshluta var í upphafi eins konar aukageta með ritsímanum, fékk að fljóta með á símastaurunum líkt og puttaferðalangar nútímans. Höfuðvígi og óðul símans uröu rit- símastöðvarnar á Seyðisfirði og Reykjavík og símritararnir og ann- að starfsfólk ritsímastöðvanna voru þá og lengst af síðan sómi og stolt Símans. Þetta fólk naut jafnan þakklætis og virðingar alþjóðar fyrir sín störf og það að verðleikum, enda varð þetta að ævistarfi flestra sem menntuðu sig og þjálfuðu á þessu sviði nema þeim væru falin enn mikilvægari störf í símaþjón- ustunni. Vinnuskóli fyrir ungt fólk Laust eftir 1930 fluttist Ritsíminn í nýbyggt Landssímahús við Aust- urvöll og hafði tvo síðustu áratug- ina svo th alla jarðhæð elsta hluta hússins til umráða þar til hann fyr- ir skömmu fluttist í nýtt húsnæði við Ármúla, bjart og aðlaðandi hús- næði þar sem allur búnaður er eins og best verður á kosið. Þar er loft- ræsting í ágætu lagi en starfsfólkiö hafði lengi kvartað fyrir daufum eyrum yfir slæmu lofti á gamla staðnum. Því heíði mátt ætla að betri tímar væru framundan en sú er þvi miður ekki raunin. Ritsíminn í Reykjavík er að bæt- ast í hóp þeirra fjölmörgu deilda Pósts og síma sem eru orðnar að eins konar vinnuskóla fyrir ungt KjaUarinn Leó Ingólfsson rafeindavirki - í stjórn Félags ísl. símamanna fólk þar sem fram fer þjálfun og undirbúningur þess fyrir almenna vinnumarkaðinn, aðrar ríkisstofn- anir, bankana og sveitarfélögin. Þúsund manns, eða nær þriðjung- ur af árgangi íslendinga, fá þessa þjálfun á ári hverju. Og nú hefur tugur starfsreyndra ritsímaritara látið af störfum síðustu mánuðina og era engar horfur á að missir þeirra fáist bættur í bráð fyrir þau laun sem í boði eru. Launaflokkur 332, þrjátíu og átta þúsund eitt hundrað og nitján krónur á mánuði með von um að ná skattleysismörk- unum eftir svo sem áratug. Vélrit- unar- og málakunnátta æskileg. Hver skyldi svo flytja í húsnæðið á jarðhæð gamla Landssímahúss- ins? Hver fær til umráða þetta virðulega og sögufræga húsnæði í hjarta bæjarins? Umsýsludeildin! Deildin sem hefur með að gera allt húsnæöi fyrir starfsemi Pósts og síma. Deildin sem sér um að öll aðstaða starfsfólks, svo sem loft- ræsting og húsbúnaður, uppfylli nútímakröfur. Og umsýsludeildin sér þar að auki um mannahald og ráðningar, mótar og framfylgir stefnu stofnunarinnar viö gerð kjarasamninga og annast fyrir hennar hönd túlkun og fram- kvæmd samningsákvæða. Þetta er deildin sem ræður mestu um allt viðmót stofnunarinnar gagnvart starfsfólkinu. Að athuga hvort athuga skuli Það gefur auðvitað augaleiö að slík deild vinnur ekki sín störf nema við þokkaleg ytri skilyrði. Það ber að hafa í huga að hjá deild- inni eru á hverjum tíma tugir eða hundruð mála varðandi starfsfólk- ið „í athugun". Eða þá að verið er „að athuga" hvort þau eigi að fara „í athugun“. Það er til dæmis að „Það er til dæmis að taka alls ekki sjálf- gefið hvort yfirleitt á að vera að svara erindum frá einstökum starfsmönnum eða stéttarfélögum þeirra.“ „Höfuðvigi og óðul símans urðu ritsimastöðvarnar á Seyðisfirði og í Reykjavík," segir í greininni. - Frá Seyðisfirði. taka alls ekki sjálfgefið hvort yfir- leitt á að vera að svara erindum frá einstökum starfsmönnum eða stéttarfélögum þeirra. Og ef og þeg- ar tekst að komast til botns í því getur það verið þrautin þyngri að koma saman skilmerkilegu og rök- studdu svari í flóknum og við- kvæmum málum. Það er til að mynda ekki heiglum hent að finna út úr því hvort yfiramsjónarmenn með talsambandi við útlönd séu yfirumsjónarmenn eða ekki yfir- umsjónarmenn. Á því máli era augsýnilega margar hliðar og það hefur ekki gefist langur tími til þess aö brjóta það til mergjar því þetta vandamál kom ekki fram fyrr en í ágúst í fyrra. Eöa halda menn að það hafi kannski verið eitthvert áhlaupaverk að ákveða hvaða tveir símsmiðir á Jörfa verðskulda með engu móti að fá greitt óþrifaálag? Skítt með skeytin Nei, góðir hálsar! Verkefni sem þessi verða ekki forsvaranlega af hendi leyst nema viö hin ákjósan- legustu vinnuskilyrði. Það var þess vegna sjálfsagður hlutur og fyrsta mál á dagskrá í flutningastússinu að setja upp fullkomna loftræst- ingu í húsnæðiö sem Ritsíminn rýmdi. Og það er ekki látið þar við sitja enda útsýnið út í dimman og þröngan bakgarðinn deildinni gjör- samlega ósamboðið. Því verður grámóskulegum bakgarðinum breytt í ilmandi urtagarð. En vegna þess að vorboðanum ljúfa verður sjálfsagt torratað niö- ur í svo þröngan stáð þá er komið í veg fyrir á mjög hugvitssamlegan hátt að þetta verði með öllu söng- laus garður með því að koma þar fyrir fyrsta gosbrunni Pósts og síma sem ugglaust mun fylla hlust- ir nærstaddra hinni dægfiegustu dillandi. Eða eins og kellingin sagði: „Skítt veri með skeytin en gosbrunnur er gulli betri.“ Leó Ingólfsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.