Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Side 26
42 FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1988. Jarðarfarir Anna Jóna Jónsdóttir lést af slys- förum 11. júni. Hún var fædd 2. júlí 1956 í Reykjavík, dóttir hjónanna Önnu Árnadóttur og Jóns Tómas- sonar. Anna Jóna var tvígift. Fyrri maður hennar var Þorleifur Gunn- laugsson, þau slitu samvistum. Þau eignuðust einn son. Eftirlifandi eig- inmaður hennar er Jóhann Sigurö- arson. Anna Jóna lauk klæðskera- námi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1981 og fékk meistarapróf 1984. Und- anfarið vann hún aðallega við ýmiss konar leikbúningahönnun bæði fyrir kvikmyndir og leiksýningar. Einnig starfaði hún fyrir sjónvarpsstöðv- amar. Útfór hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Friðrik P. Dungal lést 17. júní sl. Hann var fæddur 15. nóvember 1969, sonur hjónanna Páls Dungals og Auðar Jónsdóttur. Útfór Friðriks verður gerð frá Bústaðakirkju i dag kl. 15. Andlát Þorkell S. Guðvarðarson, Álftamýri 50, Reykjavík, andaðist að morgni 22. júlí. Auður Erla Sigfriedsdóttir, Öldu- granda 9, Reykjavík, lést aö morgni 19. júní. Guðrún A. Jónsdóttir frá Borgar- nesi, Jaðarsbraut 5, Akranesi, lést 23. júni í Sjúkrahúsi Akraness. Sölvi EÚsson bifreiðarstjóri, Einholti 9, andaðist í Borgarspítalanum þriðjudaginn 21. júní. Vilmunda Einarsdóttir, Meðalbraut 4, Kópavogi, áður Skólavegi 15, Vest- mannaeyjum, lést í Landspítalanum að morgni 23. júní. Guðmundur Jónsson, fyrrum bóndi Dalgeirsstöðum, andaöist í sjúkra- húsinu Hvammstanga 21. júní. Tilkynningar Hákon Randal, nýr stjórnarformaður í Norræna húsinu Á stjómarfundi Norræna hússins, sem haldinn var í Reykjayík 14. júní sl„ var Hákon Randal, fylkisstjóri í Hörðalandi, Noregi, kosinn stjómarformaður. Vara- formaður var kjörinn Guðlaugur Þor- valdsson vararíkissáttasemjari, sem hef- ur veriö formaður stjómarinnar sl. 8 ár. Ráöningartími núverandi forstjóra, Knuts Ódegárds, rennur út um næstu áramót. Á stjómarfundinum var fjallað um þær umsóknir sem bámst um for- Menning_____________________________dv Sókn í blástursdeildinni Sónglúðrar lýðveldisins á tónleikum í Áskirkju Fimm komungir blásarar stúltu saman hljóðfæri sín í gærkvöldi. Þetta vom Sönglúðrar lýðveldis- ins, mámblásarakvintett skipaður tveim trompetum, homi, básúnu og túbu og heita piltarnir Einar St. Jónsson, Guðmundur Hafsteins- son, Emil Friðfinnsson, Pétur Ei- ríksson og Sigurður Smári Gylfa- son. Þeir eru allir langt á veg komn- ir í hijóðfæranámi, sumir jafnvel þekktir atvinnumenn eins og Emil, sem hefur leikið á homið með Sin- fóníunni í allan vetur. Þeir em all- Tónlist Leifur Þórarinsson ir komungir, varla nema rétt tvi- tugir. En þeir blása ljómandi vel. Efnisskráin var út af fyrir sig ljóm- andi skemmtileg, hæfileg blanda af útsetningum og framsaminni blástursmúsík. Útsetningamar voru nokkuð misjafnar og kunni undirritaður illa að neta lagaflokk Famabys í útsetningu Elgars How- arth og kom það eiginlega á óvart því Howarth er frægur maður. Hins vegar var gott að heyra Contrapunctus n úr Kunst der fuge eftir Bach í útsetningu Glasels og B. Mayer hafði gert sniðuga hluti við Golliwogg’s Cake Walk úr Bamaskotinu hans Debussys. En mest var gaman að heyra frum- sömdu músíkina, t.d. mjög ánægju- legan kvintett eftir Malcolm Arn- old og Scherzo eftir Cheetham. Þar fóm blásaramir ungu líka á kost- um og allt prógrammið léku þeir reyndar af furðu miklu öryggi og næstum tandurhreint. Það er greinilega mikil sókn í blásara- deildinni, þrotlaus vinna í tónlist- arskólum og lúðrasveitum er smám saman að skila árangri. Þessir piltar eru allir efni í fína sin- fóníuspilara og sólista og það eru víst fleiri á leiðinni. Bravó fyrir því. LÞ stjórastöðuna. Stjórnin ákvað að mæla með Lars Áke Engblom frá Sviðþjóð en hann var yfirmaður sænska sjónvarpsins í Smálöndum. Til vara mælti stjómin meö Norðmanninum Bjarne Floío rit- stjóra, sem gegnir staríi blaöa- og menn- ingarfuHtrúa við norska sendiráðið í Washington sem stendur. Tillaga stjóm- ar Norræna hússins verður lögö fyrir Norrænu ráðherranefndina sem tekur endanlega ákvörðun nm val forstjóra Norræna hússins. Ársrit Útivistar 1988 er komið út Ritiö er það íjórtánda í rööinni frá stofn- un félagsins árið 1975. í þessu riti eru birtar fjórar greinar er hafa aö geyma staðhátta- og leiðarlýsingar, m.a. af Homströndum, Lóni, Lónsöræfum og Löngufjörum. Ársritið er 120 blaðsíður að stærð og prýtt 60 ljósmyndum. Þaö er innifalið í ársgjaldi Útivistar. Þeir sem hafa áhuga á að eignast ritið geta haft samband við skrifstofu Útivistar í Gróf- inni 1. Kosningaútvarp á stuttbylgju Á laugardag verður kosningaútvarp sent út á stuttbylgju til sjómanna á haft úti og íslendinga erlendis. Kl. 23-24 verður sent til meginlands Evrópu á eftirfarandi tiðnum: 15659 khz 13770 khz 9863 khz Kl. 24-1 verður sent tíl austurstrandar Bandarikjanna og Kanada á eftirfarandi tiðnum: 17558 khz 15659 khz 9863 khz Fréttasendingu á stuttbylgju til Vestur- heims seinkar vegna kosningaútvarpsins og verður kl. 1. Miðað er við íslenskan tima, sem er sami og GMT. Hæfileikakeppni í hljóðfæraleik áhugamanna fer fram á Hótel Borg dagana 5.-7. júlí. Undankeppni fer ffam 5. og 6. júli en úrslitakvöldið er 7. júU. Þátttakendur, sem verða sérstaklega kynntir, munu flytja 2 af sínum bestu lögum. ÆskUegt er að annaö lagið sé frumsamið þó það sé alls ekki gert að skUyrði. Munu þátt- takendur njóta stuðntngs hljómsveitar og skipuð dómnefnd ftnnur hæfileikarik- asta keppandann. AthygU skal vakin á að tónlistarmenntun er ekki gerð að skil- yrði fyrir þátttöku. Hljóðfæraverslun Poul Bemburg hf. og verslunin Rin styrkja keppnina með verðlaunagjöfum. Innritun stendur yfir á Hótel Borg í síma 11440. Heym og tal rannsakað á ísafirði Mótttaka verður á vegum Heymar- og talmeinastöðvar íslands í heilsugæslu- stöð ísafjarðar dagana 18. og 19. júU nk. Þar fer fram greining heymar- og tal- merna og úthlutun heymartækja. Sömu daga, aö lokinni móttöku Heymar- og taimeinastöðvarinnar, tekur sérfræðing- ur í háls-, nef- og eymalækningum móti sjúklingum. Tekiö er á móti viðtalsbeiön- um í heUsugæslustöð ísafjarðar. Kvikmyndir Laugarásbíó - Raflost Ein af þeim Ijúfari Leikstjóri: Matthew Robbins Aðalhlutverk: Hume Cronyn, Jessica Tandy Verið er að rífa gamalt hverfi í austurhluta New York borgar. íbú- amir em hraktir á brott með góðu eða illu. Brátt stendur aðeins ein blokk eftir, íbúamir þrjóskast við. Nótt eina birtast fm'ðuvemr í blokkinni. Þetta em agnarsmá geimskip sem em í leit að raf- magni, en á því lifa þau. Með til- komu þeirra tekur gæfuhjólið að snúast íbúum blokkarinnar í hag. Þetta er ein sú hlýlegasta mynd sem hér hefur sést lengi. Tækni- brellur eru í fullkomnu lagi og falla höfundar ekki í þá gryfju að drekkja efni myndarinnar með slíkum brellum. Þvert á móti er þeim beitt af natni og alúð. Jessica Tandy er stórskemmtileg í hlutverki sínu sem og Hume Cronyn. Þau em þarna í svipuðum hlutverkum og í myndinni Cocoon, hjálparvana gamaímenni. Þó em skemmtilegustu persónur myndarinnar litla FFH fjölskyldan. Tekist hefur að gæða geimskipin þvíliku lífi og töfrum að þeim tekst að skyggja á persónur af holdi og blóði. Þessi mynd hefur til að bera alia eiginleika góörar teiknimyndar. Húmorinn er kominn beint úr Tomma og Jenna og töframir úr Bamba. Það er því óhætt aö mæla með þessari mynd fyrir alla fjöl- skylduna. -PLP hennar er Bjöm Hróarsson jaröfræðing- ur. Háskólahátíð Hf skólahátíð verður haldin í Háskólabíói laugardaginn 25. júní 1988 kl. 14. Þar verður lýst kjöri heiðursdoktora jafn- framt því sem kandidatar verða braut- skráöir. Athöfnin hefst meö því aö Sig- urður Snorrason, Anna Guðný Guö- mundsdóttir og Páll Einarsson leika á klarínettu, píanó og kontrabassa. Pró- fessor Þóróífur Þórlindsson, deildarfor- seti félagsvísindadeildar, lýsir heiöurs- doktorskjöri Jóhannesar Nordals banka- stjóra. Prófessor Amþór Garðarsson, deildarforseti raunvísindadeildar, lýsir heiðursdoktorskjöri prófessors emeritus Gunnars Böövarssonar og prófessors emeritus Leifs Ágústssonar. Prófessor Þórir Einarsson, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar, lýsir heiðursdoktors- Hjöri Jónasar Haralz bankastjóra. Há- skólarektor, dr. Sigmundur Guðbjarna- son, ræðir málefni háskólans og ávarpar síðan kandídata. Deildarforsetar afhenda kandídötum prófskirteini. Að lokum syngur.Háskólakórinn nokkur lög undir stjóm Áma Harðarsonar. Aö þessu sinni verða brautskráöir 383 kandidatar. Tórúeikar Tónlistarhátíð Norræna alþýðutónlistarsambandsins Dagana 29. júní til 3. júlí 1988 verður 9. norræna tónlistarhátíð Norræna alþýðu- tónlistarsambandsins (Nordisk Arbeid- ersanger og Musiker Forbund) haldin í Odense í Danmörku. Mót þessi em hald- in á 4-5 ára fresti til skiptis á Norðurlönd- unum. ísland gerðist aðili að NASOM 1976. Að þessu sinni verða það Samkór Trésmiðafélags Reykjavikur, RARIK- kórinn og Lúðrasveit verkalýðsins sem veröa fulltrúar íslands á 9. norræna tón- listarmótinu í Odense. Kóramir munu halda sameiginlega tónleika 30. júni í RádhushaUen. Mun hver hópur verða með um hálftíma dagskrá en í lok tónleik- anna munu hópamir í sameiningu, um 100 söngvarar og hljóðfæraleikarar, Úytja eitt lag. Efnisskráin verður mjög fiöl- breytt, bæöi íslensk og erlend lög. Tombóla Nýlega héldu þessir krakkar í Amar- tanga, MosfeUsbæ, tombólu og seldu blóm og bækur tU styrktar Eþíópíuhjálp- inni. Þau söfnuðu aUs 2.581 krónum. Nýr kiljupakki frá Uglunni Uglan - íslenski kUjuklúbburinn, sendi nýlega frá sér nýjan kUjupakka. í honum em þrjár bækur: Vesalingamir I eftir Victor Hugo, Brunabillinn sem týndist eför Maj SjöwaU og Per Wahlöö og þriðja bindi Kvikmyndahandbókarinnar eftir LesUe HaUiweU. Ný útgáfa af VesaUngun- um sætir nokkrum tíðindum. Bókin kom fyrst út á íslensku á árunum 1925-28 og var þá í fimm bindum, þýdd af Einari H. Kvaran, Ragnari E. Kvaran og Vil- hjálmi Þ. Gíslasyni. Sú útgáfa var nokkuö stytt og auk þess var ekki þýtt úr frönsku. Torfi H. Tulinius bókmenntafræöingur hefur farið yfir þýðinguna og boriö sam- an við frummál, lagfært og aukið við eft- ir ástæðum. Nýja útgáfan verður því nokkuð lengri en þó prentuð í fjórum bindum í stað fimm. Brunabíllinn sem týndist er endurútgáfa á sænskri spennu- sögu sem kom út hjá Máli og menningu fyrir átta árum. Kvikmyndahandbókin nær frá I-N í stafrófinu. Nú eru ókomin tvö bindi af Kvikmyndahandbókinni og er ráðgert að þau komi út á árinu. Kvennalistinn á Norðurlandi með ráðstefnu Kvennalistakonur á Norðuriandi standa fyrir ráðstefnu um landbúnað og land- nýtingu helgina 25.-26. júní að Sólgörðum í Fljótum. Ráðstefnan hefst laugardaginn 25. júní kl. 10. Ásgerður Pálsdóttir fjallar um ástand og horfur í landbúnaði, Sigrún Helgadóttir kynnir ástand gróðurs, Ágústa Þorkelsdóttir íjallar um kvóta- skiptingu með tilliti til landgæða, Jófríð- ur Traustadóttir og Danfríður Skarphéð- insdóttir tala um tengsl bænda og neyt- enda. Auk þess verður hópstarf og um- ræður. Á sunnudaginn tala ræðukonur úr öngimum um stöðu landbúnaðar í sfn- um heimahéruðum og hvemig konur hafa brugðist við samdrætti í landbún- aði. Ráðstefnan er öllum opin. Ferðahandbókin Land er nú komin út í fimmta sinn. Bókin inni- heldur allar upplýsingar um feröaþjón- ustu á íslandi, auk landfræði- jarðfræði- og sögulegs fróöleiks um landið okkar, ísland. Fjallað er um öll sveitarfélög á íslandi. Ferðaþjónusta í hverju sveitarfé- lagi er tíunduö að öllu leyti í þjónustu- lista sveitarfélagsins. Þjónustulistanum er skipt niður í gistingu, tjaldstæði, veit- ingar, bílaþjónustu og aðra þjónustu. Kynningargreinar eru í bókinni um nær öll stærri sveitarfélög hér á landi, á ann- að hundraö talsins. Fjallað er um skoðun- arverða staöi í sveitarfélaginu, svo og ýmsa punkta úr sögu þess. I bókinni eru yfir 300 myndir og allar í lit. Það er Ferða- land hf. sem gefur bókina út en ritstjóri Það fer vel um bam sem situr í bamabílstól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.