Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Síða 32
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1988.
Eiiendar lantokur:
Ekki meira
skrifað út
- en einn
milljarður
-segir Þorsteinn Pálsson
„Þaö verður ekki skrifað út án
umhugsunar meira en þessi eini
milljarður“, sagði Þorsteinn Pálsson,
forsætisráðherra, við DV.
„Við búum nú við tvíþættan vanda.
Annars vegar eru þjóðartekjur að
falla. Hins vegar er hér enn veruleg
þensla. Þess vegna munum við fara
mjög gætilega í sakirnar. Það var
tafið nauðsynlegt að veita þessa
heimild til fjárhagslegrar endur-
^kipulagningar í atvinnuiífinu. En
við munum ekki ganga lengra en
þetta að óathuguðu máli,“ sagði Þor-
steinn um þá kröfu forsvarsmanna
atvinnulífsins að frekari heimildir
yröu veittar til erlendrar lántöku
umfram fyrri ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar. -gse
O
Fjáriög næsta árs:
». Bjórinn
gefur hálfan
milljarð
í drögum að íjárlögum næsta árs,
sem Jón Baldvin Hannibalsson íjár-
málaráðherra hefur lagt fyrir ríkis-
stjórnina, er gert ráð fyrir 500 milljón
króna tekjuauka vegna tilkomu
bjórsins. í ár er gert ráð fyrir 4,2
milljarða tekjum af áfengis- og tó-
bakssölu ríkisins. Bjórinn verður
ekki leyfður fyrr en 1. mars á næsta
ári. Tekjuaukning vegna hans á árs-
grundvelli er þvi um 600 milljónir,
samkvæmt áætlun fjármálaráðu-
/■fteytisins, eða 14 prósent ofan á tekj-
ur áfengissölunnar. Aukningin er
mun meiri sé einungis miðað við
áfengi því tóbakssala er stór hluti af
hagnaði fyrirtækisins.
-gse
LOKI
Kannski Vegagerðin
ættiaðsnúasérað
hafnargerð?
Áfram reynt að selja kindakjötið út:
Hvert kíló kostar
ríkið 250 krónur
- en 50 krónur ef bóndinn stöðvar framleiðsluna
Á sama tíma og ráðherrár Al-
þýðuflokks eru að koma fram meö
tillögur um að hætta öllum útflutn-
ingi á kindakjöti standa yftr samn-
ingar um aukningu á þessum út-
flutningi. Þorsteinn Pálsson ræddi
við forsætisráðherra Finnlands um
frekari kaup Finna á kindakjöti og
Markaðsnefnd landbúnaðarins
hefur ráðið bandarískt markaðs-
fyrirtæki, Creative Food Service,
til þess að markaðsstetja lambakjöt
í Bandaríkjunum. Engar vonir eru
til þess að þessir markaðir skih
betra verði en svo að það nægi fyr-
ir meiru en um 30 til 40 prósentum
af skilaverði. Með öðrum orðum
þarf að greiða rúmar 250 krónur
fyrir hverjar 85 til 130 krónur sem
fást fyrir kjötið.
Samkvæmt upplýsingum land-
búnaðarráðuneytisins fást um 2 til
3 dollarar fyrir kílóið í Finnlandi.
Þegar búið er að greiða 80 til 90
krónur til sláturleyfishafa og heild-
sala munu standa eftir um 15 krón-
ur til þess aö greiða laun og allan
kostnað bóndans. Það þarf því að
bæta verðiö upp um 250 krónur eða
um 3.500 krónur á hvern skrokk.
Launaliður bóndans er ekki nema
um 50 krónur á hvert kíló. Afgang-
urinn er áburðarverð, notkun á
vélum og tækjum og annar slíkur
kostnaður.
Ef samið yrði við bóndann um
að framleiða ekki kjötið þyrfti ríkið
að greiða honum um 50 krónur.
Ef bóndinn er látinn óáreittur þarf
ríkið að greiða 250 krónur í útflutn-
ingsbætur. Ef kjötið er ekki flutt
út en urðað þarf ríkið að greiða
bóndanum allan þann kostnað sem
hann hefur lagt í.
„Það eru ekki líkur á því að við
séum aö .finna þarna góðan mark-
að, alla vega ekki betri en Færeyj-
ar,“ sagði Auðunn Bjarni Ólafsson,
framkvæmdastjóri Markaðsnefnd-
ar landbúnaðarins, um tilraunir
nefndarinnar til að koma kinda-
kjöti á markað í Bandaríkjunum.
Auðunn sagði nefndina hafa
reynt allt sem hugsast gat til þess
að koma kjötinu á markað í Banda-
ríkjunum. Stefnt væri aö því að
niðurstaða þeirra tilrauna lægi fyr-
ir í haust og kæmi þá til kasta
Framkvæmdanefndar búvöru-
samninga um að taka ákvörðun um
hvort stefnt yrði að sölu á Banda-
ríkjamarkað. Enginn vafi væri á
því að áfram þyrfti að niðurgreiða
kjötið, líklega sem samsvaraði um
250 krónum á kílóið.
-gse
Lóðirnar sem botnað hafa ótæpilega eftir vegaframkvæmdirnar. Önnur lóðin er „eins og mýri“ og vatn hefur lekið
þar inn i kjallara. DV-mynd: Emil
OfFramleiðslan og sláturieyfishafar:
Gefur þeim 225 milljónir í tekjur
Slátur- og heildasalakostnaður af um 225 milljón króna kostnaður að fá hann inn í landiö bætir ríkið
hverju kílói af kindakjöti er 80 til 90 vegna þessa. Með útflutningi næst verðið upp um 300 krónur.
krónur í dag. í 2.500 tonna umfram- sjaldnast að fá verð sem greiðir mik- -gse
birgðum af kindakjöti er því bundinn ið annaö en þennan kostnað. Til þess
Veðrið á morgun:
Vestlæg eða
suðvestlæg
átt
Vestlæg eða suðvestlæg átt og 8
til 15 stiga hiti, hlýjast á Austur-
og Norðausturlandi. Dálítil rigning
framan af degi, einkum um vestan-
vert landið. Styttir upp að mestu
síðdegis og léttir til austanlands.
Eskrfjorður:
„Lóðin eins
.______> ukk
og myn
„Eftir að þeir ruddu til fyrir ofan
fór að koma mikil bleyta í lóðina og
hjá nágranna mínum hefur lekið inn
í kjallara. Það má segja að lóðin hjá
honum, sem verst er farin, sé eins
og mýri,“ sagöi íbúi við götuna
Helgafell á Eskifirði.
Tildrög málsins eru þau að síöasta
haust hóf Vegagerð ríkisins á Aust-
urlandi framkvæmdir við Norðfjarð-
arveg sem stendur norðan við Helga-
fell. Vegurinn var færður til og viö
það var fluttur til mikill jarðvegur
en einnig var hækkað ræsi í gamla
veginum. Að sögn Sveins Sveinsson-
ar, tæknifræöings hjá Vegagerðinni,
liggur vegurinn í fjallshlíö þar sem
vatnsæðar eru víða í undirlögum.
„Þetta kom upp á nokkrum stöðum
og var verst fyrst. Viö erum byijaðir
að reyna að lagfæra þetta en við vit-
um ekki hvort það muni takast, þetta
er ofan í jörðinni og enginn veit hvar
það liggur," sagði Sveinn.
Sveinn sagðist vita til þess að lóðin
hjá einum íbúa við Helgafell væri
orðin hálfgegnsósa af vatni, seytlað
heföi inn í kjallara, sem að vísu var
með ópússuðu gólfi, og málning
flagnað af við sökkul. „Við vitum
ekki hvert tjónið.verður því þetta
getur hugsanlega þornaö. Ef rekja
má tjón af völdum vatnsins til vega-
framkvæmdanna mun tjónið verða
metiö og Vegagerðin bæta það sem
og önnur er hún veldur," sagði
Sveinn Sveinsson.
-JFJ
Umferðin í Reykjavík:
Sextán árekstrar
tilkynntir lógreglu
Sextán árekstrar voru tilkynntir
lögreglunni í Reykjavík í gær. Þrennt
var flutt á slysadeild. Sjö ökumenn
voru kærðir fyrir of hraðan akstur.
Þá tók lögreglan einn ölvaðan öku-
mann í gær.
-sme