Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1988, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1988.
Fréttir_______________________
Þvælst um með
þjóðhagsspána
- Qármálaráðuneytið vildi gera athugasemdir við spána
Þjóöhagsspá hefur þvælst um
milli manna í stjórnkerfinu síðan
fyrir helgi. Augljóst er, að fjármála-
ráðuneytið vildi gera athugasemdir
við tölur í þjóðhagsspá, sem Þjóð-
hagsstofnun lagði fram, og hefur
því tafið málið. Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra setti ofan í við
fjármálaráðuneytiö í viðtali við DV
í morgun. Forsætisráðherra sagði,
aö það væri ekki verkefni fjármála-
ráðuneytisins að gera þjóðhagsspá,
heldur sinna fjárlagagerð.
Þjóðhagsspá hefur greinilega
verið til síðan fyrir helgi. Þá var
forsætisráðherra farinn að vitna í
spána í fjölmiðlum. Samt verður
spáin ekki birt fyrr en eftir hádegi
í dag.
Fjármálaráðuneytið hefur und-
anfarið viljað gera eigin spár. Sum
gömlu brýnin úr Þjóðhagsstofnun
eru enda komin í fjármálaráðu-
neytið, menn sem voru vanir að
gera þjóðhagsspár. Því hefur nú
enn verið hringlað með þjóð-
hagsspá vegna athugasemda fjár-
málaráðuneytisins.
Spurningin er, hvort þetta sé við-
unandi fyrir Þjóðhagsstofnun.
Verkefni hennar á að vera að gera
sjálfstæða spá, ekki að þola alls
konar athugasemdir ráðuneyta.
Þjóðhagsstofnun heyrir undir for-
sætisráðherra.
Þjóðhagsspá kemur því loks fram
í dag. Þar koma fram bjartari horf-
ur. Viðskiptahalli mun talinn
verða 10-11 milljarðar en var tahnn
mundu verða mun meiri áður.
-HH/SMJ
Tíðinda-
lausar
viðræður
,>Ienn halda áfram að ræða
saman en það hefur ekkert frekar
verið ákveðið, það er því alveg
tíðindalaust eins og stendur,"
sagði ESnar Sigurðsson, blaða-
fulltrúi Flugleiða.
Viöræður milli flugmanna og
Flugleiða hafa staðið yfir í nokk-
urn tíma og eru aðallega ræddar
ýmsar útfærslur á vinnutíma-
reglum. Einmg munu viöræður
við flugvirkja standa yfir. Við-
ræðumar eru óformlegar og kall-
ast ekki samningaviðræður þó að
rædd séu atriöi sem snerti aðra
þætti kjarasamninga en launa-
liöi. Einar sagðist ekki búast viö
aö tfi tíöinda drægi á næstu dög-
um menn væru að ræða málin í
rólegheitunum.
Viðey er i allsherjar snyrtingu um þessar mundir enda fer óðum að styttast í að þessi sögufræga eyja verði full-
gerð sem ferðamannastaður. Þessi ungmenni beittu nútímatækni með gömlu ívafi við að slá eyna. Þau voru með
rafknúin orf við sláttinn enda veitti ekki af þar sem eyjan hefur ekki verið tekin i gegn i háa herrans tið. Eins og sjá
má á myndinni eru ungmennin langt á veg komin með sláttinn og þá er aðeins eftir aö raka.
DV-mynd GVA
Bdri hjón í Reykjavík:
Þurftu að bíða í þrjár vikur efdr aðstoð
„Þaö liðu nú ekki nema þijár
vikur frá því aö leitað var eftir
hjálp fyrir okkur og þar tfi það kom
stúlka frá heimilistyálpinni. Hing-
að til höfum við ekki fengið neina
hjálp, enda hef ég ekki vitað hvert
ég átti að leita,“ sagði eldri kona í
Reykjavik í samtali við DV.
Eiginmaður þessarar konu fékk
fyrir mörgum árum heilablóðfall
og hún hefur þurft að annast hann
heima við í 7 ár og segist ekki hafa
talið það eftir sér. Það var ekki fyrr
en um jólaleytið að hún veiktist í
baki og gat þá með engu móti ann-
ast hann áfram, ekki einu sinni
raeð erfiöisrounum eins og verlð
haföi.
Það liðu þó enn nokkrir mánuöir
því konan vissi ekki hvert hún átti
að snúa sér.
„Það er meira en að hrista svona
hjálp fram úr erminni. Fyrst verð-
ur maður að vita hvað á að gera
og síðan að fá eitthvaö gert,“ sagði
konan. Það var ekki fyrr en maður
hennar fór inn á spítala nú í vor
aö læknar urðu þessa áskynja og
gengu i að útvega þeim heimfiis-
hjálp.
Starfsmaöur hjá heimilisþjón-
ustu Félagsmálastofnunar sagði að
bæklingar væru sendir heim til
fólks og einnig færi fréttabréf
stofiiunarinnar til ellilífeyrisþega.
í þessum ritum væri fólki kynntur
réttur þess. Það væri því ekki
skortur á upplýsingum. Miklu al-
gengara væri að fólk læsi ekki það
sem þvi bærist. Þó væri rétt að hjá
heimiiisþjónustunni værí nokkur
mannekla enda væri ekki mikil
ásókn í störf þar sem launin væru
lág.
JFJ
Davíð vill samstarf um bjórbruggun
„Gosdrykkjaframleiðendur gætu
byggt í. sameiningu brugghús og
sparaö sér hundruð mfiljóna króna
en jafnframt gæti hver framleiöandi
bruggað sinn bjór,“ segir Davíð Sche-
ving Thorsteinsson, forstjóri Sólar
hf.
Davíð segir líklega samstarfsaðfia
vera Sól, Vífilfell og Egil Skalla-
grímsson. Hvorki Sól né Vífilfell eiga
bruggtæki en Egill Skallagrímsson
hefur bruggað sterkan bjór og selt
erlendis og í fríhöfninni.
Sól og Vífilfell hafa hvort í sínu
lagi átt í viðræðum við erlenda bjór-
framleiðendur meö það að markmiði
að geta selt íslendingum bjór þegar
leyfð verður sala á honum í mars á
næsta ári.
Að sögn Davíðs myndi það líklega
kosta 300 mifijónir króna aö byggja
brugghús með tækjum til bjórfram-
leiðslu og fyrirtækin þrjú gætu spar-
aö sér samtals allt aö hálfum mifij-
arði króna ef þau byggðu eitt hús í
sameiningu í staö þriggja.
Davíð sagðist ekki óttast aö bjórteg-
undimar frá sameiginlegu brugg-
húsi yrðu keimlíkar.
„Fólk getur eldaö í sama pottinum
en fengið ólíka rétti upp úr honum.
Hvers vegna ætti ekki það sama að
gilda um bjórbruggun."
í morgun tókst ekki að ná tali af
forsvarsmönnum Vífilfells og Egils
Skallagrímssonar. -pv
Útgerðaimaður Hafþórs:
Held að Græn-
lendingar standi
klárir á sínu
- skipstjórinn mun hafa skrifaö undir sektarplagg
„Eftir að ég aflaði mér frekari
frétta í gær er ég hræddur um að
Grænlendingar standi klárir á sínu
í málinu og að skipstjórinn hafi raun-
verulega skrifað undir sektarplagg
en ekki einhvem samning," sagði
Birgir Valdimarsson, útgerðarmað-
ur Hafþórs, í morgun.
Grænlensk yfirvöld segja að trygg-
ingarféð svonefnda, sem útgerð Haf-
þórs borgaöi, að upphæð 440 þúsund
danskar krónur, sem em tæpar 3
milljónir íslenskra króna, sé ekki
trygging heldur sektargreiðsla, enn-
fremur að málinu sé lokiö.
„Það sem Grænlendingar buðu upp
á var að skrifa undir viðkomandi
plagg, að öðrum kosti yröi Hafþór
færður til hafnar í Godtháb í Græn-
landi. Það er fimm daga sigling til
Grænlands þannig að þetta hefði get-
að þýtt allt að fjórtán daga stopp fyr-
ir okkur auk mikils olíukostnaðar.
Þess vegna var skrifað undir en
menn héldu allan tímann að það yrði
kannað betur hvort Hafþór ætti sér
einhverjar málsbætur," segir Birgir.
Hafþór var staðinn að ólöglegum
veiðum á miðvikudagskvöldið í síð-
ustu viku en síðan var honum sleppt.
Skipið veiddi allan fimmtudaginn.
Um miðjan dag á föstudaginn, þegar
Hafþór var íslandsmegin við miðlín-
una og inni í íslenskri fiskveiðilög-
sögu, sigldi danskavarðskipið Vædd-
eren inn og hertók Hafþór. Síðan var
skipinu siglt inn í grænlenska lög-
sögu.
„Við erum aö skoða þaö betur
hvort hægt var í rauninni að taka
skipið í seinna skiptið þegar það var
úti á rúmsjó og búið var aö sleppa
því,“ segir Birgir.
ís var kominn yfir allt á Dohrn-
banka í gær og öll rækjuskip farin
af svæðinu. Hafþór hélt áleiðis á
miðin við Kolbeinsey. Hann kem-
ur til hafnar 22. júlí. -JGH
Ráðning Hannesar:
Kennir ekki skyldufög
„Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son hefur ekki hlotiö fullgildan
hæfnisdóm til þess að gegna stööu
lektors í stjómmálafræði og mun
hann ekki kenna nein skyldunám-
skeið í greininni á vegum félagsvís-
indadeildar háskólaárið 1988-1989,“
segir í einróma ályktun defidarfund-
ar félagsvísindadeildar. Er því Ijóst
að Hannes H. Gissurarson mun ein-
ungis kenna valnámskeið þegar
hann kemur til starfa, annaðhvort
námskeið sem eru þegar kennd eða
verða ný á hausti komanda.
Fulltrúar nemenda á deildarfundi
lögðu fram tillöguna og var hún sam-
þykkt einróma, svo og ítrekun á
ályktun deildarinnar frá 7. júlí og
vísað er til ályktunar háskólaráðs
um að kanna beri lagalega stöðu
háskólans í því skyni að hnekkja
stöðuveitingunni.
Þessari ákvörðun sinni til skýring-
ar segjr deildarfundur félagsvísinda-
deildar: „Félagsvísindadeild minnir
á aö hún ákveður sjálf kennsluskrá
sína, þar á meðal, hvaða námskeiö
eru kennd og hver kennir hvert nám-
skeiö. Þaö má ljóst vera að deildin
felur engum að kenna neitt það nám-
skeið sem hún telur hann ekki hæfan
til að kenna.“
JFJ
Níu teknir fyrir hraðakstur
Lögreglan í Reykjavík tók níu öku-
menn fyrir of hraðan akstur í gær.
Var hraðinn rétt undir 100 km híá
flestum og voru þeir víða um borg-
ina. Sá hraöskreiðasti keyrði
Kringlumýrarbraut á 100 km hraða.
22 gistu fangageymslur lögreglunn-
ar í nótt, sem er í meira lagi aðfara-
nótt þriðjudags, og einn var tekinn
grunaður um ölvun við akstur.
-hlh