Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1988, Blaðsíða 40
62 • 25 • 25
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rilstiórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Steingrímur Hermannsson:
Hefði kosið
aðra staðsetn-
^ingu álversins
„Ég heföi nú helst kosiö aö nýtt
álver yrði staðsett utan suðvestur-
hornsins en það er ljóst að það er
erfitt fyrir aðra staði að keppa við
Straumsvík hvað hagkvæmni varð-
ar," sagði Steingrímur Hermannsson
utanríkisráðherra um hugsanlega
staðsetningu nýs álvers við Straums-
vík.
Steingrímur sagði að ljóst væri að
hagkvæmni hins nýja álvers tengdist
þeirri aðstöðu sem þegar væri í
Straumsvík, t.d. hafnaraðstöðu.
Steingrímur sagði að hér hefði starf-
að staðarvalsnefnd um stóriöju og
hún hefði bent á fleiri staði. Þá mögu-
leika mætti skoða betur. En óttast
^Táöherra ekki þensluáhrif svona
mikilla framkvæmda?
„Ef farið er út í svona framkvæmd
er mjög brýnt að hægt verði á öðrum
framkvæmdum á meðan til að slá á
þenslu. íslenska efnahagskerfið er
lítið og þetta eru stórar upphæðir.
Það er því nauðsynlegt að fara hægt
í sakirnar."
-SMJ
14 ára stúlku leltað:
Villtist 10 km
leið í þokunni
Mikil leit var gerð að 14 ára stúlku
sem hvarf á leið sinni milli bæja í
■ Eiðaþinghá á Fljótsdalshéraði í gær.
Hafði hún verið að fara milli bæja,
um 3 km leið, í þoku. Þéttist þokan
mjög um mitt kvöld og virðist stúik-
an hafa misst áttirnar.
Farið var að svipast um eftir henni
um ellefuleytið í gærkvöldi og laust
fyrir miðnætti voru björgunarsveitin
Gró og Hjálparsveit skáta kallaðar
til leitar ásamt bændum úr nágrenn-
inu og þá hafin skipuleg leit.
* Stúlkan fannst um hálfþrjúleytiö.
Hafði hún þá skilað sér til bæjarins
Ormsstaða sem er 10 km frá þeim
bæ sem hún ætlaði til. Haföi hún
villst til fjalls og í þveröfuga átt þeg-
ar þokan þéttist.
-hlh
LOKI
Getur ekki verið að maðurinn
hafi verið á sílaskyttiríi?
Leiði Gunnars Gunnarssonar í Viðey:
Dráttarvél beitft án
vitundar ættingja
- farið að lögum, segir séra Þórir Stephensen staðarhaldari
„Þegar ég fór út í Viðey um síð-
ustu helgi og ætlaði að klippa leiðin
fann ég þau ekki heldur eitt mold-
arflag. Það er búið að breyta öllu
þama úti og slétta leiðin án sam-
ráös við ættingja. Að gera þetta og
nota dráttarvél jaðrar að rninu
mati við helgispjöll," sagði Gunnar
Gúnnarsson, sonarsonur Gunnars
Gunnarssonar rithöfundar.
í Viöey er kirkjugarður og þar
eru faðir, amma og afi Gunnars
jarðsett. Amma Gunnars var ka-
þólsk og vildi afi hans fyrir alla
muni að þau yrðu lögð í kirkjugarð
sem bæði væri vigður að kaþólsk-
um og lúterskum sið. Hann sagði
líka aö þau hefðu siglt til allra
megináfanga í lifi sínu og Viðey
sýndi landið í hnotskurn.
Séra Þórir Stephensen, staðar-
haldari í Viðey, sagði að farið hefði
verið að lögum við lagfæringu
kirkjugarðsins.
„Það var auglýst eins og lög um
kirkjugarða mæla fyrir um í-Lög-
birtingablaði og útvarpi og haldinn
fundur með þeim sem gáfu sig fram
og þeir voru allir mjög glaðir yfir
því að nú loksins skyldi garðurinn
verða settur í gott lag, fegraður og
prýddur," sagði Þórir.
Þórir sagði að þetta væri ekkert
einsdæmi og víða um land væru
kirkjugarðar sléttaðir og snyrtir.
Reiknuð hefði verið nákvæmlega
út staðsetning leiða og legsteina.
Allt yrði sett á sama staö og gengiö
vel firá. „Þessi lagfæring verður af
eins mikilli nærgætni og umhyggju
og hægt er,“ sagði séra Þórir Steph-
ensen.
„Þeir segja að þetta hafi verið
auglýst í Lögbirtingi og útvarpinu
og því sé allt löglegt. Það katm svo
sem vel að vera, þó ég hafi efasemd-
ir um það. Hins vegar er það ekki
frístundaiðja fólks aö lesa Lögbirt-
ing eða hlusta á útvarpsauglýsing-
ar. Það hefði ekki verið mikið mál
að hafa samband við þær tvær fjöl-
skyldur sem hafa jarðsett þarna.
Það var ekki gert og mér finnst
þetta klaufalega aö verki staðið og
ósnyrtileg vinnubrögð,“ sagði
•Gunnar Gunnarsson. JFJ
Grundarfjörður:
Skotmaður kærður
Kirkjugarðurinn í Viðey hefur verið sléttaður og nú er unnið aö
lagfæringu og snyrtingu hans. DV-mynd gva
„Það er ekki hægt annað en kæra
manninn. Hann telur sig hafa verið
að skjóta vargfugl þar sem enginn
vargfugl var,“ sagði Örn Jónasson
við DV.
Hann er einn þriggja manna í bátn-
um sem á að hafa verið skotið á fyr-
ir utan Grundarfjörð í gær.
Það var Jón Sveinsson, aðaleigandi
laxaræktarinnar við Grundarfjörð,
sem skaut með rifli, en á vargfugl
að eigin sögn.
„Við vorum þarna eftir sílum sem
við notum til beitu. Ég veit ekki til
að við höfum verið nálægt laxi, en
við vorum mitt undan svokölluðu
eiði. Laxinn er, að því er mér skilst,
nokkuð austar. Viö höfum aldrei ver-
iö þarna áður í þessum tilgangi og
höfðum því með okkur eldri mana
frá Rifi til að kenna okkur til verka
við sílatökuna."
Sagði Örn að þeir hefðu kært skot-
manninn til að vara hann við en sam-
kvæmt heimildum þeirra væri þetta
ekki í fyrsta skipti sem hann skyti
með rifli þegar sæist til mannaferða
í nágrenni laxanna.
Máhð er til úrvinnslu hjá lögregl-
unni í Ólafsvík og verður sent þaðan
til Grundarfjaröar.
-hlh
Bergur VE strandaði í inn-
siglingu ísafjarðarhafnar
Bergur VE, um 300 tonna bátur frá
Vestmannaeyjum, strandaði í inn-
sighngunni inn í ísafjarðarhöfn um
miðnætti í gær. Var hann fastur á
strandstaö þar tfi klukkan hálfsjö í
morgun þegar hann losnaði.
Að sögn lögreglunnar á ísafirði
kemur þaö af og til fyrir aö bátar
stoppa í innsiglingunni og þá yfir
nóttina. Bergur VE hefur siglt frá
ísafirði undanfarin sumur og ætti því
að þekkja til í innsighngunni en inn-
siglingin leynir á sér og stranda þar
jafnt heimabátar sem aðrir. -hlh
Veðrið á morgun:
Skýjað og
súld norð-
anlands
Norðan og norðaustan gola
verður um aUt land, skýjað og
dáhtU súld norðanlands. Þurrt
verður að mestu og víða léttskýj-
að sunnanlands. Hiti 7 til 16 stig.
Þjóðhöfðingjar
í heimsókn
Juan Carlos Spánarkonungur
kemur væntanlega í heimsókn til ís-
lands á næsta ári. Ekki er endanlega
frágengið hvaða dag Juan Carlos
kemur til landsins og engin formleg
tilkynning hefur verið gefin út um
heimsóknina.
í haust sækir Ólafur Noregskon-
ungur íslendinga heim og Karl
Bretaprins mun koma í einkaheim-
sókn til landsins í ágúst. Breska
sendiráðið sagði prinsinn koma í
einkaerindum og vildi ekki gefa út
frekari yfirlýsingar. Karl hefur
nokkrum sinnum komið til íslands
og rennt fyrir lax.
-pv