Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1988, Blaðsíða 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLl 1988.
Jarðarfarir
Hólmfríður B. Petersen lést 30. júní
sl. Hún fæddist í Kirkjuskógi í Mið-
dalahreppi, Dalasýslu. Foreldrar
hennar voru Benedikt Snorrason og
Guðrún Guðmundsdóttir. Hólmfríð-
ur giftist Adolf J. E. Petersen en hann
lést fyrir þremur árum. Þau hjónin
eignuðust tvo syni. Útfór Hólmfríðar
veröur gerð frá Mosfellskirkju í Mos-
fellssveit i dag ki. 13.30.
Utfor Arna Jóhanns Árnasonar, er
lést 29. júní, hefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hins látna.
Gestur Pálsson Sólvöllum 8, Akur-
eyri, lést 6. júh sL Útförin fer fram
frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn
13. júh kl. 13.30.
Guðrún Teitsdóttir, fyrrum hús-
freyja í Bjarghúsum, andaðist á
Hrafnistu 9. júh sl. Jarðarförin fer
fram frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 14. júh kl. 15.
Pétur Árnason Byggðarenda 23,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskapehu fimmtudaginn 14.
júh kl. 13.30.
Einar S. Einarsson skipasmiður,
Ljósheimum 20, sem lést 2. júh, verð-
ur jarðsunginn frá Langholtskirkju
miðvikudaginn 13. júlí kl. 15.
Andlát
Jónína Siguijónsdóttir, húsfreyja
Byggðarhomi, Sandvíkurhreppi, Ár-
nessýslu, lést 10. júlí sl. í sjúkrahúsi
Suðurlands, Selfossi.
Ólafur Tryggvason frá Kothvammi
er látinn.
Guðjón Kristinsson, Þórsgötu 8b, er
látinn.
Gróa Steinunn Þórðardóttir frá
Ynnri-Veðrá, Önundarfirði, lést
laugardaginn 9. júh í sjúkrahúsinu á
ísafirði.
Hávarður Helgason, lést í sjúkrahúsi
Seyðisfjarðar 8. júh.
Helga Jónsdóttir frá Hjaltastöðum,
Suðurgötu 8, Sauðárkróki, andaðist
í sjúkrahúsi Skagfirðinga 10. júh.
Þórey Jónsdóttir, áður Sólvailagötu
20, andaðist á Elli- og hjúkrunar-
heimihnu Grund fóstudaginn 8. júlí.
Guðlaug Jónsdóttir frá Jaðri lést á
sjúkrahúsinu í Bolungarvík 11. júh.
Stefania Lilja Valdimarsdóttir lést 10.
júh á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri.
Tapað fundið
Dísarpáfagaukur fannst
Grár dísarpáfagaukur fannst fyrir utan
Háteigsveg 16 í gær, mánudag. Upplýs-
ingar í síma 621362.
Tilkyimingar
Safn erinda um íslensk
landgræðslumál
Út er komiö á ensku safn erinda um ís-
lensk landgræðslumál og fleiri skyld við-
fangsefni á norðurslóðum. Útgefandinn
er tímaritið Artic and Alpine Research í
Boulder, Colorado, Bandaríkjunum. Er
ritgerðasafn þetta í 19. árgangi 4. hefti,
sem er tileinkað ráðstefnu sem haldin var
í Reykjavík í september 1986 á vegum
Alþjóðaheimskautanefndarinnar. Dr.
Sturla Friðriksson er einn af ritstjórum
og skrifar formála fyrir ritinu en tólf
aðrir íslendingar kynntu efnið á ráð-
stefnunni. í ritinu er merk grein um
ábyrgð okkar á auðæfum lifríkis norður-
slóða eftir prófessor Louis Rey, sem var
forseti samtakanna. Mikill fróðleikur er
í ritinu um jarðvegs- og gróðureyðingu
og uppgræðslmnál.
Týnlr Morgan Kane lífinu?
Prenthúsið var nú að senda ffá sér 63.
bókina í spennubókaflokknum um Morg-
an Kane, Lögregluforingi í Alaska. Allt
bendir til þess að Morgan Kane fái nú
ekki lengur umflúið þau örlög sem hann
hefur búið svo mörgum sjálfur í 62 fyrri
bókum, nefnilega dauðann. En tekst höf-
undinum, Louis Masterson (Norðmann-
inum Kjell Hailbing) það?
Sumarhappdrætti heyrnar-
lausra 1988
Dregiö var í happdrættinu 1. júh sl. Vinn-
ingsnúmer eru þessi: 1. 10208, 2. 1817, 3.
5358, 4. 17622, 5. 1310, 6. 1504, 7. 12505, 8.
13251. Vinninga má vitja á skrifstofu Fé-
lags heymarlausra, IGapparstig 28, kl.
9-17 alla virka daga, sími 13560. Félagið
þakkar veittan stuðning.
Tölvuforrit fyrir tannlækna
Komið er á markaðinn nýtt tölvuforrit
fyrir tannlækna sem nefnist Tannlækna-
þjónninn. Tannlæknaþjónninn heldur
utan um öll helstu verk á tannlæknastof-
unni, t.d. færslur í sjúkraskrá, reiknings-
hald og tímagjöf. Einnig setur hann upp
tann„status“ en hann sýnir á myndræn-
an hátt þær aðgerðir sem gerðar hafa
verið. Forritið er skrifað fyrir Archime-
des, 32 bita tölvu ffá breska fyrirtækinu
ACORN Computer LTD. Acom er eink-
um þekkt í Evrópu fyrir byltingarkennd-
ar nýjungar á tölvusviðinu sem koma
m.a. í ljós í þessari nýju tölvu. Við hönn-
un forritsins var áhersla lögð á að gera
það aögengilegt, sérstaklega fyrir þá sem
ekki hafa kynnst tölvum áður. Aðgerðum
er stjómað með mús þar sem ferðast er
milli glugga á skjánum og birtast allar
upplýsingar jafnóðum, svo að fátt eitt
þaif að muna. Tannlæknaþjóninn skrif-
uðu Kristinn Johnsen og Ömólfur Rögn-
valdsson ásamt Hæng Þorsteinssyni
tannlækni. Mánafoss hf., Bolholti 4, er
með forritið til sölu en söluaðili Árc-
himedes tölva er Japis hf. Brautarholti
2, Reykjavík.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför eiginkonu, móð-
ur, tengdamóður og ömmu,
ÁRNÝJAR S. JÓHANNESDÓTTUR
Álfhólsvegi 125, Kópavogi
Haukur H. Elríksson
Jóhannes Kr. Hauksson Árný E. Bentsdóttir
Kristín Hauksdóttir Gunnar Björnsson
Koibrún Hauksdóttir Jón Þór Jónsson
Heimir Hauksson
og barnabörn
Kvikmyndir
Bíóboigin, Bíóhöllin:
Fagmennska i fyrtrmmi
Leikstjóri: Roger Spottiswoode
Myndataka: Michael Chapman
Aðalhlutverk: Sidney Poitier, Tom Ber-
enger og Kirstie Alley
Lögga fer í persónulega hefndar-
för á eftir moröingja og ann sér
hvorki svefns né matar uns hún
hefur hendur í hári kauða og tekur
hann af lífi. Þetta er megininntak
kvikmyndarinnar Hættuförin sem
nú er sýnd í tveim kvikmyndahús-
um borgarinnar.
Þetta er efni sem allir þekkja og
maður heföi haldiö að væri orðið
svo margtuggið og þvælt að enginn
heföi gaman af því. En það er nú
öðru nær.
Fagmannleg vinnubrögð ein-
kenna þessa mynd öðru fremur.
Góður leikur, falleg myndataka og,
ekki hvað síst stórgott handrit lyft-
ir þessari mynd langt upp fyrir
heföbundnar myndir af þessu tagi.
Og árangurinn lætur ekki á sér
standa. Tuggan glæöist lífi og úr
verður afburðavel gérö spennu-
mynd sem heldur áhorfandanum í
helgreip sinni allt til enda.
Leikstjórinn, Roger Spottis-
woode, beitir sjaldséöri fag-
mennsku við gerö þessarar mynd-
ar. Hann hefur enda starfað mikið
með Sam Pekinpah, en sá er ein-
mitt þekktur fyrir hrottalegar og
vel gerðar spennumyndir.
Tom Berenger, sem þekktur er
fyrir leik sinn í myndinni Platoon,
leikur hér íjallabúann Jonathan
Knox. í meðförum hans verður
fjallabúinn einrænn og sérvitur en
undir hijúfu yfirborðinu leynist
hlýja.
Sidney Poitier snýr aftur í þessari
mynd en hann haföi tekið sér tíu
ára fri frá kvikmyndaleik. í þessari
mynd sýnir hann á sér áður
óþekktar hliðar sem gamanleikari.
Hafi menn á annað borð gaman
af blóði og spennu er þetta rétta
myndin. Hafi menn ekki gaman af
blóði og spennu gæti þessi mynd
orðið til að vekja áhuga þeirra.
Myndin er góð útfærsla á gamalli
khsju. -PLP
Sidney Poitier og Tom Berenger í hlutverkum sinum.
Ný útgáfa ferða-
korts1988
Landmælingar íslarids hafa nú sent frá
sér nýja útgáfu af ferðakortinu í mæli-
kvarða 1:500.000. Kortið er endurskoðað
og bætt frá fyrri útgáfum og er prentað í
6 litum samkvæmt nýjum staðli. Nauð-
synlegt er fyrir ferðamenn að endumýja
ferðakortið reglulega þar sem á því eru
allar nýjustu upplýsingar um nýja vegi
og vegi með slitlagi. Öll veganúmer eru
merkt á kortið svo og vegalengdir miili
staða. Lögð er áhersla á ýmsa þjónustu
við feröamenn um allt land og eru ítarleg-
ar upplýsingar þar að lútandi á kortinu.
Ferðakortið er góður og ódýr ferðafélagi
og fæst hjá öllum helstu bensínstöðvum,
bókabúðum og greiðasölum um land allt.
Landmælingar íslands reka sérverslun
meö kort að Laugavegi 178 í Reykjavík
og er hún opin virka daga yflr sumar-
mánuðina frá kl. 9-18. Þar fæst mikið
úrval íslandskorta auk annarra smá-
hluta og má þar nefna kortamæla, kortat-
öskur og þrívíddarsjár.
Sýningar
„Fjórar kynslóöir“ IASI
Nú stendur yfir í Listasafni ASÍ mál-
verkasýningin Fjórar kynslóðir. Á sýn-
ingunni eru um 60 málverk eftir á ijórða
tug listamanna sem spanna tímabilið frá
fyrsta áratug þessarar aldar fram á síð-
ustu ár. Sýningunni er ætlaö að gefa gest-
um hugmynd um helstu tímabil og
strauma islenskrar listasögu, frá frum-
herjunum Ásgrími Jónssyni, Jóni Stef-
ánssyni, Kjarval og Júlíönu Sveinsdótt-
ur, allt til þeirrar kynslóðar sem nú ber
hæst. Meðal annarra listamanna, sem
eiga verk á sýningunni, má nefna Gunn-
laug Scheving, Jóhann Briem, Kristján
Davíðsson, Nínu Tryggvadóttur og Sva-
var Guðnason, Valtý Pétursson, Þorvald
Skúlason, Tolla, Gunnar Öm og Tryggva
Ólafsson. Sýningin er opin alla virka
daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-20.
Sýningunni verður framlengt um eina
viku og lýkur 24. júlí.
Árbæjarsafn
í sumar stendur yfir sýning um Reykja-
vík og rafmagnið. Auk þess er uppi sýn-
ing um fomleifauppgröftinn í Viðey
sumarið 1987. „Gömiu" sýningamar um
m.a. gatnagerð, slökkviliðiö, hafnargerð
og jámbrautina em að sjálfsögðu á sínum
stað. Opið kl. 10-18 alla daga nema mánu-
daga. Veitingar í Diilonshúsi frá kl.
11-17.30.
Sími 84412.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Lokað um óákveðinn tíma.
Ökum jafnan á hægri rein
á akreinaskiptum
vegum.
UMFERDAR
RAÐ