Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1988, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1988.
3
Fréttir
Landhelgisgæslan:
Nýjar heimildir um
þorskastríðin fundnar
6vo kann að fara að flestir íslend-
inga sjái þorskastrföin, allavega
þau síðari, í nýju ljósi þegar heira-
ildarmynd um Landhelgisgæsluna
verður sýnd á næsta ári.
Að sögn Helga Felixssonar, sera
vinnur að myndinni ásamt Böðvari
Guömundssyni, hafa margar rajög
athyglisverðar kvikmyndir fundist
- athyglisverðar erlendar kvikmyndir hafa komið í leitimar
erlendis. Sumar þessara mynda
varpa nýju og skýru ljósi á margt
í sambandi við þorskastríðin.
„Okkur kom gífurlega á óvart
hvað þetta hefur fengiö mikla og
útbreidda umfjöllun í Ijölmiðlum
erlendis. Þar höfum við víða fengið
mjög góöar kvikmyndir af átökun-
um í kringum þorskastríðin og þar
er margt sem á án efa eför að koma
mönnum á óvart og jafovel varpa
nýju Jjósi á suma atburöi,*1 sagði
Helgi.
Hann sagöi að það væri mjög at-
hyglisvert að erlendar fréttamynd-
ir frá þorskastríðunum væru í raun
mun betri en íslenskar myndir.
Sagði Helgi að svo virtist sem ís-
lenskir kvikmyndatökumenn
hefðu ekki fengiö að koma nógu
nálægt átökunum. Myndir væru
allar teknar úr mikilli fjarlægð eða
úr lofti. Erlendu myndirnar væru
mun nær atburðunum. ísienska
ljósmyndaúrvalið væri hins vegar
viðunandi.
Gert er ráð fyrir að Ijúka gerð
myndarinnar um áramót og búist
er við aö hún verði sýnd á næsta
ári í sjónvarpi. Miðað er viö að
lengd rayndarinnar verði rúmlega
60 mínútur.
-SMJ
Kona kærði
mann frá Ghana
fyrir nauðgun
Kona kærði mann frá Ghana fyrir
nauðgun um helgina. Hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins fengust þær upp-
lýsingar að engir áverkar hefðu
fundist á konunni og hefðu föt henn-
ar verið órifln. Stæði staðhæfmg
gegn staðhæfmgu milli aðilanna og
því væri máhð í biðstöðu. Varð ekk-
ert úr gæsluvarðhaldsúrskurði yfir
manninum. -hlh
Ríkið hefur áhuga
á að kaupa Iðnó
- nefnd skipuð til að kanna málið
„Menntamálaráðherra hefur skip-
að nefnd til að kanna möguleikana á
að gera Iðnó aö menningarmiðstöð
með kaup eða leigu í huga,“ sagði
Guðmundur Magnússon, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra, um
áhuga ráðuneytisins á að festa kaup
á gamla Iðnó við tjörnina.
I nefndinni eiga sæti Þórunn Haf-
stein formaður, fulltrúi mennta-
málaráðuneytis, Sveinbjörn Óskars-
son, fulltrúi íjármálaráðuneytis og
Gunnar Eydal fyrir hönd Reykjavík-
Ketillinn fluttur i viðbyggingu kyndi-
stöðvar Fjarhitunar. DV-mynd Omar
urborgar.
Þröstur Ólafsson, sem situr í sölu-
nefnd Alþýöuhússins hf„ sagði að
húsiö hefði verið sett á fasteignasölu
og auglýst fyrir nokkru en síðan
hefðu þeir ekki verið mjög fram-
takssamir í sölunni né auglýst aftur.
„Það hefur ekkert formlegt tilboð
borist og við höfum ekki viljað verð-
leggja þetta. Þó aö menn hafi gert sér
einhverjar hugmyndir þá eru þær
ekki til að viðra opinberlega," sagði
Þröstur Ólafsson. JFJ
Vestmannaeyjar:
Rafskauta-
ketill til
húsahitunar
- í stað minnkandi hraunhita
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
í síðustu viku var nýjum raf-
skautakatli komið fyrir í viðbygg-
ingu kyndistöðvar Fjarhitunar Vest-
mannaeyja við Kirkjuveg hér í bæ.
Ketillinn vegur rúm þijú tonn og
gekk vel að koma honum á sinn stað
í húsinu en til þess þurfti hin öflug-
ustu tæki, krana og lyftara.
Ketillinn, sem á að taka við þegar
hitaorka í hrauninu dvín, er mjög
afkastamikill eða 20 megavött. Til
samanburðar má geta þess að þegar
hitaþöríin var mest á síðastliðnum
vetri fengust 8 megavött úr hraun-
inu. Gert er ráð fyrir að ketillinn
verði tilbúinn til notkunar í septemb-
er og verður heildarafl kyndistöðvar-
innar þá komið yfir 30 megavött.
Fyrir eru tveir svartolíutankar, þrjú
og átta megavött. Að sögn Eiríks
Bogasonar veitustjóra mun þetta afl
duga bænum næstu árin.
Það er engin sanngirni í því að halda þorskveiðibanninu í ágúst til streitu þegar viö gátum aðeins róið fjóra daga
í júní, segir Jón Bersi á Patreksfirði og Gunnar kinkar kolli samþykkjandi. DV-mynd PV
Komumst nær ekkert
a sjoinn i jum
Júnímánuður var erfiöur þeim
sem eiga Ufsbjörgina undir veðri og
vindum. Á Patreksfirði hitti blaða-
maður DV tvo trillusjómenn sem
voru að taka net í land eftir róður. -
Blessaður vertu, við komumst varla
á sjó í júní, sagði Jón Bersi Árnason.
Gunnar Gunnarsson samsinnti og
sagði að allan síðasta mánuð hefði
aðeins verið róið fjóra daga.
Þeir félagar róa á átta tonna trillu,
Guörúnu Hhn, og eru á skaki. -
Rauðmaganetin eru svona tóm-
stundagaman, sagði Gunnar um leið
og hann dró upp á vörubílspall net
sem aldrei fer aftur í sjó, nema þá
sem rusl. Gunnar og Jón Bersi byrj-
uðu seinni part apríl og voru þá á
línu. Þegar þeir eru á skaki er úthald-
ið þrír dagar og gert er að fiskinum
og hann ísaöur niður í plastkör. Afl-
inn er orðinn um 50 tonn.
Það er ekki hægt að halda bátum
af þessari stærð lengur að veiðum frá
Vestíjörðum en í sex mánuði. Á vet-
urna róa Jón Bersi og Gunnar á
stærri bát sem gerður er út frá Pat-
reksfirði.
“PV
Sigurður Jónsson og Bragi Ólafsson, bæjarfulltrúar, griila pylsur í gríð og
erg. DV-mynd Ómar
Bæjarstjórnin
brá á leik
Ómar Garðarsson, DV, Vestmaimaeyjum;
Á laugardag brá bæjarstjóm Vest-
mannaeyja á leik og bauð bæjarbú-
um til veislu. Tilefnið var norræn
vinabæjaheimsókn og vigsla Ráð-
hústraðarinnar, sem nýlokiö er við
að helluleggja.
Bæjarfiúltrúarnir sáu sjálfir um
eldamennskuna, íklæddir tilheyr-
andi kokkabúningum, húfu og
swmtu. Þarna grilluðu þeir hvorki
fleiri né færri en 3600 pylsur og út-
deildu 1200 Svölum. Fjöldi bæjarbúa
og gesta mætti á svæðið og fannst
þeim tilbreyting í því að sjá fulltrúa
sína í bæjarstjórn þjóna sér í eigin-
legri merkingu.
Ráðhúströðin er mjög vel til þessa
fallin og verður örugglega framhald
á því að hún verði notuð við ýmiss
konar uppkomur í framtíðinni.