Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1988, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1988.
9
Unnið að siökkvistörfum í ferjunni í morgun.
Simamynd Reuter
Níu létust í
skotárás í ferju
Þrír grímuklæddir byssumenn
myrtu í gær níu manns er þeir
fleygðu handsprengjum og skutu úr
vélbyssum um borð í grískri ferju á
Eyjahafi. Tugir manna særðust við
árásina á ferjuna sem sigldi með
tæplega fimm hundruð ferðamenn í
dagsferð um Eyjahaf. Árásarmenn-
irnir komust undan á hraðbáti.
Um tvö hundruð skelfingu lostnir
farþegar fleygðu sér fyrir borð þegar
árásarmennirnir hófu skothríðina.
Að sögn lögregluyfirvalda misstu
sumir farþeganna útlimi viö það að
rekast í skrúfur ferjunnar. Fjörutíu
og sjö farþeganna Uggja á sjúkra-
húsi, þar á meðal nokkrir útlending-
ar. Ekki er enn vitað um þjóðerni
hinna látnu. Meöal farþeganna voru
Bandaríkjamenn, Frakkar, Bretar,
Þjóðverjar, Svíar, Júgóslavar, Portú-
gahr, Jórdanir og FiUppseyingar.
Fetjan sigldi í gær frá Trokadero við
Aþenu til grísku eyjanna.
BílaleigubUl sprakk í Trokadero í
gær og létust tveir arabar, kona og
karlmaður, við sprenginguna. Að
sögn lögreglunnar var bílUnn hlað-
inn -sprengiefni og tahð er að sam-
band sé á milU þessara atburða.
Lögreglustjóri, sem ekki vildi láta
nafns síns getiö, sagði að Uklega
hefðu þau sem biðu bana í bílnum
verið að bíða eftir báturinn sneri aft-
ur en eitthvað hafi farið úrskeiöis og
að þau hafi orðið eigin fórnarlömb.
Byssumennimir um borð í ferjunni
hafi Uklega heyrt fréttina um spreng-
inguna og þá ákveðið að láta til skar-
ar skríða.
í bílnum voru vélbyssa, skotfæri,
handsprengja, mikiö af dollaraseðl-
um og íranskt tímarit á víð og dreif
þegar komið var að honum eftir
sprenginguna.
Líbanskur ríkisborgari hafði tekið
bfiinn á leigu og hafði hann leigt sér
Franskur feröaiangur fær aöhlynningu á sjúkrahúsi eftir árás byssumanna
um borð i griskri ferju i gær meö þeim afleiðingum aö niu manns biðu
bana og tugir slösuðust. Simamynd Router
Niu féllu er þrir grimukiæddir menn
réöust á ferju á Eyjahafi.
hótelherbergi í Aþenu á föstudaginn.
Vestrænir stjómarerindrekar í
Aþenu útiloka ekki þann möguleika
að árásin um borð í ferjunni sé tengd
þeim atburði er bandarískt herskip
skaut niður íranska farþegaþotu fyr-
ir rúmri viku. Þá létust tvö hundmð
og nítíu manns. Óstaðfestar fregnir
herma að mikill viðbúnaður sé nú
við allar bandarískar herstöövar í
Grikklandi.
Mikil leit fer nú fram aö byssu-
mönnunum sem skipveijar á nálæg-
um skipum segjast hafa séð kveiKja
í dekkinu á feijunni eftir skothríðina
og flýja á litlum báti.
Fundi Öiyggisráðsins frestað?
Verið getur að Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna fresti fundi um skotá-
rás Bandaríkjamanna á íranska far-
þegaþotu um einn eða tvo daga.
Fundurinn átti að fara fram síðdegis
í dag þar sem hlusta átti á utanríkis-
ráðherra írans, Ah Akbar Valayati,
færa fram sín sjónarmið.
Eftir komu Vaiayatis til New York,
þar sem hann ræddi við nokkra full-
trúa, er sagt að sumum þeirra hafi
fundist að þeir þyrftu meiri tíma til
að búa sig undir fundinn.
Þetta tal um frestun á fundinum
kom eftir að Reagan Bandaríkjafor-
seti bauð ættingjum fórnalamba
skotárásarinnar skaðabætur. Ekki
er þó enn Ijóst hvort tengsl eru þarna
á milli.
í Bandaríkjunum eru skiptar skoð-
anir meðal þingmanna varöandi
greiðslu skaðabóta til fjölskyldna
fórnarlambanna. Nýlegar skoðana-
kannanir sýna að meirihluti banda-
rísku þjóðarinnar er mótfallinn slik-
um greiðslum.
í tilkynningu Hvíta hússins um
greiðslumar var lögö áhersla á að
engir peningar myndu fara um hend-
ur sljómarinnar í íran. Reuter
Útlönd
Jesse Jackson sagði í fyrsta skipti
í gær að hann myndi þiggja útnefn-
ingu Demókrataflokksins sem
varaforsetaefni. Hann virtist þó
gefa stuðningsraönnum sínum
merki um aö verða ekki reiöir þótt
honum yrði ekki boðiö að verða
varaforsetaefni flokksins.
Ólíklegt þykir að Jackson hljóti
útnefiiinguna þar sem skoðana-
kannanir sýna að andstæðingar
blökkumanna gætu þá komið í veg
fyrir að Dukakis kæmist alla leið í
Hvíta- húsið.
Dukakis, sem verður fonmlega
útnefiidur sem forsetaefni Demó-
krataflokksins á landsþingi hans í
Atlanta í næstu viku, hefur ekki
sagt hvera hann muni tilnefna sem
varaforsetaefni sitt.
Jesse Jackson kveöst nú þiggja
útnefningu sem varaforsetaefni.
Símamynd Reuter
Duarte snýr heim
Duarte, forseti El Salvador, viö
heimkomuna i gær.
Símamynd Reuter
Forseti E1 Salvador, Jose Napo-
leon Duarte, sneri í gær heim eftir
40 daga sjúkrahúsvist i Bandaríkj-
unum þar sem gerö var skurðað-
gerð á honum vegna krabbameins.
Hann kvaöst myndu halda áfram
að vinna að lýöræöi þar til kjör-
tímabil hans væri á enda.
Ráðherrar Duartes fögnuðu hon-
um vel við heimkomuna, sömuleiö-
is herstjómin og stjómarerindrek-
ar.
Kjörtímabili Duartes, sem er 62
ára gamall, lýkur í maílok 1989.
Hann kveðst munu vinna að þvi
aö forsetakosningamar, sem þá er
áætlað að fari fram, veröi algjör-
legafijálsar.
50 þúsund heimilislausir
Bangladesh hefur nú veriö lýst yfir neyöarástandi vegna flóöa.
Símamynd Reuter
Neyðarástandi var lýst yfir í Bangladesh í gær og hermenn sendir til
björgunarstarfa vegna flóða sem krafist hafa sjötíu mannslifa undanfam-
ar tvær vikur.
Forseti landsins, Mohammad Ershad, skipaði ráöherram og þingmönn-
um að fara um landiö til að fylgjast með þvi að hjálparsendingum væri
dreift á réttan hátt. Að minnsta kosti fimmtíu þúsund manns hafa misst
heimili sín í flóðunum, að sögn embættismanna. Taliö er að tugir þús-
unda séu einangraöir í afskekktum þorpum.
Nokkur fórnarlambanna dmkknuðu en önnur urðu undir húsum sem
hrundu við flóðin. Hundruö fjölskyldna hafast við á vegum úti en aðrar
hafa leitað skjóls uppi á húsþökura. Samgöngur milfi Dacca og annarra
landshluta hafa legiö niðri aö hluta vegna fióðanna sem sópað hafa með
sér brúm.
í raaí og júni létust aö minnsta kosti áttatíu manns í austurhéruðum
Bangladesh vegna flóða sem þá gengu yfir.
Yfirvöid í Bretlandi kváöust í gær vera reiöubúin til aö ræða sölu á
vopnum til Kuwait en búist er við að beiðni yfirvaida Kuwait til Banda-
ríkjanna um vopnasölu mæti andspymu á Bandaríkjaþingi.
Stjómarerindrekar segja að svo gæti farið að Kuwait fylgdi í fótspor
Saudi-Arabíu og keypti brskar orrustuþotur ef þingið í Bandaríkjunum
setti takmarkanir á sölu á bandarískum herflugvélum. Það var vegna
andstöðu Bandaríkjaþings sera Bretar gátu gert samning við Saudi-
Arabiu um sölu á hergögnum fyrir 17 milljarOa dollara. Tilkynnt var um
þann samning í síðustu viku.
Forsætisráðherra Kuwaits, Al-Sabah, hóf í gær viðræður við yfirvöld í
Washington um möguleika á að fá að kaupa orrustuþotur og eldflaugar.
Á laugardaginn undirritaði Kuwait samning viö Sovétríkin um kaup á
vopnum.
Sleppa munkum
í Tíbet hafa fimmtíu og tveir munkar veriö látnir lausir. Þeir höföu
veriö í haldi frá því að uppreisnin var gerð í Tíbet í mars síðastliðnum.
Munkamir, sem allir eru í kringum tvítugt, höföu gert árásir á verslan-
ir og veitingastofur og barið á lögreglumönnum sem sendir voru til að
bæla niður óeirðimar. Fimm manns, þar á meðal einn lögreglumaður,
létu lífiö í róstunum sem uröu þegar mótmœlt var yfirráöum Kína i Tí-
bet. Aö sögn opinberra starfsmanna vora tvö hundrað manns hand-
teknir en Tíbetbúar fullyröa að meira en þúsund manns hafi vertö hand-
teknir. Óstaðfestar fregnir herma einnig að mildu fleiri hafi látiö líflð en
opinberar skýrslur sýna. Reutœr