Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1988, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Judy
Garland
varö vel þekkt fyrir hlutverk sitt
í myndinni um galdrakarlinn í
Oz. Nú hafa skór þeir er hún not-
aöi í myndinni verið seldir á upp-
boði hjá Christie’s og fóru þeir á
litlar 6,8 milþónir króna eða átta
sinnum hærri upphæð en bjart-
sýnustu menn þorðu að vona.
Aðeins eru fimm skópör eftir af
þeim sem notuð voru í myndinni.
Seljandinn, sem vildi ekki láta
nafns síns getið, sagðist bara ætla
að geyma skóna vel.
Mathákurinn Norman Smith með sinn daglega matarskammt, enda vegur
hann nú um 267 kiló.
Bette
Davis
sagði einu sinni að ef hún gæti
byijað upp á nýtt þá myndi hún
verða lögfræöingur. Til allrar
hamingju fyrir kvikmyndafyrir-
tækin í Hollywood ákvað hún á
sínum tíma að leggja inn á leik-
hstarbrautina. Nú er hún orðin
áttræö þó aö hún kæri sig ekki
um að muna það og enn er hún
ekki af baki dottin því hún leikur
nú í mynd númer 87, The Wicked
Stepmother. Að sjálfsögðu fer
hún með aðalhlutverkiö.
Isabella
Rossellini
er ekki dóttir móður sinnar fyrir
ekki neitt. En móðir hennar var
hin fræga leikkona Ingrid Berg-
man. Andht Isabellu hefur nú
birst á forsíðu yfir 500 tímarita
og enn hafa Frakkar ekki fengið
nóg af henni því nú hefur hið
þekkta Lancome snyrtivörufyrir-
tæki sett upp sýningu með mynd-
um af henni. Þar er að finna
myndir af Isabellu með bömum
sínum og foreldrum.
Norman Smith vó 267 kíló en var
samt enn óstöðvandi. Hann át allt
sem að kjafti kom og þegar ekkert
var eftir þá leiddist hann inn á glæpa-
brautina th að hafa ofan í sig.
Þegar verðir laganna komu til aö
taka kappann höndum fyrir að hafa
verslað með stolna muni, þá höfðu
þeir vaðið fyrir neðan sig og mættu
26 á staðinn, svona til öryggis. En
Norman komst hjá fangelsisvist því
dómarinn sá aumur á honum og
hann fékk aðeins tveggja ára skil-
orðsbundinn dóm. Átvaglið mikla er
því aftur komiö heim til sín og er nú
á sérstökum „nei takk megrunarkúr.
Norman segir að hann hafi þegar
misst 18 kíló frá því réttarhöldin fóru
fram í febrúar. Hann hefði bara haft
svo gífurlega þörf fyrir mat að þegar
honum var boðið að vinna sér inn
peninga auðveldlega þá tók hann
boöinu. Norman fór því að selja og
kaupa stolin rafmagnstæki, því hann
gat hreinlega ekki ráðið við neitt,
hann var alltaf svangur og dreymdi
mat á nætumar.
Norman missti vinnuna vegna þess
að hann var of feitur til að vinna.
Hann fékk þá 4.500 krónur í atvinnu-
leysisbætur á viku en það dugði ekki
til því hann át fyrir 13.500 krónur á
sama tíma. Á sínum tíma bjó hann
hjá móður sinni og át þá allt sem
hann fann ætilegt í húsinu, en þaö
var aldrei nóg.
Á venjulegum degi át hann 'A kíló
af svínakjöti, kíló af osti, 'A til 1 kíló
af nautakjöti, þrjú heil brauð, þrjá
skammta af fiski og. frönskum, kíló
af sælgæti, tvo pakka af kexi, heila
súkkulaðiköku og þessu skolaði
hann niöur með tíu stórum kollum
af bjór.
Offita Normans hefur að miklu
leyti eyðilagt líf hans. Hann getur
ekki farið í bað þó að hann reyni.
Það kom nefnilega fyrir æði oft að
hann hreinlega festist. Því fer hann
nú aðeins í sturtu. Föt hans eru klæð-
skerasaumuð þvi honum er ómögu-
legt aö fá fót á sig í venjulegum versl-
unum. En það er eins gott að fotin
endist því hver skyrta kostar hann
um 1.350 krónur.
Einu sinni kom það fyrir að vinur
hans bauðst til að aka honum í bæ-
inn. Þeir settu sætið eins aftarlega
og mögulegt var og Norman tróð sér
inn í bílinn. Ekki var hann þar þó
lengi því gólflð var orðið svo ryögað
að botninn hreinlega gaf undan
þunga Normans og féll úr. Það var
lán í óláni að bíllinn skyldi ekki hafa
verið á ferð. Ekki var þetta fyrsti
botninn sem gaf undan þunga hans
því botninn úr rúminu var löngu fall-
inn. Varð því sérstaklega að styrkja
rúmið og aila stóla sem Norman sett-
ist í.
Þegar lögreglan kom aö handtaka
hann þá kom hún að honum steinsof-
andi og dreymandi um mat. Þegar
Norman opnaöi augun þá var hann
varaður við því að reyna aö flýja. Það
fannst honum nú vera brandari í lagi
því hann gat vart hreyft sig fyrir of-
fitunni. Ætluðust mennirnir til að
hann reýndi aö flýja með því að
stökkva út um gluggann?
Lögreglan ætlaði fyrst að reyna að
troða honum inn í lögreglubifreiðina,
en ekkert gekk. Var þá kallað á
sendiferöabíl og komst Norman inn
í hann þegar búið var að taka nokkur
sæti út úr bílnum. Norman var hafð-
ur í haldi yfir nótt og það var fyrsti
morgun í lífi hans sem hann fékk
ekki morgunverð. Eftir nokkra tíma
varö hann svo svangur að hann hélt
að hann myndi deyja. Ekki er að
spyrja að því að um leið og honum
var hleypt út þá innbyrti hann
óhemju magn af eggjum, fleski, pyls-
um og baunum. Að eigin sögn þá át
hann á við 10 fullorðna.
En frá þeirri máltíð hefur Norman
reynt að halda í við sig þó að ekki
hafi það verið auðvelt. Honum finnst
hann enn hafa mikla þörf fyrir að
boröa en hann heldur sig við kúrinn,
því hann er þreyttur á því aö vera
feitur og ljótur sóði. Hann vonar bara
innilega að honum takist að losa sig
við nokkur kíló í viðbót.
Svo virðist sem Madonna og hennar skapmikli Sean Penn hangi ennþá
saman þrátt fyrir þrálátar sögusagnir um skilnað þeirra. Þau hjúin voru
auðvitað meðal þeirra sem voru viðstaddir forkeppni í hnefaleikum milli
heimsmeistarans í þungavigt, Mikes Tyson, og áskorandans, Michaels
Spinks.
Simamynd Reuter
Danir sigruðu i kvennaflokki og hér sést lið þeirra með sigurbros á vör.
Frá Norður-
landameistara-
móti í bridge
Norðurlandameistaramótið í
bridge var haldið hér á landi dag-
ana 26. júní til 1. júlí. Keppt var á
Hótel Loftleiðum og var spilað alla
dagana. Mót þetta er haldiö annað
hvert ár og skiptast Norðulanda-
þjóðirnar á að halda það nema
Færeyingar sem enn hafa aldrei
haldið mótið. Síðast var það hér
árið 1978.
Geysileg spenna ríkti á mótinu
og var hart barist og hafði aldrei
sést annað eins í bridgekeppni hér-
lendis. íslendingar náðu þó aö
merja Svía á einu stigi eftir að áf
þeim höfðu verið tekin tvö stig
vegna brots á reglum og er það frá-
bær árangur því Svíar eru Evrópu-
meistarar.
Annars var það tvennt sem haföi
áhrif á stigafjölda Svíanna. í fyrsta
lagi fengu þeir snemma í keppninni
aukastig því þegar þeir voru að
spila við Norömenn þá sveik einn
Norðmannanna lit. Og i öðru lagi-
misstu þeir tvö stig þegar einn hðs-
manna þeirra braut reglur móts-
ins.
Forsaga þess máls er sú aö, eins
og allir reyndir bridgespilarar vita,
þá þarf leyfi keppnisstjóra ef leik-
maður vill skreppa fram á meðan
á leik stendur, því litlum erfiðleik-
um er bundið að fá upplýsingar um
gengi á öðrum borðum. Eitthvað
varð þó einum Svíanum mikið mál
því hann gleymdi að fá leyfi og
kostaði það Svíanna sigurinn.
En sem sagt, alveg frábær árang-
ur hjá.íslenska landsliðinu í karla-
flokki. Þess má geta í lokin að bæði
landsliðin í karla- og kvennaflokki
munu halda á ólympíumótið í
brigde í október sem haldið verður
á eyju fyrir utan Ítalíu.
Islenska sigurliöið i karlaflokki en þaö náði 178 stigum af 250 möguleg-
um. Frá vinstri: Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Valur Sigurðsson,
Karl Sigurhjartarson, Sævar Þorbjörnsson, Sigurður Sverrisson, Hjalti
Elíasson landsliðsþjálfari og Sigmundur Stefánsson mótsstjóri.