Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1988, Síða 35
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1988.
35
Afmæli
Páll Ásgeirsson
Páll Ásgeirsson, rafveitustjóri á
Flateyri, til heimilis aö Grundar-
stíg 7, Flateyri, er sjötugur í dag.
Páll fæddist aö Baulhúsum í Am-
arfiröi og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann byriaði ungur til sjós
og fór til ísafjarðar þar sem hann
var vélstjóri á bátum og togurum.
Páll flutti til Flateyrar vorið 1949
og hefur búiö þar síðan.
Áriö 1952 kom Páll í land og tók
þá við rafstöðinni á Flateyri þar
sem hann hefur starfað síðan. Raf-
stöðin var rekin af Flateyrarhreppi
frá 1952-55, af Rafmagnsveitum
ríkisins frá 1955-78 og af Orkubúi
Vestfjarða frá byrjun árs 1978.
Kona Páls er Þorgerður Jens-
dóttir, f. 1.11.1921, en hún var ahn
upp aö Múla í Nauteyrarhreppi við
Djúp.
Páll og Þorgerður eignuðust sjö
böm. Þau em: Matthías, f. 16.8.
1942, en hann lést af slysforum 1949;
Sigríður, f. 19.11. 1945, forstöðu-
kona Hjúkrunarheimiiisins að
Kumbaravogi að Stokkseyri, en
hún á eina dóttur; Sturlaugur, f.
6.3. 1946, starfsmaður Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, kvæntur
Margréti Svavarsdóttur en þau
eiga einn son og Margrét átti tvær
dætur fyrir; Kristján, f. 29.11.1947,
vélstjóri hjá Orkubúi Vestfjarða,
kvæntur Ólöfu Helgadóttur en þau
eiga fjögur börn og eru búsett í
Hnífsdal; Aðalheiður Guðbjörg, f.
30.7. 1949, sjúkraliði í Danmörku;
Pálína, f. 28.2. 1951, húsmóðir í
Nýborg í Danmörku, gift Sigmari
Ólafssyni en þau eiga þrjár dætur;
og Matthías, f. 21.3.1952, starfsmað-
ur á Grundartanga, kvæntur Guð-
mundu Hallgrímsdóttur en þau
eiga þrjá syni.
Páll átti átta systkini en tveir
bræður hans em látnir. Systkini
hans: Símonía, f. 1913, húsfreyja að
Tungu í Skutulsfirði; Daðína, f.
1915, húsmóðir á Bíldudal; Matthí-
as, f. 1917, en hann drukknaði 1942;
Friðþjófur, f. 1918, d. 1919; Kristján,
f. 1919, en hann var lengi útibús-
stjóri hjá Kaupfélagi Árnesinga á
Eyrarbakka og er nú búsettur á
Selfossi; Kristinn, f. 1922, lengi brú-
arsmiður hjá Vegagerð ríkisins og
búsettur á Bíldudal; Jóhanna, f.
1923, húsmóðir í Reykjavík; og Ól-
afur, f. 1927, járnsmiður sem lengi
starfaði hjá Héðni í Reykjavík og
hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík.
Foreldrar Páls vom Asgeir
Kristján Matthíasson, b. á Baul-
húsum og síðar að Gimh á Bíidu-
dal, f. 22.2. 1885, d. 1957, og kona
hans, Guðbjörg Óktavía Kristjáns-
dóttir, f. 11.5.1885, d. 1974.
Páh og Þorgerður dvelja í Dan-
mörku um þessar mundir hjá dótt-
ur sinni og tengdasyni.
Páll Ásgeirsson.
Bragi Ámason, Kleppsvegi 70,
Reykjavík, er sextugur í dag og
kona hans, Hulda Þorvaldsdóttir,
verður sextug 15.7. nk.
Bragi er sonur hjónanna Áma
Árnasonar frá Blómsturvöllum í
Kræklingahlíð, f. 23.1.1908, og Guð-
rúnar Jakobsdóttur frá Saltvík við
Húsavík, f. 8.10. 1909.
Guðrún og Árni eignuðust tólf
böm og eru níu þeirra á lífi en af-
komendur þeirra hjóna eru nú á
annað hundraö talsins.
Kona Braga er Hulda Þorvalds-
dóttir en foreldrar hennar vom
Sesselja Kristjánsdóttir frá Eiði í
Eyrarsveit, f. 20.12. 1900, d. 17.6.
1972, og Þorvaldur Þorleifsson frá
Hömrum í Eyrarsveit, f. 24.7.1808,
d. 16.5. 1938.
Sesselja og Þorvaldur eignuðust
átta böm og em þrjú þeirra á lífi
en afkomendur þeirra hjóna em
nú orðnir sextíu og einn.
Bragi og Hulda eiga saman fimm
börn en þau áttu hvort um sig tvö
börn fyrir. Saman eiga þau Jennýju
Lind, afgreiðslustúlku hjá Nesti, f.
1954, Eirík Ottó, verkamann í
Reykjavík, f. 1955, Sigurð Þór,
verkamann á Húsavík, f. 1956,
Kristján, verkamann í Reykjavík,
f. 1960; og Hhdi Þóru, húsmóður í
Hafnarfirði, f. 1964. Börn Huldu
fyrir hjónaband em: Ársæll Bald-
vinsson, strætisvagnabílstjóri í
Reykjavík, f. 1948 og Leifur Eiríks-
son sjómaður, f. 1952. Börn Braga
frá fyrra hjónabandi eru: Kjartan,
kjötiðnaðarmaður á Akureyri, og
Hrefna, verslunarstúlka hjá Skarti
í Reykjavík.
Bragi starfaði til sjós í þrjátíu og
fjögur ár, lengst af sem bryti, en
starfar nú hjá Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar.
Hulda starfaði síðast í Múlakaffi
en vinnur nú heima við.
Þau hjónin ætla að taka á móti
gestum á Kirkjusandi, í sal strætis-
vagnabílstjóra, laugardaginn 16.7.
milli klukkan 17 og 19.
Unnur Sigurðardóttir húsmóöir,
frá Svæði á Dalvík, er áttræö í dag.
Unnur fæddist á Höfn á Dalvík
en þar voru foreldrar hennar þá
búsett, þau Sigurður Jóhannsson
og Ingibjörg Sigurðardóttir.
Árið 1915 fluttu þau frá Dalvík
að Skálum á Langanesi þar sem
þau bjuggu í fjögur ár en 1920 fluttu
þau aftur th Dalvíkur og keyptu
býhð Svæði. Það var svo heimili
Unnar allt til ársins 1984 er hún
flutti ásamt eiginmanni sínum að
Dalbæ, heimih aldraöra á Dalvík.
Unnur giftist 7.1. 1932 Guöjóni
Sigurðssyni frá Mói á Dalvík, f.
9.10.1908, en þau settust aö á Svæði
hjá foreldrum hennar.
Unnur og Guðjón eignuðust fjög-
ur börn. Þau eru: Snjólaug, f. 13.12.
1932; Kjartan, f. 2.6. 1934; Ragn-
heiður, f. 21.1. 1937; og Sigurbjörg,
f. 23.6.1939. Auk þess ólu þau hjón-
in upp Hugrúnu Marinósdóttur, f.
2.4.1943, bróðurdóttur Guðjóns, og
tvö barnabörn sín, Sigurð Kjartan
Harðarson, f. 16.5. 1952, og Unni
Agnesi Hauksdóttur, f. 12.9.1956.
Guðjón lést þann 11.3. sl.
Unnur verður að heiman í dag.
Unnur Sigurðardóttir.
Bragi Arnason og Hulda Þorvaldsdóttir.
Bragi Árnason og
Hulda Þoivaldsdóttir
Unnur Sigurðardóttir
Erla Hafrún Guðjónsdóttir
Erla Hafrún Guðjónsdóttir, Álfta-
mýri 61, Reykjavík, er fimmtug í
dag.
Erla er fædd í Rvík og ólst þar
upp. Hún tók lokapróf frá Verslun-
arskóla íslands 1956 og vann hjá G
Helgason og Melsteð 1956-1957.
Erla var í framhaldsnámi í Bridge
House í London 1956-1957 og vann
hjá Raforkustofnun ríkisins 1957-
1959. Hún var flugfreyja hjá Loft-
leiöum og síöar Flugleiðum 1968-
1984.
Erla giftist 12. júh 1958, Agh Eghs-
syni, f. 24. nóvember 1936, forstjóra
í Rvík. Foreldrar Egils voru Egill
Vilhjálmsson, forstjóri í Rvík, og
kona hans Helga Sigurðardóttir.
Sonur Erlu og Egils er Guðjón
Helgi, f. 13. júlí 1959, viðskipta-
fræðinemi. Þau Erla og Egill eiga í
dag þrjátíu ára brúðkaupsafmæli.
Systkini Erlu eru: Auður, f. 2. des-
ember 1942, gift Rúnari Guðjóns-
syni sýslumanni í Borgamesi;
Hrafnkell, f. 9. maí 1946, fram-
kvæmdastjóri í Rvík, kvæntur
Guðlaugu Jónsdóttur; Helga, f. 30.
desember 1951, fóstra, gift Thomasi
Kaaber, raftæknifræðingi í
Garðabæ; og Guðrún Sóley, f. 7.
aprh 1953, fræðslufulltrúi í Lands-
bankanum, gift Þorsteini Hilmars-
syni, heimspekingi.
Foreldrar Erlu eru, Guðjón Guð-
mundsson, fyrrv. rekstrarstjóri
Rafmagnsveitna ríksisins, og kona
hans Helga Jórunn Sigurðardóttir,
■ kápu- og kjólameistari, en hún lést
23. október 1982. Guðjón er sonur
Guðmundar b. í Austurhlíð í Rvík
Ólafssonar. Móðir Guðjóns var
Guðrún, systir Jóns fóður Magnús-
ar minjavarðar í Hafnarfirði. Guð-
rún var dóttir Helga b. á Litlabæ á
Vatnsleysuströndinni Sigvalda-
sonar b. á Halldórsstöðum á Vatns-
leysuströnd Helgasonar. Móðir
Guðrúnar var Ragnhhdur, systir
Karls fóður Ólafs Túbals hstmál-
ara. Ragnhhdur var dóttir Magnús-
ar gjörtlara í Vestmannaeyjum,
bróður Odds langafa Davíðs Ödds-
sonar borgarstjóra. Magnús var
sonur Eyjólfs b. og hreppstjóra í
■Fljótsdal í Fljótshlíð Oddssonar.
Móðir Eyjólfs var Margrét Ólafs-
dóttir b. á Fossi Bjamasonar b. í
Víkingslæk Halldórssonar, ætt-
fóður Víkingslækjarættarinnar.
Helga var dóttir Sigurðar b. á
Riftúni í Ölfusi Bjarnasonar b. í
Króki í Ölfusi Torfasonar. Móðir
Bjama var Vhborg Þóroddsdóttir
b. í Dalseli undir Eyjafjöllum Giss-
urarsonar og konu hans Guðrúnar
Erla Hafrún Guðjónsdóttir.
Sigurðardóttur, systur Bjarna
riddara. Móðir Helgu var Páhna
Guðmundsdóttir b. á Ytri-Gríms-
læk í Ölfusi Eyjólfssonar b. á Ytri-
Grímslæk Guðmundssonar. Móðir
Guömundar var Eydís Þorleifs-
dóttir b. á Nesjavöhum í Grafningi
Guðmundssonar, ættfóður Nesja-
vahaættarinnar. Móðir Páhnu var
Helga Pálsdóttir, systir Aldísar
langömmu Páls Lýðssonar b. í Litlu
Sandvík og Sigurðar Sigiu-ðarson-
ar, setts yfirdýralæknis.
Erla mun gleðjast með vinum og
frændfólki í dag.
Tilmæli til
afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn
og aðstandendur þeirra til
að senda því myndir og
upplýsingar um frændgarð
og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að
berast í síðasta lagi tveimur
dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Til hamingju með daginn
95 ára __________________
Hjalti Guðmundsson, Byggðavegi
137, Akureyri.
80 ára_________________________
Guðrún Brandsdóttir, GyðufeUi 10,
Reykjavík.
Guðmundur Jónsson, Lynghaga 24,
Reykjavík.
Leifur K. Erlendsson, Bergþóru-
götu 37, Reykjavík.
75 ára_____________________
Þorsteinn A. Hraundal, Stóragerði
14, Reykjavík.
70 ára________________________
Arnþrúður Ingimarsdóttir,
Byggðavegi 95, Akureyri.
Sigríður Bjarnadóttir, Fossheiði 62,
Selfossi.
Guðmundur H. Guðmundsson, Sól-
vaUagötu 11, Keflavík.
60 ára________________________
Ingibjörg Sigurðardóttir, Hátúni 4,
Reykjavík.
Guðmundur Óskar Guðmundsson,
Heiðarbraut 57, Akranesi.
Hildur Anna Björnsdóttir, Gijót-
nesi, Presthólahreppi.
50 ára________________________
Halldór Þorsteinsson, Hraunbrún
14, Hafnarfirði.
Guðmundur V. Guðbjörnsson,
Staðarfelli, FeUsstrandarhreppi.
Maja Sigurgeirsdóttir, Faxabraut
80, Keflavík.
40 ára___________________________
Borghildur Vigfúsdóttir, Hraun-
tungu 62, Kópavogi.
Elín Jónsdóttir, Strýtuseh 2,
Reykjavík.
Margrét Haraldsdóttir, Skap^seli
4, Reykjavík.
Hulda Baldursdóttir, A^stræti
26A, ísafirði.
Sigþór Sigurjónsson. ^useli 30,
Reykjavík.