Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988.
3
Fréttir
Kostar þrenn dag-
laun að borða úti
- alltof mörg veitingahús á höfuðborgarsvæðinu, segir Sturla Pétursson í Naustinu
Sámkvæmt útreikningum DV
tekur það íijón meö meðaltekjur
um 20 klukkustundir í vinnu aö
íára þokkalega út að boröa hér
heima.
„Ég tek undir þaö aö það er alltof
dýrt aö fara út að borða miðaö viö
meöaltekjur fólks,“ sagði Sturla
Pétursson, annar eigandi Nausts-
ins, í samtali við DV.
„Það liggur einfaldlega í því að
þaö eru alltof mörg áþekk veitinga-
hús rekin hér í miðborginni. Ef
veitingahúsum myndi fækka þann-
ig að hin sem eftir stæðu fylltust á
hverju kvöldi gætum við vel lækk-
að verðið um 20 til 30%.
Könnun DV er byggð á þvi aö
fólk fái sér forrétt, aðalrétt og eftir-
rétt með einni hvítvíns- eða rauð-
vínsflösku eöa jafnvel kaffi og kon-
íak á eftir. Þá eru ekki teknar með
í dæmið leigubifreiðar til og frá
matsölustað né aukadrykkir sem
kunna að fljóta með t.d. á föstu-
dags- eða laugardagskvöldi.
Meðalverð á öllu ofantöldu með
fisk sem aðalrétt er um 6000 til 7000
krónur fyrir hjón en frá 7000 upp
í allt að 8000 fyrir hjón fyrir sæmi-
lega kjötrétti. Þá er miðað við um
360 króna tímakaup sem er að sögn
kjararannsóknanefndar meðal-
tímavinnukaup einstaklings í dag.
Hér er átt við veitingastaði eins
og Naustiö, Lækjarbrekku, Torf-
una, Grilhð, Holtið og fleiri staöi á
höfuðborgarsvæðinu sem allir eru
í mjög svipuðum verðflokki.
Örn Guðmundsson, matreiðslu
maður á Lækjarbrekku, tók undir
ummæli Péturs Snæbjarnarsonar
hótelstjóra í DV í gær um að matur-
inn á veitingahúsum mætti alveg
vera 10 til 15% dýrari til þess að
reksturinn stæði föstum fótum.
Sturla í Naustinu, sem hefur unn-
ið sem þjónn síðasthðin 15 ár, sagði
að dæmið hefði snúist við, nú væri
miklu hagstæðara oröið að drekka
vín á veitingastöðum en að borða
mat.
„Frá því ég hóf veitingarekstur í
október á síðstliönu ári hefur til
dæmis kílóið af nautalundum, sem
ég kaupi beint frá kjötvinnslu Jón-
asar, hækkað úr 950 krónum í 1350
krónur. Dýrtíðin er einfaldlega
orðin þjóðfélagsmein aftur. Það er
ekki hægt að fara að sofa á kvöldin
lengur af áhyggjum af hvað maður
verði búinn að tapa miklu daginn
eftir vegna verðbólgunnar,“ sagði
Sturla. -GKr
Guðmundur J. Guðmundsson:
'málning
OG STElNSTt
fNNANLEC=
Veldu
Steinvara
2000
gegn
steypu-
skemmdum
málning't
Geislavirkar
hækkanir fyrir
andrúmsloftið
„Svona hækkanabylgjá dregur
auðvitað úr trú manna á aðgeröum
stjórnvalda því ahir vita að hækkan-
ir kalla á aðrar hækkanir. Þetta eru
geislavirkar hækkanir fyrir and-
rúmsloftið," sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Dagsbrún-
ar og Verkamannasambands Islands,
um þær hækkanir sem dunið hafa
yfir aö undanförnu og eru enn að
skella yfir.
„Þetta safnar í sig allt saman og
dregur síðan úr möguleikum á að
standa gegn verðbólgu. Mér hefur
fundist þeir hjá Pósti og síma eitt-
hvað svo voðalega erfiðir. Þeir
hækka stundum hjá sér með því að
fækka skrefunum sem fólk fær fyrir
gjaldiö. Svona hækkanir fara geysi-
illa í fólk og kalla á gagnaðgerðir."
-SMJ
Vatnshreinsistöð
á 23 millj. króna
Siguijón J. Sigurösson, DV, ísafirði:
Á fundi bæjarráðs ísafjarðar, sem
haldinn var nýlega, var lögð fram
skýrsla frá Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen um vatnshreinsistöð í
Stórurð. í skýrslunni kemur fram að
kostnaðaráætlun við þann útbúnað,
sem lagt er til að notaður verði, hljóð-
ar upp á 23 milljónir króna.
í samtali við DV sagði Haraldur
L. Haraldsson bæjarstjóri að bæjar-
stjórn heföi samþykkt að kaupa fyrr-
nefnda stöð. Afgreiðslutími á út-
búnaði er um 6-7 mánuðir þannig
að möguleiki er að fá tækin fyrst á
næsta ári. ísfirðingar geta því farið
að líta bjartari augum til framtíðar-
innar hvað gæöi vatnsins varðar en
neysluvatn hér í bæ hefur lengi veriö
vandamál.
Hefuröu reynt nýju
200 ASA Gullf ilmuna?
Kodak
Filma
Úlyrhplulcikarma
1988
099