Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988.
Ólympíu-
leikur DV
í tilefni ólympíuleikanna byrjar skemmtilegur leikur hér í DV í
næstu viku í samvinnu við Fjarkann og Bylgjuna.
Leikurinn byggist á því að safna fjórum fjörkum með nafni sama
handboltamanns eða stórmeistara í skák og senda til DV. Alls verða
leiknar ellefu umferðir á þennan hátt og geta allir tekið þátt í hverri
umferð. Leikurinn fer þannig fram að á hverjum degi birtist mynd
af handboltamanni eða stórmeistara í DV ásamt seðli fyrir nafn þátt-
takanda. Þennan seðil þarf að senda inn til DV ásamt fjórum íjörkum
með nafni sama manns. Bæði úrklippan úr DV og íjarkarnir fjórir
þurfa að vera með nafni, heimilisfangi og símanúmeri þess sem sendir.
Daglega verður dregin út helgarferð með Flugleiðum til London eða
Glasgow, alls ellefu ferðir.
Glæsilegir ferðavinningar
Þeir sem verða svo heppnir að fá sinn fjarka dreginn úr Pottinum
hljóta að launum helgarferð með Flugleiðum til London eða Glasgow
að eigin vah. Alls verða það því ellefu heppnir þátttakendur sem hljóta
slíka ferð í þessum leik.
Að loknum umferðunum ellefu veröur dregin út bónusferð til New
York með Flugleiðum.
Bónusferð til New York
Þegar dregið hefur verið úr Fjörkunum er úrklippumyndinni haldið
til haga og að loknum umferðunum ellefu verður dregið sérstaklega
úr þessum innsendu seðlum og sá heppni hlýtur að launum helgar-
ferð með Flugleiðum til New York.
Dregið í beinni útsendingu á Bylgjunni
Nöfn þeirra heppnu verða dregin út daglega í beinni útsendingu á
Bylgjunni og síðan birt næsta dag í DV.
Til að allir eigi jafna möguleika á þátttöku verður vikufrestur til
að senda íjarkana og úrklippuna hingaö til DV þannig að dregið verð-
ur úr seðlum og fjörkum frá mánudeginum 12. september í beinni
útsendingu á Bylgjunni mánudaginn 19. september og nafn þess
heppna birtist síðan í DV daginn eftir.
Margfaldur möguleiki
Þeir sem taka þátt í þessum ólympíuleik í samvinnu DV, Fjarkans
og Bylgjunrtar eiga margfalda möguleika á því að komast í helgarferð
með Flugleiðum til London eða Glasgow því að ef þeir taka þátt í öll-
um umferðunum ellefu eiga þeir alls 44 möguleika á því að þeirra
nafn verði dregið úr pottinum. Til viðbótar er svo jafn möguleiki allra
til að hljóta bónusvinninginn, helgarferð til New York með Flugleiðum.
Fyrsta umferð á mánudaginn
Við hefjum leikinn á mánudaginn og þá birtist mynd af fyrsta hand-
boltamanninum eða stórmeistaranum og þá er bara aö safna fjórum
fjörkum með nafni sama íþróttamanns og senda hingaö til DV innan
viku.
Fréttir
Nýstárleg mnheimta:
Birtir nöfn
skuldaranna í
búðargluggum
Gunnar Jón Ingólfsson kaupmaður
hefur tekið upp þá nýjung í inn-
heimtu að hengja upp spjöld með
nöfnum þeirra sem skulda honum.
Hanga þessar tilkynningar uppi í
gluggum verslana kaupmannsins
þannig að nöfn hinna skuldseigu
blasa við vegfarendum.
í glugga verslunarinnar að Berg-
staðastræti 48 hafa verið hmdir upp
miðar með nöfnum skuldunauta
kaupmannsins. Á miðunum má
einnig sjá hversu mikið hver ein-
stakhngur skuldar. Á útihurð Kjöt-
búðar Vesturbæjar við Bræðraborg-
arstíg hangir einnig skjal með nöfn-
um skuldseigra viðskiptavina. Þessi
aðferð var greinilega farin að bera
árangur þegar DV-menn heimsóttu
verslunina í gær því þá hafði verið
strikað yfir efsta nafnið.
„Það var í fyrradag sem ég ákvaö
að grípa til þessa ráðs,“ sagði Gunnar
Ingi Ingólfsson kaupmaður er DV
ræddi við hann. „Þessar skuldir eru
aht upp í sex mánaða gamlar. Ég var
búinn að reyna að tala við þetta fólk.
Það hafði lofað bót og betrun en sveik
aht jafnóðum. Þetta var þráutalend-
ing en er þegar farið aö bera árang-
ur.“
-JSS
Allmargir vegfarendur stöldruðu við
og kíktu á „svarta listann" sem kom-
ið hafði verið fyrir í glugga verslun-
arinnar að Bergstaðastræti 48. Þar
gaf að líta nöfn skuldaranna og upp-
hæðirnar sem þeir skulduðu versl-
uninni.
Á neðri myndinni er Gunnar Jón
ingólfsson kaupmaður við „svarta
listann" sem hengdur hefur verið
upp á hurð Kjötbúðar Vesturbæjar.
DV-myndir GVA
Almennt lítiö hlustaö á útvarp samkvæmt nýrri Skáískönmm:
Bylgjan hefur alls
staðar meiri hlust-
un en Stjaman
- dagblööin mun útbreiddari miöill
Fyrirtækið Skáís hefur nýlega sent
frá sér nýja könnun á útvarpshlust-
un þar sem mæld er hlustun mið-
vikudaginn 31. ágúst. Er könnunin
gerð fyrir útvarpsstöðina Bylgjuna.
Þaö sem einkum vekur athygh er að
hátt í helmingur landsmanna hefur
ekki kveikt á útvarpinu. Eru það
svipaðar niðurstöður og komu fram
í svipaðri könnun sem gerð var fyrir
Ríkisútvarpið tæpri viku áður.
Könnunin var unnin þannig að
hringt var í úrtak símanúmera sem
unnið var eftir símaskránni. Hringt
var bæði í heimasíma og vinnusíma
og spurt hvort opið væri fyrir útvarp-
ið. Væri svarið jákvætt var spurt um
á hvaða stöð verið væri að hlusta.
Spurt var um útvarpshlustun á
þremur mismunandi tímabhum, frá
hálftíu th hálfehefu, hálfeitt til
hálftvö og hálfsex th hálfsjö.
Á fyrsta tímabih, voru 52,7% ekki
með opið fyrir útvarp á Reykjavíkur-
svæðinu en 47,7% á landinu í hehd.
Flestir hlusta á Bylgjuna á Reykja-
víkursvæðinu eða 19,0% á meðan
12,5% hlusta á Stjömuna. Ríkisrás-
imar ná th tæplega 8%. Rás 2 er vin-
sælust á landinu öllu á þessu tíma-
bih ef marka má könnunina. Á hana
hlusta 18,2% landsmanna. Bylgjan
er í öðm sæti með 13,8% og Stjaman
og rás 1 era jafnar með 10,1%.
í hádeginu eru 44,3% íbúa á
Reykjavíkursvæðinu með lokað fyrir
útvarpið. Á rás 1, sem meðal annars
útvarpar fréttum á þessum tíma,
hlusta 18,3% en 9,3% á rás 2. Hlustun
á Bylgjuna og Stjömuna er svipuö,
15% á Bylgjuna en 13% á Stjömuna.
Fleiri landsbyggðarmenn hlusta á
útvarp í hádeginu, samkvæmt könn-
uninni, því hlutfall þeirra sém hafa
lokaö fyrir útvarp lækkar í 38%. Á
rás 1 hlusta 22,7% landsmanna en
18,1% á rás 2. Bylgjan og Stjarnan
era á svipuðu róh, 11,2% og 10,1%.
Á síðasta hlustunartímabilinu, sem
mælt var, er útvarpshlustun komin
í lágmark. Vel yfir helmingur íbúa á
Reykjavíkursvæðinu, 56,5%, hafa
slökkt á útvarpinu. Flestir hlusta þá
á Bylgjuna, 14,2%, næstflestir á dæg-
urmálaþátt rásar 2 eða 11,9%. Á
Stjömuna hlusta 9,9% en 7,1% á rás
1. Svipaðar tölur er að sjá á landinu
öllu en 53,8% landsmanna hafa ekki
áhuga á að hlusta á útvarp. Flestir
hlusta á rás 2 eða 16,4%. Bylgjan er
í öðru sæti með 11,7% en Stjarnan
og rás 1 eru á svipuðu róh, Stjarnan
með 8,8% en rás 1 með 8,1%.
Dagblöðin ná til
fleiri landsmanna
Það sem vekur einna mesta athygli
í þessari nýjustu könnun Skáís er
hve fáir hlusta í raun og veru á
hverja útvarpsstöð og útvarp yfir-
höfuð. Hátt í helmingur landsmanna
virðist hafa slökkt fyrir útvarpið á
daginn, nema í hádeginu en þá hlusta
tæplega 2 af hveijum 3. Hlutfall
þeirra sem hafa slökkt á Reykjavík-
ursvæðinu er ennþá hærra eða rúm-
lega 50% á daginn en 44,3% í hádeg-
inu. Enginn stöð nær th meira en
20% landsmanna, fyrir utan ríkisút-
varpið í hádeginu en þá hlusta 22,7%
á rás 1, en reyndar hlusta 18,1%
landsmanna á rás 2 á sama tíma og
geta verður þess að rásirnar era
samtengdar hluta af þeim tíma sem
mældurvar.
Ef hins vegar er lrtið til könnunar
sem Félagsvísindastofnun Háskól-
ans gerði fyrir ári kemur í ljós að
dagblöðin hafa mun meiri út-
breiðslu. Daglega eða oft sjá 75%
landsmanna Morgunblaðið, DV fylg-
ir fast á eftir með 67%. Þessir tveir
miðlar ná því til næstum því fjórfalt
fleiri en sú útvarpsstöð sem hefur
hæstu meðalhlustun um land allt, en
það er rás 2 með 17,6% meðalhlusfun
yfir þessi þijú tímabil sem mæld
voru. Tíminn nær th 19% lands-
manna og Þjóðviljinn til 20% og því
ná bæði þessi blöð til fleiri aðha en
sú útvarpsstöð sem mest er hlustað
á. -JFJ