Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Qupperneq 26
42 FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988. Jarðarfarir Guðjón E. Guðmundsson frá Þór- oddsstöðum, áður til heimilis í HjaUalandi 14, verður jarðsunginn frá HaUgrímskirkju fóstudaginn 16. september kl. 13.30. 'Útfór Guðmundar Einarssonar, Eyjaholti 13, Garði, verður gerð frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 10. september kl. 14. útför Daníelu Jónsdóttur frá Krók- túni, Dvalarheimilinu Lundi, Hellu, sem lést í Landakotsspítalanum 30. ágúst, fer fram frá Stórólfshvols- kirkju laugardaginn 10. september kl. 14. Sigurður Þórðarson bóndi, Tanna- stöðum, verður jarðsunginn frá Kot- strandarkirkju laugardaginn 10. september kl. 14. .Sigurður Sigursteinsson bifreiða- stjóri frá Akureyri, til heimilis á Vallarbraut 5, Seltjarnarnesi, er lést 31. ágúst, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 9. sept- ember kl. 15. Alda Rafnsdóttir lést 3. september sl. Hún var fædd 26. júlí 1963, dóttir hjónanna Karenar Gestsdóttur og Rafns Vigfússonar. Alda starfaði síð- astliðin tvö ár sem deildarritari á Landspítalanum í Reykjavík. Hún lætur eftir sig ungan son. Útíor henn- ar verður gerö frá Langholtskirkju í dag kl. 15. Ingibjörg Georgsdóttir er látin. Hún fæddist 5. febrúar 1917 í Ytri-Njarð- ♦ vík og ólst þar upp. Hún var dóttir hjónanna Guðrúnar Magnúsdóttur og Georgs Péturssonar. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Þorvaidur Valdimarsson-. Útfór Ingibjargar verður gerð frá Fella- og Hólakirkju í dag kl. 13.30. Andlát Sverrir Sverrisson rennismiðtir, Kóngsbakka 5, Reykjavík lést af slys- fórum 7. þessa mánaðar. Guðrún Guðmundsdóttir, Stóragerði 36, lést Á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 8. september. Tilkynningar Ólafi Noregskonungi færð bókin Húðir Svignaskarðs Bókaútgáfan Reykholt hf. hefur fært Ól- afi V. Noregskonungi að gjöf bókina Húð- ir Svignaskarðs eftir Indriða G. Þor- steinsson. Bókin kemur út á næstu dög- um en vegna hinnar opinberu heimsókn- ar konungs var eitt eintak hennar sérinn- bundið og fært honum að gjöf. Húðir Svignaskarðs er leikrit og fjallar um Snorra Sturluson, ritstörf hans og verald- arvafstur, andstæðurnar milh' þess að skrifa og verða að taka þátt í stjórn- málum dagsins, baráttu um völd og fyrir sjálfstæði landsins gagnvart erlendum \Tirráöum. Inn í þennan söguþráð er fléttað frægum atriðum úr Heimskringlu, sögum Noregskonunga. Bókin er mynd- skreytt af Einari Hákonarsyni myndlist- armanni. Vetrarstarf Samstillingar Mánudaginn 12. september hefst vetrar- starf Samstillingar. Samstilling er söng- og skemmtifélag sem hittist á mánudags- kvöldum allan veturinn og tekur lagið. Auk þess er staðið fyrir skemmtunum og farið í ferðalög af og til. Þátttaka er öllum opin og er áhugasömum bent á að mæta í Risið á Hverfisgötu 105 kl. 20.30 á mánudag. Þeir sem vilja geta fengið nán- ari upplýsingar í síma 688016. Rit um börn með downs synd- rom Rit það sem hér er lítillega sagt frá kom nýverið út á vegum Landssamtakanna Þroskaþjálpar og Öryrkjabandalags ís- lands. Sambærilegt efni var upphaflega gefið út í Noregi og birtist hér í þýðingu Guðnýjar Bjamadóttur læknis, sem einn- ig skrifar formála, en sjálf á hún barn með downs syndrom. Þá leggja aðrir ís- lendingar orð í belg. í ritinu er einnig fjallað um hvað down syndrom er og hveijar séu orsakir þessa ástands. Sagt er frá því hvemig þannig bam þroskast og hagnýtar ráðleggingar gefnar, s.s. um fasðu og umönmm, mál og tal og hreyfmg- ar og leiki. Þá er að finna í þessu hefti upplýsingar um hvert hægt er að snúa sér við þessar kringumstæður. Þó efni þess sé miðað við börn með downs synd- rom leikur enginn vafi á að það kemur foreldrum annarra fatlaðra bama, sem og öðrúm áhugasömum, einnig að gagni. Ritið, sem er 20 síður í stóm broti, verður til sölu í bókaverslunum og á skrifstofum Þroskaþjálpar og Öryrkjabandalagsins og kostar þar 500 krónur. Tombóla Nýlega héldu þær Herdis Elisabet Krist- til styrktar Eþíópíusöfnuninni. Alls söfn- - insdóttirogEmaKristjánsdóttir tombólu uðu þær 2.241 krónum. Merming Fjórtán tónleikar voru haldnir á vegum Listahátíðar. Hér stjórnar Pólverjinn Penderecki Sálumessu sinni. Línudans og rýmisdans - um sýningu Messíönu Tómasdóttur í FÍM-sal Leikmyndateiknarar gera alltof lítið að því að viðra verk sín og hugmyndir utan sviðsins. Margir þeirra eru hrein og klár konseft- séní og ljóðræn taug sjaldnast langt undan. Messíana Tómasdóttir vílar t.a.m. ekki fyrir sér að yrkja ljóð og semja tónhst til að fylgja rýmis- verkasýningu sinni úr hlaði. Það er aUtaf gaman að slíkum uppá- komum. Þær segja mikið um lista- manninn sjálfan, burtséð frá því hvort verkin skoðist eftir á í öðru ljósi. Raunar þótti undirrituðum næsta fátt skýrast í frumlitadansi Ásu Bjarkar. Rýmisverkin þijú virkuðu máttlítil og það var eins og þau skorti tengsl við gerninginn, þrátt fyrir tileinkanir í ljóðasöngn- um. í dansinum afjúpuðust þannig stærstu gallar og kostir rýmisverk- anna á sama hátt og galdur leik- myndar lýkst upp þegar leikari gengur inn í hana. „Skáldið“ er e.t.v. snjallasta hugmyndin á sýn- ingunni. Stiginn upp í hæðir and- legheitanna leitast við að vængjast í efsta þrepi. En þar er líka þrí- hymdur spegiU, ugglaust annað tveggja, hrökkbrauð handa hinum ljóðhrædda eða stökkpallur í skáld- legt algleymi. Fundnir hlutir eins og ryðgaði ofninn í „Móðurinni" hafa ekki tilætluð áhrif nema í réttu umhverfi. Súrreahska klisjan um regnhlífina og saumavéhna, sem áttu stefnumót á skurðar- borði, getur komið að notum í til- vikum eins og þessu. Salarkynni FÍM við Garðastrætið vinna ein- Myndlist Ólafur Engilberts faldlega ekki nógu vel með þessum tilteknu rýmisverkum. í hugtakinu „rýmisverk“ felst að verkið er órjúfanlegur hluti af ákveðnu rými, enda eru slík verk oft unnin á svipaðan hátt og leikmyndir. Staðurinn, rýmið, landið, er upp- hafs- og lokapunktur verksins. Þannig tengist rýmishstin og einn- ig leikmyndagerðin hinni fornu landmögnunarlist, geómansíunni, sem er álitin hafa verið trúspeki- legur þáttur í landnámi víkinga. Að öllum líkindum hafa rýmisverk Messíönu plumað sig mun betur á þeim stað þar sem þau voru unnin. Þetta kemur inn á þá hugmynd að hstamenn hafi einfaldlega „opið hús“ á vinnustofum sínum svo sem einu sinni á ári. Slíkt fyrirkomulag er fastur hður í hstahátíðum borga eins og San Francisco og Chicago og hefur gefist vel. Annar handleggur á sýningu Messíönu er röð eins konar khppi- mynda. Þetta erp þó ekki cohage- myndir á la Max Ernst heldur sam- khpp úr akrýlhtuðum pappír. Und- irritaður verður að viðurkenna að hann sá fátt finna drátta í þessu samklippi. Myndirnar á efri hæð- inni standa þó ágætlega fyrir sínu og vinna þar vel meö rýmisverkun- um, sérstaklega þó „Bláu stúlk- „Skáldió", eitt af rýmisverkum Messíönu Tómasdóttur. DV-mynd S unni“. í neðri sal þóttu mér „Turn- inn á heimsenda" og „Mars“ bera af. Hvorug þeirra mynda þarf að afsaka sig fyrir klippinguna, en það sama gildir hins vegar ekki um aðrar myndir í neðri sal. Samkhpp er aðferð sem virkar oftar en ekki eins og ódýr lausn. Þar þarf agaðan línudans ef verkið á ekki að verða „ljótleikanum" að bráð. í kynningu á sýningunni getur Messíana þess að hún vilji með þessari sýningu taka afstöðu gegn forfrömun ljót- leikans í samtíðinni. Þetta eru stór orð en faha fyrir ofan garð og neð- an þar sem listamaðurinn gerir enga tilraun til þess aö útskýra nánar í hverju þessi „ljótleiki“ sé fólginn. Katalónski málarinn og skúlptúristinn Antoni Tápies hefur einmitt látið sig „ljótleikann" miklu varða. Stefnu sína í málara- hstinni kallar hann þannig „ljóta málverkið". Kannski ljótleikinn sé bara annað orð yfir húmor, hver veit? Ólafur Engilbertsson Skýrsla um listahátíð 1988: Næst þarf lengri undirbúning „Listahátíð verður ekki til fram- búðar haldin með reisn ef hún á að vera e.k. „happening" sem hróflað er saman á fáeinum mánuðum. Ef vel á að vera þarf að vinna stöðugt að málefnum hennar,“ sagði fráfar- andi formaður framkvæmdastjórnar Listahátíðar 1988, Jón Þórarinsson. Hann sagði einnig aö september, þeg- ar menn kæmu hstþyrstir úr sumar- leyfum, kynni að vera heppilegri tími fyrir hátíðina en vorið. Fjölsóttasta atriði hátíðarinnar var Chagah-sýningin í Listasafni íslands. Hana sáu á tólfta þúsund manns. Á dagskrá hátíðarinnar bar mest á tón- leikum af öllu tagi. Sögulegust var heimsókn pólska tónskáldsins Pend- ereckis sem hafði með sér heha sinfó' níuhljómsveit frá heimalandi sínu, vinsælastir urðu tónleikar Ash- kenazys, Grappelhs og Leonard Co- hens, sem og sýningar Black Ballet Jazz, en mesta tapið varð á popptón- leikum bresku hljómsveitarinnar The Christians í Laugardalshöh. Nokkurt hehdartap verður á hátíð- inni en ekki er það talið keyra úr hófl og jákvætt er að skrifstofukostn- aður var meö minnsta móti. Hafa borgarstjóri og menntamálaráðherra lýst yflr ánægju með efnisval og alla framkvæmd Listahátíðar 1988. -ihh Islensk list í Lyngby - óvenju vandaöar sýningar opnaðar þessa helgi Það er ekki oft sem haldnar eru tvær sýningar samtímis á íslenskri hst í Danmörku. En það gerist þessa helgi í Lyngby, fjölmennri útborg í norðuijaðri Kaupmannahafnar. Önnur þeirra, verk Sveins Bjöms- sonar málara, er í sal við aðalgötuna, Lyngby Hovedgade 26. Hin er á ný- lega endurbyggðu höfðingjasetri, Sophienholm. Þar sýna tíu myndhst- armenn: Jón Axel Bjömsson, Helgi Þorghs Friðjónsson, Helgi Gíslason, Páll' Guðmundsson, Georg Guðni, Hulda Hákon, Magnús Kjartansson, Þorlákur Kristinsson, Grétar Reyn- isson og Jóhanna Kristín Yngvadótt- ir. Er þetta jafnframt septembersýn- ing þeirra Lyngbæinga. I vandaðri skrá fyrir sýningarnar báðar eru myndir af öllum hsta- mönnunum og verkum þeirra. Auk þess er í skránni ljóð eftir Einar Má Guðmundsson og hugleiðing eftir Guðberg Bergsson, hvort tveggja í þýðingu Eriks Skyum-Nielsens. Guðbergur segir m.a. að það hljóti að vera gleöilegt fyrir Dani að ís- lenska þjóðin, sem fyrrum var svo ósjálfstæð gagnvart þeim, „nu kan staa paa egne ben i kunsten, selv om nationen (þ.e.íslendingar) stadig er umaadehg raadvild i ökonomiske og sociale forhold, forfærdehg slatten i sine pohtiske ben og umuhg i filosofi- en.“ -ihh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.