Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988.
Utlönd
Loftárás
á Líbanon
ísraelskar herþotur gerðu í gær
árásir á stöðvar líbanskra þjóðvarð-
liða nálægt Sídon í Líbanon meö
þeim aíleiðingum að að minnsta
kosti fimm manns biðu bana og þrett-
án særðust. Flugskeytunum var ætl-
að að granda stöðvum þjóðvarðliö-
anna en þau lentu einnig á svæði þar
sem almenn byggð er. Meðal þeirra
sem særðust voru þrjú börn og fimm
þjóðvarðliðar. Björgunarmönnum
tókst að ná aö minnsta kosti fjórum
þjóðvarðliðum undan rústum
tveggja hæða byggingar.
Árásin í gær var sú fyrsta á þessu
ári gegn líbönskum þjóðvarðliðum.
Venjulega eru það palestínskir
skæruliðar sem verða fyrir árásum
á þessu svæði en það sem af er árinu
eru loftárásirnar orönar tuttugu og
fimm. Að minnsta kosti áttatíu og sjö
manns hafa látið lífið í þeim.
Sex manns týndu lífi og sjö særð-
ust á þriðjudaginn þegar ísraels-
menn gerðu loftárásir á palestínsk
skotmörk fyrir utan flóttamanna-
búðir nálægt Sídon. Þjóðvarðliðar
ráða yfir Sídon en palestínskir
skæruliðar yfir flóttamannabúðun-
um og öðrum stöðvum suðaustan við
borgina.
Reuter
Fimm manns biðu bana og þrettán særðust i loftárásum ísraelsmanna á
Líbanon í gær. Símamynd Reuter
Christina kvödd
Símamynd Reuter
- í Aþenu í gær
Þrír biskupar og hópur presta
sungu yfir líki Christinu Onassis í
Aþenu í gær. Nokkur hundruð
skipaeigendur, stjórnmálamenn og
viðskiptamenn þjöppuðu sér sam-
an í kirkjunni til að vera viðstaddir
útfor einnar ríkustu konu heims
og fimm þúsund Aþenubúar, flestir
konur, létu hellirigningu ekkert á
sig fá og stráðu blómum á tólf þús-
und dollara kistuna er hún var
borin hjá. Á kistunni var kross úr
bleikum rósum, hinsta kveðja
þriggja ára dóttur Christinu.
Argentínumaðurinn, sem sögur
herma að hefði innan skamms orð-
ið fimmti eiginmaður Christinu,
heföi hún ekki látist snögglega fyr-
ir viku.'var viöstaddur ásamt syst-
ur sinni, vinkonu Christinu. Fjórði
eiginmaður Christinu kvaddi hana
í gær og felldi tár. Fyrstu þrír eigin-
mennirnir létu ekki sjá sig.
Þotufólkið, sem faðir Christinu,
Aristoteles skipakóngur, var vanur
að umgangast, lét sig einnig vanta
og sömuleiðis Jacqueline Kennedy,
stjúpmóðir hennar og ekkja Johns
F. Kennedy Bandaríkjaforseta.
Sambandið milli Christinu og
Jacqueline var heldur aldrei sagt
hafa verið gott.
Christina Onassis erfði auðæfi
föður síns árið 1975. Hún lést í
Buenos Aires í Argentínu fyrir
viku, 37 ára gömul. Dánarorsökin
var sögð vera lungnakvilli sem
gæti hafa orsakast af hjartaáfalli.
Christina verður jarðsett í dag
við hlið fóður síns og bróður á
eynni Skorpios.
Reuter
Marina Dodero, argentínsk vin-
kona Christinu Onassis, og Jorge,
bróðir hennar, voru viðstödd útför
Christinu i gær. Sagt er að Jorge
hafi verið í þann veginn að verða
fimmti eiginmaður Christinu.
Simamynd Reuter
CASIO - AKAI-CASIO - AKAI -CASIO - AKAI -CASIO
m ui innc/cc > Al/VKIMIKI/^ >
f MLJUUr/th [AKYNNINU s
0
Ö)
<
u
I
<
*
<
1
0
ö)
<
u
verður haldín laugardagínn
26. nóvember 1988
frá kl. 10-16
AKAI
professioml
®
KUDOS - KUKZWEIL
i
►
>
i
n
>
u)
□
i
►
>
-búðin, Síðumúla 20, sími 31412
CASIO - AKAI - CASIQ - AKAI -CASIO - AKAI -CASIÖ