Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Blaðsíða 56
FRETT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988.
Lögreglan í Olafsvik:
Hljóp uppi
mótorhjól
.^_.Lögregluþjónn í Ólafsvík hljóp
uppi mótorhjól eftir að réttindalaus
ökumaður reyndi að flýja lögregl-
una. Lögreglan varð fyrst var við
ferðir mótorhjólsins skammt utan
við Ólafsvík. Myrkur var og hjóliö
ljóslaust. Á því var ökumaður og far-
þegi - hvorugur með hjálm.
Þegar lögreglan hóf eftirförina var
hjólinu ekið til Ólafsvíkur. Eltinga-
leikurinn barst um götur kaupstað-
arins og virti ökumaður mótorhjóls-
ins ekki neinar umferðarreglur.
Hann hugðist stinga lögregluna af
og ók út í móa. Einn lögregluþjón-
anna hljóp á eftir mótorhjólinu. Þar
sem myrkur var sóttist ökuþórnum
ferðin illa. Lögregluþjónninn náði
honum eftir stutt hlaup. Handjárn
""vóru sett á ökumanninn og hann
færður á lögreglustöð.
Hann reyndist vera réttindalaus og
hjólið var óskráð og ljóslaust.
-sme
Ólympíuskákmótið
Jón L. og
Margeir unnu
»».<Jón L. Árnason og Margeir Péturs-
son unnu skákir sínar gegn Kólumb-
íumönnum í 11. umferð ólympíu-
mótsins í gær. Hel'gi Ólafsson tapaði
en skák Jóhanns Hjartarsonar og
Zapata á 1. borði fór í bið og er stað-
an tvísýn.
Sovétmenn gerðu jafnteíli við Holl-
and og eru enn sem fyrr efstir, eru
með 31 vinning. íslendingar eru með
25 vinninga og biðskák.
-SMJ
Hnífstungumálið:
Varáreynslulausn
Maöurinn, sem var handtekinn
-—fyrir að hafa stungið konu um fimm-
tugt í kviöinn með hnífi á heimili
hennar í Reykjavík, hefur við yfir-
heyrslur játað á Sig verknaðinn.
Maðurinn er nú í fangelsi þar sem
hann lýkur varðhaldsdómi sem hann
átti óafplánaðan. Honum hafði verið
sleppt úr varðhaldi til reynslu.
-sme
Bílstjórarnir
aðstoða
^senDiBiLHSTöÐin
1440 flöskur af vodka og viskíi tilbunar til afgreiðsiu i birgðageymslu Áfeng-
is- og tóbaksverslunar ríkisins. Verð til almennings: rúmar tvær milljónir
króna. Verð til handhafa forsetavalds og annarra er <á áfengi á vildarkjör-
um: 230 þúsund. Ólafur Runólfsson, starfsmaður ÁTVR, er ábúðarfullur á
svip enda vaktar hann þarna 18 þúsund tvöfalda - ársdrykkju um 100 ís-
lenskra meðaljóna.
DV-mynd GVA
Áfengi á sérkjörum varö dýrkeypt:
Magnús segir
af sér sem
forseti
Hæstaréttar
- veröur áfram hæstaréttardómari
„Ég óskaði eftir því að láta af emb-
ætti forseta Hæstaréttar vegna
þeirraumræðna sem hafa orðiö um
mig og ekki síst Hæstarétt í tengslum
við áfengiskaup mín. Ég vil skapa
frið um Hæstarétt. Hæstiréttur féllst
á þessa beiðni mína á fundi hæsta-
réttardómara siðdegis í gær,“ sagði
Magnús. Thoroddsen við DV í gær.
Magnús mun halda áfram sem
dómari í Hæstarétti en Guðmundur
Jónsson, varaforseti Hæstaréttar,
mun taka við sem forseti Hæstarétt-
ar og handhafi forsetavalds fram að
áramótum. Frá áramótum er Guð-
mundur Jónsson forseti Hæstaréttar
en kosið er í það embætti til tveggja
ára í senn.
Magnús Thoroddsen hefur verið í
brennidepli síðustu daga þar sem
hann keypti alls 1440 flöskur af
áfengi meðan hann var einn af hand-
höfum forsetavalds í ár. Ríkisendur-
skoðun gerði athugasemd við þessi
áfengiskaup Magnúsar og haföi sam-
band við Guðrúnu Helgadóttur, for-
seta sameinaðs þings, vegna málsins.
Alvarlegasta mál
Ríkisstjórnin fjallaði um þetta mál
á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun og
að sögn Stéingríms Hermannssonar
voru menn sammála um að þetta
væri hið alvarlegasta mál.
„Það er áríðandi að farið verði hár-
rétt með máliö þar sem ekki er ljóst
hvað löggjafinn ætlast til í tilfelli sem
þessu. Á fundinum var ákveðið að
dómsmálaráðherra færi meö þetta
mál.“
Seinnipartinn í gær átti Magnús
viöræðufund við Halldór Ásgríms-
son dómsmálaráðherra. Á þeim
fundi fór dómsmálaráöherra fram á
að Magnús skilaði greinargerð um
áfengiskaup sín sem handhafi for-
setavalds. Dómsmálaráðherra hefur
auk þess falið þremur lögfræðingum
að rannsaka málið.
Skynsamleg ákvörðun
„Þetta var ákvörðun Magnúsar
sjálfs og ég tjái mig ekki frekar um
málið fyrr en greinargerð frá honum
liggur fyrir,“ sagöi Halldór Ásgríms-
son dómsmálaráðherra eftir afsögn
Magnúsar.
- Þrýsti ríkisstjórnin á Magnús að
segja af sér?
„Ég tjái mig ekkert um það.
Mér finnst þetta skynsamleg
ákvörðun hjá Magnúsi að segja af sér
sem forseti Hæstaréttar. Það hefur
fallið stór blettur á þetta embætti.
Ég vil þó taka fram að Magnús er,
að því leyti sem ég þekki til hans,
traustur maður og þó honum hafi
oröið á þá gerði hann rétt í að segja
af sér,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra.
„Menn verða nú að huga að því
hvort misnotkun á réttindum á sér
stað í kerfinu og skoða þessi mál í
heild sinni.“
DV hefur reynt að fá upplýsingar
um umfang áfengiskaupa á sérkjör-
um en Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, segist ekki láta upplýsingar
um einstaka viðskiptavini í té.
Ólafur Ragnar Grímsson Ijármála-
ráðherra hefur fyrirskipað rannsókn
á áfengiskaupum með sérkjörum 9
ár aftur í tímann.
-hlh
Áfengiskaupin:
Rannsökuð
9 ár aftur í
LOKI
Jafnvel ódýrt áfengi getur
verið dýrkeypt!
Veðrið á
sunnudag
og
mánudag
Á sunnudag og mánudag er gert
ráö fyrir hægri suðaustanátt og
hlýju veðri. Súld verður við suð-
urströndina en annars þurrt.
tímann
„Þaö liggja ekki fyrir heildartölur
um umfang áfengiskaupa á sérkjör-
um en ég hef beðið um að þessi við-
skipti verði rannsökuð 8-9 ár aftur í
tímann," sagði Ólafur Ragnar
Grímsson íjármálaráðherra við DV
þegar blaðið reyndi að fá upplýsingar
um hve mikiö af áfengi heíði verið
selt á sérkjörum frá ÁTVR.
Niðurstöður þessarar rannsóknar
eru væntanlegar bráðlega.
Magnús Thoroddsen sagði viö DV
að ekkert væri við slíka rannsókn
að athuga og hún myndi leiða í ljós
aö áfengiskaup eins og hans hefðu
viðgengist síðan forsetaembættið var
stofnaö, þetta væri áratugagömul
hefð.
-hlh