Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Blaðsíða 16
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988.
16
Persónuleikapróf
Ert þú of feiminn
eða óþolandi
sjálfsánægður?
Sumir hafa svo miklar áhyggjur af
sjálfum sér að fátt annað kemst áð.
Stundum birtast áhyggjur manna af
sjálfum sér í fullkominni smámuna-
semi í klæðaburði eða í mikilli feimni
og vandræðagangi í umgengni viö
ókunnuga. Aðrir láta sér á sama
standa um eigin vandamál og eru
kæruleysið uppmálað í allri fram-
komu.
í eftirfarandi prófi eru settar fram
23 fullyrðingar sem gætu leitt í ljós
hve miklar áhyggjur þú hefur af
sjálfum eða sjálfri þér. Þetta próf
gæti því hjálpað þér til að átta þig
svolítið betur á eigin takmörkunum
eða kostum.
Fimm svör eru möguleg viö hverri
fullyrðingu og þú gefur þér stig í
samræmi við hvaða svar þú velur. í
svörunum kemur fram hversu vel
fullyrðingarnar eiga við þig. Svörin
eru þessi:
0 = Á ekki við um mig.
1 = Á sjaldan við um mig.
2 = Á stundum við um mig.
3 = Á oft við um mig.
4 = Á alltaf viö um mig.
Á eftir hverri fyllyrðingu fylgir
reitur þar sem þú skráir stigin. Ef
þú velur svar sem jafngildir núhi
gefur þú þér ekkert sig. Ef svariö
jafngildir einum gefur þú þér eitt stig
og svo framvegis upp í fjóra. Að lok-
um leggur þú stigin saman og berð
niðurstöðuna saman við greininguna
sem fylgir á eftir.
1. Ég er alltaf að reyna að átta mig á
sjálfum/ri mér.
(■•)
2. Ég hef áhyggjur af hvernig ég ber
mig að við verk þegar aðrir sjá.
(••)
3. Yfirleitt er ég mér mjög vel meðvit-
andi um sjálfa(n) mig.
(--)
4. Ég er lengi að ná tökum á feimni
minni ef ég lendi í nýjum aðstæðum.
(..)
5. Ég hugsa oft um sjálfa(n) mig.
(..)
6. Ég hef áhyggjur af framkomu
minni.
(..)
7. Ég gleymi mér oft í eigin hugarór-
um.
(••)
8. Ég á erfitt með að vinna ef aðrir
horfa á.
(■•)
9. Ég er alltaf að gagnrýna sjálfa(n)
mig.
(..)
10. Það þarf lítiö til að ég verði vand-
ræðaleg(ur).
(•■)
11. Ég hef áhyggjur af útliti mínu.
(..)
12. Ég á erfitt með að tala við ókunn-
uga.
(••)
13. Ég læt oft stjórnast af tilfinning-
um mínum.
(..)
14. Ég óttast oft að framkoma mín
þyki hlægileg.
(..)
15. Ég velti því oft fyrir mér eftir á
af hverju ég gerði eitt eða annað.
(•■)
16. Mér líður illa ef ég þarf að tala
frammi fyrir fjölda fólks.
(..)
17. Ég lít alltaf í spegil áður en ég
yfirgef heimih mitt.
. (••)
18. Mér finnst stundum sem ég sé
einhvers staðar fjarri og fylgist með
sjálfum/ri mér.
(..)
19. Mér er ekki sama hvað öðrum
finnst um mig.
(..)
20. Breytingar á skapi mínu koma
alltaf greinilega fram.
(..)
21. Ég geri mér yfirleitt vel grein fyr-
ir hvernig ég kem fram.
(..)
22. Ég hugsa oft um hvernig ég bregst
við þegar ég mæti vanda.
(••)
23. Fjölmenni gerir mig taugaóstyrk-
a(n).
Niðurstaða
Leggðu saman stigin sem þú hefur
gefið þér. Þú getur fengið flest 92 stig
ef allar fullyrðingamar eiga alltaf við
Veldur framkoma þín þér oft áhyggjum?
um þig. Minnst er hægt að fá ekkert
stig en það er afar ólíklegt að nokkur
nái því marki sem svarað hefur full-
yrðingunum af samviskusemi.
Greining
Ef stig þín eru
63 eða fleiri:
Fáir þú svona mörg stig bendir það
til að þú hugsir mikiö um eigin til-
finningar og gerðir. Þú átt það trú-
lega til að eyða löngum stundum í
að hugsa um af hveiju þú gerðir eitt-
hvað svona en ekki hinsegin. Stund-
um getur þessi sjálfskönnun orðið
sjúkleg. Líklega er svo komið ef þú
færð fullt hús stiga.
Trúlega hefur þú líka miklar og
óþarfar áhyggjur af áliti annarra á
þér. Það kemur illa niður á sjálfs-
traustinu. Þú gerir of mikiö að því
að hugsa um hvað aðrir hugsa um
þig. Þótt sjálfsgagnrýni sé æskileg í
hófi er líklegt að þú gangir einum of
langt.
Ef stig þín eru
53 til 62:
Þaö kemur oft fyrir þig að þú gagn-
rýnir sjálfa(n) þig en þú ert ekki hel-
tekin(n) af áhyggjum af áhti annarra
á þér. Þú vht þekkja eigin tilfinning-
ar en ólíklegt er að þú leggist í sjálfsá-
sakanir þótt þér verði eitthvað á.
Þessi niðurstaða bendir th að sálarlíf
þitt sé í ágætu jafnvægi og að þú virð-
ist hvorki eiga á hættu að lenda í
óþarfa vorkunnsemi né sjálfs-
ánægju.
Ef stig þín eru
52 eða færri:
Þú eyðir ekki miklum tíma í að hugsa
um eigin tilfinningar eða framkomu.
Ókunnugum finnst oft að þú gerir
þér litla grein fyrir eigin takmörkun-
um. Þú lítur út fyrir að vera ánægð-
(ur) með sjálfa(n) þig. Þú ert örugg-
(ur) í hópi ókunnugra og lætur þér
yfirleitt á sama standa um álit ann-
arra.
ERÞAÐ1EÐAXEÐA2
30
A í byrjun vikunnar kom upp eldur í Áskeli ÞH frá Greni-
vík. Báturinn var þá staddur:
1: í Seðlabankanum
X: á Selvogsbanka
2: áDornbanka
B í leik í handboltanum um síðustu helgi voru skoruð 63
mörk.Þaráttustvið:
1: VíkingurogFH
X: AftureldingogSelfoss
2: ValurogKR
Fyrirtæki, sem selur byggingarvörur, not-
ar þetta merki. Það heitir:
1: JLVölundur
X: Timburiðjan
2: Naglarogkrosstré
D Peningaskápur fannst á óvenjulegum stað. Hann var í:
1: vörslufógeta
X: kirkjugarðinumíGufunesi
2: ríkissjóði
Út er komin bók um Bryndísi Schram. Höfundur bókarinn-
arer:
1: JónBaldvin
X: JónÓttar
2: ÓlínaÞorvarðardóttir
F Steingrímur Hermannsson fékk gj öf þegar hann heimsótti
flokksþing Alþýðuflokksins. Gjöfin var:
1: rós
X: fjósaskófla
2: atkvæði
Merki þetta er notað á þekkta bifreiðateg-
und. Húnheitir:
I: Studebaker
X: Peugeot
2: RangeRover
H Málsháttur hljóðar svo: Vogun vinnur.
1: hverjaþraut
X: nemahúntapi
2: voguntapar
r
Sendandi
30
Heimili
Rétt svar: A □ B □ C □ D □
E □ F □ G □ H □
| Héreruáttaspurningarog
I hverriþeirrafylgjaþrírmögu-
' leikar á réttu svari. Þó er aðeins
| eittsvarréttviðhverrispurn-
ingu. Skráið réttar lausnir og
I sendiðokkurþærásvarseðlin-
| um. Skilafrestur er 10 dagar.
Að þeim tíma liðnum drögum
| viðúrréttumlausnumogveit-
■ um þrenn verðlaun, öll frá póst-
I versluninni Primu í Hafnar-
| firði.
Þaueru:
I l.Fjölskylduteppiaðverðmæti
| kr. 5.430,-
2. Fjölskyldutrimmtæki að
[ verðmætikr. 2.750,-
I 3. Skærasetf að verðmæti 1.560,-
' Í'öðruhelgarblaðihéðanífrá
| birtastnöfnhinnaheppnuen
nýj ar spurningar koma í næsta
I helgarblaði.
I MerkiðumslagiðleðaXeða2,
c/oDV, pósthólf 5380,125
| Reykjavík.
, VinningshafarfyrirleðaXeða
' 2ítuttugustuogáttunduget-
| raun reyndust vera: Bjarki
Bragason, Sigluvogi 7,104
I Reykjavík(hitateppi);Kristín
| Gísladóttir, Hlíðarbyggð 40,210,
Garðabær (trimmtæki); Ragn-
| heiðurBrynjólfsdóttir.Sæbraut
I 17,170 Seltjarnames (skæra-
' sett).
j Vinningarnirverðasendir
heim.
I Réttlausnvar:2-l-X-l-l-2-l-X