Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988.
7
Fréttir
Hundruð
farast í
flóðum
Rúmlega tvö hundruð lík hafa nú
fundist í verstu flóðum sem gengið
hafa yfir Thailand í tæp fjörutíu ár.
Um tvö hundruð og fimmtíu þúsund
manns eru sagðir heimilislausir eftir
að hús þeirra sópuðust á brott í flóð-
unum eöa af völdum aurskriða sem
lögðu heil þorp í eyði. Farartæki tók-
ust á loft eins og um leikfóng væri
aö ræða og vegir eru víða ónýtir. Um
tvö hundruð þúsund hektarar af
ræktuðu landi hafa orðið fyrir
skemmdum. Flóðin fylgdu í kjölfar
fimm daga monsúnrigninga sem hóf-
ust í byrjun vikunnar.
Mestu hörmungarnar urðu þar
Bjóða aðstoð
í gíslamáli
írönsk yfirvöld buðust í gær til
þess að aðstoða við frelsun banda-
rískra gisla, sem eru í haldi í Líban-
on, gegn því að bandarísk yfirvöld
hvettu kristna þjóðvarðliða til að láta
lausa þrjá írana sem saknað er. Út-
varpið í Teheran hafði þetta eftir
Rafsanjani þingforseta í gær. íranir
komu fyrst með slíkt boð fyrir tveim-
ur árum.
Þrír íranar hurfu fyrir sex árum í
Líbanon og fullyrða írönsk yfirvöld
að kristnir þjóðvarðliðar hafi rænt
þeim.
Tíu bandarískir gíslar eru meðal
þeirra átján vestrænna manna sem
talið er aö séu í haldi hjá mannræn-
ingjum í Líbanon.
Manfred Wörner, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, í Brussel
i gær. Símamynd Reuter
Hertölur
birtar
Hefðbundinn herafli Varsjár-
bandalagsins í Evrópu er miklu
stærri en Atlantshafsbandalagsins,
að því er áætlað er í skýrslu sem
Atlantshafsbandalagið kynnti i gær.
Framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, Manfred Wörner,
kynnti skýrsluna á fundi með frétta-
mönnum í aðalstöðvum bandalags-
ins í Brussel í gær. í henni er gerður
samanburður á hefðbundnum her-
afla bandalaganna tveggja.
Wörner kvaðst vonast til að Var-
sjárbandalagið fylgdi eftir yfirlýs-
ingu um vilja til að gefa upp tölur
um herafla þess. Skýrslan var afhent
fulltrúum Varsjárbandalagsins í Vín
í gær.
sem aurskriða féll niður hlíðar, þar
sem tré höfðu verið höggvin niður í
leyfisleysi, og niður á tvö þorp.
Hundrað lík hafa verið grafin upp
úr leðjunni og tvö hundruð manns
er saknað.
í gær var enn rafmagns- og vatns-
laust og bönkum, skólum og mörgum
versiunum hafði verið lokað.
Herinn flaug meö hrísgrjón og aðr-
ar nauðsynjar til afskekktra staða
þar sem ófært var með járnbrautum
og um vegi.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 3,5-6 Lb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 4-7 Lb
6mán. uppsögn 4-6 Vb.Ab
12 mán. uppsögn 6-10 Ab
18 mán. uppsögn 15 Ib
Tékkareikningar, alm. 1-1,5 Sb
Sértékkareikningar 2-5 Ab.Lb,- Ib.Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5-2 Bb.Vb,- Sp
6mán. uppsöqn 2-3,75 sP
Innlán með sérkjörum 5-12 Sb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7,75-8 Lb
Sterlingspund 10,75- 11,25 Ub
Vestur-þýsk mörk 3,75-4,25 Ab.Vb,- Sb,
Danskarkrónur 7-8 Vb.Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 15,5-18 Ab
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 15,5-18,5 Ab
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(vfirdr.) 17,5-21 Bb
Utlan verðtryggð
Skuldabréf 8-8,75 Vb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 15-18 Sb.Bb
SDR 9-9,25 Allir nema Bb
Bandaríkjadalir 10,5-10,75 Ub.Sb,- Sp
Sterlingspund 13,50- 13,75 Sb.Sp
Vestur-þýsk mörk 6,5-6,75 Sb.Sp Vb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 27,6 2.3 á mán.
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. nóv. 88 20,5
Verðtr. nóv. 88 8.7
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 2272 stig
Byggingavísitala nóv. 399.2 stig
Byggingavisitalanóv. 124,8 stig
Húsaleiguvisitala Engin hækkun 1. okt. Verðstodvun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,375
Einingabréf 2 1,920
Einingabréf 3 2,196
Fjölþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1,573
Kjarabréf 3.373
Lifeyrisbréf 1.697
Markbréf 1.784
Skyndibréf 1.033
Sjóósbréf 1 1.623
Sjóósbréf 2 1,409
Sjóðsbréf 3 1,157
Tekjubréf 1,570
HLUTABRÉF
Soluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 118 kr.
Eirftskip 346 kr.
Flugleiðir 273 kr.
Hampiðjan 130 kr.
Iðnaðarbankinn 172 kr.
Skagstrendingur hf. 160 kr
Verslunarbankinn 134 kr.
Tollvorugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj, 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
Samgöngur liggja víða niðri í suðurhluta Thailands vegna gífurlegra flóða sem þar urðu í kjölfar monsúnrigninga
undanfarinna daga. Simamynd Reuter
Technics
HLJÓMTÆKJASAMSTÆÐA
MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU
JAPIS8
■ BRAUTARHOLT 2 ■ KRINGLAN ■
■ SÍMI 27133 ■
■ AKUREYRI ■ SKIPAGATA 1 ■
■ SÍMI 96-25611 ■
Technics X 800 er hágæða hljómtækjasamstæða
með ótrúleg hljómgæði, glæsilegt útlit og framúrskar-
andi endingu. Þessi þrjú atriði koma í raun engum á
óvart þegar Technics á í hlut.
Vegna hagstæðra samninga og skilnings framleið-
anda á erfiðu ástandi hér heima getum við boðið
þessa samstæðu á hagstæðara verði en nokkru sinni
fyrr