Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 11
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988. 11 Vilhelm G. léttist um átta kíló við upptökuna „Við völdum venjulegt fólk til að vera með okkur á myndbandinu og tókst að létta það verulega meðan á upptökum stóð. Vilhelm G. Kristins- son fréttamaður hafði t.d. lést um átta kíló á hálfu ári,“ segir Jónína Benediktsdóttir, leikflmikennari og félagi Ágústu Johnsen um rekstur eróbikkstúdíós. Báðar hafa þær líka fengist við þjálfa landann í gegnum íjölmiðla, Jónína um árabil í morg- unleikfimi útvarpsins og Ágústa í sjónvarpsþáttum síðastliðinn vetur. Nú hafa þær lagt saman við gerð myndbands með tveimur leikflmi- þáttum. Jónína neitar ekki að hug- myndin sé fengin frá Jane Fonda sem um árabil hefur veriö helsta fyrir- mynd Amerikumanna í líkamsrækt. Á fyrsta myndbandinu eru tveir þættir. Sá fyrri er fyrir byrjendur sem lítið eða ekkert hafa komið nærri leikfimi. Þar eru allar hreyf- ingar útskýrðar í smáatriðum og far- ið rólega yfir. „Þetta hefur aldrei verið gert áður því yfirleitt eru svona myndbönd framleidd fyrir fólk sem er í góðri þjálfun fyrir,“ segir Jónína. Síðari þátturinn á myndbandinu er hraðari og ætlaður fyrir fólk sem hefur stundað leikfimi. „Þessi þáttur gæti hentað fyrir fólk sem æft hefur samviskusamlega eftir fyrri þættin- um í tvo mánuði eða svo,“ segir Jón- ína. Jónína segir að þessir þættir séu verulega frábrugnir þeim sem sýndir voru í sjónvarpinu í fyrra. „Þar átti að sýna nýjungar í leikfimi til að vekja áhuga á líkamsrækt fremur en að fá fólk til að vera með,“ segir Jón- ína. „Við förum mun hægar yfir og ætlumst til að fólk nýti sér þættina til að æfa eftir.“ Jónína ætlar nú að gera hlé á Hópurinn sem tók þátt í gerð myndbandsins. Vilhelm G. Kristinsson stendur stæltur að baki. kennslu mn tíma og hverfa til náms í fjölmiðlafræðum í Svíþjóð. „Mig langar til að læra gerð fræðsluþátta fyrir böm,“ segir Jónina. „Ég er ekki hætt að vinna með Ágústu þótt eitt- hvert hlé verði á. Það var kominn tími til fyrir mig að breyta til.“ -GK Breiðsíðan íslenskir leikfimiþættir í stíl Jane Fonda: DV-mynd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.