Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Qupperneq 30
46 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988. Kvikmyndir Sjálfstæd kvikmyndagerð Á þessu ári á breska kvikmynda- gerðarfyrirtækið Handmade Films 10 ára afmæli. Þótt hér sé ekki um langt timabil að ræða verður þetta að telj- ast góður árangur því flest ný kvik- myndagerðarfyrirtæki leggja upp laupana innan fárra ára frá stofnun. Ástæðan er sú að þau eru of lítil til að þola skellinn ef einhver mynd þeirra fær lélega aðsókn. Undanfarinn áratug hefur þróunin verið sú að litlu óháðu kvikmynda- gerðarfyrirtækin hafa átt æ erfiðara uppdráttar. Sífellt hækkandi fram- leiðslukostnaður kvikmynda gerir það að verkum að þau leggja oft of mikið undir og mega ekki viö því að myndum þeirra sé hafnað af áhorf- endum. Því virðast stóru kvik- myndaverin, eins og Paramount og Columbia, verða stærri og stærri á kostnað þeirra litlu. Því verður það að teljast afrek þeg- ar lítið kvikmyndagerðarfyrirtæki, eins og Handmadé Films í Bretlandi, getur haldið upp á 10 ára afmæh sitt án þess að hafa orðið fyrir meiri hátt- ar skakkafalli og hafa framleitt á þessu tímabili einar 22 myndir. Ekki sakar það heldur að Handmade Films leggur mikið upp úr því að kvikmyndagerðarmaðurinn fái að halda hstrænu frelsi sínu þannig að mjög sérstakt samband hefur mynd- ast milli Handmade Films og þeirra sem vinna við kvikmyndir þess. Fyrrverandi bítill Þótt undarlegt megi virðast er einn af höfuðpaurum Handmade Films sjálfur bítillinn George Harrison. hann stofnaði þetta kvikmyndagerð- arfyrirtæki ásamt félaga sínum, Den- is O’Brien, sem starfaði sem við- skiptalegur ráðgjafi hjá Harrison. Eins og svo oft áður var hér um að ræða röð tilviljana. Þeir félagar vilja þakka samsteypunni EMI fyrir að hafa neytt þá af stað. Þannig er mál með vexti að Monty Python-hópur- inn var aö undirbúa gerð kvikmynd- arinnar The Life of Brian sem EMI ætlaði að framleiða. þeir félagar höfðu lagt í umtalsverðan kostnaö sjálfir þegar EMI fékk einhvern bak- þanka og aíþakkaði framleiðslurétt- inn. Sem betur fór mundi einn úr hópn- um eftir þvi að hann haföi hitt Harri- son fyrir stuttu í Los Angeles og þar hafði Harrison tjáö honum að hann væri aðdáandi Monty Python. Því var leitað á hans náðir og tók George Harrison að sér að útvega fjármagn sem endaði með því að þeir félagam- ir, Harrison og Denis, fjármögnuðu alla myndina. Þar með var boltinn kominn af stað. Frumlegt nafn Mörgum hefur þótt nafnið Handmade Films frumlegt þegar það birtist fyrst á hvita tjaldinu. Breskur handiönaður kemur fyrst upp í hug- anum en sú hugsun hverfur þegar kemur í ljós að myndir Handmade Films eru ekki síöur atvinnumanns- legar en myndir stóru bandarísku kvikmyndaveranna. En nafnið á sér skemmtilega sögu og má rekja til forláta peysu sem George Harrison átti fyrir tíu árum. Á merkimiðanum, sem festur var aftan á peysukragann, mátti lesa „Hand-Made in Hong Kong“. Þar með var hugmyndin komin. Þeir sem hafa starfað fyrir Handmade Films sýna fyrirtækinu mikla tryggð enda hefur í gegnum árin skapast gott traust milli sam- starfsaðilanna. Monty Python-hóp- urinn hefur gert 3 myndir hjá Handmade Films og leikarinn Mic- hael Palin lék bæði í A Private Func- tion og svo Mission þar sem hann skrifaði einnig handritið. Bob Hoskins Bob Hoskins ér einn þeirra leikara sem vilja launa Handmade Films greiöann. Á sínum tíma átti að láta annan leikara tala inn á erlendu út- Atriði úr Mona Lisa, aö Handmade Films ætti að hafa að leiðarljósi, innan skynsamlegra marka, að þeir sem sæju um listrænu hliðina ættu einnig að sjá um pen- ingalegu hliðina í stað þess að láta fjármálasérfræðingana um það. Þetta hljómar vel á pappír en í reynd var þetta ekki svo auðvelt. Samt sem áður hefur það sýnt sig að Handmade Films er tilbúið að taka áhættu þegar um góðar listrænar myndir er aö ræða. Þessu verður ef til vill best lýst með orðum leikarans Palins sem hefur sagt: „Handmade Films er til- búið að taka áhættu með óþekkt efni sem jafnvel gæti reynst því hættu- legt. Þetta er eitt af fáum fyrirtækj- um í þessari grein sem vill gera eitt- hvað vegna þess að það hefur ekki verið gert áður í stað þess að fylgja eftir Hollywoodlínunni og gera eitt- hvað vegna þess að einhver er búinn að gera sama hlutinn áður með góð- um árangri." Misjafn sauður Sem dæmi um áhættusama mynd má taka Time Bandits sem gerð var 1981. Hér var um að ræða tiltölulega óþekktan leikstjóra með handrit sem fjallaði um ferðalög úr einu tíma- rúmi yfir í annað. Dæmið gekk hins vegar upp og allir fengu eitthvað fyr- ir sinn snúð. Hins vegar má velta fyrir sér hvers vegna Handmade Films gerði hina mislukkuðu mynd Shanghai Sur- prise með þeim hjónakornunum Madonnu og Penn í aðalhlutverkum. Ýmislegt fór úrskeiðis. Meðal annars fór kostnaður nokkuð úr böndunum. Hins vegar slapp Handmade Films með skrekkinn því þeir félagar hafa lært að selja eins mikið fyrirfram og hægt er af sýningarréttinum, jafnvel áður en kvikmyndataka hefst. Því voru þeir búnir að tryggja sig gegn þeim möguleika að myndin yrði mis- lukkuð eins og raunin varð á. Handmade Films hefur ekki alltaf gengið vel eins og með myndirnar Privates on Parade og svo Water með Michael Caine í aðalhlutverki. Framtíðin Það er mikið um að vera þessa dagana hjá Handmade Films. Að undanfómu hafa verið frumsýndar þrjár nýjar myndir. Fyrst má nefna Five Corners með Jodie Foster í aðal- hlutverki. Myndin er byggð á hand- riti óskarsverðlaunahafans Patricks Hér er Bob Hoskins í The Lonely Passion of Judith Hearne. gáfuna af The Long Good Friday þar sem rödd Hoskins þótt of bresk. Handmade Films keypti dreifingar- réttinn og Hoskins fékk að halda röddinni sinni. Hann ákvað síðan að þiggja boð Handmade Films og leika Kvikmyndir Baldur Hjaltason smáglæpamanninn í hinni minnis- stæðu mynd, Mona Lisa, og svo ný- lega einnig í The Lonely Passion of Judith Heame sem Handmade Films framleiddi. Hoskins er einnig nýbú- inn að leikstýra sinni fyrstu mynd fyrir félagið og ber sú heitið The Raggedy Rawney. Þess má geta að hann fer einnig með eitt aðalhlut- verkið. Listrænn tilgangur Þeir George Harrison og Denis O’Brian voru sammála í upphafi um Handmade Films gerði mynd Nicolas Roeg, Track 29. Shanley og einnig er þetta fyrsta myndin frá Handmade Films sem tekin er í Bandaríkjunum. Jack Clay- ton er aftur sestur í leikstjórastólinn og í þetta sinn er hann með The Lone- ly Passion of Judith Hearne. Að lok- um má svo nefna The Raggedy Raw- ney. Lengra fram undan em svo myndir eins og How to Get Ahead in Advert- ising sem er leikstýrð og samin af Brace Robinson sem á sínum tíma leikstýrði Withnail and I fyrir Handmade Films. The Pow-Wow Highway íjallar um tvo indíána sem eru aö ferðast um Bandaríkin í göml- um Buick í leit að réttlæti. Þetta er fyrsta mynd Jonathans Wack sem fær sína eldskím hjá Handmade Films. Það era fleiri spennandi myndir í uppsiglingu þannig að þeir sem hafa gaman af myndum Handmade Films þurfa ekki að örvænta yfir mynda- skorti á næstunni. B.H. Helstu heimildir: Films and Filming Variety

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.