Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 39
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988. 55 Lífsstm Þjófur, þjófur! - ferðamenn eru vinsæl bráö smáglæpamanna í útlöndum Vasaþjófar og aðrir ræningjar eru það sem ferðamaðurinn í ókunnri stórborg óttast mest. Ekki að ástæðu- lausu. Ferðamaðurinn gengur oft með meiri verðmæti á sér en hinn aimenni ,borgari, hann þekkir ekki umhverfi sitt, og er kannski þess vegna ekki eins vel á varðbergi. Hann er kjörið fómarlamb misindis- manna. íslenskir feröamenn era þar engin undantekning. Samkvæmt upplýs- ingum frá utanríkisráöuneytinu verða íslendingar á erlendri grund reglulega fyrir barðinu á ræningjum, mest á sólarströndum. Ráðuneytið hefur þó ekki neinar upplýsingar um flölda þeirra sem verða fyrir þessari óskemmtilegu lífsreynslu. Það helg- ast af því að tilkynning um þjófnað á peningum eða öðrum eigum ferða- mannsins berst ekki hingað til lands nema sendiráð eða ræðismaður er- lendis þurfi að veita viðkomandi fjár- hagsaðstoð af einhveiju tagi til að komast heim. Sendiráð og ræðis- menn mega ekki láta ferðamanninn fá peninga nema einhver ættingi eða kunningi á íslandi gangist í ábyrgð fyrir láninu. Og þar kemur utanrík- isráðuneytið inn í myndina. Utanríkisráðuneytinu berast ekki skýrsiur frá yfirvöldum í því landi þar sem. glæpurinn er framinn. ekki skýrslur um atburðinn ef ekki er farið fram á neina aðstoð heldur aðeins tilkynnt um það sem gerðist. Svo má alltaf reikna með því að fórn- arlömbin séu miklu fleiri sem ekki tilkynna yfirvöldum um ófarir sinar. Bandaríska ferðatímaritið Condé Nast Traveler birti nýlega samantekt um vinnuaöferðir og helstu vinnu- staði vasaþjófa í nokkrum stórborg- um. Þótt upplýsingamar miðist eink- um við bandaríska ferðamenn geta þær líka orðið ferðamönnum af öðru þjóðemi, þar á meðal íslendingum, að einhverju gagni næst þegar þeir halda út í hinn stóra heim. Hér á eftir verður sagt frá nokkrum borg- um þar sem alltaf má búast við að finna íslenska ferðamenn í meira eða minna mæh. London Vasaþjófamir í London starfa við Oxford stræti og Regent stræti, og einnig í Knightsbridge hverfmu. Þjófar eru líka á stjái í stærstu versl- unarhúsunum, eins og Harrods, Marks & Spencer og Selfridges. Það kemur meira að segja fyrir að við- skiptavinir í verslunum þessum séu varaðir viö þjófum. Embættismaður í bandaríska sendiráðinu varar við ránum eftir að skyggja tekur rétt austan við Tow- er of London og í Brixton og Totten- ham þó svo að ferðamenn séu þar sjaldan á ferli. Neðanjarðarlestirnar í London eru alla jafna öruggur staður að vera á. Upp á síðkastið hafa þó hópar ungl- inga tekið upp á því að hlaupa í hóp gegnum mannþröngina og hrifsa handtöskur og önnur verðmæti sem þeir koma höndum yfir. Menn ættu að vera sérstaklega árvökulir á neð- anjarðarstöðinni við Oxford Circus, sem er mjög ijölfarin. Þeir sem ferðast um á bílaleigubíl- um skyldu varast að skilja nokkur verðmæti eftir í þeim. Samkvæmt upplýsingum frá Interpol em bíl- þjófnaðir óvíða fleiri en í Englandi. Frankfurt Vasaþjófar og fíkniefnasalar starfa við aðalbrautarstöðina (Hauptbahn- hof). Þeir sem eru einir á ferð ættu að forðast Kaiserstrasse þar sem vændiskonur eru á hverju strái og konur eiga það á hættu að vera ónáð- aðar. París Vasaþjófnaður hefur lengi verið eitt helsta vandamál ferðamanna í París en starfsaðferðir þjófanna hafa verið að breytast. Áður fyrr voru það að mestu sígaunabörn sem störfuðu á Rue de Rivoli og viðar, en vegna strangari reglna um hverjir fá að koma inn í Frakkland, hefur þeirri þjófategund fækkað. Nú er mun meira um hreina atvinnumenn í fag- inu. Menn skyldu gæta sín sérstak- lega við Pompidou safnið og í ná- grenni Concorde torgsins. Lögreglan varar líka við Louvresafninu, eink- um í kringum myndina af Monu Lisu. „Ekki furða þótt Mona gamla brosi. Hún veit hvaö litlu vasaþjófun- um gengur vel,“ segir einn lögreglu- maðurinn. Einna líklegasti staðurinn til að verða fyrir líkamsárás er 18. hverfi, þar sem göturnar eru þröngar og illa upplýstar. Ef menn fara í þaö hverfi er best að halda sig á Montmartre en fara ekki mikið út fyrir hæðina. Róm Róm er sífellt að verða hættulegri, einkum konum. Nauðganir og aðrar líkamsárásir koma iðulega fyrir að kvöldlagi í kringum.ijölfarna staði eins og Piaz- za Navona og Villa Borghese. Þá er óvarlegt að vera á ferðinni viö Circus Maximus þegar skuggsýnt er orðið. Trastevere hverfið, Páfagarðsmeg- in við ána Tíber, er frægt fyrir hand- töskuþjófa. Ferðamenn eru meira að segja ekki óhultir inni í sjálfum Páfa- garði, og því best að vera á varðbergi þar eins og annars staðar. Vasa- og töskuþjófar starfa í stræt- isvögnunum sem fara á sögufræga staði. Einkum skyldu menn vera varkárir á leiðum 64, 46, 81 og 492. Þjófarnir nota gjarnan rakvélarblöð til að skera upp töskur og vasa. Vasa- þjófar og farangursþjófar eru líka athafnasamir viö Termini brautar- stöðina og í næsta nágrenni. Þar starfa m.a. barnahópar sem sérhæfa Bílaþiófnadir á hvorja 100.000 íbiia Frakkiand Kw>ada V.ÞýskjOand sig í farangurshlöðnum feröamönn- um. Þá er bara að fara varlega í næstu utanlandsferð, líta vel í kringum sig og fara ekki inn í dimm skúmaskot að óþörfu. -gb I__£._____1_________________JmL_---------------------------------------------------------- Takið eftir vasaþjófinum, litla stráknum sem er að laumast í jakkavasann á burðarmanninum. Svona vinna þeir. FRÁ ÆFINGASKÓLA KENNARAHÁSKÓLA ÍSLANDS Vegna forfalla vantar kennara að æfingaskólanum. Um er að ræða 2/3 úr starfi við almenna kennslu 7 ára barna. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif- stofu skólans. Sími 91 -84566. Skólastjóri Ja,hver þrefaldur! Þrefaldur fyrsti vinningur í kvöld! Þreföld ástæða til að vera með!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.