Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 48
64 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988. Sameiginleg dreifingarmiöstöð hjá eggja- og kjúklingaframleiðendum: Höfum tapað mjög háum upphæðum í gjaldþrotum - segir Bjami Ásgeir Jónsson hjá Reykjagaröi „Það er rétt að menn hafa velt fyr- ir sér að koma upp sameiginlegri innheimtustöð fyrir eggja- og kjúkl- ingabændur. Fyrir okkur vakir að ekki verði unnt að spila á okkur eins og hingaö til en við höfum verið að tapa háum upphæðum í gjaldþrota- málum að undanfórnu," sagði Bjarni Ásgeir Jónsson hjá Reykjagaröi hf. en samtök eggja- og kjúklingabænda eru nú að íhuga að koma sér upp sameiginlegri innheimtu- og dreif- ingarstöð. Bjarni sagði að eggja- og kjúklinga- framleiðendur hefðu tapað háum upphæðum að undanförnu í þeirri hrinu gjaldþrota sem yfir þjóðfélagið hefðu dunið. Væri algengt að leikið væri á framleiðendur með því að flytja sig yfir á næsta aðila þegar lok- að hefði verið á verslanir. Því hefðu þrír framleiðendur tapað á hverju gjaldþrotamáli. Sagði Bjarni t.d. að fjórir framleiðendur hefðu tapað til samans 10 milljónum króna við gjaldþrot Kjötmiöstöðvarinnar hf. „Það er vel hugsanlegt að við fáum einhvern banka til að sjá um inn- heimtu fyrir okkur. Þetta er fremur óljóst ennþá en eftir áramót ættu þessi mál'að skýrast." Bjarni sagði að rætt hefði verið við Jón Sigurðsson, fyrrverandi for- stjóra Miklagarðs, um að hann tæki að sér stjórn dreifingarmiðstöðvar- innar en hann er sem kunnugt er „á lausu". Ekki heföi verið gengið frá neinu í því sambandi ennþá. -SMJ Lionsmenn óánægðir vegna sölu annarra á súkkulaðijóladagatölum „Viö erum ekki með neinn einka- rétt á sölu þessara jóladagatala en finnst aö okkur þrengt þegar einka- aðilar, ekki síst menntaskólar og sjálft ríkisútvarpið, er að veita okkur samkeppni. Allur ágóöi af okkar sölu fer til góðgerðarmála sem allir geta notið góðs af. Meðal annars eru íjár- mögnuð kaup á lækningatækjum fyrir sjúkrahús. Á núvirði nemur okkar framlag í heild um 33 milljón- um króna. Sala þessara aðila á jóla- dagatölum með súkkulaði er lögleg en algerlega siðlaus að mínu mati,“ sagði Helgi Thorvaldsson, sem er formaður honsklúbbsins Freys þetta starfsárið, við DV. Mikil samkeppni er nú á markaðn- um fyrir alls kyns jólavörur, eins og dagatöl og jólakort. Er fjöldi líknar- og styrktarfélaga með sölu á ýmsum Akveðið hefur verið að stofna felag um sorg og sorgarviðbrögö í Keflavik og Njarðvík. Það eru þjóðkirkju- prestarnir á svæðinu, prestur að- ventista og heilsugæslufólk ásamt fleirum sem standa að stofnuninni. Fjölmargir sóttu undirbúningsfund sem haldinn var í vikunni í safnaðar- heimilinu Kirkjulundi í Keflavík. Svipaöur félagsskapur er starfandi í Reykjavík og þykir hafa gefið góöa raun. „Þetta hófst raunverulega sl. vetur þegar viö ákváðum að taka á þessu máli,“ sagði Ólafur Oddur Jónsson, sóknarprestur í Keflavík, viö DV. „Við vildum sjá hver þörfin fyrir slíkt væri hér suður frá og það náð- ist mjög góð samstaða. Þá tóku til varningi í gangi fyrir jólin en jólasal- an er í flestum tilfellum megintekju- lind þessara aðila. Að sögn Helga eru óskráðar reglur um að hvert félag hafi sitt svæöi, ef svo má að orði komast, hvað varðar þá vöru sem er seld. „Okkar mottó er að fara ekki inn á svæði hinna í fjáröflunartilgangi. Nú gengur ríkisútvarpið í broddi fylkingar meö sölu á jóladagatölum eins og okkar til styrktar barnaefni í sjónvarpinu. Er ekki nóg aö vera skyldaður til að borga afnotagjöld? Menntaskólarnir safna í ferðasjóð til að flármagna skemmtiferöir og svo eru stórmarkaðirnir líka komnir með fingurna í þetta. Þessir aðilar standa líknarstarfsemi okkar fyrir þrifum. starfa þrir hopar, tveir 1 Keflavik og einn í Njarðvík. Þessum undirbún- ingi ætlum við að fylgja eftir núna með þvi að stofna félag nú í janúar. Dauði og önnur áföll í lífinu hafa ekki verið rædd í okkar samfélagi. Einstaklingurinn hefur orðið að bera slíkt einn með sjálfum sér. Við upp- lifum gleði sameiginlega en sorgina í einrúmi. Þær miklu breytingar, sem hafa orðið á fjölskyldunni, valda því að einstaklingurinn er óstuddur á erfiðum tímum. Áður fyrr tókust stórfjölskyldurnar á við vandamálin í sameiningu. Þetta er ekki til nú. Við viljum því hjálpa fólki til að vinna sig út úr sorginni og mæta þannig þörf sem er staöreynd í dag.“ -JSS David Puttnam. DV-mynd BG David Puttnam: Kannar aðstæður Þessa dagana er staddur hér á landi kvikmyndaframleiðandinn David Puttnam. Hann hefur hér stutta dvöl í þetta skiptið. Hann mun skoða sig um í dag og kanna aðstæður og hvort það henti hon- um að láta kvikmynda á íslandi. í gær hélt hann fyrirlestur fyrir kvikmyndagerðarmenn. David Puttnam, sem hér er í boði tímaritsins Næst á dagskrá, er sjálfsagt þekktasti kvikmynda- framleiðandi i Evrópu og á að baki glæsilegan feril í heimalandi sínu, Englandi. Má nefna myndir eins og Gal, Local Hero, Chariots of Fire, The Killing Fields og The Mission. í stuttu spjalli við DV sagðist Puttnam nú vera að vinna að undirbúningi sex kvikmynda sem verða geröar á næstu fjórum árum. Ekki vildi hann tjá sig nán- ar um hverjar þessar kvikmyndir væru, sagði málin vera á við- kvæmu stigi. -HK Stofna félag um sorg Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, á neðangreindum tíma: ÍNóatún 31, 1. hæð vinstri, þingl. eig. Tryggvi Eiríksson og Ágústa Tómas- dóttir, miðvikud. 30. nþv. ’88 kí. 10.30. , Uppboðsbeiðandi er Útvegsbanki ís- ' lands hf. Nóatún 31, 2. hæð vinstri, þingl. eig. Kristinn Steingrímsson og Una Jó- hannsd., miðvikud. 30. nóv. ’88 kl. 10.30.. Úppboðsbeiðandi er Útvegs- banki íslands hf. Nóatún 31, 3. hæð hægri, þingl. eig. Guðjón Karlsson, miðvikud. 30. nóv. ’88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðandi er Út- vegsbanki Islands hf. Nóatún 31, 3. hæð vinstri, þingl. eig. Lilja Pétursdóttir, miðvikud. 30. nóv. ’88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðandi er Út- vegsbanki Islands' hf. BORGARFÓGETAEMBÆTTE) í REYKJAVÍK Nauðungaruppboð annað og siðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, á neðangreindum tíma: Álfheimar 28, 1. hæð t.h., þingl. eig. Vilhjálmm- Þórðarson, miðvikud. 30. nóv. ’88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðandi er Helgi V. Jónsson hrl. BORGARFÓGETAEMBÆTTÐ í REYKJAVÍK Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Bergstaðastræti 43, neðri hæð, þingl. eig. Guðmundur I. Bjamason hf., fer ffam á eigninni sjálffi þriðjud. 29. nóv. ’88 kl. 16.45. Úppboðsbeiðendur eru Guðjón Armann Jónsson hdl. og Ásgeir Thoroddsen hdl. Drápuhlíð 33, efri hæð, þingl. eig. Guðmundur Axelsson, ferffam á eign- inni sjálfri þriðjud. 29. nóv. ’88 kl. 15.30. Úppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands og Gjaldheimtan í Reykjavík. Snorrabraut 42, 1. hæð, talinn eig. Sigurður Torfi Sigurðsson, fer ffam á eigninni sjálfri þriðjud. 29. nóv. ’88 kl. 16.00. Úppboðsbeiðendur em Veð- deild Landsbanka íslands, Sveinn Skúlason hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Friðjón Öm Friðjónsson hdl. og BúnaðarSanki íslands. Vogaland 1, þingl. eig. Bjöm Trausta- son, fer ffam á eigninni sjálfri mið- vikud. 30. nóv. ’88 kl. 15.45. Uppboðs- beiðandi er Ólafur Axelsson hrl. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK A&næli Ingileif Þ. Steinsdóttir Ingileif Þ. Steinsdóttir, Hvassaleiti 25, Reykjavík, verður áttræð í dag. Ingileif Þóra fæddist á Lambalæk í Fljótshlíð og ólst þar upp. Hún gift- ist 16. september 1934 Sveini Sigur- þórssyni, b. í Kollabæ í Fljótshlíö. Foreldrar hans voru Sigurþór Ólafs- son, b. og oddviti í Kollabæ, og kona hans, Sigríður Tómasdóttir. Dætur Ingileifar og Sveins eru Steinunn, f. 28. ágúst 1933, gift Jóni Stefáns- syni, Sigríður, f. 30. maí 1939, gift Agústi Olafssyni, og Sigurbjörg, f. 10. j úní 1950, gift Viöari Pálssyni, b. á Hlíðarbóli í Fljótshlíð. Systkini Ingileifar eru Gunnbjörg, f. 13. maí 1910, gift Ágústi Ólafssyni, pípu- lagningamanni í Rvík, og Ölafur, f. 20. nóvember 1911, b. á Kirkjulæk í Fljótshlíð, kvæntur Maríu Jóns- dóttur. Foreldrar Ingileifar voru Steinn Þórðarson, b. á Lambalæk, og kona hans, SigurbjörgGunnarsdóttir. Steinn var sonur Þórðar, b. á Lambalæk, bróður Magnúsar, afa Magnúsar Þorgrímssonar sálfræð- ings. Þórður var sonur Guðmundar, b. og formanns í Bala í Þykkvabæ, Guðmundssonar, b. í Gvendarkoti í Þykkvabæ, Höskuldssonar. Móðir Guðmundar Guðmundssonar var Helga Grímsdóttir, b. í Miðey í Landeyjum, Jónssonar, ogkonu hans, Jódísar Þórðardóttur, b. og hreppstjóra í Voðmúlastaöahjáleigu í Landeyjum, Gíslasonar. Móðir Þórðar var Margrét Þórðardóttir, b. í Miðkoti í Þykkvabæ, Jónssonar, b. í Neðradal undir Eyjafjöllum, Auðunssonar. Móðir Þórðar var Helga Sveinsdóttir, b. á Reynifelli á Rangárvöllum, Snorrasonar. Móðir Margrétar var Margrét, systir Gísla, langafa Eggerts, afa Þorsteins Gísla- Ingileif Þ. Steinsdóttir sonar fiskimálastjóra, Eggerts Þor- steinssonar, fyrrv. ráðherra, og langafa Gunnars Arnar listmálara og Þórðar Steinars hrl. Margrét var dóttir Gísla, b. í Steintópt, Jónsson- ar og konu hans, Guðríðar Jóns- dóttur. Móðir Steins var Ingileif Jónsdóttir, b. og alþingismanns í Eyvindarmúla í Fljótshlíð, Þórðar- sonar, b. í Eyvindarmúla, Jónsson- ar. Móðir Ingileifar var Ingibjörg Hahvarðsdóttir, b. og smiðs í Neðradal undir Eyjafjöllum, Jóns- sonar og konu hans, Ingibjargar Jónsdóttur, b. og hreppstjóra í Stórumörk undir Eyjafjöllum, Guð- mundssonar. Móðir Jóns var Ingi- ríður Ólafsdóttir Thorlacius, prests í Miðmörk, Jónssonar, Thorlacius, sýslumanns í Berufiröi, Jónssonar, sýslumanns í Berunesi, Þorláksson- ar, biskups á Hólum, Skúlasonar, ættfoður Thorlaciusættarinnar. Ingileif tekur á móti gestum eftir kl. 15 á afmælisdaginn. Gestur H. Sigurjónsson Gestur H. Sigurjónsson, Keldulandi 3, Reykjavík, er sjötugur í dag. Gestur Hörður er fæddur í Saurbæj- arhreppi í Eyjafirði og ólst upp í Rvík. Hann lauk Samvinnuskóla- prófi 1936 og var sjómaður til 1939. Gestur lauk loftskeytaprófi 1941 og var afgreiðslumaður á bifreiða- stöövum en hefur undanfarin ár verið leigubílstjóri. Hann hefur set- ið í stjórn Samvinnufélagsins Hreyf- ils og í stjórn stéttarfélags bifreiða- stjóra. Gestur kvæntist 18. maí 1941, Guönýju Nikulásdóttur, f. 12. júlí 1922. Foreldrar hennar eru Nikulás Á. Steingrímsson, bifreiðakennari í Rvík, og kona hans, Kristín Sigríður Magnúsdóttir. Börn Gests og Guðnýjar eru Svava Sigríður, f. 2. mars 1939, myndlistarmaður á Sel- fossi, gift Trausta Gíslasyni kenn- ara, Sigurjón Jónas, f. 7. ágúst 1944, Gestur H. Sigurjónsson matreiðslumaður á Sauðárkróki, kvæntur Svanborgu Guðjónsdóttur, sem starfar við sjúkrahúsið á Sauð- árkróki, Rósa Guðný, f. 11. apríl 1947, hefur lokið námi í glugga- skreytingum og skiltagerð, gift Kristjáni Jóni Hafsteinsssyni bíla- málara. Foreldrar Gests voru Sigur- jón Jónsson, rithöfundur í Rvík, og Rósa Jónasdóttir. Til hamingju með daginn 85 ára Sigríður Sigurðardóttir, Halharbraut 17, Hólmavík 80 ára Guðný Magnúsdóttir, Boðahlein 25 Garöabæ. Hún tekur á móti gestum í húsi Slysavarnafélagsins að Hjallahrauni 9, Hafnarílrði, kl. 15-18. Anna Halldórsdóttir, Viðilundi 6H, Akureyri. Sigurmundur Guðnason, Skipasundi 38, Reykjavik. 70 ára Sigurgeir Jóhannsson, Bakkakoti 2, Leiðvallahreppi, Vestur- Skaftafellssýslu. 60 ára Ásdís M. Sigurðardóttir, Möðrufelli 1, Reykjavík. 50 ára Koibrún Dóra Indriðadóttir, Otrateigi 42, Reykjavík. Jóhannu Haraldsdóttir, Vesturbergi 163, Reykjavík. Guðný Hrönn Þorsteinsdóttir, Stórholti 39, Reykjavík. Brynjar Snorrason, Vesturbergi 144, Reykjavík. Ester Bára Gústafsdóttir, Álfaskeiði 84, Hafnarfirði. Helgi Ingvarsson, Sólheimum, Hvolhreppi, Rangárvalla- sýslu. 40 ára Hákon Björnsson, Akurholti 1, Mosfellsbæ. Svanhildur Leifsdóttir, Smyrlahrauni 30, Hafnarfirði. Guðmundur Karl Stefánsson, Leirubakka 30, Reykjavík. Steinunn B. Geirdal, Öldugötu 57, Reykjavík. Pálmi Sveinsson, Hvannahlíð 6, Sauðárkróki. Finnur Sigfús Illugason, Bjargi, Skútustaðahreppi, Suður-Þing- eyjarsýslu. Gunnar Vilhelmsson, Unufelli 23, Reykjavík. María Björg Sigurðardóttir, Kiytjaseli 6, Reykjavík. Július Fossberg Árnason, Mávahlíð 5, Akureyri. María Ragnhildur Eyþórsdóttir, Sunnubraut 2, Laxárdalshreppi, Dala- sýslu,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.