Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 53

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 53
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988. Sviðsljós Kirk Douglas á sex syni. Hér er hann með Michael, til vinstri, og Eric, í miöið Mickey Rooney á sjö börn. John Carradine á sex syni. Mjög oft berast fregnir hingað til lands um að eitthvert stórstimið hafi eignast bam nýlega eða gengið í hjónaband. Oft em birtar fréttir um skilnað þessa sama fólks. Þá koma stundum fréttir af bömum fræga fólksins því þau em ófá sem hafa fetað í fótspor feðra sinna eða mæðra. En hvað skyldu sumar stjömumar í Hollywood eiga mörg böm? Sumar eiga átta, aðrar sjö eða sex eða jafnvel færri. Börnin em þó í fæstum tilfellum sammæðra. Við skulum kíkja á fjölskyldumál nok- kurra Hollywoodleikara. Dennis Day, söngvari og leikari, best þekktur úr útvarps- og sjón- varpsþáttunum Jack Dennis, á tíu böm og þar með stærstu fjölskyld- ima í Hollywood. Þaö merkilega er að hann á öll bömin með sömu kon- unni, Peggy. Óskarsverðlaunahafinn Anthony Quinn á sjö böm, þrjá syni og fjórar dætur. Leikarinn úr sjónvarpsþáttunum The Beverly Hillbilhes and Bamaby Jones, Buddy Ebsen, á einnig sjö börn. Hinn góðkunni Mickey Rooney er lika sjö bama faðir úr þremur hjóna- böndum en hann hefur verið kvænt- ur átta sinnum. Rooney á fjóra syni og þijár dætur. Hann kvæntist í fyrsta skipti árið 1942 og _var Ava Gardner sú heittelskaða. Það entist hins vegar aðeins eitt ár. Þá kvænt- ist hann Betty Jane árið 1944. Þau áttu tvo syiú saman en hjónabandið entist aðeins fimm ár. Rooney gekk fljótlega eftir það að eiga leikkonuna Mörthu Vickers. Þau eignuöust son saman en hjónabandið var búiö árið 1951, tveimur árum eftir giftinguna. Árið 1952 til ársins 1959 var Mickey Rooney kvæntur Elaine Mahnken en þaö hjónaband var bamlaust. Hann varð þó faðir aftur árið 1959 er hann kvæntist Börbru Ann Thomasen. Þá eignáðist hann fyrstu dótturina. Önnur fæddist árið 1960, sú þriðja árið 1961 og loks kom sonur aftur árið 1962. Leikarinn Dean Martin er einnig sjö bama faðir. Árið 1940 kvæntist hann Betty McDonald og eignuðust þau fjögur börn á ámnum 1941-1946. Þau hjón skildu árið 1949. Sama ár kvæntist Dean Martin Je- anne Bieggers og þau eignuðust son árið 1951, Dean Martin yngri. Annar sonur þeirra fæddist árið 1953, Ricci, og 1956 eignuðust þau dóttur, Ginu. Dean Martin skildi við Jeanne árið 1969. Eftirtaldar stjörnur eiga sex börn. • Joan Bennett á fimm dætur og einn son. • Carey MacDonaid á þrjá syni og þijár dætur. • John Carradine á sex syni. • Tony Curtis á fjórar dætur og tvo syni. • Jose Ferrer á fjórar dætur og tvo syni. • Kirk Douglas á sex syni. • Jason Robards yngri á fjórar dætur og tvo syni. • Richard Kiley á fjórar dætur og tvo syni. • Jerry Lewis á sex syni. • Paul Newman á fimm dætur en eini sonur hans lést af völdum mis- notkunar á fíkniefnum árið 1978. Eftirtaldar stjömur eiga fimm böm. • Don Ameche á þrjá syni og tvær dætur. • Frankie Avalon á þijá syni og tvær dætur. • Marlon Brando á þrjár dætur og tvo syni. • Bill Cosby á fjórar dætur og einn son. • Phyllis Diller á fjórar dætur og einn son. • Burt Lancaster á þijár dætur og tvo syni. • Gregory Peck á fjóra syni og eina dóttur. 3 góðar Hér er á ferðinni enn eitt meistarastykki Johns Car- penter sem meðal annars er frægur fyrir myndirnar The Thing, Fog og Big Trouble in Little China. -r Ein mest sótta hryllingsmynd þessa árs í Bandaríkjunum. Fight for Life. Sönn saga upi ótrúlegan baráttuvilja fólks. High Spirits Spennan og grínið í há- vegum haft. }hii(líonu sf., SÍI 651288

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.