Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1988, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1988, Page 13
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988. 13 Lesendur Lóa Konráðs skrifar: Við að hlusta á kvöldfréttir laugar- daginn 9. nóv. sl. og heyra að Stein- grímur og Jón Baldvin hefðu sótt hvor annan heim á flokksþing Fram- sóknar- og Alþýðuflokks, ásamt sín- um glæsilegu frúm, kom yflr mig löngun til þess að tjá mig um þessi vinsamlegu stefnumót. - Það var svo ánægjulegt að heyra þessa menn sættast, menn sem áður hötðu ekki vandað hvor öðruní kveðjurnar. Það er ijýtt fyrir mér að skrifa í blöð, það hef ég aðeins gert einu sinni áður. Þóttist ég vera að finna aö við Hannibal sem ég hef þó metið því betur síðar. Þetta var í hita kosninga á mínum sokkabandsárum á ísafiröi. Og skítkastiö er barnaleikur nú mið- að við það sem þá var. Ég ólst upp í „íhaldstrú“ og mikilli fyrirlitningu á öllu til „vinstri". Hef ég yfirleitt fylgt Sjálfstæðisflokknum að málum síðan. Þó finnst mér flokk- urinn aldrei hafa borið sitt barr eftir að missa þá frábæru foringja Bjama Benediktsson og Ólaf Thors. - Er ég ekki með þessu að kasta rýrð á þá mörgu ágætismenn sem síðan hafa barist fyrir hugsjónum flokksins. Úr því að ég er farin að skrifa um pólitík langar mig að láta í ljós hrifn- ingu mína á Gorbatsjov. Síöan á Höfðafundinum hefur sá maður ver- ið mín stjarna á stjórnmálahimnin- um. Ég trúi því að hann sé sannur og trúr þeirri stefnu sem hann boð- ar. - Ég hef fengið mikið álit á Stein- grími fyrir hvað hann hefur tekið Gorbatsjov vel og haldiö vel á málum milli íslands og Sovétríkjanna. - Ég er ekki „kommi“, mér er sama úr hvaða flokki menn koma sem leggja sig fram um að vinna að friði og sátt milli þjóða, þeir eiga lof skilið. Svo ég víki aftur að fréttunum, sem komu mér til að skrifa, þá þótti mér Jón Baldvin bráðskemmtilegur þeg- ar hann vitnaði í orð Trumans: „Ef þið hættið að rógbera mig skal ég hætta að segja sannleikann um ykk- ur.“ Úr því ég hef nú verið að hæla verkalýðsforkólfunum má ég til með að koma því að ég er stórhrifm af Margréti Thatcher og Davíö Odds- syni, hvoru á sinn máta. - Skoðun mín er sú, að Davíð hafi gert mikið gott fyrir okkar ástsælu höfuöborg. TVORUDUR potiiiri i Nú er til mikils aö vinna í Islenskum Getraunum. ; í síðustu viku kom enginn seðill fram með 12 réttum. Þess vegna er tvöfaldur pottur - og tvöföld ástæða til að vera með! Hjá okkur kostar röðin aðeins 10 kr. Láttu nú ekkert stöðva þig. Getraunaseðillinn er líka fyrir þig. /V / Hún fríkkar og dafnar með degi hveijum undir hans stjórn. Og þótt alltaf fmnist einhverjum að betur mætti gera finnst mér að við Reykvíkingar, og reyndar lands- menn allir, megum vera þakklát fyr- ir hvað vel er að okkur búið. Efast ég um að nokkur þjóð búi betur að þegnum sínum nema þá ef til vill Norðmenn. Þeir eiga eins og við dá- samlegt og gjöfult land. - En sitt sýn- ist hverjum þar, eins og viðar. Ég óska Davíð áfram velfarnaðar sem borgarstjóra í okkar yndislegu borg og vona að hann láti skynsem- is- og fegurðarsjónarmið ráða gerð- um sínum við framkvæmdir í borg- inni okkar góðu. - Nú er mál að ljúka þessu og vil ég gera það meö að minna á þann friöar- og kærleiks- boðsskap sem ekkert gildi hefur misst í tæp 2000 ár og höfðar ekki síður til þjóðarleiðtoga en hins al- menna borgara. Séð yfir hluta Reykjavíkur. - „Hún fríkkar og dafnar með degi hverjum", segir m.a. í bréfinu. íslenskar leiðbein- ingar með vörum Sigurður Jónsson skrifar: Það er ekki afsakanlegt að fá bæklinga og leiðbeiningar meö dýrum tækjum, sem seld eru hér á íslenskum markaði, á erlendum málum. Ég hef tvisvar lent í tals- verðum erfiðleikum er ég keypti rafmagnstæki (annað var sjón- varp) og bæklingar voru á þýsku! Ég les ekki þýsku en enska hefði getað gengið mín vegna. Best hefði verið að geta lesið sér til um notkun á eigin tungumáli. Þar sem veriö er að tala um að erlendar kvikmyndir eða fréttir erlendis frá verði að vera þýddar, og lög um það orðin að veruleika, þykir mér sem slælega sé fylgst með því að kaupmenn láti þýða bækhnga og leiðbeiningar með vörum sinum. Þetta getur oft gert út um það hvort varan er kéypt eða ekki svo að kaupmenn ættu að athuga sinn gang betur. Mér þykir ekki óeðlilegt aö op- inberir aðilar, sem hér eiga að hafa hönd í bagga, fari nú á stúf- ana og athugi hve mikil brögð eru að því í hinu mikla vöruflóði, sem fylgir jólunum, að leiðbeiningar dýrra áhalda og tækja erlendis frá séu ekki þýddar á íslensku. Friðarhugleiðing

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.