Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1988, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988.
33
ibles
emja
uðna
í gang í dag
(í dag) og fljótlega mun þaö koma í ljós
hvort af samningum verður. Þeir
veröa að útvega mér atvinnuleyfi og
það hefur oft reynst erfitt. En Totten-
ham er stór og sterkur klúbbur og út-
vegun atvinnuleyfisins ætti ekki að
verða stórt vandamál.“
Stórkostlegur áfangi
Fari Guöni til Tottenham, sem ætti að
vera alveg öruggt, er það stórkostlegur
sigur fyrir þennan unga, snjalla knatt-
spyrnumann en Guðni er aðeins 23 ára
gamall. Tottenham er eitt stærsta
knattspyrnufélagiö í Rnglandi og með
því leika fjölmargir bestu leikmenn
Bretlandseyja.
Guðni á að baki sex leiktímabil með
meistaraflokki Vals. Hann hefiu- leikið
24 landsleiki og þeir eiga örugglega
eftir að verða mun fleiri í framtíðinni.
En var Guðni ekki taugaóstyrkur þeg-
ar hann gekk inn á skrifstofu Terry
Venables, eins þekktasta fram-
kvæmdastjóra heims: „ Nei ég var ekki
óstyrkur. Ég hef staðið mig mjög vel
að mínu mati í þessa daga sem ég hef
verið hjá Tottenham og mér hefur ver-
iö tekið mjög vel. Fljótlega í byijun
fundarins með Venables fékk ég það
svar sem ég vonaöist eftir og auðvitað
létti mér nokkuð," sagði Guðni Bergs-
son.
-SK
íþróttir
Guðjón Arnason átti mjög góðan leik með FH-ingum í gærkvöldi og skoraði af mikilli grimmd, sérlega í síðari hálfleiknum. Guðjón gerði alls 8 mörk i leiknum.
DV-mynd Brynjar Gauti
Darraðardans á fjölunum.
- er KR vann FH, 27-26. Viggó sakaður um að hafa slegið vísvitandi til bams í kjölfar leiksins
KR lagði FH að velli í stórbrotnum
leik, 27-26, þar sem allt var í jámum
til leiksloka og spennan nánast
áþreifanleg. Sigurmarkið gerði Guð-
mundur Albertsson er örskammt var
eftir og FH-ingar náðu ekki að jafna
metin í síöustu sókninni.
Það gekk á ýmsu, bæði í sjálfum
leiknum og í kjölfar hans. Þjálfarar
beggja liða litu rautt spjald og reki-
stefna var mikil við varamannabekk
Hafnfirðinga eftir leikinn. Sökuðu
margir Viggó Sigurðsson, þjálfara
FH-inga, um að hafa slegið vísvitandi
til bams við bekkinn en í samtali við
DV í gær sagði Viggó að slíkar full-
yrðingar væm fjarri sanni. Sagðist
hann hafa verið að sveifla bók sam-
hliða því sem hann hefði verið að
kalla til annars dómara leiksins.
Kvað Viggó barnið hafa hlaupið í veg
fyrir handarsveifluna og bókin þann-
ig hafnað á höfði þess. Kvaðst Viggó
hafa talað við barnið á eftir og sagði
hann við DV að það hefði ekki meiöst
á nokkum hátt.
Það er gangrýnivert, hvemig sem
menn kunna að líta á þetta atvik, að
gæsla í Laugardalshöll skuli vera
með þeim hætti að börn fái að valsa
um í kringum varamannabekki lið-
anna. Þar getur bömum verið hætta
búin enda leikmenn og þjálfarar á
blússandi ferð með hugann við veru-
leika leiksins.
Leikur liðanna einkenndist annars
af taugastríði á upphafsmínútunum
en vesturbæingar hristu fyrr af sér
skrekkinn. Höfðu þeir yfir fram að
hléi en FH-ingar náðu þó að snúa
leiknum sér í hag undir lok fyrri
hálfleiks. Þeir höfðu þá gripið til þess
ráðs að einangra máttarása vest-
urbæinga, þá Alfreð Gíslason og Pál
Ólafsson.
Hafnfirðingar létu síðan kné fylgja
kviði í seinni hálfleiknum, jöfnuðu
snemma og höfðu síðan frumkvæðið
allt þar til þeir misstu mann af velli
er síga tók á seinni hlutann. KR-ingar
náðu þá skammvinnri forystu sem
þeir endurheimtu síðan á lokamínút-
unni með marki Guðmundar:
„Við höfðum leikinn í hendi okkár
en töpuðum honum á klaufaskap.
Þetta verður erfitt úr þessu - við er-
um búnir að missa Val og KR of langt
fram úr okkur,“ sagði Héðinn Gils-
son við DV að leik loknum.
Ef á heildina er litið verður þessi
viðureign að teljast ein sú skemmti-
legasta það sem af er vetri. Bæði Uð
léku af miklum krafti og á köflum
ágætan handknattleik, sérlega í
sókninni.
Þá var markvarsla góð, sérstaklega
hjá vesturbæingum, en Leifur Dag-
finnsson varði ekki færri en 20 skot
og Ami Harðarson víti að auki.
Stefán Kristjánsson var frábær
framan af í sóknarleiknum hjá KR
og gerði hann gömlum félögum sín-
um marga skráveifuna. í seinni hálf-
leiknum var það hins vegar styrkur
Alfreðs sem réð á margan hátt úrslit-
um. í liði FH voru þeir stórkostlegir
Héðinn Gilsson og Guðjón Árnason
og Óttar gerði einnig góða hluti.
Mörk KR: Stefán Kristjánsson 10/3,
Alfreð Gíslason 9/2, Konráð Olavsson
3, Páil Ólafsson 2, Jóhannes Stefáns-
son 1, Guðmundur Albertsson 1, Sig-
urður Sveinsson 1.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 8, Guðjón
Árnason 8, Þorgils Óttar Mathiesen
5, Óskar Ármannsson 2/2, Gunnar
Beinteinsson 2, Óskar Helgason 1.
Dómarar voru Gunnar Kjartans-
son og Rögnvaldur Erlingsson.
Dæmdu þeir lengst af mjög vel en
gerðu mistök þegar darraðardansinn
var sem mestur undir lokin. -JÖG
ívar Webster átti mjög góðan leik með KR í gærkvöldi gegn Haukum og skoraði
stig. ívar lék á 2. hæð i leiknum eins og sést glögglega á þessari mynd þar sem
nn skorar án þess að nafni hans Ásgrimsson komi við vömum.
DV-mynd Brynjar Gauti
íslandsmótið 1 körfu:
Allt var á
suðupunkti
- þegar KR vann Hauka, 82-80
„Þetta var púravilla og ég held að
tveir KR-ingar hafi brotið á mér frek-
ar en einn,“ sagði Pálmar Sigurðsson
í Haukum eftir að KR hafði unnið
nauman sigur á Haukum í íslands-
mótinu í körfuknattleik í Hagaskóla
í gærkvöldi með 82 stigum gegn 80.
Það var allt á suðupunkti á loka-
sekúndunum. Haukar höfðu knött-
inn þegar 32 sekúndur voru til leiks-
loka og staðan þá var 82-80. Haukar
héldu knettinum þar til nokkrar sek-
úndur voru eftir. Þá fékk Pálmar
Sigurðsson knöttinn undir körfu
KR-inga. ívar Webster varði skot
hans en Pálmar lá eftir í gólfinu.
Margir vildu meina að brotið heföi
verið á Pálmari og svo virtist augljós-
lega vera frá borðum blaðamanna.
En dómarar leiksins dæmdu ekkert
og KR-ingar hrósuðu sigri. Einar
Bollason, þjálfari Hauka, trylltist eft-
ir leikinn og reyndar allt Haukaliðið.
En úrshtunum varð ekki haggað.
Bæði lið gerðu aragrúa mistaka í
leiknum og ef ekki hefði komið til
spenna í lokin heföi þessi leikur
gleymst hið snarasta. Hittni var í
lágmarki og mikið var um raiigar
sendingar hjá báðum liðum. Pálmar
Sigurðsson var besti maður Hauka
sem áður þrátt fyrir að hann léki
veikur. Einnig átti Jón Arnar Ing-
varsson góðan leik. Haukaliðið vant-
ar sárlega miðherja og þáð hefur
ekki síst bitnað á Pálmari í vetur.
Andstæðingarnir geta nú lagt mun
meiri áherslu á að gæta hans, sér-
staklega eftir að ívar Webster yfirgaf
liðið.
Og það var einmitt ívar Webster sem
gerði gæfumuninn í þessum leik.
Hann lék í annarri hæð en aðrir leik-
menn á vellinum og skoraði 35 stig
fyrir KR. Hefði hann reyndar getað
skorað mun fleiri stig. KR-ingar léku
án Birgis Mikaelssonar og munar um
minna.
Stig KR: ívar 35, Ólafur 18, Matthías
12, Jóhannes 11, Hörður 4 og Lárus 2.
Stig Hauka: Pálmar 23, Jón Amar
17, Henning 13, Tryggvi 13, ívar 8,
Reynir 4 og Eyþór 2.
Leikinn dæmdu þeir Kristinn Al-
bertsson og Gunnar Valgeirsson.
Gerðu þeir einna flest mistök allra í
leiknum.
-SK
1. deild
Staðan í 1. deild eftir leik KR og
FH í gærkvöldi:
KR-FH.....................27-26
Valur 7 7 0 0 190-133 14
KR.......7 7 0 0 186-155 14
FH.......7 4 0 3 183-165 8
Stjaman.7 4 0 3 155-145 8
Víkingur7 3 0 4 183-197 6
KA.......7 3 0 4 159-161 6
Grottæ....7 2 1 4 146-159 5
Fram.....6 1 1 4 122-150 3
ÍBV......6 1 0 5 121-146 2
UBK......7 1 0 6 144-178 2
Markahæstir:
Alfreð Gíslason, KR........50/9
Hans Guðmundsson, UBK......44'9
ÁrniFriðleifsson, Vík......439
Valdimar Grímsson, Val.....42/7
¥
Körfubolti
Staðan í íslandsmótinu í körfu-
knattieik eftir ieikina í gær-
kvöldi:
Þór-ÍS..................78-64
KR-Haukar.................82-80
A-riðill:
Njarðvíkl5 14 1 1329-1085 28
Valur....15 9 6 1271-1133 18
UMFG....16 9 7 1295-1198 18
Þór.......15 2 13 1122-1398 4
ÍS........16 1 15 1010-1510 2
B-riðiU:
Kefiavík.15 12 3 1318-1079 24
KR........16 12 4 1283-1189 24
ÍR........15 8 7 1133-1130 16
Haukar...l5 7 8 1338-1260 14
UMFT.....16 3 13 1278-1421 6