Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Síða 41
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988.
53
LffsstOI
Fyiir landsbyggðina:
Á tímum hagstæðra tilboða í versl-
unarferðir til útlanda vill þaö oft
gleýmast að stóru flugfélögin tvö,
Flugleiðir og Arnarílug, bjóða við-
skiptavinum sínum upp á sérstak-
ar helgarferðir til Reykjavíkur.
Reyndar gefst Reykvíkingum líka
kostur á að skreppa eina helgi út á
land.
Helgarpakkar Flugleiöa gengu í
gjldi þann 15. október síðastliðinn
og standa fram til 15. desember.
Þeir verða síðan teknir upp að nýju
í byrjun janúar þegar önnum vegna
jóla og áramóta lýkur. Ferðatilboð
Flugleiða miðast við tvær nætur,
aðfaranótt laugardags og sunnu-
dags, en hægt er aö framlengja
dvölina um tvær til viðbótar, eina
framan við og eina aftan við. Inn-
ifalið í verðinu er flug fram og til
baka og gisting. Morgunverður
fylgir í flestum tilvikum. Ef flogið
er oftar en einu sinni á dag frá
áfangastaðnum úti á landi er far-
þegum það i sjálfsvald sett hvaða
ferð þeir velja.
Til að gera sem flestum lands-
byggðarmönnum kleift að ferðast
til höfuðborgarinnar tóku Flugleið-
ir þá stefnu að bjóða sama verð
fyrir þessar pakkaferðir frá Akur-
eyri, Húsavík, Egilsstöðum, Norð-
firði og Hornafirði og þar er það
Akureyrarveröið sem gildir. Verð-
ið frá þeim stöðum, sem nær liggja
Reykjavík, er svo aftur á móti held-
ur lægra.
Verð helgarferðanna er mismun-
andi eftír því á hvaöa hóteli er gist
í Reykjavík. Ef dvalið er á eförtöld-
um hótelum: Esju, Loftleiðum,
Lind eöa gamla hlutanum á Sögu,
kostar ferð frá Akureyri og Aust-
urlandi 8417 kr. á manninn, miðað
við gistingu i tveggja manna her-
bergi. Frá Vestmannaeyjum kostar
ferðin 6552 kr., frá ísafírði 8064 kr.,
frá Sauðárkróki 7878 kr., frá Þing-
eyri 7853 kr. og frá Patreksfirði
kostar hún 7906 kr. Sama verð gild-
ir um Hohday Inn, nema hvað þar
er morgunveröur ekki innifalinn.
Morgunverður á Hótel Borg er
heldur ekki innifalinn en verðið er
jafnframt lægra.
Vilji Reykvikingar hins vegar
bregða sér út land kostar helgar-
ferð til Egilsstaða með gistingu í
Hótel Valaskjálf 8077 kr. á mann,
miðað við gistingu í tveggja manna
herbergi með baði. Án baðs kostar
feröin 7387 kr. Sama verö gildir
fyrir Höfn í Hornafirði. Til Húsa-
vikur kostar ferðin 7217 kr. Mestur
straumur Reykvíkinga liggur hins
Höfuðborgin uppfytiir flestar óskir ferðamannsins, hvort sem hann kemur til að skemmta sér eða kikja i búðir.
vegar til Akureyrar þar sem boðið
er upp á gistingu í fjórum hótelum.
Ef gist er á KEA kostar helgarferð-
in 9517 kr., 8897 kr. á Stefaniu og
8517 kr. á Varðborg. Morgunverður
er innifalinn á þessum hótelum. Á
Hótel Akureyri er morgunverður
ekki innifalinn og flug og gisting
þar kostar 7517 kr.
Flugleiðir bjóða einnig upp á
„flug og bíl“ og leikhúsferðir til
höfuðborgarinnar.
Amarflug býður viðskiptavinum
sínum einnig upp á helgarferðir til
Reykjavíkur og hefur í því skyni
gert samning við fiest stærri hótel-
in í borginni. Þeim sem ekki vilja
gistingu en bíl í staðinn stendur
einnig til boða „flug og bíil“.
Þessi ferðatilboð Arnarflugs eru
í gildi allt árið um kring. Helgar-
ferð til Reykjavíkur frá áfangastöð-
um á Snæfellsnesi kostar 6670 kr.
Þá er miðað við tvær nætur í
tveggja manna herbergi á Loft-
leiðahótelinu, Esju, Lind og eldri
hlutanum á Sögu. Frá Flateyri,
Bíldudal, Hólmavík, Gjögri og
Blönduósi kostar sams konar ferð
8170 kr. en frá Siglufírði 8765 kr.
Amarflug býður svo Reykvíking-
um upp á helgarreisu til Stykkis-
hólms og kostar hún um 6000 krón-
ur.
Þá er bara aö bregöa undir sig
betri fætinum og heimsækja höfuö-
borgina.
-gb
o Mosfellsbakarí
® Mosraf byggw.
@ Fexa hársnyrtist.
® Verslunarbankinn
® Kjörval matvöruverslun
0 Skófell
skór á alla fjölsk
® Álnabúðin
© Póstur og sími
© Ás-leirsmiðja
© Allt á hreinu
þvottahús
Það eru ekki tíma-
frekir umferðarhnút-
ar í Mosfellsbæ.
- En í Mosfellsbæ eru
næg bílastæði. Verið
velkomin í okkar
verslunarmiðstöð.
Samtök
þjónustuaðila
Mosfellsbæjar
® Mosfellsapótek
® Búnaðarbankinn
©Bókasafn
® Snyrtistofa
Kristínar Þorstd.
® G. S. sölut. og video
© Western Fried
® Ásfell ritfangav.
® Fell fatav.
® Pílus hársnyrtist.
© Myndbandalagið
© Kaupf. Kjalanþ.
© Holtadekk