Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Page 42
54 LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988. Lífsstm Ævintýraferðimar: Á trukkum ogbátum um þrjár heimsálfur Vegna mistaka féll þessi grein nið- ur í síðustu viku, en hún átti að fylgja * frásögn um ferðalag á Egyptalandi. Ferðaskrifstofa stúdenta hefur umboð fyrir breska ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í ævintýraferðum fyrir ungt fólk á aldrinum 18-40 ára. Ferðirnar eru til landa í þremur heimsálfum, Afríku, Asíu og Suður- Ameríku, og eru allt frá tveimur upp í 29 vikur. Ferðir þessar voru fyrst boðnar hér á landi 1984. Árið eftir lagði fyrsti íslendingurinn á vegum Ferðaskrif- stofu stúdenta upp í langferð af þessu tagi og síðan hefur vel á fimmta tug ungmenna haldið á vit ævintýranna. Að minnsta kosti fjórir hafa annað- hvort fariö, eða látið bóka sig í 29 vikna feröina. Þeir sem hyggja á ævintýraferðir þurfa helst að panta farið með minnst tveggja mánaða fyrirvara. Þegar ferðin er bókuð fá viðkomandi í hendur upplýsirigar um væntanleg- an áfangastað, veðurfar, fatnað, sem þarf að taka með sér, vegabréfsárit- anir og ýmislegt fleira sem að gagni kemur. Skipuleggjendur ferðanna reyna að halda öllum kostnaði í lágmarki, án þess þó að láta það koma niður á öryggi þátttakendanna. Yfirleitt er ferðast með sérstaklega útbúnum trukkum þegar farið er landveginn. Einnig er siglt með bátum niður stór- fljót á borð við Níl. Ferðalangar gista allajafna í tjaldi á meðan á ferðalag- inu stendur en í borgum er gist á hótelum. Matseldinni skipta menn svo á milli sín. Verð ferðar eins og þeirrar, sem sagt var frá í blaðinu í síðustu viku, 15 daga ferð um Egyptaland, kostar liðlega 34.000 kr. Innifalið í því verði er fæði allan tímann, ferðir í trukk og á seglbátum, lestarferð milli Kaíró og Aswan og gisting í tjöldum og á hóteli í Kaíró. Þátttakendur verða hins vegar að koma sér sjálfir til Kaíró, þaðan sem lagt er upp. Hið sama gildir um aðrar ferðir. Ferða- skrifstofa stúdenta reynir í hvert skipti að koma þátttakendum á sem ódýrastan hátt til upphafsstaðar ferðar, m.a. í gegnum samtök nor- rænna stúdentaferðaskrifstofa sem hafa gert samninga við flugfélög víða um heim. Meðal annarra feröa um Afríku er fjögurra vikna safari um Saharaeyði- mörkina. Lagt er upp frá Túnis og haldið þaðan suður í sandauðnina og aðallega ferðast innan landamæra Alsír. Ferðin endar svo þar sem hún byrjaöi. Svona ferð kostar um 46.000 krónur. Innifalið er gisting, fæði og ailar ferðir til og frá Túnis. Suður-Ameríka hefur notiö mikilla vinsælda meðal þeirra sem vilja fara í ævintýraferðir. Ein slík er á slóðir inkanna i Perú, 28 daga ferð um Andesfjöllin, þar sem skoðaðar eru rústir þessarar fornu menningar- þjóðar. Hægt er að velja um tvo upp- hafsstaði, Lima, höfuðborg Perú, eða La Paz í Bólivíu. Þessi ferð kostar um 65.000 krónur, að undanskildu fargjaldinu til Suður-Ameríku. -gb yr. / > ,, '• W tí /< \ *. ■ , jm , ÓDYRT, STERKT OG AUÐVELT AÐ LEGGJA Iðnverk Reykjavík A Húsasmiðjan hf. Reykjavík A g/ /B Byggingavöruversl SÍS Reykjavík j/ /\ Teppaland/Dúkaland Reykjavík Kaupfélag Borgnesinga Borgarnes -g' f ~§7 r Verslunin Vík Ólafsvík yL-a g/jj Byggingav. versl. j|_ Jóns Friðgeirs. Bolungarvík je| CKICV Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki IbLtlMoft SM & MÍfMÍW, 'f .■'..■■ ■ , ' é,i ■ . V / FRAMLEIÐSLA KEA Byggingavörur Akureyri Kaupfélag Þingeyinga Húsavík Kaupf. Langnesinga Þórshöfn Karl Jakobsson Egilsstöðum Kaupfélag A-Skaftf. Höfn Hornaf. Kaupfélag Árnesinga Selfossi Kaupfélag Suðurnesja Keflavík TRE-X Byggingavörur Keflavík Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum Byggingaþjónustan Ólafsvík :■ : . ' •- IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVIK, SÍMAR: 92-13320 OG 92-14700 •< • í» 'V /*' ■•■■■.■* . Æl r M Á * r / ' . - U ■ 7 ■• /r- Millilandaflugið: íslensku félögin sjá fram á aukna samkeppni SAS er eina erlenda flugfélagið sem flýgur reglubundið áætlun- arflug milli íslands og annarra landa og veitir þannig íslensku flugfélögunum einhverja sam- keppni. Hinn fyrsta apríl síðast- liðinn hóf SAS að fljúga einu sinni í viku milli íslands ogKaup- mannahafnar og verður svo í vet- ur. Frá og með fyrsta apríl á næsta ári verður þessum ferðum fjölgaö upp í tvær á viku. Lengra ná áætlanir félagsins ekki. Lufthansa flaug einu sinni í viku til íslands í sumar og gert er ráð fyrir að hið sama verði uppi á teningnum næsta sumar. Lufthansa flaug frá Dússeldorf og Múnchen en áform munu vera uppi um að fljúga frá Frankfurt á næsta ári. Félagið mun þegar vera byrjað að leita markaða á Ítalíu fyrir íslandsflugiö. Er það taliö vera dæmi um hversu mikið erlend flugfélög eru reiðubúin að leggja á sig ‘fyrir svona lítinn markað. Heyrst hefur fleygt að British Airways sé að íhuga að taka upp áætlunarflug hingað. Það yrði þó ekki fyrr en árið 1990. SAS býður upp á ferðapakka til Kaupmannahaifriar og annárra borga á Norðurlöndunum, alveg sambærilega þeim sem íslensku flugfélögin og ferðaskrifstofurnar bjóða. Viðtækt samstarf er milli SAS og Flugleiða um ferðapakka, m.a. til Bangkok á Thailandi. „Hins vegar höfum við í gegn- um tíöina kallað okkur „flugfélag kaupsýsl umannsins". Þaö bygg- ist á því að hægt er aö bóka hjá okkur farmiða, hótel, bOaleigubíl eða tengiflug og þú færð það stað- fest á meðan þú situr fyrir fram- an okkur. í fyrra var þetta kosið besta þjónustukerfi hjá flugfélagi og SAS leggur gífurlega mikið upp úr þjónustunni,“ segir Jó- hannes Georgsson, forstöðumað- ur SAS á íslandi. Hann segir að flutningur SAS á ferðamönnum til íslands hafi fyrst og fremst verið í samvinnu viö Flugleiðir, bæði vegna þess að félagið byrjaði ekki að fljúga hingað fyrr en síðastliðið sumar og vegna hins að ein ferð í viku eða jafnvel tvær sé ófullkomin áætlun. Hins vegar er ekki útilok- að að þeim eigi eftir að fjölga meira í framtíðinni. „Um leið og flugið til landsins er aukið tökum við sennilega eitt- hvaö af farþegum frá Flugleiðum. En það er stefna okkar að skila þeim farþegum, sem viö tökum, til baka í auknum ferðalögmn til íslands í gegnum sölukerfi okkar um allan heim. Þegar við byijum að selja ísland, eins og skeður núna hjá öllum SAS skrifstofum út um allan heim, er Ijóst að allur ferðastraumurinn fer ekki yílr á okkur heldur dreifist hann yfir á Flugleiöir líka. Við skilum Flug- leiðum því raunverulega tfl baka með vinstri hendinni því sem viö tökum með þeirri hægri og jafn- vel heldur betur,“ segir Jóhannes Georgsson, forstöðumaður SAS á íslandi. VEISTU ... að aftursætið fer jafnhratt og framsætið. SPENNUM BELTIN hvar sem við sitjum í bDnum. UUMFEROAR RAO X

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.