Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Side 7
FÖSTUnÍGlÍR f)E:SEMMER 1988.
Hvað er þér mirmisstæðast frá árinu 1988?
Steingrímur Hermannsson:
Hlýhugur á
afmælisári
Það ár, sem er
að líða, var við-
burðaríkt og gæti
ég fjölmargt
nefnt sem minn-
isstætt.
Mér er t.d.
minnisstæður sá
velvilji og sá hlý-
hugur sem mér
var sýndur af
fjölmörgum á
sextugsafmæh
mínu 2?. júní. Kann ég þeim sem það
gerðu sérstakar þakkir. Þetta voru
jafnframt afar ánægjulegir dagar
með börnunum og fjölskyldunni
allri.
Stjórnarsht og stjórnarmyndun í
september verða einnig lengi minnis-
stæð. Ég hef átt þátt í ahmörgum
stjórnarmyndunum og á frá þeim
margs að minnast. Myndun ríkis-
stjórnar Gunnars heitins Thorodds-
ens í febrúar 1980 var t.d. mjög minn-
isstæð. Þó hygg ég að myndunar
þeirrar ríkisstjórnar, sem nú situr,
muni ég hvað lengst minnast. E.t.v.
er þaö vegna þess að um hana hafði
ég forystu og hún var mynduð meö
snöggu áhiaupi. Á þeim tíma, þótt
stuttur væri, skiptust þó á skin og
skúrir eins og alþjóð þekkir.
Svipað og í febrúar 1980 töldu
margir út í ævintýri ráðist með svo
lítinn meirihluta á þingi. Trú mín er
þó sú aö þessi ríkisstjórn muni eins
og ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens
sitja lengur en margan grunar.
Horfur á næsta ári eru óljósar.
Þrælatak tjármagnsins og samdrátt-
ur í afla munu valda erfiðleikum.
Gjaldþrot verða líklega mörg upp úr
áramótum og samdráttur það mikill
að atvinnuleysi kann að verða nokk-
urt. Ég er einnig hræddur um að
margar fjölskyldur eigi í erfiðleikum
vegna mikhla skulda.
Það er hins vegar sannfæring mín
að úr þessu muni rætast. Hjól at-
vinnuveganna mun smám saman
snúast með nýjum krafti og nýtt blóð
taka að streyma um þjóðarlíkamann.
Þó mun taka nokkurn tíma að græða
þau sár sem orðin eru.
Á næsta ári mun einnig á það reyna
hvort við kunnum fótum okkar forr-
áð og forðumst þau víti sem til varn-
aðar mega verða, offjárfestingu,
eyðslu og sóun, en leggjum í staðinn
th hhðar fyrir mögru árin. Á slíkt
mun þó að öhum líkindum ekki
reyna til fullnustu fyrr en að tveimur
eða jafnvel þremur árum liðnum.
Ég sendi lesendum DV bestu óskir
um farsælt komandi ár.
Gunnar Bjömsson:
Fríkirkju-
deilan
„Mér eru minn-
isstæðust frá
hðnu ári úrslit
safnaðarfundar-
ins í Gamla bíói
12. september
þegar lögmætur
safnaðarfundur
lýsti mig rétt
kjörinn prest
safnaðarins.
Ástæða var til að ætla aö málinu
væri þar með lokið. Mér er ofarlega
í huga sú einkennilega ráðstöfun
þeirrar scifnaðarstjórnar sem fékk á
sig vantraust á fundinum að sitja
áfram,“ sagöi Gunnar Björnsson,
fyrrverandi Fríkirkjuprestur.
„Ég vona að safnaðarstarf Fríkirkj-
unnar komist í samt lag á næsta ári
með þvi að ég komi aftur til starfa
sem Fríkirkjuprestur. Mér er það
mikið sorgarefni að horfa upp á safn-
aðarstarfið liggja alveg í láginni.
Kirkjusókn í Fríkirkjunni er nú í
fullkomnu lágmarki. Ég held að sú
staðreynd tah sínu 'máli um að safn-
aðarfólkið er ekki sátt við þær ráð-
stafanir safnaðarstjórnar aö reka
mig og ráða nýjan prést að því for-
spurðu."
-gse
HaUdór Halldórsson:
Hjartaaðgerðin
minnisstæðust
„Mér er náttúr-
lega minnisstæð-
ast þegar ég fór í
hjartaaðgerðina
fyrr á árinu. Að-
gerðin stendur
alveg upp úr í
minningunni.
Svo náttúrlega
hve vel hefur
gengið.
Ég er í þjálfun á
Reykjalundi fyrir hádegi og vinn sem
aðstoöarlínumaður hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur eftir hádegi og það
gengur vel.
Ég vona að nýja árið beri áfram-
hjaldandi hressleika og bata í skauti
sér,“ sagði Halldór Halldórsson sem
er best þekktur sem „hjartaþeginn".
-hlh
Páll Halldórsson flugstjóri:
Björgunarflug
gekk mjög vel
„Mér er einna
minnisstæðast
hvað, flugið hjá
okkur hefur
gengiðvel. Þyrlu-
flugið er vanda-
samt og það er
ánægjulegt
hvernig til hefur
tekist. Það er
ekkert eitt flug frekar en önnur mér
minnisstætt. Þetta gekk allt mjög vel.
Mínar væntingar til næsta árs eru
þær helstar að ég óska að við eign-
umst öflugri þyrlu til björgunar-
starfa. Og að björgunarflugið gangi
jafnvel hér eftir sem hingað th. Ég
yrði hamingjusamur ef það gengi eft-
ir,“ sagði Páll Halldórsson, flugstóri
hjá Landhelgisgæslunni.
-sme
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* 10.000 GKR. SKÍRTEINI
1975-1. fl. 10.01.89-10.01.90 kr. 12.767,42
1975-2. fl. 25.01.89-25.01.90 kr. 9.638,07
1976-1.fl. 10.03.89-10.03.90 kr. 9.180,52
1976-2. fl. 25.01.89-25.01.90 kr. 7.052,84
1977-1. fl. 25.03.89-25.03.90 kr. 6.582,64
1978-1. fl. 25.03.89-25.03.90 kr. 4.463,13
1979-1. fl. 25.02.89-25.02.90 kr. 2.951,12
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1981-1.fl. 25.01.89-25.01.90 kr. 1.304,01
1985-1. fl.A 10.01.89-10.01.90 kr. 296,95
1986-1. fl.A3ár 10.01.89-10.07.89 kr. 204,67
1986-1. fl.D 10.01.89 kr. 177,71
1987-1.fl. A2ár 10.01.89-10.07.89 kr. 165,16
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Sérstök athygli skal vakin á gjalddaga 1. flokks D. 1986,
sem er10. janúarn.k.
Reykjavík, desember 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS
VIKAN OG HÚS & HÍBÝLI
Tvö á toppnum
U m leið og SAM-útgáfan
óskar lesendum sínum gleðilegs árs þakkar
útgáfan þær frábæru móttökur á árinu 1988
sem komu Húsum & híbýlum og Vikunni í
toppsæti nýafstaðinnar lesendakönnunar
sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands
framkvæmdi fyrir Verslunarráð íslands.
SAM-útgáfan