Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Síða 23
22
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988.
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988.
43
Iþróttir
Svipmyndir frá liðnu ári:
oen jonnson frá Kanada er án efa mest umtalaði íþróttamaður ársins sem er að liða. Eftir
að hann féll á lyfjaprófi á OL í Seoul í kjöifar heimsmetsins t 100 m hlaupinu snerist almenningsálitið gegn
kappanum sem hér sést yfirgefa Seoul ásamt systur sinni. Símamynd/Reuter
Slagsmal þau er brutust út í hnefaleikakeppni OL í Seoul vöktu
mikla athygli. Hér sést Lee Chung-Ha, kóreskur þjálfari, slá til dómara
frá Nýja-Sjálandi. Þjálfarinn var dæmdur i ævilangt bann.
Simamynd/Reuter
Florence Griffith Joyner,
Bandaríkjunum, olli titringi hjá
mörgum karimanninum á OL en
hér fagnar hún með eiginmanni
sínum. Simamynd/Reuter
Atli Hilmarsson og félagar hans
í landslfðinu áttu erfiða daga í
Seoui. Atii meiddist í lok ársins á
Spáni og leikur varla ffeiri lands-
leiki. Simamynd/Reuter
Stefan Edberg frá Sviþjóð bar sigurorð af Boris Becker i
úrslitaleik Wimbledon keppninnar í Englandi og sést hér fagna sigrin-
um. Edberg sigraði 4-6, 7-6, 6-4 og 6-2.
Simamynd/Reuter
Islenskir knattspyrnumenn gerðu víðreist á árinu og náðu oft góðum árangri. Hér. sést
Sigurður Grétarsson í dauðafæri í HM-leiknum gegn Sovétmönnum á Laugardalsvelli en leiknum lauk með
jafntefli, 1-1, og skoraði Sigurður mark íslands. Framarar urðu íslandsmeistarar i 1. deiid og Valsmenn bikar-
meistarar. DV-mynd Brynjar Gauti
íþróttir
Frétta-
stúfar
Lökken er hættur
Norðmaðurinn Torbjörn Lökken,
heimsmeistari í norrænni tvíkeppni
á skíðum árið 1987, sagði í viðtali við
Dagbladet í gær að hann væri hættur
keppni. Lökken er aðeins 25 ára gam-
all og er einn vinsælasti íþróttamað-
urinn í Noregi. Hann segist vera orð-
inn þreyttur á öllu umstanginu sem
fylgi þátttöku sinni í íþróttum, aug-
lýsingamennsku, fjölmiðlum og alls
konar fólki sem gefi honum ekki
stundlegan frið.
Ðarcelona vildi Gullit
Forseti ítölsku meistar-
anna AC Milano, Silvio
Berlusconi, sagði í gær
að hann hefði neitað
spænska félaginu Barcelona um við-
ræður um kaup á hollensku stjörn-
unni Ruud Gullit. Hann kvaðst hafa
tilkynnt varaforseta Barcelona að
Gullit væri ekki til sölu, hvað sem í
boði væri. Gullit hefur átt við meiðsli
að stríða í allan vetur og lék síðast
með liðinu þann 10. nóvember. Hann
er þó vongóður um að geta leikið
með þegar AC Milano mætir Samp-
doria í 1. deildar keppninni á gaml-
ársdag.
Reykjavíkurmótið
í knattspyrnu hafið
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu,
sem hófst á dögunum með keppni í
yngri flokkum, verður fram haldið
2. og 3. janúar og þá verður keppt í
meistaraflokki karla. Að lokum er
2. flokkur karla á dagskrá 8. og 10.
janúar.
Keppt er eftir nýju fyrirkomulagi,
leikið á stærri mörk en áður og með
markvörðum. í meistaraflokki karla
eru 11 hð og þar leika í A-riðli Vai-
ur, Fram, KR, Ármann, Leiknir og
Skotfélagið en í B-riðli Fylkir, Vík-
ingur, Þróttur, ÍR og Víkverji. í
meistaraflokki kvenna eru aðeins
tvö lið, Valur og KR, og mætast þau
tvisvar.
ísrael lagt
að velli
íslenska unglingalandsliðið í
knattspyrnu sigraði b-lið ísrael, 1-0,
í gær á alþjóðlega knattspyrnumót-
inu í ísrael. Þórhallur Jóhannsson
úr Fylki skoraði eina mark leiksins
þegar fimmtán mínútur voru til
leiksloka.
Næsti leikur liðsins verður 2. jan-
úar gegn Liechtenstein og ef sigur
vinnst í þeim leik á liöið möguleika
að vinna til verðlauna á mótinu.
-JKS
Körfubolti:
„Kóngakeppni"
á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri
'• Jakob Sigurðsson átti glimrandi leik í vinstra horninu gegn Dönum í gærkvöldi og hefur ekki oft leikið betur með landsliðinu. Jakob skoraði sjö mörk í leiknum og eitt þeirra er í fæðingu hér að ofan. Á
innfelldu myndinni má sjá er brotið var gróflega á Kristjáni Arasyni. Varð hann að fara af leikvelli og lék lítið eftir það. Dönsku leikmennirnir fengu ekki svo mikið sem gula spjaidið í refsingu.
DV-myndir Brynjar Gauti
Fyrri vmáttuleikur íslendinga og Dana í Laugardalshöliinni í gærkvöldi:
Þriðji stærsti sigurinn
- ísland sigraði Danmörku, 24-18. Stærsti sigur gegn Dönum síðan á HM í Sviss 1986
Islenska landsliðið í handknattleik gersigraði það danska 1 vin-
áttuleik þjóðanna í Laugardalshöll í gærkvöldi, lokatölur 24-18
og ísland hefur ekki unnið stærri sigur gegn Dönum frá því í
heimsmeistarakeppninni í Sviss 1986. Þá sigraði ísland, 25-16,
en stærsti sigur íslendinga gegn Dönum leit dagsins ljós á Akra-
nesi 1981 en þá sigruðu íslendingar, 32-21, í eftirminnUegum leik.
Leikurinn í gærkvöldi var 191. leikur þeirra Bogdans Kowalczyk
þjálfara og Guðjóns Guðmundssonar liðsstjóra með íslenska lið-
ið og 95. sigurinn varð að staðreynd.
Islenska liðiö lék ghmrandi handknatt-
leik í fyrri hálfleik og staðan í leikhléi var
15-8, íslandi í vil. í síðari hálfleik skoruðu
Danir fyrsta markið en þrjú íslensk fylgdu
í kjölfarið og staðan orðin 18-9. Þá mátti
greina mikil þreytumerki á íslenska liðinu
og Danir skoruðu og skoruðu, staðan
breyttist í 18-15 og mönnum hætti að lítast
á blikuna. Danir minnkuðu síðan muninn
í tvö mörk, 19-17, en okkar menn innsigl-
uðu sigurinn af öryggi á lokamínútunum.
„Þetta er allt að koma“
„Þessi úrslit sýna svo ekki verður um villst
að þetta er allt á réttri leið hjá okkur. Við
erum að rífa okkur upp úr þeim öldudal
sem við höfum verið í upp á síðkastið,"
sagöi Jakob Sigurðsson en hann átti mjög
góðan leik gegn Dönum í gærkvöldi.
Jakob var bestur í íslenska hðinu
ásamt Einari Þorvarðarsyni sem
varði af snilld í fyrri hálfleik, sam-
tals 8 skot.
Allt annað var að sjá til íslenska
liðsins nú en gegn Svíum á dögunum,
feiknaleg barátta fram í síðari hálf-
leikinn er þreyta fór að segja til sín.
Ef liöið heldur áfram á þeirri braut,
sem það virðist nú komið á, þarf
ekki að kvíða næstu leikjum. Þó má
ekki gleyma því að í danska liðið
vantaði lykilmenn á borð við Klaus
Sletting Jensen, Jens Erik Roepstorff
og Kim G. Jacobsen. Þá vantaði líka
sterka leikmenn í íslenska liðiö.
Mörk íslands: Jakob Sigurðsson 7,.
Þorgils Óttar Mathiesen 5, Sigurður
Sveinsson 4/1, Júlíus Jónasson 2,
Alfreð Gíslason 2, Kristján Arason
2, Bjarki Sigurðsson 1 og Valdimar
Grímsson 1.
Markahæstir hjá Dönum: Niels
Kildelund 5/2, Flemming Hansen 3
og Otto Mertz 3.
• Leikinn dæmdu dómarar frá
Luxemburg og var frammistaða
þeirra í fullu samræmi við stöðu
handknattleiksins þar í landi.
íslendingar voru einum færri í 2
mínútur en Danir í 4. Sigurði Sveins-
syni og Kristjáni Arasyni mistókst
að skora úr sínu vítakastinu hvor.
•íslendingar leika á ný gegn Dön-
um í kvöld og hefst leikurinn klukk-
an 21.00 í Höllinni. -SK
„Eg hef orðið var við talsverð-
an áhuga á þessari keppni og
reikna því með góöri þátttöku,“
segir Jón Már Héðinsson hjá
Körfuknattleiksdeild Þórs á
Akureyri, en Þórsarar hafa
ákveðið að gangast fyrir
,,Kóngakeppni“ í körfubolta á
Akureyri 25. febrúar.
Eins og nafh keppninnar gef-
ur til kynna er hér ekki um
neina venjulega keppni að
ræða, en hún miðast við að
keppendur séu orðnir 40 ára,
og er jafnt fyrir félagshð og
hópa sem hafa.tekið sig saman
og leika körfubolta.
Þeir sem hafa áhuga á að vera
með í keppninni þurfa að til-
kynna þátttöku frir miðjan jan-
úar til Jóns Más Héðinssonar í
síma 96-25486 eða Kristínar
Jónsdóttur í síma 96-25662, og
veita þau jafnframt nánari upp-
lýsingar.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RfKISSJÓÐS
11. FLB1986
m
Iþrótta-
maður
ársins
hjá DV
-úrslitámánudag
Eins og undanfarin ár hefur
DV geflö lesendum sínum kost .
á því aö útnefna íþróttamann
ársins. Skilafrestur rann út í
gær vegna kjörsins í ár og var
þátttaka gífurlega mikil að
þessu sinni.
Greint verður frá úrslitum í
kjörinu í mánudagsblaði DV, 2.
janúar. íþróttamaður ársins
1988 hjá DV fær glæsileg verð-
laun. I fyrra kusu lesendur DV
Kristján Arason. Samtök
íþróttafréttamanna útnefndu á
dögunum Einar Vilhjálmsson
íþróttamann ársins 1988. Fróð-
legt verður að sjá hvort lesend-
ur DV eru á sama máh en það
skýrist í mánudagsblaði DV
eins og áður sagði. -SK
Atta Islandsmet hjá fötluðum
- á Reykjavikurmótinu í sundi. Halldór Guöbergsson og Sigrún Hrafiisdóttir settu þrjú met
100 metra skriðsund karla
Reykjavíkurmót fatlaðra í sundi var
haldið í Sundhöll Reykjavíkur á dögun-
um og náði sundfólkið góðum árangri.
Á mótinu setti Halldór Guöbergsson
ÍFR þrjú íslandsmet í 100 metra skrið-
sundi, 50 metra bringusundi og 50 metra
flugsundi, Sigrún Huld Hrafnsdóttir
Öspinni setti þrjú íslandsmet í 100 metra
skriðsundi, 100 metra fjórsundi og 50
metra baksundi, Birkir Rúnar Gunn-
arsson ÍFR setti íslandsmet í 100 metra
skriðsundi og Gunnar Þ. Gunnarsson,
íþróttafélagi fatlaðra á Suöurlandi, setti
íslandsmet í 50 metra flugsundi. Ahs
voru því sett 8 met á mótinu.
Úrsht urðu að öðru leyti þessi:
xjiixivoouxi, ix x\.......X.LM , 1U
Halldór Guðbergsson, ÍFR........1:07,78
Hrafn Logason, Ösp............ 1:11,40
50 metra skriðsund karla
Gunnar V. Gunnarsson, ÍFS.........32,06
Kristberg Jónsson, ÍFR............42,99
Ólafur Ólafsson, Ösp..............44,20
100 metra skriðsund kvenna
Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp...1:15,56
Bára B. Erlingsdóttir, Ösp......1:30,86
Guðrún Ólafsdóttir, Ösp.........1:41,76
50 metra skriðsund kvenna
Bára B. Erlingsdóttir, Ösp........42,13
Guðrún Ólafsdóttir, Osp...........45,53
Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR....49,57
50 metra bringusund karla
Halldór Guðbergsson, ÍFR........39,58
Gunnar Þ. Gunnarsson, ÍFS.......42,22
Sigurður Pétursson, Ösp.........42,25
50 metra bringusund kvenna
Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp...42,88
Bára B. Erlingsdóttir, Ösp......46,20
Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR 50,35
50 metra flugsund karla
Halldór Guðbergsson, ÍFR........34,62
Gunnar Þ. Gunnarsson, ÍFS.......35,28
Sigurður Pétursson, Ösp.........37,51
50 metra flugsund kvenna
Bára B. Erlingsdóttir, Ösp......45,61
Guðrún Ólafsdóttir, Ösp.........55,84
50 metra baksund karla
Gunnar Þ. Gunnarsson, ÍFS.......39,89
Sigurður Pétursson, Ösp.........40,69
Gunnar V. Gunnarsson, ÍFS.......41,16
50 metra baksund kvenna
Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp....43,54
Guðrún Ólafsdóttir, Ösp..........44,58
Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR..46,58
100 metra fjórsund karla
Gunnar Þ. Gunnarsson, ÍFS......1:21,53
Halldór Guðbergsson, ÍFR.......1:21,61
Gunnar V. Gunnarsson, ÍFS......1:27,83
100 metra fjórsund kvenna
Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp..1:28,65
Bára B. Erlingsdóttir, Ösp.....1:40,06
Guðrún Ólafsdóttir, Ösp........1:46,97
-Sþ
Hinn 10. janúar 1989 er sjötti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 6 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir:
_____________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 3.341,60 _
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. júlí 1988 til 10. janúar 1989 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986
til 2279 hinn 1. janúar n.k.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 6 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. jánúar 1989.
Reykjavík, 30. desember 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS