Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988.
49
.Formaður Hundaræktarfélagsins sagði að hundaeigendurnir hefðu sigrað í kosningunum.
segirm.a. igreininm
Ósannindi
borgarstjórans
Fyrir allnokkru gaf Davíð Odds-
son þá yfirlýsingu aö hér hefði allt-
af verið fjöldi hunda þrátt fyrir
bann. Hann átti við það að hunda-
haldsbannið hefði alltaf verið
óvirkt. Þetta eru helber ósannindi.
Ég minni á það í leiðinni að Davíð
er ekki fæddur fyrr en árið 1948 en
þá er bannið komið á þriðja áratug
svoleiðis að það er komið á fjórða
áratug áður en hann kemst til
nokkurs vits og ára.
Ég man vel hundaþvögurnar sem
þustu um bæinn áður en bannið
var sett. Síöan liðu mörg ár þangað
til hundur sást aftur í Reykjavík.
Það fyrsta sem ég man að ég sæi
hund í borginni eftir þetta gæti
hafa verið í byrjun styrjaldarinnar
eða jafnvel ekki fyrr en í kringum
1950. Ég sá bregöa fyrir hundi af
úlfhundakyni í beizli sem blindur
maður leiddi. Nokkru seinna sá ég
annan eins en hundarnir hafa verið
tveir þar sem þeir voru misstórir.
Á sjötta áratugnum fór maður að
verða var við einn og einn hund
hjá sendiráðunum. Þetta er undan-
þága, sögöu menn. Hundurinn á að
halda sig á lóð sendiráðsins, sagði
undanþágan. Þar með var isinn
brotinn. Ólöghlýðnir landar vorir
fóru að útvega sér hund, jafnvel
smygla honum frá útlöndum þrátt
fyrir margfalt bann. Um líkt leyti
minnir mig að lögreglan hafi fengið
sporhund sem kann að hafa verið
hafður í Reykjavík.
Lögreglan og dómarinn
Þegar menn fóru að verða varir
við hið ólöglega hundahald fór lög-
reglan á stúfana, svo sem sjálfsagt
var. Þá brá svo við að dómarinn
neitaði lögreglunni um heimild til
þess að sækja ólöglega haldna
hunda inn á heimili afbrotafólks-
ins. Þar meö ónýtti dómarinn
bannið. Hundskepnan var orðin
rétthærri mannskepnunni. Lög-
brjótunum var borgið. Dómarinn
hafði bjargað þeim. Fyrir afbrota-
fólkið voru ísabrot orðin að auðu
vatni. Nú gefur borgarstjórinn oss
langt nef fyrir hönd þessa fólks.
í úthverfum borgarinnar er nú
svo komið að sum börn þora ekki
út úr húsi fyrir geltandi og glefs-
andi hundum sem hlaupa um laus-
ir og gera sín stykki í görðum ná-
grannanna. Kvartanir nágrann-
anna gagna ekkert. Að baki hund-
um og hundaeigendum standa yfir-
völdin svo lengi sem Davíðs nýtur
við. Helmingur hundaeigendanna
KjáUarinn
Dr. Benjamín H.J.
Eiríksson
hagfræðingur
greiöir ekki gjaldiö fyrir hundinn.
Kostnaðinn, sem borgin hefir af
hundahaldinu, greiða því þeir
borgarar, sem ekki hafa hund, að
hálfu.
Borgarstjórinn segir nú aö fram-
haldið verði víst það að afnema
undanþágurnar. Borgarstjórinn
man sem sagt eftir því nú að það
er bann við hundahaldi í Reykja-
vík. Bannið var endurnýjaö með
einróma samþykkt borgarstjórnar-
innar í júní 1984. Hann bætti því
svo viö þegar hann var að reyna
að kyngja ósigrinum að bannið
heföi alltaf verið árangurslaust.
Ósannindanna þurfti hann með til
þess að rökstyðja það sem ég tel
að hann hafi verið búinn aö ákveða.
Bannið skyldi gert árangurslaust.
Þar gætu ósannindin reynst gagn-
leg.
Hvað er til ráða? Fólk sem fer í
hundana er ekki endilega gáfaðra
en aörir, frekar er það víst á hinn
veginn. Formaður Hundaræktarfé-
lagsins sagði að hundaeigendurnir
hefðu sigrað í kosningunum. Þaö
getur því reynst vandi aö fá lög-
brotafólkið meö góðu til þess að
hlýða lögunum. Fyrsta skrefið mun
því væntanlega vera að leita til
dómarans. Gagni það ekki er að fá
nauðsynleg lög afgreidd á Alþingi.
Skipulag
Ég hefi bent á vinnubrögð borg-
arstjórans og gagnrýnt þau. Ég
ætla enn að taka dæmi um vinnu-
brögð sem mér þykir næsta líkleg
að séu hans.
Austan Hlemms standa nokkur
gömul steinhús, hálfgerðir kumb-
aldar finnst mér. Þegar hús Búnað-
arbankans við Hlemm var byggt
þótti mér sýnt að götulínan átti að
verða Búnaöarbankinn - Mjólkur-
stöðin. Kumbaldarnir myndu
víkja, Laugavegurinn myndi opn-
ast austur svo sem nauðsynlegt er
að hann geri.
Fyrir nokkru sá ég að farið var
að byggja ofan á sum gömlu húsin.
Ég þóttist sjá hvers kyns væri. Ein-
hver sem ætti vin í borgarstjórn-
inni myndi vilja fá að byggja á lóð-
unum austan gömlu húsanna.
Leyfi til þess að byggja á þeim yrði
erfitt aö fá fyrr en mönnum hefði
verið sýnt að gömlu húsin færu
ekki. Fyrst yrði því að fá byggt ofan
á gömlu húsin, að minnsta kosti
einhver þeirra. Nú segja blöðin frá
því að leyfi sé fengið fyrir byggingu
austan gömlu húsanna.
Aö því kemur að sjálfsögðu að
Laugavegurinn verður opnaður
austur en eins og nú horfir málum
er verið að ganga svo frá að það
verði borgarbúum dýr ráðstöfun.
Það væri því greiði við síðari kyn-
slóðir að stöðva fyrirhugaðar fram-
kvæmdir þarna nú þegar.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð
fleiri að sinni. En víst mætti skrifa
um mál eins og breikkun og mjókk-
un Laugavegar neöan Hlemms,
krossun umferðarinnar við
Snorrabraut og þess háttar mál.
En þau eru víst ekki partur af brell-
um núverandi borgarstjóra, nema
þá að litlu leyti.
Dr. Benjamín H.J. Eiríksson
„Á sjötta áratugnum fór maður að
verða var við einn og einn hund hjá
sendiráðunum. - Þetta er undanþága,
sögðu menn.“
SIGLUFIRÐI
Óskum að ráða umboðsmann sem fyrst á Siglufirði.
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 96-71252 og á af-
greiðslu í síma 91-27022.
TVÖFALDUR
1. VINMNGUR
í kvöld
handa þér, ef þú hittir
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki t
vanta í þetta sinn! {
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111