Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1989, Blaðsíða 25
íí'CJ .J fiuó/.uflAi3ijÁiÍ
LAUGARDAGUR 4. MARS 1989.
25
Hinhliðin
Höskuldur Jónsson tekur harðfisk og skyr fram yfir annan mat.
Langar að hitta
formann kattavina-
félagsins í Tælandi
- segir Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁIVR
Höskuldur Jónsson, forstjóri
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins, hefur staöið í ströngu siðustu
vikur við að koma áfengu öli í
verslanir fyrirtækisins.
Það hefur því komið í hans hlut
að stýra afnáminu á síðustu leifum
áfengisbannsins sem sett var í lög
árið 1912. Bjórinn er því eftir ára-
tuga fjarveru kominn í verslanir á
íslandi.
Höskuldur er ættaður af Snæ-
fjallaströnd við Djúp. Hann er
kunnur ferðagarpur og hefur verið
forseti Ferðafélags íslands frá ár-
inu 1985. Höskuldur sýnir á sér
hina hliðina að þessu sinni.
Fullt nafn:
Höskuldur Jónsson.
Fæðingardagur og ár:
9. ágúst árið 1937.
Maki:
Guðlaug Sveinbjarnardóttir.
Börn:
Þrír strákar, sá yngsti 13 ára og sá
elsti 22 ára.
Bifreið:
Toyota Tercel, árgerð 1986.
Starf:
Forstjóri ÁTVR.
Laun:
Ekki gefin upp.
Áhugamál:
Útivera, rölt utan byggða og fjall-
ganga.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu?
Ég spila aldrei sjáifur en hef fyllt
út seðla fyrir aðra án árangurs.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera?
Sinna áhugamálunum.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera?
Leiðinlegast er að svara nöldrurum
í síma heima hjá mér á kvöldin.
Uppáhaldsmatur:
Harðfiskur og skyr.
Uppáhaldsdrykkur:
Kaffi.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag?
Ég held meö landsliðinu í hand-
bolta en ef ég á að nefna einn mann
þá er það Jóhann Hjartarson.
Uppáhaldstímarit:
Familie-Joumal.
Fallegasta kona sem þú hefur séð
fyrir utan eiginkonuna?
Ég segi það ekki því það gæti vald-
ið mér erfiðleikum bæði heima hjá
mér og í vinnunni.
Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn-
inni:
Ég styð allar ríkisstjórnir.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta?
Formann kattavinafélagsins í Tæ-
landi.
Uppáhaldsleikari:
Sigurður Sigurjónsson.
Uppáhaldsleikkona:
Sigríður Hagalín.
Uppáhaldssöngvari:
Kristinn Sigmundsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Þetta er ónærgætin spuming við
opinberan embættismann.
Tekur þú vinnuna með þér heim?
Já.
Hlynntur eða andvígur bjórnum:
Tjái mig ekki um það mál.
Hlynntur eða andvigur veru varn-
arliðsins hér á landi:
Ég styð aðild íslands að NATO og
þær ráðstafanir sem ríkisstjórnir
gera í því sambandi.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best?
Gufan.
Uppáhaldsútvarpsmaður:
Pétur Pétursson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2?
Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Ómar Ragnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Þórsmörk og Landmannalaugar.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
Skíðafélagið Eidborg.
Stefnir þú að eijihverju sérstöku í
framtíðinni?
Ég ætla að lifa þangað til ég dey.
Hvað gerðir þú i sumarfriinu?
Ég fór á skíði til Austurríkis og í
viku gönguferð um öræfi íslands.
-GK
FYLLINGAREFNL
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæðu verði. Gott efni,
lítii rýrnun, frostþítt og þjappast vel.
Ennfremur höfum við fyrirliggjandi sand
og möl af ýmsum grófleika.
Sævarhöfða 13 - sími 681833
Lopi - Lopi
3ja þráða plötulopi, 10 sauðarlitir, einnig bláir, rauð-
ir og grænir litir. Ullarband, ódýrt. Sendum í póst-
kröfu um landið.
Lopi, ullarvinnsla,
Súðarvogi 4, Rvík.
Sími 30581.
Bíldudalur
Nýr umboðsmaður á Bíldudal frá og með 1. mars
1989.
Guðrún Helga Sigurðardöttir
Gilsbakka 1
sími 94-2228
ER KÆUKERFIÐ
í ÓLAGI? ER
LÉLEGUR HITI
í BÍLNUM? HÉR
ER LAUSNIN!
BAR'S
LEKAVÖRN
GERIR VIÐ LEKA
OG HELDUR
KÆLIKERFINU
RÉTTU
*
BARS LEKAVORN BARSLEKAVÖRN BARSLEKAVÖRN BARS LEKAVÖRN
HELDUR STOÐVAR HELDUR KÆLI- SMYR
KÆLIKERFINU RYOMYNDUN OG KERFINU HREINU. VATNSDÆLUNA
ÞETTU. VARNAR TÆRINGU.
____T
Fæst á I stöðvunum