Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1989, Blaðsíða 28
40
LAUGARDAGUR 4. MARS 1989.
LffsstOl
Þýskaland:
Sumarhús
sjómanna
- ódýr kostur
Sumarhúsin eru vel í sveit sett og þaðan er ekki nema steinsnar sama
hvort ferðinni er heitið á friðsæla staði eða til einhverrar mið-evrópskrar
stórborgar.
Síðastliðið haust gerði Orlofsnefnd
sjómanna samning um orlofsliús og
íbúðir í Saarburg í Þýskalandi sem
felur í sér leigu á 14 húsum og 3 íbúð-
um á tímabilinu 20. mai til 23. sept-
ember
í síðustu viku gekk nefndin frá
samningi við Ferðaskrifstofuna Úr-
val um flug til Lúxemborgar samtals
400 sætum.
Samkvæmt upplýsingum Þórðar
Sveinbjömssonar, framkvæmda-
stjóra hjá Orlofsnefnd sjómanna, er
hér um þriggja vikna ferðir að ræða
og innifalið í verði er flug og sumar-
hús eða flug og íbúð. Munu þessar
ferðir vera um þriðjungi ódýrari en
sambærilegar ferðir hjá ferðaskrif-
stofunum.
Auk samninganna um sumarhúsin
hefur verið gengiö frá samningum
við bílaleiguna Lux Viking í Lúxem-
borg og samkvæmt þeim samningum
kostar til dæmis Ford Sierra í viku
um 12 þúsund krónur.
félaga Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands eiga kost á því að
komast í þessar ferðir og verða um-
sóknir afgreiddar eftir þeirri röð sem
þær berast en nú þegar mun um
helmingur sætanna seldur.
Sumarhúsin eru í bænum Wars-
berg nálægt Saarburg, um það bil 30
kílómetrá sunnan við borgina Trier.
Þangað er um klukkustundarakstur
frá flugvellinum í Lúxemborg.
íbúðirnar eru í sumarhúsahverf-
inu Sonnenberg, mitt á milli Trier
og Bernkastel, við ána Mosel. Þangað
er rúmlega klukkustundarakstur frá
flugvellinum í Lúxemborg.
Húsin eru 63 m- að flatarmáli. í
þeim eru 3 svefnherbergi, öll með
vöskum, svefnpláss er fyrir 6 full-
orðna, stofa eldhús og sturta.
íbúðirnar eru 53 m- að flatarmáli.
í þeim er svefnpláss fyrir fjóra.
Bæði húsin og íbúðirnar eru vel
búin húsgögnum og áhöldum.
Sumarhús í Warsberg en þar býður Orlofsnefnd sjómanna ódýr sumarhús i sumar.
Farmanna- og
fískimanna-
samband íslands
Alhr þeir sem eru innan aðiidar-
Hvaó kostar feröin
Sem dæmi um verð má taka að
ef bókað er fyrir 15. mars kostar
51.012 krónur fyrir manninn í sumar-
húsi ef tveir eru saman um það.
Ef fjórir eru saman um húsiö kost-
ar ferðin 34.281 krónu á mann og ef
að sex eru saman um húsið kostar
ferðin 28.704 fyrir manninn.
Barnaafsláttur fyrir 2ja-12 ára er
krónur 8.775. Ferðakostnaður fyrir
fjögurra manna fjölskyldu með tvö
börn á aldrinum 2ja til 12 ára er því
119.574 krónur en sambærileg ferð
með ferðaskrifstofu myndi kosta um
153 þúsund krónur.
Verð fyrir einn í íbúð er 69.298
krónur en ef fjórir eru um íbúðina
kostar ferðin 30.487 fyrir manninn.
Innifalið í verði er flug báðar leið-
ir, flugvallarskattur, gisting í sumar-
húsum eða íbúðum í þrjár vikur,
hreingerning eftir dvöl og tveir um-
gangar af sængurfótum.
Ef gengið er frá pöntunum eftir 15.
mars hækkar verð ferðanna lítillega.
-J.Mar
Páskaferðir:
Hlýjast
íThai-
landi
Það hefur væntanlega ekki farið
framhjá neinum að páskamir eru
óvenju snemma í ár. Þeir sem hyggja
á ferðir á erlendar sólarstrendur um
páskaleitið velta því eðlilega fyrir
sér hvernig veðráttan muni verða í
fyrirheitna landinu.
Úrvahð af páskaferðunum er mik-
ið, má þar meðal annars nefna ferðir
til Thailands, Mahorca, Benidorm,
Kýpur, Costa del Sol og svo er boðið
upp á mikið úrval af alls kyns skíða-
ferðum th Austurríkis og Sviss.
í marslok, á þeim tíma sem pásk-
arnir eru, er meðalhitastigið á fjöl-
sóttustu ferðamannastöðunum í
Thailandi um 29° og að meöaltali
rignir í 3 daga allan mánuðinn og í
4 daga í apríl.
Á Costa del Sol er meöallofthitinn
í mars 18° og meðalhiti sjávar er 14
gráður á Celcius. Rigningardagar í
mars á Costa del Sol eru að meöal-
tali 5.
Á Benidorm er meðalhitinn á þess-
um árstíma um 20° og sjórinn litlu
kaldari. Á Kýpur er meðalhitinn um
18° og meðalhiti sjávar um 17°.
Á Mallorca er meðalhitinn um
16^18° og sjávarhitinn 15-16°.
í lokin skal svo ítrekað að hér er
um meðaltalstölur að ræða þar sem
tekið er mið af hitastigi alls sólar-
hringsins. Sem þýðir að yfir daginn
stíga þessar tölur allverulega, eink-
anlega ef sólin skín.
-J.Mar
'h, V
■ -
,
aww/*-' ✓,, -
r ■ ■ ■ :
?■ ,
wmmam,
wm&sw.
Eftir umhleypingasaman vetur eru þeir sjálfsagt margir sem farnir eru að
þrá sól og sumaryl.
m ':2É| v-. Æ
1 ÍÉI
Bílaleigur:
Nokkrar bhaleigur í löndum Budget, í Danmörku eru aldurs-
Evrópu setja hámarksaldur varð* mörkin hjá Budget einnig 75 ár og
andi útleigu á bifreiðum. Reglurn- í Finnlandi 70 ár.
ar geta verið mismunandi frá landi í Gíbraltar leigir Budget ekki
dl lands og frá leigu til leigu. Öku- ökumönnum sem orðnir eru 65 ára
maður getur þannig fengið leigðan og Hertz setur mörkin við 70 ár.
bh hjá einni bílaleigu þó hann geti Á írlandi eru aldursmörkin hjá
þaö ekki hjá annari. Budget 75, hjá Ðollar 69 og hjá
Ástæðurnar fyrir þessura reglum National 75 ár.
eruaðísumum tilvikumerdýrara Á ítahu eru þessi mörk dregin
að tryggja bifreiðir ef þessi mörk við 70 ár, bæöi hjá Budget og Doll-
eru ekki fyrir hendi og svo aukin ar. Á Madeira eru aldursmörkin
áhætta fyrir bílaieiguna. Eldri öku- hjá Hertz 75 ár og á Möltu eru þau
menn ættu því aö kynna sér þessi 70 hjá Hertz og National. Loks má
atriði áður en þeir leigja sér bíl. minna á aö í Hollandi leigir Budget
í Evrópu setia til dæmis bhaleig- ekki bíla th ökumanna sem orðnir
urnar Budget, Hertz, Dóllar og eru65ára.
National eftirfarandi reglur: í Bret- -J.Mar
landi eru aldursmörkin 75 ár hjá
I
Þýskaland:
Fjölþætt þjónusta
fyiir íslenska
ferðamenn
Jóhanna S. Sigþórsdóttir og Hjalti
Jón Sveinsson bjóða upp á fjölþætta
þjónustu fyrir íslenska ferðamenn í
Þýskalandi.
Má þar meðal annars nefna að
vanti þýskumælandi túlk til að að-
stoða við gerð viðskiptasamninga þá
hjálpa þau við slíkt.
Þau taka á móti ferðalöngum á
flugvöllunum í Frankfurt, Lúxem-
borg eða Hamborg og geta ekið þeim
á áfangastað sé þess óskað.
Auk þess taka þau Jóhanna og
Hjalti á móti feröahópum sem ætla
að ferðast um Þýskaland, Austur-
ríki, ítölsku Alpana eða Ungverja-
land og bjóða þeim leiðsögn.
Þau eru staðsett miðsvæðis í
Þýskalandi í borginni Siegen og sím-
inn hjá þeim er (0) 271-382191.
-J.Mar