Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1989, Blaðsíða 22
22
Vísindi
LAUGARDAGUIt‘é MARS 1989.
13 V
Ný aðferð til að styrkja vöðva íþróttamanna:
Rafmagn í stað lyfja
Lengi hefur veriö á kreiki orðróm-
ur um aö sovéskir íþróttamenn noti
lyf tíl að bæta árangur sinn. Nú eru
þó komnar fram upplýsingar sem
benda til að svo þurfi ekki að vera
því önnur ráð eru tiltæk. Hægt er að
nota rafmagn til að byggja upp vöðva
með sama árangri og þegar lyf eru
notuð.
Þessi aðferð hefur um skeið verið
notuð í Sovétríkjunum og nú eru
bandarískir íþróttamenn farnir aö
beita henni bka. Hér eru þó engir
töfrar á ferðinni því allur galdurinn
er að láta rafmagnið örva hreyfingar
vöðvanna. Vöðvar hreyfast fyrir
áhrif frá rafboðum í taugakerfinu og
með því að fjölga rafboðunum hreyf-
ast vöðvarnir meira.
Sovéskir lyftingamenn hafa beitt
þessari aðferð og fyrir síðustu
ólympíuleika notaði bandaríski lyft-
ingamaðurinn Derrick Crass hana til
að bæta árangur sinn. Rafmagnið var
notað til að styrkja vöðvana í fótum
Crass á hveijum degi í sex vikur.
Mjög veikur straumur er notaður og
sagt er að meðferðin sé ekki tiltakan-
lega óþægileg.
Þessi aðferð við æfingar ber ríku-
legan árangur og á þessu sex vikna
tímabili bætti Crass árangur sinn í
um rúmlega 40 kíló. Á ólympíuleik-
unum þóttu þetta ótrúlegar framfarir
og Cross var hvað eftir annað settur
í lyfjapróf en engin merki fundust
um lyf.
Lyftingamennirnir verða að hggja
út af meðan á meðferð stendur. Um
70 rafboð berast til líkamans á hverri
sekúndu. Rafmagnið tekur alla
stjóm manna af vöðvunum og þeir
titra án afláts.
„Þetta er mjög furðuleg tilfmning,"
er haft eftir Cross. „Meðferðin er
sársaukalaus en hún er ekki mjög
þægileg." Engar vísbendingar hafa
komið fram um óæskileg eftirköst
af meðferðinni.
.
Lyftingamaðurinn Derrick Cross bætti árangur sinn um 40 kiló með rafmagnsæfingum.
Nýi þrifóturinn er borinn um
hálsinn.
Léttir
fyrir ljós-
myndara
Enskur uppfmningamaður hef-
úr fundiö upp nýja gerð af þri-
fæti til að styðja við Ijósmynda-
vélar. Til þessa hafa ljósmyndar-
ar orðið að rogast með þunga
þrífætur sem þeir koma fyrir á
fastri undirstöðu.
Nýja þrífótinn bera menn um
hálsinn. Reyndar hefur hann aö-
eins tvo fætur því bak manna
kemur i staðinn fyrir þriðja fót-
inn. Nýi þrífóturinn er þegar
kominn á markað og er seldur í
Englandi hjá fyrirtækinu Court
Sports. '
Nýi dísklingurinn er í úliíti eins
og þeir gömlu.
Þannig lítur stjörnusjónaukinn við Green Bank út núna.
Hrunið tækniundur
Eyðileggja álar greiðslukort?
Fyrir aldarfjórðungi byggðu
Bandaríkjamenn stóran og mikinn
stjömusjónauka við Green Bank í
Washingtonfylki. Þetta var þá
stærsti sjónauki heimsins með nærri
hundraö metra breiðum spegli. Allt
þar tíl í haust var hann helsta verk-
færi Bandaríkjamanna til að rann-
saka himingeiminn. Þá hrundi þetta
verkfræðiundur til grunna og nú
liggur mikil járnahrúga þar sem fall-
egasti stjömusjónauki heims stóð
áður.
Óhappið varð að kvöldi 15. nóv-
ember á síðasta ári. Þá var verið að
nota sjóaukann til að kortleggja raf-
segulbylgjur í himingeimnum. Veð-
ur var kyrrt en allt í einu hrundi
sjónaukinn til gmnna. Undirstöð-
umar gáfu sig og nú lítur sjónaukinn
út eins og nútímalistaverk.
Engin skýring hefur fundist á af
hverju undirstöðurnar gáfu sig.
Margir verkfræðingar hafa verið
kallaðir til að rannsaka málið en
þeir standa á gati. „Þetta var glæsi-
legur sjónauki,“ er haft eftir yfir-
stjórnanda hans. „Það er átakanlegt
að horfa á jámahrúguna núna.“
Þótt sjóaukinn við Green Bank
væri ekki lengur sá stærsti í heimi
var hann af mörgum talinn sá besti.
Ýmsir stærri sjónaukar hafa ekki
reynst eins nákvæmir. Talið er að
það taki Bandaríkjamenn um tvö ár
að byggja nýjan sjónauka. Þeir verða
þó að gera það því bróðurparturinn
af stjömuathugunum þeirra var
gerðvu- með sjónaukanum sem
hmndi.
Sú saga hefur gengið ljósum logum
víða um Vesturlönd að rafmagnaður
áll frá Austurlöndum eigi sök á þvi
að greiðslukort hafa eyðilagst í veskj-
um manna. í flestum greiðslukortum
eru geymd rafboð - í dökkri línu á
bakinu - og koma m.a. að notum
þegar kortin eru notuð í hraðbanka.
Án rafboðanna minnka notin sem
hægt er að hafa af kortunum.
Stundum gufa þessi rafboð upp af
óútskýrðum ástæðum. Sumir hafa
þó viljað trúa að þar komi rafmagn-
aði állinn frá Austurlöndum til sög-
unnar. Það hefur nefnilega verið í
tísku undanfarna mánuði að nota
veski og handtöskur sem gerð eru
úr roði álsins ógurlega. Þetta eru
dýrir munir og eftirsóttir og trú
margra að þeir séu rafmagnaöir.
Nú hefur máliö verið rannsakað
ítarlega og vísindamenn hafa sýknað
áhnn af öllum ákærum um að eyði-
leggja greiðslukort. Sýknan þýðir þó
að fleiri álar láta lífið en áður því
eftirspum eftir álaroði hefur aukist
á ný.
Við rannsóknir á roðinu kom í ljós
að það er ekki rafmagnaðra en hvert
annað leður. Talið var aö roðið væri
rafmagnað þrátt fyrir dauða álsins
en nú þykir sannað að svo er ekki.
Líffræðingar töldu reyndar að málið
væri þaulkannað áöur og niðurstöð-
ur þeirra voru staðfestar í rannsókn-
inni.
Nú er verið að leita að öðrum or-
sökum þess að rafboðin á greiðslu-
kortunum glatast. Komið hefur í ljós
að sumar kortavélar rafmagnast við
notkun og stundum verður straum-
urinn það mikill að hann mælist í
margra metra fjarlægð. Þá geta raf-
boðin eyðst ef kortin koma of nærri
sjónvörpum eða stórum hátölurum.
risinn
Tölvudisklingar hafa þann
galla að lítið efni kemst fyrir á
hverjum þeirra. Tölvufyrirtæki
hafa því lagt mikla áherslu á
hönnun disklinga sem rúma
meira án þess að þeir stækki
óhæfilega.
Nú hafa verið framleiddir diskl-
ingar fyrir Macintoshtölvur sem
rúma allt að 25 megabæt. Það er
meira en kemst fyrir á hörðum
diskum í mörgum einkatölvum.
Galdurinn er að nota leysigeisla
til aö lesa af disklingnum í stað
rafboða.
Heims-
met í
þungavikt
Menn reyna aö setja met 1 öllu
mögulegu og ómögulegu og nú
hefur Bandaríkjamaður sett met
í að safna fitu. Til þessa hefur það
þótt meira kappsmál aö losna við
aukakíló en met á því sviði eru
hætt að vekja athygli.
Bandaríski methafinn í fltu-
söfnun náði að þyngjast um 91
kíló á 14 dögum. Þetta þykir snar-
lega gert og ekki meö öllu hættu-
laust því heimsmeistarinn var
lagður inn á sjúkrahús þegar
hann hafði náð toppnum. Hann
er nú í strangri megrun,
Állinn rafmagnaði sem lá undir grun um að eyðileggja greiðslukort.