Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Page 7
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1989. 7 I>V Skoðanakönnun DV: Aukinn meirihluti vill hvalveiðar Fréttir Vaxandi meirihluti íslendinga vill halda áfram hvalveiöum þrátt fyrir mótmæli úr ýmsum áttum. Þessi meirihlijti hefur aukist síðan DV gerði sams konar könnun í nóvemb- er síðastliðnum. Miklu um það veld- ur vafalaust kvikmynd Magnúsar Guðmundssonar og umræður sem upp úr henni hafa sprottið. DV spurði: Ertu fylgjandi eða and- vígur því, að íslendingar hætti hval- veiðum? Sama spurning var notuð í könnun DV í nóvember. Úrtakið í skoðanakönnuninni voru 600 manns. Jafnt var skipt milli kynja og jafnt milli . Reykjavíkursvæðisins og landsbyggðarinnar. Af heildinni í úrtakinu kváðust 13,8 prósent vera fylgjandi stöðvun hvalveiða, sem er fækkun um heil 9,7 prósentustig síðan í nóvember. 71,5 prósent eru andvíg stöðvun hval- veiða, sem er aukning um 9,2 pró- sentustig síðan í nóvember. Óá- kveðnir eru nú 13,7 prósent, sem er fækkun um 1,4 prósentustig síðan í nóvember. Þeir sem ekki svara eru 1 prósent, sem er fækkun um 0,8 pró- sentustig frá fyrri könnun. Þetta þýðir að af þeim sem taka afstöðu eru aðeins 16,2 prósent fylgj- andi stöðvun hvalveiða, sem er minnkun um 11,2 prósentustig frá nóvember. En 83,8 prósent vilja hval- veiðar áfram, sem er aukning um 11,2 prósentustig frá nóvember. DV spurði svipaðrar spurningar í október 1985. Af þeim sem tóku af- stöðu voru þá 18,4 prósent fylgjandi stöðvun hvalveiða en 81,6 prósent voru andvíg því að hvalveiðum yrði hætt. -HH Ummæli fólks í könnuninni Karl sagði að við ættum tvímæla- laust að klára vísindaveiðarnar á hvölum. Annar sagði að við hefðum aldrei átt að fara út í þetta og bæri okkur að hætta nú. Kona sagði að kvikmynd Magnúsar hefði breytt skoðun sinni. Kona á Selfossi kvaðst \ólja láta veiða hval áfram. Sér þætti góður súr hvalur. Kona á Stokkseyri sagði að íslend- ingar mættu veiða eins mikinn hval og þeir vildu. Stjórnmálamenn væru sumir asnar. Karl sagðist eindregið vilja að við veiddum miklu meira af hvalnum. Annar sagði að við ættum að virða samkomulag og ekki skýla okkur hak við vísindaveiðar sem kallaðar væru. Hann sagðist þó ekki vilja að grænfriðungar réðu gerðum okkar. Karl sagði að nóg væri af hval og fráleitt að láta hann eta allan fisk. Annar karl sagði að við ættum að veiða enn meira af hval. Karl sagði að við ættum að reka okkar sjávarút- veg án þess að spyrja aðra. Karl sagðist fylgjandi áætluninni um vísindaveiðar. Annar sagði að við ættum að ljúka við tímabil vísinda- veiða þegar það væri búið. Karl á Norðurlandi sagði að sér þætti hval- kjöt gott og veiða ætti meiri hval. Kona kvaðst ekki vilja láta hætta að veiða hval eins og málin stæðu. Karl í Reykjavík taldi meira tapast en vinnast með hvalveiðum. Kona á Reykjavíkursvæðinu sagði að við ættum ekki að láta undan þrýstingi. Karl á höfuðborgarsvæðinu sagði að við ættum ekki að láta puntudúkkur í útlöndum stjóma okkur. Kona sagði að hvalurinn, sem við veiddum, væri ekki í útrýmingarhættu. Karl sagði að við ættum aldrei að hætta að veiða hvah. -HH Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar; til samanburðar eru niðurstöður fyrri kannana DV: okt. '85 nóv. '88 nú Fylgjandi stöðvun hvalveiða 14,7% 23,5% 13,8% Andvígirstöðvun hvalveiða 65,0% 62,3% 71,5% Óákveðnir 15,5% 12,3% 13,7% Svara ekki 4,8% 1,8% 1,0% Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar: okt. '85 nóv. '88 nú Fylgjandi stöðvun hvalveiða 18,4% 27,4% 16,2% Andvígirstöðvun hvalveiða 81,6% 72,6% 83,8 Með eða móti stöðvun hvalveiða 100 80 - ■ Fylgjandi D Andvígir 60 - 40 - 20 - 0 - m 1 ■ Okt. 85 Nóv. 88 Nú Dahli leikurinn er hajtnn í búðinni þinni Nú bregður |l« á leik við alla sem vita hvað eru góðar kökur. Á umbúðunum er auðvitað merkið. Ekki henda umbúðunum, klipptu merkin út og geymdu þau þar til þú átt 15. Þá bið- urðu um nj|§|j umslag í búðinni þinni (um leið og þú kaupir sextándu kökuna). Merkin 15 seturðu í umslagið og sendir okkur. Að launum færð þú svo 100 krónur, eða þú getur notað þessar 100 krónur sem greiðslu fyrir þennan glæsilega þýska postulíns kökudisk. Dahli leikurinn stendur til 31. maí. Dahli kökur og tertuhotnar - alveg óhorganlegt meðlœti. FJÖRVI - VÖRUMIÐSTÖÐIN HF. Sími 687877

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.