Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Side 17
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1989. 17 Nýjarplötur Á Cowboy Junkies The Trinity Session? Ljúft og gamaldags Einhverra hluta vegna ímyndaöi ég mér fyrirfram aö Cowboy Junkies flyttu annaðhvort hrátt rokkabilly með pönkyfirbragði eða einfalt am- erískt gítarrokk af skóla John Foger- tys. Það var áður en ég heyrði plötu hljómsveitarinnar, The Trinity Session. Kannski af því að ég sá plöt- una á vinsældalista útvarpsstöðva framhaidsskólanna í Bandaríkjun- um. Kannski bara vegna nafnsins. En maður skyldi aldrei ímynda sér tónlistarstefnu hljómsveita út frá nöfnum þeirra. Tónlist Cowboy Junkies er nefnilega hvorki hröð né tryflandi. Þvert á móti. Hæglætisleg og dreymandi lýsir henni betur. Sum lögin eru undir kántríáhrifum, önn- ur í þjóðlagastíl. Enn önnur bara dálítið gamaidags dægurmúsík sem erfitt er að draga í dilk. Þau minna um eitt og annað á það sem hippar dédúuðu á árunum kringum 1970 þegar fólk gekk um með blóm í hár- inu, boðaði frið og bruddi ýmis óleyfiieg vímuefni. Cowboy Junkies er kanadísk fjölskylduhljómsveit. Bræðurnir Michael og Peter Timm- ins leika á gítar og trommur. Margo systir þeirra syngur með og heimil- isvinur til margra ára, Alan Anton, kroppar bassann. Ýmsir fleiri leggja fjórmenningunum lið á The Trinity Session. Þar hljóma munnharpa, fiðla, mandólín, stálgitar, harmóníka og fleiri hljóðfæri sem gefa tónlistar- stefnuna nokkuð til kynna. The Trin- ity Session hljómaði í fyrstu sem hálfgildings prufuupptaka. En mús- íkin vann á. Sweet Jane eftir Lou Reed er þarna í bráðskemmtilegri útgáfu. Pm So Lonesome I Coujd Cry eftir Hank Williams er sömuleiðis áheyrilegt. Þá eru nokkur frumsam- in lög plötunnar í aldeihs ágætu lagi. Nefna má Misgmded Angel og 200 More Miles eru dæmi um þaö. Þótt upptaka einnar plötu kosti aðeins tvö hundruð dollara. þýðir það alls ekki að platan sé neitt verri fyrir vikið. Lagasmíðarnar og -frammistaða hljóöfæraleikaranna skipta aðal- máli. Liðsmenn Cowboy Junkies eru svosem ekki í heimsliðinu í poppi en gera þó eitt og annað einstaklega lag- lega á sinn rólega og yfirlætislausa hátt. Þeir sem vilja hafa dægurmús- íkina gamaidags ættu að leggja eyrun við Cowboy Junkies. ÁT Hljómsveitin Centaur Centaur býður vetri konungi byrginn - ný plata í vor Hljómsveitin Centaur, sem sló svo eftirminnilega í gegn sumarið 1987 með plötunni Blús djamm, er í óða önn að taka upp nýja plötu og þegar þetta er ritað hafa 6 lög þegar verið hljóðrituð í nýja Sýrlandi. Ætlunin er að taka upp 10-12 lög á breiðskífu og ætlar hljómsveitin að róa á önnur mið tónlistarlega en árið 1987, blúsn- um hefur verið kastað fyrir róða en í staðinn státar Centaur af nýju frumsömdu rokki. Verður fróðlegt að heyra afrakstur þessarar stúdíó- ferðar Centaurs því þarna fer flokk- ur einstaklega hæfileikaríkra hljóð- færaleikara sem hafa spilað saman í flölda ára. Sveinn Kjartansson er upptöku- maður á þessari væntanlegu plötu en Jón Steinþórsson er tónlistarlegur ráðunautur (pródúser) og var það ekki illa vahð hjá Centaurmönnum. Centaurpiltar láta sér ekki nægja að standa í plötuupptökum því að á B-daginn, 1. mars, hefst á Ákranesi 20. daga tónleikaferð hljómsveitar- innar norður og síðar austur um land, ailt til Eghsstaða. Er fyrirhugað að koma við á tólf stöðum og ætlar Centaur að kynna sitt nýja efni í skólum auk einhvers dansleikja- halds. Poppsíðan ber Centaurmönn- um góðar kveðjur og segir góða ferð. Diesel Park West - Shakespeare Alabama Breska hljómsveitin Cult er með nýja plötu i burðarliðn- um. HeitirhúnSonicTemple og fyrsta smáskífan Fire Wo- man ... Gamla blökkusöng- konan Eartha Kitt er fjarri því dauð úr öllum æðum og fylg- istvel með tiðarandanum i tónlistinni. Á nýrri smáskifu, sem gamla konan var að senda frá sér, hefur hún fengið til liðs við sig ekki ómerkari menn en þá félaga í Bronski Beat... Söngleikur Andrews Lloyd Webber, Requiem, sem var frumsýndur í Lundúnum fyrir nokkru, hefur verið settur á svið í Moskvu! Er þetta enn eitt dæmið um poppvæðingu Sovátríkjanna á siðustu miss- erum... Traveling Wilburys gengið hefur gert það heldur betur gott upp á siðkastið, bæði á eigin plötu og sóló- plötu Roys heitins Orbison. Og nú á enn að bæta á eld- inn, væntanleg á markaðinn er sólóplata með einum Wil- bury bræðra, Tom Petty, og upptökustjóri þar er Jeff Lynne (hver annar?) og að sjálfsögðu koma hinir Wilbury bræðurnir einnig viðsögu ... Aretha Franklin hefur gaman af að syngja með f rægum söngvurum og á nýrri plötu hennar má heyra hana syngja með Eltoo John, James Brown og Whitney Houston ... Biess i bili... -SþS- Skemmtirokk af bestu gerð Sæl aftur... Skoska hljóm- sveitin Big Country, sem að undanfömu hefur verið á tón- leikaferð um Bandarikin, hefur neyðsttil að aflýsa því sem eftir er af ferðinni. Astæðan er sú að Stuart Adamson veiktist hastarlega og var fynrskipað að hvila sig í hálfan mánuð að minnsta kosti... Billy Idol hefur um þessar mundir öðrum hnöppum að hneppa en að sinna tónjist því hann er kominn á kaf i málaferli. Billy karlinn er frekar óhress með frétt sem blaðið News Of The World birti um hann i desember siðastliðn- um, i tengsium við góðgerðar- tónleika i Kalifomiu. Blaðið hélt þvi fram að Biliy hefði haft dónaskap i frammi við tón- leikagesti sem vom að megninu til fötluð böm. Og vitanlega fóm þessi skrif fyrir brjóstið á Bilfy þvi á undanfötnum ámm hefur hann margoft sýnt fötluð- um bömum vináttu í verki með góðgerðartónleikum eða bein- umfjárframlögum... Unnendur góðrar rokktónlistar ættu að leggja nafn bresku hljóm- sveitarinnar Diesel Park West á minnið því það á vafalaust eftir að rísa hátt á komandi árum. Reyndar byggist þessi spá einungis á því sem undirritaður hefur heyrt til þessarar hljómsveitar á þeirri einu plötu sem hún hefur sent frá sér og er hér til umfjöllunar. En innihald plötunnar er líka í shk- um gæðaflokki að ekki er annað hægt en að spá hljómsveitinni mik- UU framtíð. Það er langt síðan jafn- hressUegt og ferskt rokk hefur heyrst og það í jafnmiklu magni í einu! TónUst Diesel Park West er hríf- andi blanda úr ýmsum áttum, smá- skammtur frá U2, annar frá Simple Minds, enn einn frá amerísku ný- bylgjunni og grunnurinn frá Bítla- áratugnum. Útkoman er feiknarlega frísklegt melódískt rokk, sem heldur fullum dampi frá fyrsta lagi plötunnar til þess síðasta. Og hér er hvergi veikan blett að finna; hvert lagið öðru betra og erfitt ef ekki ómögulegt að gera upp á miUi þeirra. Ég get þó ekki stiUt mig um að nefna lög einsog AU The Myths On Sunday, Out Of Nowhere, The Waking Hour og Here I Stand, aUt guUfaUeg rokklög og hin gefa þeim Utið eftir. Shakespeare Alabama er tvímæla- laust skemmtilegasta rokkplatan þaö sem af er árinu. Góð(a) skemmtun. -SþS- ERTÞU ÍBÚÐAREIGANDI í GREIÐSLU- ERFIÐLEIKUM? Ef svo er, þá átt þú sennilega aðeins um þrjá kosti að velja, til að leysa þá. 1. Létta greiðslubyrði lána þinna. 2. Auka greiðslugetuna. 1 3. Selja íbúðina. GREIÐSLUBYRÐIN MINNKUÐ Greiðslubyrði lána léttist ef lánstími er lengdur. Ef lang- tímalán fæst svo hægt sé að greiða upp skammtímalán, þá dreifast afborganir yfir lengri tíma, og þar með léttist greiðslubyrðin. Heildarskuldir eru þær sömu, en auðveldara getur verið að standa í skilum. GREIÐSLUGETAN AUKIN Greiðslugetu er unnt að auka með því að auka tekjur eða minnka framfærslukostnað. Sennilega geta fæstir aukið tekjur sínar í einni svipan en aðra sögu getur verið að segja af framfærslukostnaði. Sumir geta án efa dregið úr ýmsu sem kallað er nauðsynjar, aðrir geta það líklega ekki. ÍBÚÐIN SELD Að selja íbúð vegna greiðslu- erfiðleika getur veriö eina úr- ræði íbúðareigenda. Betra er að taka þá ákvörðun fyrr en seinna. Ef þú ert íbúðareigandi í greiösluerfiðleikum, leitaðu þá aðstoðar fagmanna við að meta hvaða leiðir þér eru færar. STARFSFÓLK RÁÐGJAFA- STÖÐVARINNAR ER REIÐUBÚIÐ AÐ AÐSTOÐA ÞIG RÁÐGIAFASTÖÐ HUSNÆÐISSTOFNUNAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.