Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Side 24
24
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1989.
Sérstæð sakamál________ dv
Þá er allt er þrennt er
Þetta var búinn aö vera heitur júní-
mánuður og enn var hitabylgja yfir
Boston. Er kom fram á kvöld þess
24. júní var þrjátíu og sjö ára gamall
starfsmaður á auglýsingastofu, Swa-
in Fisher, á leið úr vinnunni er sá
atburður gerðist sem skipti sköpum
fyrir hann og konu hans, Cheryl.
Skothríð
í bílageymslu
Klukkan var rétt rúmlega hálf-
átta er Swain Fisher gekk út af skrif-
stofu sinni. Hann hafði orðið að þola
hitann eins og aðrir borgarbúar. Föt-
in beinlínis loddu við fólk þennan
dag, svitinn lak af því við minnstu
áreynslu og til merkis um það hve
heitt hafði verið það sem af sumri
var mátti nefna tölur um gosdrykkja-
sölu sem orðin var meiri en áður
voru dæmi til svo snemma sumars.
Swain varpaði öndinni léttar er
hann kom niöur í bílageymsluna því
vinnudagurinn sem veriö hafði
óvenju erfiður, ekki einungis sakir
hitans heldur vegna langs fundar síð-
degis, var á enda. Sérgrein hans á
skrifstofunni var auglýsingatextar.
Er hann var í þann veginn að stíga
inn í bíhnn sinn kvað við skot. Kúlan
hæfði hann í bakið og hann féll á
gólfið.
Dökkhærð kona
Enginn hefði haft misstu hug-
mynd um hvemig tilræðismaðurinn
leit út hefði ekki svo viljað til að
augnabliki eftir að skotið reið af kom
tuttugu og sjö ára gömul kona, Anna
Gale, út úr lyftunni og gekk inn í
bílageymsluma. Þá sá hún dökk-
hæröa konu hlaupa burt. Anna Gale
veiti henni ekki sérstaka athygli en
nokkrum augnablikum síðar kom
hún auga á Swain Fisher þar sem
hann lá í blóði sínu. Er hún hafði
gengið úr skugga um að hann drægi
enn andann hljóp hún að næsta síma
og bað um lögreglu og sjúkrabíl.
Fisher var nokkru síðar ekið í
skyndi til Saint Laurentssjúkrahúss-
ins en þá var ljóst aö nokkrar sek-
úndur gátu ráðið því hvort tækist að
bjarga lífi hans eða ekki því skotsár-
ið var lífshættulegt. Hann var því
tafarlaust fluttur á skuröstofu er
komiö var með hann á sjúkrahúsið.
Uppá
líf og dauða
Á meðan læknar gerðu sitt besta
til þess að bjarga lífi Fishers reyndi
lögreglan aö gera sér grein fyrir því
hvers vegna honum hefði verið sýnt
banatilræði. Ekki var á miklu að
byggja og engri raunverulegri lýs-
ingu eftir að fara, aðeins því sem
Anna Gale hafði sagt, að hún hefði
séð dökkhærða konu hlaupa út úr
bílageymslunni.
Haft var samband við samstarfs-
fólk Swains Fisher en enginn úr þeim
hópi gat gefiö neina þá skýringu sem
orðið gæti til þess aö upplýsa málið.
Það næsta sem lögreglan geröi var
að búa sig undir að færa frú Fisher
tíðindin um að maður hennar heföi
særst lífshættulega er honum hefði
verið sýnt banatilræði.
Heim til Cheryl
Lögreglunni þótti viðurkvæmi-
legra að fá yfirmann Fishers, Budd
Carson forstjóra auglýsinagstofunn-
ar, til þess aö koma með heim til frú
Fisher en heimili hjónanna var í
norðurhluta Boston. Féllst Budd á
það og fór með í lögreglubílnum.
Ljós var í húsinu og allmargir bílar
fyrir framan það er mennirnir þrír
komu að því. Kona Fishers, Cheryl,
opnaði fyrir þeim. Hún var í sam-
kvæmiskjól og sítt ljóst hár hennar
féll niður yflr axlimar.
Hún leit undrandi á Budd Carson
og rannsóknarlögreglumennina tvo
sem með honum vom.
„Ég hélt það væri Swain,“ sagði
hún. „Hann er oft í seinna lagi. Er
nokkuö að?“
Budd Carson tók fast um handlegg
hennar og gekk með henni inn í for-
stofuna. Rannsóknarlögreglumenn-
irnir gengu inn á eftir þeim. Innan
úr stofunni heyrðist mannamál og
hlátur. Það leyndi sér ekki að yfir
stóð mannfagnaður.
Féll saman
„Þaö reyndi einhver að myrða
Swain í kvöld,“ sagði Carson. „En
sem betur fer tókst það ekki og..."
Lengra komst hann ekki því Cheryl
féll nú grátandi saman. Og það var
ekki fyrr en Carson hafði tekist að
sannfæra hana um aö sennilega væri
Swain ekki í lífshættu að hún jafnaði
sig nokkuð og þáöi boð hans um að
koma með honum á sjúkrahúsið.
Fyrst sagðist hún þó verða að segja
gestunum hvað gerst hefði. Þetta
Lorna Carson.
væri fimm ára brúðkaupsafmælis-
dagur þeirra hjóna og hefðu þau ver-
ið búin að bjóða heim fólkinu sem
þama væri. Reyndar hefði hún búist
við því Swain kæmi þaö snemma
heim að þau gætu saman tekið á
móti gestunum. Hún hefði verið búin
aö bíða lengi en hefði litiö svo á að
hann væri seinn eins og svo oft áður
af því hann ætti það til að vera svo
utan við sig á stundum.
Löng aðgerð
Budd Carson sagði við Cheryl aö
hann skyldi ræða við gestina, nóg
væri álagið á hana samt. Og þar eð
hún vildi ekki fara á sjúkrahúsið í
samkvæmiskjól varð það úr að Car-
son skyldi fara inn til gestanna á
meðan hún færi upp á efri hæðina
og skipti um fót.
Gestimir, sem komnir voru til aö
samfagna Fishershjónunum á fimm
ára hjúskaparafmæhnu, urðu
felmtri slegnir er þeir heyrðu hvaö
Carson haföi að segja en hann skýröi
þeim frá því aö Swain hefði orðið
fyrir slysi. Aö segja allan sannleik-
ann fannst honum ekki koma til
greina eins og á stóð.
Klukkan tíu um kvöldið komu Car-
son, Cheryl og rannsóknarlögreglu-
mennimir á Saint Laurentssjúkra-
húsið. Þá tilkynnti hjúkrunarkona
þeim aö Swain lægi enn á skurðar-
borðinu og því gæti Cheryl farið
heim aftur. Henni yrði skýrt frá því
Swain Fisher.
hvemig manni hennar liöi um leiö
og aðgerðinni lyki.
En Cheryl vildi bíöa. Hún sagðist
vilja vera nærri Swain. Hún og Car-
son vom því látin taka sér sæti í bið-
stofu en á meðan tóku þrír varðmenn
sér stööu fyrir framan skurðstofuna.
Nærtveggja
tíma bið
Tíminn leið hægt að mati Cheryl
og Budds Carson þar sem þau sátu í
biðstofunni og biðu eftir því að fá
fregnir af aðgerðinni. Er klukkuna
vantaði stundarfjórðung í ellefu var
bið þeirra loks á enda. Þá var þeim
sagt að aðgerðin hefði tekist vel. Tek-
ist hefði að ná kúlunni úr baki Swa-
ins og myndi hann ná sér til fulls.
Fór Carson þá heim.
Ekki var þó bið Cheryl á enda. Hún
sagðist vilja fá að sjá mann sinn en
það var þó ekki fyrr en klukkan eitt
um nóttina að talið var rétt að leyfa
henni það. Einn skurðlæknanna,
Timon Kikoris, fór með henni inn í
sjúkrastofuna. Hann kveikti ljós yfir
rúminu og þá var sem Swain vakn-
aði af svæfingunni. Hann var enn
ekki búinn að fá málið en sýndist þó
mög órólegur og reyndi að lyfta
hægri handleggnum eins og hann
vildi benda á eitthvað en gat ekki
valdið honum svo hann féll aftur
máttlaus á rúmið.
Skothvellur
Kikoris læknir sneri sér þá við
því hann ætlaöi að segja konu hans,
Cheryl, að best væri fyrir þau að fara
því maður hennar væri enn ekki
búinn aö jafna sig það vel að hann
gæti rætt við hana.
Þá sá hann að hún hélt á skamm-
byssu.
Hann reyndi að ná til hennar og
taka um handlegg hennar en var of
langt frá til þess að komast aö henni
í tæka tíð. Allt í einu reið skot af
byssunni og lenti kúlan í brjósti
Swains sem rak upp hátt óp en var
svo örendur.
Kikoris náði byssunni nú auðveld-
lega úr hendi Cheryl því hún reyndi
ekki að beijast á móti. Og augnabliki
síðar komu varðmennimir þrír
hlaupandi inn í sjúkrastofuna.
Saga Cheryl
Cheryl Fisher var þegar í stað
flutt á lögreglustöð þar sem hún
gerði játningu sína. Þá skýrði hún frá
því að hún hefði myrt mann sinn
vegna afbrýðisemi og örvæntingar.
Þá um morguninn er hún hefði vakn-
að hefði hún fundið bréf frá honum
þar sem hann hefði sagst ætla að
sækja um skilnað við hana því hann
væri ástfanginn af annarri konu. En
Cheryl sagðist hafa verið gift tvívegis
áður og hefðu bæði hjónaböndin end-
að með skilnaði. Hún hefði þvi fyllst
sjúklegu hatri er hún hefði lesið það
sem í bréfi manns hennar stóð. Hún
hefði ekki séð að hún þyldi enn einn
skilnað og því hefði hún ákveðið að
myrða mann sinn.
Cheryl greindi síðan frá því að hún
hefði orðið sér úti um dökka hár-
kollu, setið fyrir manni sínum og
skotið hann. Því næst hefði hún hald-
ið heim til sín og undirbúið veisluna
sem hún hefði verið búin að ákveöa
að aflýsa ekki því hana hefði vantað
fiarvistarsönnun.
En Swain dó ekki eftir að Cheryl
skaut hann í bílageymslunni. Það
varö þó ekki til þess aö hún hætti
við fyrirætlan sína og því lét Swain
Fisher lífið í rúmi sínu á Saint Laur-
entssjúkrahúsinu á þennan óvenju-
lega hátt.
Konan sem Swain tók fram yfir
konuna sína var tíu árum yngri en
hann eða aðeins tuttugu og sjö ára.
Hún heitir Lora Carson og vann á
sömu auglýsingastofu og Swain.
Reyndar er hún dóttir Budds Car-
son, þess sem fór með rannsóknar-
lögreglumönnunum heim til Cheryl
Fisher til þess að færa henni tíðindin
um að reynt hefði verið að ráða mann
hennar af dögum.
Cheryl Fisher.