Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Side 34
46
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1989.
LífsstHI
Verðlag:
Tokyo trónir
á toppnum
Sólarhringurinn í Paris kostar 17.119 krónur.
í síðasta tölublaði Business Tra-
veller er birtur verðlisti yfir dagleg-
an kostnað vegna dvalar kaupsýslu-
manns í helstu iðnaðar- og fjármála-
borgum um allan heim.
í samantektinni er tekið mið af
kaupsýslumanni sem ferðast einn og
á eigin vegum. Gert er ráð fyrir að
viðkomandi búi í góðu herbergi á
fyrsta flokks hóteli og inn í verðið
er reiknaður kostnaður vegna matar,
leigubíla og þjónustugjalds auk þess
sem reiknað er með lítils háttar upp-
hæð í skemmtanir.
Þaö kemur sjálfsagt fáum á óvart
að Tokyo er langdýrasta borgin því
Dýrustu og ódýrustu
borgir heims
aupmh.
ló 16.589
ólmur 16.642
Öll verð miðast
við að dvalið sé
á hóteli í meðal-
verðflokki. Matur
og þjónusta er
innifalin í verði.
DVJRJ
Hærra en 10.000 kr.
□ Lægra en 10.000 kr.
hún hefur í langan tíma haft orð á
sér fyrir að vera dýr enda kostar
sólarhringurinn þar tæpar 22.000
krónur. Dvalarkostnaður í borgun-
um sem koma næst á eftir Tokyo,
New York, París, London og Stokk-
hólmi, er svipaður eða í kringum
17.000 krónur. íslenskir ferðalangar
ættu að hafa í huga hversu vel Túnis
kemur út í þessum verðsamanburði
þar kostar sólarhringurinn ekki
nema tæpar 5000 krónur. Túnis er
sá staður sem liggur einna næst ís-
landi af ódýrari stöðunum og því ef
til vill ekki svo vitlaust að skoða
þann ferðamöguleika nánar, fyrir þá
sem hyggja á ferðalög á næstunni.
-J.Mar
Flugleiðir:
TVö þúsund sæti
á tilboðsverði
Flugleiðir bjóða upp á 2000 sæti í
áætluarflugi á tilboðsveröi til Kaup-
mannahafnar og Lúxemborgar í
sumar. Sala á farmiðum er þegar
hafm og henni lýkur þann 8. apríl
næstkomandi.
Flugfar til Lúxemborgar kostar
samkvæmt tilboðinu 14.670 krónur
fyrir manninn og fyrir böm á aldrin-
um 2-11 ára kostar miðinn 9.830. Til
samanburðar má geta þess að súper-
apex á þessari leið kosar 20.520 krón-
ur.
Tilboðsverð til Kaupmannahafnar
kostar 16.900 en bamamiöi 11.320,
súper-apex miði á þeirri leið kostar
21.140 krónur.
Einu ferðaskilmálarnir eru þeir að
ferðin taki minnst viku en mest þijár
vikur. Ekki er nauðsynlegt að kaupa
flug og bO eða flug og sumarhús þó
það sé einnig í boði.
Ef bíll er tekinn á leigu í Kaup-
mannahöfn í tvær vikur kostar hann
24-25 þúsund krónur miðað við íjóra
í bíl.
í Lúxemborg kostar bíllinn fyrir
fjóra 17.429 krónur í tvær vikur. Þar
er einnig hægt að taka á leigu sumar-
hús í Biersdorf og kostar það í tvær
' I it’ u.chi ) I: [ 1.1 J VI,-1 nsií-
vikur, frá 1. apríl - 17. júní, 25 þús-
und krónur. Frá 17. júní - 5. ágúst
kostar húsið hins vegar 44.600 krón-
ur, í tvær vikur.
Tveggja vikna ferö, flug og bíll til
Kaupmannahafnar kostar því sam-
kvæmt þessu tilboði fyrir hjón með
tvö börn rúm 80 þúsund.
Sams konar ferð til Lúxemborgar
kostar um 65.500 krónur.
Ef fjölskyldan tekur á leigu sumar-
hús í Biersdorf í tvær vikur kostar
ferðin um 74.000 krónur á ódýrari
tímanum en tæpar 100 þúsund krón-
urádýraratímabilinu. -J.Mar
Veðrið kl. 12 á hádegi föstudag
Reykjavík 4'
amborg 13°
" Berlín 17°
Frankfurt14
París 18° (j(J Lúxemborg 19°
(J Vín 23°
Madrid 13
i>3 a’íí