Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1989, Blaðsíða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði. . .
Dr. Hook á Hótel íslandi
Tom Cruise
er gjörsamlega niöurbrotinn
maður þessa dagana vegna þess
aö endurteknar tilraunir hans og
eiginkonu hans, Mimi Rogers, til
þess aö eignast bam hafa ekki
borið árangur. Fréttir herma aö
þau hafi leitað til frjósemisfræð-
inga og í framhaldi af því hafi
Tom framkvæmt sérstakar æf-
ingar til þess aö auka líkurnar á
getnaöi.
Meðferðin hefur staöið í 10 mán-
uöi án árangurs. Tom er sagður
að niöurlotum kominn og segist
myndu gefa óskarsverðlaun fyrir
eigið bam.
Við minnum á íslenskt þjóðráð
sem segir að karlinn eigi að vera
í báðum sokkunum meðan at-
höfnin fer fram og síðan eigi kon-
an að standa á haus í 10 mínútur
að samfómm loknum.
CharlesBretaprins
hefur að sögn kunnugra neitað
að fara með Díönu, eiginkonu
sinni, í ferðalag til Bandaríkj-
anna. Ástæðan er sögð rík til-
hneiging Díönu til þess að stela
senuiuii þegar ljósmyndarar em
nálægt. Þess er skemmst að
minnast þegar hún vakti athygli
þegar mynda átti Charles í bún-
ingi Krókódíla Dundees, þegar
hjónin vom á ferð í Ástralíu.
Díana greip þá til þess ráðs að
toga upp um sig pilsið til þess að
tryggja að athygli viðstaddra
blaðaljósmyndara beindist að
henni en ekki prinsinum.
Ann-BrittJonsson
53 ára gömul amma í Bollnas í
Sviþjóð, varð steinhissa þegar
hún fór nýlega til læknis vegna
verkja í fótum og fékk að vita um
leið að hún væri komin átta mán-
uði á leið.
Bameignin, en það varð 14 marka
dóttir, kom Ann-Britt og eigin-
manni hennar í opna skjöldu en
þau sjá nú fram á nýtt líf í ellinni
yfir ungbami og bleiuþvotti.
Krókur læknir og meðalabandið,
eða Dr. Hook and the Medicine Show
heimsóttu ísland í síðustu viku og
skemmtu gestum á Hótel íslandi.
Þangað þyrptust lúnir íslendingar í
leit að fortíðinni glæstu þegar aðeins
ein rás var í útvarpinu og Dr. Hook
dró sjóræningjafánann að húni á
toppi vinsældalistans með lög eins
og Sylvia’s Mother og Cover of the
Rolling Stone.
Doktorinn meðíeppinn komst með
hljómveit sinni á forsíðu Rolling
Stone og miklu víðar því lög þeirra
félaga hafa verið í efstu sætum vin-
sældalista víða um heim allar götur
síðan um 1972.
íslendingar virtust vera vel með á
nótunum og fjölmenntu á tónleikana
og sungu með á réttum stöðum og
klöppuðu í takt og hegðuðu sér eins
og sönnum aðdáendum sæmir.
Æstur aðdáandi tekur undir með Dr. Hook sjálfum í laginu Sylvia’s Mother.
DV-mynd GVA
,Og allir saman nú“ - Dr. Hook sameinar raddir áhorfenda í viðlaginu.
DV-mynd GVA
Doktorinn fær koss frá kvenkyns aðdáanda.
DV-mynd GVA
Verðlaunahafar í
dorgveiðikeppni
pyrir skömmu voru afhent verðlaun fyrir dorgveiðikeppnina sem haldin var
í Hvammsvík i Kjós um páskana.
Á myndinni sjást Ólafur Skúlason framkvæmdastjóri Laxalóns, Oddur Ólafs-
son sem hlaut fyrstu verðlaun, Jón Þ. Jónsson sem hlaut önnur verðlaun,
Leonid Vakhtínl sem hlaut þau þriðju og síðan Aðalsteinn Pétursson i Veiði-
von. Mynd: G.Bender
Utanríkisráöherrar þinga
Utanríkisráðherrar Norðurland- Margt bar á góma á þessum fundi þjóða á norðurhveh viö áróðurssam- væri að vænta stuðnings frá öðrum
anna hittust í Færeyjum á dögunum sem haldinn er annað hvert ár. Meö- tök Grænfriðunga. Lét Jón Baldvin Norðurlöndum við málstað íslands í
til þess að bera saman bækur sínar. alannarsvarrættumbaráttujaðar- þau orð falla í viðtölum ytra að vart því erfiða máli.
Frá vinstri: Björn Dagbjartsson, forstöðumaður þróunarsviðs Norðurlanda-
ráðs, Jóh Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra íslands, Helgi Ágústs-
son, fulitrúi í utanríkisráðuneyti, og Uffe Elleman Jensen, utanríkisráðhera
Danmerkur. DV-mynd
Uffe Elleman Jensen bauð til hófs i Kirkjubæ sem er rúmlega 900 ára gam-
alt timburhús í Færeyjum og eitt hið elsta sinnar tegundar í heiminum.
DV-mynd