Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1989, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 5. APRIL 1989.
Fréttir
Kjaradeila BHMR:
Verkfall hefst á morgun
takist samningar ekki
sáttasemjari boöar deiluaöila til fundar í dag
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari hefur boðað fulltrúa samn-
ingaaðila BHMR og ríkisins til fund-
ar síðdegis í dag. Það er skylda sátta-
semjara að boða til þessa fundar
vegna þess að takist samningar ekki
fyrir miðnætti kemur til boðaðs
verkfalls 11 félaga innan BHMR á
morgun. Þar á meðal er Hið íslenska
kennarafélag. Verkfall þess snertir
nær alla skóla landsins. állt frá
barnaskólum og upp úr. Harðast
kemur verkfallið niður á framhalds-
skólunum.
Samkvæmt lögum frá 1976 um
verkfall opinberra starfsmanna var
sáttasemjara skylt að bera fram
sáttatillögu 10 dögum eftir að verk-
fall hófst. Nú hefur þessum lögum
verið breytt á þann veg að það sama
gildir um verkfall opinberra starfs-
manna og annarra, sáttasemjari
ræður hvort og hvenær hann ber
fram sáttatillögu. Hann getur hvort
heldur sem er borið fram það sem
kallað er innanhússtillaga eða tillaga
til að bera undir atkvæði í félögun-
um.
Beri sáttasemjari fram innanhúss-
tillögu eru það samninganefndir
deiluaðila sem greiða um hana at-
kvæði. Sé hún samþykkt af samn-
inganefnd, til aðjnynda BHMR, verð-
ur að bera hana upp í félögunum.
Sáttasemjari getur einnig borið fram
tillögu til atkvæðagreiðslu í félögun-
um og skiptir þá ekki máli þótt samn-
inganefndin sé henni andvíg.
Eins og fyrr segir er það alfarið
mat ríkissáttasemjara hvor leiðin er
fariníþessuefni. S.dór
Kjarasamningar
í gangi á þrennum
vígstöðvum
Kjarasamningar eru nú í gangi á
þremur vígstöðvum ef svo má að
orði komast. Ríkið er beinn aðili að
tveimur kjarasamningum, við
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
og Bandalag háskólamanna hjá rík-
inu. Síðan er það Alþýðusamband
íslands og Vinnuveitendasamband
íslands sem eru í samningum líka.
Hér fylgir með tafla sem sýnir hvaða
félög og sambönd það eru sem eiga í
þessum kjaradeilum sem nú standa
yfir.
I töflunni yfir félög innan BHMR,
eru talin upp þau félög sem boðað
hafa verkfall frá og með morgundeg-
inum og Dýralæknafélag íslands 11.
apríl, þau félög sem felldu í atkvæða-
greiöslu að fara í verkfall og loks þau
félög sem ekki létu fara fram at-
kvæðagreiðslu um hvort boðað
skyldi til verkfalls.
Engin önnur félög hafa enn boöað
til verkfalls.
S.dór
Verðmunur á skyndibitastöðum:
Mest 233 prósent munur
á hæsta og lægsta verði
Mestur verðmunur kom í ljós á
glasi af appelsínusafa þegar Verð-
lagsstofnun kannaði verð á 49
skyndibitastöðum. Dýrastur var
safinn á Café Skeifunni á 100 krónur
en ódýrastur á 30 krónur í Sunda-
kaffi. Munurinn er 233%.
Allt að 92% verðmunur var á heitri
samloku með osti og skinku. Kafíi-
húsið við Skemmuveg í Kópavogi var
með ódýrustu samlokuna á 130 krón-
ur en dýrust var hún á 250 krónur á
Súlnabergi á Akureyri.
Svipaöur verðmunur var á pítum,
hamborgurum og kjúklingabitum.
Skammtur af hrásalati kostaöi 40-95
krónur en það er 137% munur. 100%
munaði á kokkteilsósu sem kostaði
40-80 krónur skammturinn.
-Pá
Norræn ráðsteftia um vændi:
íslendingar meðal þátttakenda
Norræn ráðstefna um vændi verð-
ur haldin í Bergen í Noregi í lok þessa
mánaðar. Um 200 manns frá Norður-
löndunum munu taka þátt í ráðstefn-
unni, þar á meðal munu vera fulltrú-
ar frá íslandi.
Þetta er í fimmta skipti sem slík
ráðstefna er haldin. Fyrstu þrjár ráð-
stefnurnar beindu spjótum sínum að
konum sem stunduöu vændi og á
fjórðu ráðstefnunni var fjallað um
hlutverk mannsins í vændi. Á kom-
andi ráðstefnu verður leitast við að
skýra vændi út frá þjóðfélagslegu og
einstaklingssjónarhorni.
-hlh
Sænsk sofn kaupa
verk Tryggva
Tryggvi Ölafsson listmálari á tals-
verðri velgengni að fagna eins og
stendur.
Sýningar voru nýlega haldnar á
verkum hans bæði í Danmörku, þar
sem hann er búsettur, og í Svíþjóö,
og mæltust báöar vel fyrir.
Fyrir nokkrum dögum gerðust og
þau tíðindi að opinberir aðilar í Sví-
þjóð keyptu af Tryggva fimm verk,
grafik og teikningar, af sýningu hans
í Gautaborg.
Af þeim keypti Listasafn Gauta-
borgar þrjú, Listráð ríkisins eitt og
Þjóðlistasafnið (Nationalmuseum)
eitt.
„Ég er sérstaklega lukkulegur meö
það að vera kominn með verk inn í
Þjóölistasafniö þar sem er að finna
mörg helstu átrúnaðargoð mín í list-
inni, Goya, Daumier, Picasso og
Tryggvi Ólafsson.
fleiri,“ sagði Tryggvi er DV hafði
samband við hann í Kaupmanna-
höfn.
-ai.
Sandkom dv
Drulluflugvöllur
Flugsamgöng-
urtflHúsavík-
urhafaekki
vcrið nicð
traustastamóti
undanfarið.
Ástæðan mun
veramikilleðja
á flugbrautinni
sem gerirhana
aðailshcrjar
forarsvaði. Seg-
iríVíkurblað-
inu að sérfræðingar Flugmálastjórn-
ar hafi valið ofaníburð í völiinn sem
sé þeim eiginleikum búinn að um-
myndast í drullu í leysingum og
vatnsveðri. Þama hefur sérfræðing-
unum annaðhvort fipast allhrikalega
í jarðefhafræðinni eða haft hugboð
um hvað gerist milli eyrnanna á frjó-
um hugmyndasmiðum meðal Þing-
eyinga.
Heilsuræktar-
flugvöllur
NokkrirÞing-
eyingarmunu
horfa vouur
augum til bygg-
ingarmilli-
landaflugvallar
í Aðaldal sem
rctt gmti vi.ik-
bimðaefnahag
héraðsins við.
Hugmynda-
Mniðun.’imi
þingeyskur
mun þó hafa fundið aiman fiöt á flug-
vailarmálunum, ekki síst vænlegan i
ágóðasky ni ef ferðamenn leggja leið
sína norður. Iritum Víkurblaðið hafa
orðið:, ,Hugmyndin mun vera sú að
auglýsa Húsa víkurílugvöll upp sem
heilsuræktarflugvöll, eina flugvöll í
heími þar sem menn geta stundað hin
hollu leirböð, en leirbaðstofur munu
þykja hinn mesti lúxus víða um heim.
Hér er liins vegar hefll flugvöllur sem
gegnir þessu hlutverki eftir að snill-
ingarnir frá flugmálastjórn völdu of-
aníburðinnsem breytistf leirburð
við minnstu veörabrigði. “ Vatidinn
mun vera að finna nýtt flugvallar-
stæði er geti flutt leirbaðgesti í sæl-
una.
Fannfergi og
miðaldra menn
Fannfergivetr-
arins hefur
orðið mönnum
mjögaðum-
talsefnientki
meðeindæm-
um snjóþungur
vetur. l>aðer
oft reynt að
iýsaástandinu
meðþviað
■'t Kjaaöitlstu
mennmuni
vart annaö eins. Minni elstu manna
er misjafnt og minniö oft það fyrsta
sem bilar þegar ellin setur spor sín á
fólk. Því hafaþeir hjáVestfirska
fréttablaðinu kynnst. Þeir segja að
nú beri svo við að erfiðlega gangi að
flnna fólk sem man eftir annarri eins
tíð og veriö hefur í vetur. Hjá Eystra-
horni þeirra Hornfirðinga hefur maö-
ur greinilega geflst upp á að vitna í
elstu menn, sem ekkert muna eftir
ailt saman. Þar segir:, ,Þess raá og
geta að merrn á miðjum aldri muna
vartsvona mikla ofankomu...“
Útvarp Rót ákveð-
urverkfall
ÚtvarpRóthef-
ursentútdag-
skrártilkynn-
inguþarsem
sagterfráþví
aöþaufélög
BHMR.semséu
í verkfalli,
muniverða
meðfastaþætti
áúlvarpsstöð-
inni mcöan
verkfallið
stendur. Það er núgott ogblessað.
En það virðist sem Utvarp Rót hafi
meiri völd en Sandkornsritarí hafði
gert sér grein fyrir. Útvarp Rót hefur
ák veðið að félög BHMR séu í verk-
falli. Það hefur glcymst að spá í þetta
litla orð sem s vo margt getur oltíð
á, „ef'*. Hvorf: þessi tilkynning er send
út af hreinW rætni er ekki vitað.
Umsjón: Haukur t. Hauksson